Morgunblaðið - 15.09.1992, Blaðsíða 31
seer ímw.STnw ,?r }?ijoAoui.Giír<í oioajísuuosíom
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1992
08
31
Stjómarandstaðan gagnrýn-
ír svæðisbundna mismunun
við álagningu vömgjalda
„TOLLAR á innflutning og útflutning, svo og gjöld sem hafa sam-
svarandi áhrif, eru bannaðir milli samningsaðila,“ segir í 10. gr.
samningsins um Evrópskt efnahagssvæði, EES. Friðrik Sophusson
fjármálaráðherra mælti í gær fyrir tveimur frumvörpum um vöru-
gjöld í stað tollgjalda. Hið fyrra er almennt um vörugjöld á iðnvarn-
ing. Sljómaranstaðan gagnrýndi að áhrifin verða að vörur frá EES-
svæðinu lækka um 3,5% í verði en hækka um 4,5% á vörum utan
svæðisins. Hið síðara er um vörugjald á ökutækjum og eldsneyti,
þar er ekki gerður mismunur eftir uppruna vörunnar.
Það kom fram í ræðu fjármála-
ráðherra þegar hann mælti fyrir
fyrra frumvarpinu um vörugjöld á
almennar iðnaðarvörur að þótt
EES-samningurinn bannaði tolla á
inn- og útflutning væri ekkert til
fyrirstöðu að í staðinn kæmi skatt-
heimta er fullnægði skilyrðum
samningsins um að innlenda skatta
mætti ekki leggja af meiri þunga á
framleiðsluvörur annarra samn-
ingsaðila en lögð væru á innlenda
framleiðslu.
Pjármálaráðherra gerði grein
fyrir því að tekjutapi ríkissjóðs
vegna lækkunar tolla á iðnaðarvör-
ur yrði mætt með viðbót við gild-
andi vörugjaldskerfi. Þegar á heild-
ina væri litið væru verðlagsáhrif
þessara breytinga hverfandi.
Reikna mætti með um 3,5% verð-
lækkun á vörur frá EES-svæðinu,
en um 4,5% hækkun á iðnaðarvörur
sem fluttar væru inn annars staðar
frá. Að jafnaði væri gert ráð fyrir
um 0,4% verðlækkun á verði inn-
fluttrar vöru. Tollar og vörugjöld á
þær vörur sem frumvarpið snerti
væru að jafnaði um 27% af cif-
verði þeirra. Þetta hlutfall var u.þ.b.
hið sama fyrir vörur frá EES-lönd-
unum og fyrir vörur frá öðrum lönd-
um. Með þeim breytingum sem
frumvarpið gerði ráð fyrir, yrðu
álögxir í heild um 0,5% lægri eða
að jafnaði um 26,5% En með tilliti
til svæða breytust þær hins vegar
verulega; yrðu að jafnaði um 22,8%
á vörur frá EES-löndunum en um
32,6% á vörur frá öðrum löndum.
Það kom einnig fram í ræðu fjár-
málaráðherra að til að uppfylla
kröfur EES-samningsins um sömu
álagningu á innlendar og innfluttar
vörur yrði að leggja vörugjald á
nokkrar nýjar tegundir innlendrar
framleiðslu. Þar bæri helst að nefna
hjólbarðasólningu og framleiðslu
tengivagna. Þá mundi vörugjald á
framleiðslu bílavarahluta og yfír-
bygginga bifreiða hækka.
Að endingu lagði framsögumað-
ur til að þessu máli yrði vísað til
efnahags- og viðskiptanefndar.
Halldór Ásgrímsson (F-Al)
sagði að með þessu frumvarpi væri
fjármálaráðherra að passa upp á
að ríkissjóður yrði ekki af tekjum
vegna EES. En það væri bara ekki
nóg að hugsa um ríkissjóðinn. Það
yrði ekki undan því vikist að spyija
eftir því hvað fjármálaráðherra og
ríkisstjórn áformaði til að jafna
samkeppnisaðstöðu íslenskra fyrir-
tækja gagnvart erlendum sam-
keppnisaðilum á EES. Ríkisstjórnin
gæti ekki ætlast til þess að Alþingi
afgreiddi EES-frumvörp á færi-
bandi án þess að gera grein fyrir
þessu höfuðmáli.
