Morgunblaðið - 15.09.1992, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1992
*
Iranir og
Tyrkir
gegnPKK
51 LÉST eftir átök aðskilnað-
arsinnaðra Kúrda og tyrk-
neskra öryggissveita í Hakkari-
héraði í suðausturhluta Tyrk-
lands á sunnudag. Nærri 4.500
manns hafa beðið bana síðan
Verkamannaflokkur Kúrda
(PKK) hóf baráttu árið 1984
fyrir sjálfstæðu kúrdísku ríki
er byggi á marxisma á þessum
slóðum. Íranir hafa lofað Tyrkj-
um aðstoð við að ráða niðurlög-
um uppreisnarmannanna, en
Ismet Sezgin innanríkisráð-
herra Tyrklands hitti Akbar
Rafsanjani íransforseta í Té-
heran í gær til að ræða aðgerð-
ir gegn PKK.
Tilraunir án
afláts í geim-
ferjunni
RANNSÓKNIR gengu vel um
borð í geimfeijunni Endeavor
á þriðja degi vikuleiðangurs
sem kostaður er að mestu af
japönskum stjórnvöldum.
Geimferðastofnun Bandaríkj-
anna (NASA) sagði að sjö
manna áhöfn ynni baki brotnu
eftir að tekist hefði að gera við
leiðslur í bræðsluofni sem not-
aður er við nokkrar af tilraun-
unum 43 sem ferðin snýst um.
Sem dæmi má nefna rannsókn-
ir á áhrifum geislunar á ávax-
taflugur og nýjar framleiðslu-
aðferðir rafeindabúnaðar.
Flughæð geimfeijunnar, 403
km, veitir tilraunastarfínu
gildi, þyngdarafl hefur þar eng-
in áhrif. Kostnaður við flugið
er nærri 600 milljónum dollara.
Sæfarinn
Bering graf-
inn aftur
JARÐNESKAR leifar danska
sæfarans Vitusar Berings
(1680-1741) voru grafnar í
annað sinn á Beringseyju á
sunnudag af dönskum forn-
leifafræðingum og yfírvöldum
staðarins. Fomleifafræðingar
fundu líkamsleifar Berings í
fyrra á eynni undan Kamt-
sjakaskaga í Austur-Síberíu.
Bering uppgötvaði sundið milli
Síberíu og Alaska sem seinna
var nefnt eftir honum.
Verkföll
fangavarða
breiðast út
FRANSKIR fangaverðir hlust-
uðu ekki á Pierre Beregovoy
forsætisráðherra þegar hann
sagði stjómvöld hafa meðtekið
óskir þeirra um aukið öryggi
og skoraði á þá að snúa aftur
til vinnu sinnar. Fangaverðir
hófu verkföll á laugardag, degi
eftir að vörður í Clairvaux-
fangelsinu fyrir stórbrotamenn
var drepinn í fangauppreisn.
Verkföllin ná til 145 fangelsa
af 182 sem í landinu em.
Dómsmálaráðuneytið segist
hafa rekið 40 verði og fleiri
sæti því sama ef þeir taki ekki
til við vinnu. Lið 3.000 lög-
reglumanna hefur verið sent til
að gæta fanga í 40 betrunar-
húsum. í landinu eru 18.000
fangaverðir og segist einn
þeirra sem starfa í Clairvaux
frekar vilja tóra án vinnu en
tefla sífellt í tvísýnu.
Tæland:
Lýðræðisöfl
ná völdum
Bangkok. Reuter.
FJÓRIR stjórnmálaflokkar, sem
unnu gegn herstjórninni í Tæ-
landi, hófu stjórnarmyndunarvið-
ræður í gær í kjölfar kosningasig-
urs síns um helgina. Fréttaskýr-
endur telja að velgengni lýðræðis-
flokkanna geti orðið til að ijúfa
vítahring kosninga, spillingar og
byltinga, sem hrjáð hefur landið í
meira en-hálfa öld.
