Morgunblaðið - 15.09.1992, Síða 33

Morgunblaðið - 15.09.1992, Síða 33
p(? MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1992 í úrslitaspyrnunni í flokki sérútbú- inna bíla, en mikil barátta var í öðrum flokkum. í opna flokknum hristi Jónas Karl Harðarson fram tímann 3,823 sekúndur og lagði Sverri Þór Einarsson í úrslitum, en báðir sýndu skemmtileg tilþrif og sandstrókarnir stóðu hátt á loft aftur úr bílum þeirra í 91 metra langri brautinni. Sverrir smíðaði fyrir skömmu nýtt keppnistæki og lofar það góðu fyrir næsta keppnis- tímabil með aukinni reynslu hans undir stýri á 700 hestafla grind- inni. Annað skemmtilegt keppnis- tæki setti svip á keppniná, sérsmíð- aður spymujeppi Hafliða Guðjóns- sonar, sem aðeins er afturdrifinn en keppti engu að síður í jeppa- flokki, en á árinu hafa nokkrir jeppamenn keppt með framdrifíð aftengt í jeppaflokknum. Bíll Haf- liða er aðeins rúm 1.700 kíló að þyngd og með 550 hestafla Chevro- let-vél, sem skilaði sigri og nýju íslandsmeti í flokki útbúinna jeppa. „Þetta er búið að taka sumarið, að stilla öllu vel saman, .enda bíllinn nýsmíði og ég efast ekki um að hægt sé að ná enn betri tímum á honum að ári. Ég hef verið að lenda í smávægilegum bilunum, sem hafa komið sér illa, m.a. fór vélin ekki í gang í úrslitaspyrnu við Áma Kópsson á Akureyri, en Ámi tryggði sér titilinn í flokknum," sagði Hafliði. „Jeppinn er svona léttur vegna þess að grindin er smíðuð úr sér- staklega léttu prófílstáli sem heitir „króm-moly“. Það er helmingi létt- ara en hefðbundið prófílstál. Svo er yfírbyggingin úr léttu áli, en Sæco í Kópavogi smíðaði bílinn í vetur á meðan við bræðumir hönn- uðum tækið ásamt Bjarna Bjama- syni. Kvartmílingurinn Hlöðver Gunnarsson raðaði síðan saman 12 ára gamalli vél, sem hefur skilað sínu. Ég var staðráðin í að slá ís- landsmetið í keppninni núna og ætla að bæta það á næsta keppnis- tímabili. Það var virkilega gaman að enda árið með sigri og nítró-bún- aðurinn skilaði sér vel. Vélin tók hressilega á og þegar startið heppn- aðist æddi bíllinn beint af augum og stýrði vel,“ sagði Hafliði. í flokki óbreyttra fólksbíla vann Tryggvi Óli Þorfínnsson Helga Að- alsteinsson í lokaspyrnunni og náði í titil um leið. ’Kristján Viktorsson vann Guðmund Siguijónsson í flokki kross-mótorhjóla, en Jón Kr. Gunnarsson vann flokk venjulegra mótorhjóla og tryggði sér um leið meistaratitilinn í flokknum. Með sigri í flokki götujéþpa tryggði Þor- 33 steinn Einarsson sér titilinn og fær gott veganesti í lokamótið í torfæru um næstu helgi. Benedikt B. Svav- arsson vann í flokki útbúinna fólks- bíla, lagði Gunnlaug Emilsson í úrslitum, en sá síðastnefndi tryggði sér titilinn með silfurverðlaunum. Benedikt Valtýsson nældi í titil í opnum flokki, þótt vélsleði hans réð ekki við Jónas Karl og Sverri, sem voru í miklum ham í keppninni, og varð Benedikt að sætta sig við þriðja sætið en fagnaði titlinum engu að síður, þótt hann sporð- reisti vélsleðann í einni ferðinni og þeyttist af baki fáknum vélknúna. G.R. R AÐ AUGL YSINGAR ATVINNU AUGLÝSINí 3AR \ Trésmiðir Trésmiði vantar nú þegar í mótauppslátt. Upplýsingar í símum 54844, 985-28144 og 985-28244. Fiarðarmót hf J BYGGINGAVERKTAKAR Kátakot Okkur vantar fóstru eða annan starfskraft til starfa við lítinn, skemmtilegan leikskóla á Kjalarnesi. Um er að ræða starf leikskóla- stjóra og deildarstarf. Umsóknarfrestur er til kl. 19.00 fimmtudag- inn 17. september 1992. Upplýsingar gefa Guðfinna í síma 667607, Hulda í síma 666004 