Evrópuvörum hampað
Jóhann Ársælsson (Ab-Vl)
saknaði þess að ráðherra hefði ekki
gert grein fyrir stefnu ríkisstjórnar-
innar í álagnmgu vörugjalda. Væri
það ígrunduð stefna ríkisstjórnar-
innar að aðlaga okkur að tollastefnu
EB? Jóhann var tvímælalaust þeirr-
ar skoðunar. Mismunun væri grein-
leg gagnvart innflutningi frá lönd-
um utan EES.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra 'dró enga dul á það að mis-
munandi viðhorf og sjónarmið væru
uppi varðandi gjaldtöku af innflutt-
um vörum. Færa mætti gild rök
fyrir sem mestu frjálsræði og að
ekki ætti að mismuna, en hins veg-.
ar væru einnig til þau mótrök að
halda ætti upp tollum, a.m.k. að
formi til, til þess að knýja á um
gagnkvæmt fijálsræði eða tolla-
lækkanir á okkar framleiðsluvörum.
Fjármálaráðherra taldi að hér hefði
verið farinn tillölulega eðlileg milli-
ieið. Hann vísaði því á bug að með
þeim breytingum sem frumvarpið
miðaði að væri verið að líkja eftir
og aðlagast ytri tollum EB.
Fjármálaráðherra og þingmenn
stjómarandstöðu skiptust áfram á
skoðunum, nokkuð gagnstæðum,
um þessi atriði og fleiri. Það tókst
að ljúka þessari umræðu en at-
kvæðagreiðslu var frestað. Auk
fyrrgreindra tóku lil máls Jóhannes-
Geir Sigurgeirsson (F-Ne) og Krist-
ín Ástgeirsdóttir (SK-Rv).
Jafnræði ökutækja
Fjármálaráðherra Friðrik Soph-
usson mælti þessu næst fyrir frum-
varpi um vörugjald af ökutækjum
og eldsneyti í stað tolla og sér-
Fnðrik Sophusson
stakra innflutningsgjalda. Hann
sagði að það hefði orðið að ráði að
flytja sérstakt frumvarp um vöru-
gjald af þessum vörum, m.a. vegna
þess að hér væru um að ræða stóra
og sértæka vöruflokka sem um
margt væru frábrugðnir almennri
iðnaðarvöru. Einnig féllu þessar
vörur illa að skilgreiningu gjald-
stofns sem notuð væri í vörugjalds-
lögum.
Fjármálaráðherra greindi frá því
að við samningu þessa frumvarps
hefði verið miðað við að gjaldtaka
af þeim vörum sem frumvarpið
tæki til, yrðu óbreytt bæði í heild
og gagnvart einstökum vörum og
að ekki yrði gerður mismunur á
gjaldtöku eftir því hvort varan væri
flutt inn frá EES-löndunum eða
annars staðar frá.
Fjármálaráðherra lagði til að
þessu máli yrði að lokinni umræðu
vísað til efnahags- og viðskipta-
nefndar. Ráðherra benti á nokkur
atriði sem væru til skoðunar. M.a.
að flokkunarkerfí það sem kæmi
fram í 3. grein frumvarpsins hefði
sætt verulegri gagnrýni, þess efnis
að stærð slagrýmis væri ónákvæm-
ur mælikvarði á vélarafl, og einnig
að flokkun eftir þyngd væri vafa'-
söm m.t.t. öryggisbúnaðar. Einnig
vildi hann að það kæmi fram að í
fjármálaráðuneytinu væru til at-
hugunar breytingar tillögur varð-
Jóhann Ársælsson
andi bifreiðar búnar sérútbúnaði til
flutninga á fötluðum.
Stjórnarandstæðingar inntu ráð-
herra eftir skýringum á því hvers
vegna ekki væri mismunaði í gjald-
töku af þessum vörum eins og gert
væri við gjaldtöku af almennum
iðnaðarvörum. Mátt glöggt skilja
að þeir teldu mestu um ráða öflug
hagsmunagæsla bifreiðainnflytj-
enda með umboð fyrir bifreiðar
framleiddar utan EES. Stjórnar-
andstæðingar tóku undir með fjár-
málaráðherra um að athuga flokk-
unarkerfi ökutæka. Þeir hvöttu til
þess að sérstaklega yrði horft til
umhverfis- og öryggisþátta, t.d.
hvort ekki væri athugað að gera
rafbílum hærra undir höfði. Fjár-
málaráðherra vísaði því á bug að
einhveijir „öflugir innflutningsaðil-
ar“ hefðu ráðið því hvernig þetta
frumvarp væri úr garði gert. Gjald-
taka af bifreiðum hefði löngum
reynst margslungið og erfítt mál
og hann talið réttast að sem minnst-
ar breytingar umfram það sem sam-
komulagið um EES útheimti. Fjár-
málaráðherra útlokaði ekki að
nefnd og fjármálaráðuneyti ynnu
að breytingum eftir því sem ástæða
þætti til.