Demókrataflokkur Chuans Leekpais
tvöfaldaði fylgi sitt og fékk flest
þingsæti, eða 79, í kosningunum á
sunnudag. Næststærsti flokkurinn,
Chart Thai, fékk 77 þingsæti, en
alls fengu flokkarnir flórir 185 af
360 sætum í fulltrúadeildinni, sem
er aðalvaldastofnun þingsins. Búist
er við að átta þingsæti nýs flokks,
Seritam, bætist við þingmannafjölda
fjórflokkanna.
Chuan Leekpai, sem er 54 ára
gamall, sagðist viss um að hægt yrði
að mynda stjórn. I utanríkismálum
mundi hann leggja aðaláhersluna á
efnahagsþróun. „Ég styð frelsi í við-
skiptum og vil stuðla að því að tæ-
lensk fyrirtæki verði samkeppnisfær
á heimsmarkaði."
Verð á verðbréfamörkuðum í Tæ-
landi hækkuðu um 2,5% á mánudags-
morgun og efnahagsráðunautur
Bangkok-banka sagði að nú væri
óvissutíminn á enda.
Reuter
Eftir hamfarir á Hawai
EYJAN Kauai á Hawai-klasanum einangraðist frá umheiminum á sunnudag eftir að fellibylur geystist
yfír hana. Fjórir létust og átta þúsund manns misstu heimili sín en tjón er talið nema yfír milljarði doll-
ara. Bandaríkjastjórn sendi þyrlur með hjálpargögn til eyjarskeggja og fjölda ferðamanna sem komust
ekki heim þar sem flugvöllurinn eyðilagðist. Kyndlar, rafhlöður, teppi og matur var efst á óskalista þeirra.
Myndin sýnir rústir heimilis í borginni Lihue.
ANC og stjórnvöld í Suður-Afríku
Viðræður við de Klerk og
Mandela í undirbúninri
Höfðaborg. Reuter.
Aðalsamningamenn stjórnvalda í Suður-Afríku og Afríska þjóðar-
ráðsins (ANC) hófust í gær handa um að undirbúa jarðveginn fyrir
leiðtogafund F.W. de Klerks forseta og Nelsons Mandela.
Rölf Meyer stjórnlagaráðherra og Þeir samþykktu á sunnudag að
Cyril Ramaphosa, aðálritari ANC, ' koma til undirbúningsviðræðna um
hittust á ótilteknum stað í nágrenni skilyrði ANC, þar á meðal að pólitísk-
Jóhannesarborgar, að því er embætt- ir fangar verði látnir lausir, bannað
ismenn beggja málsaðila sögðu. verði að bera öll hættuleg vopn á
Þýskaland
Flóttafólkinu forðað
Berlín. Reuter.
UM 80 flóttamenn voru fluttir í gær
hluta Þýskalands en hægrisinnaðir
í næstum viku.
Ekki var skýrt frá því hvert farið
var með fólkið, sem er frá Búlgaríu
og Rúmeníu, en það hefur setið und-
ir stöðugum árásum öfgamanna, sem
vilja reka flóttafólk frá Þýskalandi.
Um helgina kom til átaka milli öfga-
manna og Iögreglu í sjö bæjum og
af gistihúsi í Quedlinburg í austur-
öfgamenn höfðu þá setið um það
borgum í landinu og einnig var nokk-
uð um, að í odda skærist með hægri-
og vinstrisinnum. Búist er við, að
allt að hálf milljón manna frá þriðja
heiminum og Austur-Evrópu biðji um
landvistarleyfí í Þýskalandi á þessu
ári.
almannafæri og að komið verði í veg
fyrir árásir á stuðningsmenn ANC í
búðum farandverkamanna.
Talsmaður stjórnvalda, Izak Reti-
ef, sagði að Meyer mundi eingöngu
sinna þessum umræðum á mánudag
og þriðjudag og mundu þeir Ramap-
hosa hittast nokkrum sinnum báða
dagana. „Þetta tekur sinni tíma og
ég býst ekki við að þeir gefí út nein-
ar yfirlýsingar fyrr en þeir hafa kom-
ist að samkomulagi," sagði Retief,
„og við vonumst til að það verði í
vikunni."
