Morgunblaðið - 15.09.1992, Síða 23

Morgunblaðið - 15.09.1992, Síða 23
 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1992 23 Vaxtalækkun þýska seðlabankans Til stuðnings við efna- hagslífið og Maastricht ^ Frankfurt, Brussel. Reuter. ÁKVÖRÐUN þýska seðlabankans um að lækka vextina hefur al- mennt verið fagnað og vonast er til, að hún hleypi nýju lífi í efnahagslífið í Þýskalandi og öðrum aðildarríkjum Evrópubanda- lagsins, EB. Þá er þess einnig vænst, að vaxtalækkunin geti dreg- ið úr vaxandi andstöðu almennings við Maastricht-samninginn um nánari samvinnu EB-ríkjanna. Á hinn bóginn gætir uggs um, að sjálfstæði þýska seðlabankans hafi orðið fyrir nokkrum hnekki, að hann hafi með öðrum orðum látið undan þrýstingnum í fyrsta sinn í sögu sinni. Það kom mjög á óvart þegar talsmaður þýska seðlabankans til- kynnti í gærmorgun, að almennir útlánavextir hefðu verið lækkaðir um hálft prósent, úr 8,75% í 8,25%, og millibankavextir um 0,25%, úr 9,75 í 9,50%, Var lækk- unin liður í víðtækari aðgerðum, sem háttsettir embættismenn í fjármálum EB-ríkjanna ákváðu um helgina, og fólu meðal annars í sér, að ítalska líran var í raun felld um sjö prósent. Hans Tiet- meyer, varaforseti seðlabankans, sagði, að bankastjórnin hefði ákveðið vaxtalækkunina án utan- aðkomandi þrýstings en í yfirlýs- ingu þýska verslunarráðsins er sagt fullum fetum, að hún hafi verið gerð til að hjálpa upp á efna- hagslífið í öðrum EB-ríkjum og á kostnað baráttunnar gegn verð- bólgu í Þýskalandi. „Kringumstæðurnar að þessu sinni eru mjög óvenjulegar og það segir sína sögu og vekur upp efa- semdir um sjálfstæði þýska seðla- bankans, að það voru stjórnmála- menn, sem sögðu frá vaxta- lækkuninni fyrirfram," sagði í yfirlýsingu þýska verslunarráðs- ins._ Ýmsir frammámenn í þýskri bankastarfsemi hafa gagnrýnt vaxtalækkunina og jafnvel sumir þeirra, sem voru andvígir síðustu vaxtahækkun. bankans. Finnast þeim aðstæðurnar grunsamlegar og óttast, að hann hafi sett ofan og geti ekki lengur verið sú fyrir- mynd að samevrópskum seðla- banka, sem um hefur verið talað. Aðrir fagna henni, til dæmis Nor- bert Walter, helsti hagfræðingur Deutsche Bank, en hann vill gera greinarmun á háum vöxtum og vöxtum, sem beinlínis virka kæf- andi á efnahagslífið. Hvað sem líður efnahagslegum röksemdum er alveg ljóst, að vaxtalækkunin í Þýskalandi er ekki síður gerð með tilliti til þjóð- aratkvæðagreiðslunnar um Ma- astricht-samninginn í Frakklandi nk. sunnudag. Vegna fyrri sögu hefur vaxandi veldi Þjóðveija í nýrri Evrópu vakið ugg með fólki í öðrum löndum og ekki síst í Frakklandi. Vaxtalækkunin á hins vegar að sýna, að Þjóðvetjar vilji ýmislegt á sig leggja fyrir sam- stöðuna en um leið hefur miklu meira verið lagt undir í þjóðarat- kvæðagreiðslunni í Frakklandi. Verði samningnum hafnað muni það hafa í för með sér mjög alvar- legar afleiðingar, gera að engu áætlanir um nánari samvinnu EB-ríkjanna í efnahagsmáium og valda verulegum óróa á gjaldeyr- ismörkuðunum. Búist er við, að á næstunni muni ýmis aðildarríki EB fara að dæmi Þjóðverja og lækka vextina í því skyni að koma meiri hreyf- ingu á efnahagslífið en nefna má, að hefði ekki komið til þessara aðgerða, sem ákveðnar voru um helgina, hefði ítalska ríkisstjórnin ekki átt annars kost en stórhækka vexti. Reuter Verðbréfasalar í Lundúnum kaupa bréf eftir að fréttist um vaxta- lækkun þýska seðlabankans í gær. Anthony Perkins með Diönu Scarwid í myndinni Pschycho III. Anthony Perkins látinn Los Angeles BANDARÍSKI kvikmyndaleikar- inn Anthony Perkins lést á laug- ardag af völdum eyðni. Hann er þekktastur fyrir túlkun sína á hinum geðsjúka mmóteleiganda Norman Bates í myndinni Pschycho sem Alfred Hitchcock gerði árið 1960. Perkins lést á heimili sínu og hjá honum voru eiginkonan Berinthia Berenson og synir þeirra Elvis og Osgood, 16 og 18 ára gamlir. I yfirlýsingu sem Perkins hafði samið segir meðal annars að ekki þurfi mikið til að sjá að vandi gamals leikara sé agnarsmár í samanburði við hörmungar mannfólksins. Hann telji að eyðni hafi verið ætlað að kenna fólki samúð, ást og skilning. VERÐLÆKKUN Gerðu raunhæfan samanburð á verði og gæðum. Accord er sérlega vandaður og vel heppnaður bíll jafnt að utan sem innan. Verð eftir lækkun: Accord EX með sjálfskiþtingu: 1.518.000,- Accord EXi með sjálfskiþtingu: 1.615.000,- Einkenni Civic eru fegurð og glæsileiki. Þetta er bíll sem þú mátt ekki láta framhjá þér fara. Nú býðst Civic á einstaklega hagkvæmum kjörum. Verð eftir lækkun: verði Civic 3dy 899 000 ra ra Civic 4dyra verði frá 78 000 Líttu við í Vatnagörðum 24 og kynntu þér góða bíla og greiðslukjör við allra hæfi. Tökum góða notaða bíla sem greiðslu upp í nýjan. 0) HONDA ÁRÉTTRI LÍNU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.