Vegna þingflokksfunda sleit
Kristín Einarsdóttir 5. varaforseti
Alþingis þingfundi kl. 16 og frest-
aði umræðu.
Kirkjubygging á Víghólasvæðinu
Báðir hópar hvelja fólk til að
mæta á safnaðarfundinn í kvöld
HIÐ svokallað Kirkjubyggingarmál verður tekið fyrir á aðalsafnaðar-
fundi Digranessóknar í Iþróttahúsinu Digranesi í kvöld, þriðjudags-
kvöldið 15. september kl. 20.30. Birna Friðriksdóttir, fulltrúi meiri-
hluta í bæjarstjórn Kópavogs, segist hvetja fólk, sem beri hag kirkjunn-
ar fyrir brjósti, til að koma og veita kirkjunni stuðning sinn. Hún seg-
ir að farið verði yfir málið á fundinum. Gylfi Sveinsson, sóknarbarn
í Digranessöfnuði og félagi í Víghólasamtökunum, segir að safnaðar-
stjórn hafi aldrei talið sér skylt að leita álits safnaðarsystkina á því
sem hún hafi verið að gera. Því hafi deilan um kirkjubygginguna kom-
ið upp og þvi sé svo rik ástæða til að minna fólk á að mæta á fund-
inn. Hann leggur áherslu á að í deilunni sé verið að takast á um lýðræði.
Morgunblaðið/Ingvar
Eldsvoði rakinn til lampa
Eldur kom upp í mannlausri íbúð á efstu hæð háhýsis við Gaukshóla í
Reykjavík síðdegis á sunnudag. Talið er að kviknað hafí í út frá borð-
lampa. íbúi í húsinu fann reykjarlykt og sá reyk leggja frá íbúðinni, sem
var mannlaus, eins og fyrr sagði. Slökkviliðið var kvatt til og gekk því
greiðlega að slökkva eldinn, sem átti upgtök sín í borðlampa að talið var
og hafði læst sig í hægindastól og borð. Ibúðin skemmdist nokkuð af sóti
og reyk.
Eldur í veitingahúsi
TALSVERT tjón varð í eldsvoða í veitingahúsinu Café Jensen í versl-
unarmiðstöðinni við Þönglabakka í Breiðholti snemma í gærmorgun.
Tilkynning ura eldsvoðann barst til slökkviliðsins frá öryggisvörðum
Securitas. I sama mund og reykkafarar frá slökkviliðinu voru send-
ir inn í húsið gaus upp eldur í millivegg sem aðskilur veitingahúsið
og hárgreiðslustofu.
í samtali við Morgunblaðið lagði
Birna Friðriksdóttir ríka áherslu á
mikilvægi þess að safnaðarheimili
tengdist kirkjubyggingunni því hlut-
verk þess væri fyrst og fremst að
greiða fólki leið inn í kirkjuna. Enn-
fremur kvað hún mikilvægt að sjálf
byggingarlóðin styddi við bygging-
una og lét þess getið að blásið hefði
verið út að boðnar hefðu verið aðrar
lóðir. Formlega hefði einungis ein
lóðin verið boðin og hún tilheyrði nú
Hjallasókn. Skipulagsnefnd hefði
hins vegar mælt með annarri lóð við
íþróttahúsið árið 1984 en ekki hefði
þótt heppilegt að reisa þar kirkju þar
sem komið gæti að því að uppákom-
ur yrðu samtímis í húsunum en bíla-
stæði áttu að vera sameiginleg.
Þegar nýr meirihluti tók við höfðu
4 staðir komið til álita að sögn Bimu.
„Það var niður í Fossvogsdal, Kópa-
vogsdal, neðst í brekkunni Kópa-
vogsdalsmegin og á Víghólasvæðinu.