Eftirlitsmenn Sameinuðu þjóð-
anna, átján að tölu, komu til Suður-
Afríku á sunnudag. Alls verða þeir
50 og lúta forystu Angela King frá
Jamaica. Hlutverk þeirra verður að
draga úr spennu í landinu og auka
þannig á líkur þess að nýbyijaðar
viðræður beri árangur.
Að sögn talsmanns ANC fer jarð-
arför þeirra, sem féllu í fjölda-
göngunni til Ciskei, fram á föstudag-
inn kemur í King Williamstown.
Spasskí kvartar und-
an eínbeitíngarskorti
Skákeinvígið í Sveti Stefan
Reuter
BOBBY Fischer hefur aftur
sótt í sig veðrið í skákeinvígi
þeirra Bórísar Spasskís í
strandbænum Sveti Stefan í
Svartfjallalandi. Hann vann átt-
undu skák einvígisins og hefur
þrjá vinninga en Spasskí tvo. A
blaðamannafundi í gær kallaði
Fischer bandaríska skáksam-
bandið Sovétsinnuð glæpasam-
tök. Spasskí sagði blaðamönn-
um að hann ætti erfitt með að
einbeita sér þegar Iiði á skák-
imar, eitthvað brysti eftir fimm
tíma.
Fischer dró ekki úr gífuryrðum
á öðrum blaðamannafundi þeirra
Glaðbeittur Fischer og Spasskí
í vanda eftir átta skákir.
Spasskís. „Ég á enga samleið með
Skáksambandi Bandaríkjanna, tel
það vera Sovétsinnað glæpafé-
lag,“ sagði Fischer. Hann þarf að
greiða 31% tekna sinna af ská-
keinvíginu við Adríahaf í skatta
í Bandaríkjunum, en sagðist ekki
hafa nokkur áform um það, hefði
ekki borgað tekjuskatt síðan 1976
og færi ekki að taka upp á því
núna.
Á blaðamannafundinum sagði
Spasskí að eftir fímm stunda tafl
færi einbeiting hans þverrandi.
Hann virtist eiga sigur vísan eftir
fjögurra tíma skák á sunnudag
en gerði mistök og tapaði. Það
vakti athygli að hann yfírgaf
sæti sitt 27 sinnum í sjöunda leik
en hann gerði lítið úr því, sagðist
hafa slæm nýru og hefði raunar
gengið bagalega á franska meist-
aramótinu í ár vegna þess.
Baráttu við
skæruliða
ekki lokið
I.ima. Reuter.
ALBERTO Fujimori Perúforseti
hvatti þjóð sína í gær til að fagna
ekki handtöku skæruliðaforingj-
ans Abimaels Guzmans um of,
baráttunni við skæruliða væri
ekki lokið og menn mættu ekki
sofna á verðinum ef uppræta ætti
glæpastarfsemi þeirra.
Guzman var handtekinn ásamt sjö
félögum í íbúð í suðurhluta Lima,
höfuðborg Perú, á laugardagskvöld.
í annarri íbúð voru sex skæruliða-
leiðtogar til viðbótar handteknir, en
talið er að í áhlaupi lögreglunnar
hafl öll miðstjórn Kommúnistaflokks
Perú, en það er hið opinbera heiti
samtaka Guzmans, verið handtekin.
Guzman er 57 ára og hefur farið
huldu höfði í 13 ár eða frá þeim tíma
er hann stofnaði skæruliðasamtök
maóista, Skínandi stígur, en auk
leiðtogahlutverksins var hann hug-
myndafræðingur þeirra. Auk hans
náðist næstæðsti leiðtogi Skínandi
stígs, Elena Iparraguirre.
Mikið af vopnum og skjölum fund-
ust í íbúðinni sem Guzman og félag-
ar hans földust í. Engin mótspyrna
var veitt við handtökuna.
Fujimori sagði að krafíst yrði
þyngstu refsingar yfír Guzman eða
fangelsisvistar til lífstíðar. Vegna
neyðarlaga sem sett voru í apríl
verður hann leiddur fyrir herrétt.
Búist er við að réttarhöldin taki
skamman tíma.