Við getum strax útilokað Kópavogsd-
al vegna þess að það er ekki í sókn-
inni. Brekkan neðan við hliðarveginn
er alveg á jaðri sóknarinnar, með
hálsinn á milli, og það er ekki heppi-
legt. Fossvogsdalurinn, í landi Lund-
ar, kemur í raun og veru ekki til
greina vegna þess að hann hefur
verið hugsaður sem útivistarsvæði
og um það svæði hafa verið miklar
deilur samanber Fossvogsbraut,"
sagði Bima og benti á að ef fram-
kvæmdir yrðu stöðvaðar nú yrði erf-
itt að benda á lóð sem kæmi til
greina. í beinu framhaldi lagði hún
áherslu á að óhlutdrægir aðilar sæju
ekkert því til fyrirstöðu að byggja
kirkju á fyrirhuguðu svæði við Víg-
hól og nefndi sérstaklega Náttúm-
vemdarráð, skipulagsstjórn ríkisins
og umhverfisráðherra.
Hún sagði útbreiddan misskilning
að bærinn borgaði kirkjubygginguna
og lagði áherslu á að það væri söfn-
uðurinn. Jafnframt vildi hún hvetja
allt fólk sem bæri hag kirlq'unnar
fyrir bijósti til að koma á safnaðar-
fundinn og veita kirkjunni stuðning
sinn.
Gylfí Sveinsson sagði að kirkjunni
hefðu verið boðnar 7 lóðir til þessa
en ekki hefði verið fallist á neina
þeirra af því alltaf hafí verið einblínt
á þessa einu og hún talin henta best.
„Það hefur aldrei verið tekin ákvörð-
un um það á aðalsafnaðarfundi hvort
einhver af hinum lóðunum væri við-
unandi eða ekki því sóknarnefnd
hefur alltaf tekið sér sjálfdæmi í öll-
um málum sem söfnuðinn varða.
Safnaðarstjóm hefur aldrei talið sér
skylt að leita álits safnaðarsystkina
á því sem hún hefur verið að gera á
hveijum tíma. Þess vegna er þessi
deila komin upp og því er svo rik
ástæða til að minna fólk á að mæta
vegna þess að það er verið að takast
á um það hvort fólkið á að fá að
ráða sér sjálft í þessu máli eða hvort
það ætlar að afsala sér öllu sínu til
sóknarnefndar. Það er verið að tak-
ast á um lýðræði,“ sagði Gylfi og
bætti við að sóknin væri ekki á flæði-
skeri stödd. „Við eigum helminginn
í Kópavogskirkju, sem stendur á svo-
kölluðum Borgum, og við höfum allt-
af notið góðs atlætis þar og höfum
engar áhyggjur af því að kirkjan þar
verði frá okkur tekin hvernig svo sem
þessi atkvæðagreiðsla fer. Við munu
halda áfram að eiga hana áfram eins
og hingað til,“ sagði hann.
Aðspurður um ástæðumar fyrir
því að fyrirhuguðu kirkjustæði hefði
verið mótmælt sagði Gylfí að áætlað
væri að kirkjan stæði að hluta til á
friðlýstu svæði, t.d. aðkeyrsla og
klukknaport. „Og svo á að byggja
kirkjuna sjálfa á útivistarsvæði sem
við viljum vernda fyrir okkur og
komandi kynslóðir. Við Kópavogsbú-
ar eigum mikið af góðu byggingar-
landi og okkur fínnst það ekki rök
í málinu að þurfa endilega að reisa
kirkju á svona stað. Og við sættum
okkur einfaldlega ekki við það, fyrst
að fá ekki að kjósa hvar við viljum
hafa kirkjuna okkar og í öðru lagi
að fá ekki að taka þátt í almennu
safnaðarstarfi eins og við höfum ósk-
að eftir og ekki fengið til þessa.“
Finnbogi Hallgrímsson öryggis-
vörður átti leið um Mjóddina þegar
hann fann reykjarlykt og sá síðan
reyk leggja út úr gluggum og loft-
ræstistokk hússins við Þöngla-
bakka. Hann sá að kviknað var í
milliveggnum. Taldi hann að það
hefði forðað stórtjóni að þetta
snemma varð vart við eldinn.
Veitingahússmegin við milli-
vegginn var fjöldi raftækja og er
samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins talið líklegt að upptök elds-
ins megi rekja til þeirra. Greiðlega
gekk að slökkva eldinn en mikið
tjón varð af eldi á veitingahúsinu
og nokkuð tjón á hárgreiðslustof-
unni, auk þess sem reykur barst
um verslanamiðstöðina og þurfti
slökkvilið að loftræsta húsið og
reyklosa Qölmörg fyrirtæki.
Eldsupptök eru til rannsóknar
hjá RLR.