og undirritaður í síma 666076. Sveitarstjóri Kjalarneshrepps. Lögregluþjónn Lögregluþjón vantar til afleysinga til að gegna stöðu aðstoðarvarðstjóra í lögreglunni í Snæfellsness- og Hnappadalssýslu, með aðsetur í Grundarfirði, frá og með 1. október 1992. Umsóknarfrestur rennur út 22. september 1992. Nánari upplýsingar veitir undirritaður. Sýslumaðurinn í Stykkishólmi, 14. september 1992. ÓlafurK. Ólafsson. Einkaritari Starf einkaritara forstjóra opinberrar stofn- unar er laust til umsóknar. Stúdentsmenntun eða önnur sambærileg menntun og/eða starfsreynsla er æskileg ásamt góðu valdi á ensku og Norðurlanda- málum. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. desember 1992. Umsóknir um starfið, ásamt greinargóðum upplýsingum um menntun og fyrri störf, skulu berast til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 30. september nk. merktar: „Einkaritari forstjóra - 12974“. Launakjör verða ákveðin samkvæmt gildandi kjarasamningum ríkisstarfsmanna. TIL SÖLU Bílskúrtil sölu Bílskúr, 23 fm, við Furugranda til sölu. . Upplýsingar í síma 675452. TRYGGINGASTOFNUN Kto RÍKISINS Styrkirtil bifreiðakaupa Tryggingastofnun ríkisins veitir hreyfihöml- uðum styrki til bifreiðakaupa.- Nauðsyn bifreiðar vegna hreyfihömlunar skal vera ótvíræð. Umsóknareyðublöð vegna úthlutunar 1993 fást hjá afgreiðsludeild og upplýsingadeild Tryggingastofnunar ríkisins, Laugavegi 114, og hjá umboðsmönnum hennar um land allt. Umsóknarfrestur er til 15. október. Tryggingastofnun ríkisins. Tónlistarhátíð ungra, norrænna einleikara verður haldin í Stokkhólmi 22.-25. septem- ber 1993. íslenskum hljóðfæraleikara eða söngvara gefst kostur á að koma fram á hátíðinni, bæði á sjálfstæðum tónleikum og með sin- fóníuhljómsveit. Umsóknareyðublöð um þátttöku í undan- keppni eru afhent á skrifstofu Tónlistarskól- ans í Reykjavík. Þar eru jafnframt gefnar nánari upplýsingar um keppnina. Hámarks- aldur er 25 ár fyrir hljóðfæraleikara og 30 ár fyrir söngvara. Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 1992. Tónlistarskólinn í Reykjavík, Skipholti 33, 105 Reykjavík, sími 30625. Frá Tónlistarskólanum í Reykjavík Skólinn verður settur í Háteigskirkju fimmtu- daginn 17. september kl. 17.00. Skólastjóri. Enskunám Er ekki rétt að bæta við enskukunnáttuna? Skólinn, English 2000, School of English, í Bournemouth, býður þig yelkominn til náms. Upplýsingar gefur Páll G. Björnsson, sími 98-75888, heimasími 98-75889. Hugræktarnámskeið Kennd er hugrækt og hugleiðing, athyglisæf- ingar og hvíldariðkun. Veittar leiðbeiningar um iðkun yoga (sakti- eða máttaryoga).~ Innritun og upplýsingar í síma 50166 á kvöld- in og um helgar. Kristján Fr. Guðmundsson. Þýskunámskeið Germaniu Námskeiðin fyrir byrjendur og lengra komna á öllum stigum eru að hefjast. Innritað verður á kynningarfundi í Lögbergi, Háskóla íslands, stofu 102, fimmtudaginn 17. september kl. 20.30. Upplýsingar eru einnig veittar í síma 10705 kl. 10.30-12.30 eða kl. 17-19. Geymið auglýsinguna. Langar þig að starfa f hjálparsveit? Hjálparsveit skáta, Garðabæ, býður þeim, sem áhuga hafa á hjálparsveitastarfi, á kynn- ingarfund í húsnæði sveitarinnar við Bæjar- braut fimmtudaginn 17. september nk. kl. 20.00. Við leitum að fólki frá 17 ára aldri, sem áhuga hefur á björgunarstörfum, námskeiðum og ferðalögum tengdum þeim. Á fundinum mun- um við kynna störf okkar í máli og myndum. Láttu sjá þig! RER RAFMAGNSEFTIRLIT RÍKISIKS Þýðing á stöðlum Rafmagnseftirlit ríkisins hefur ákveðið í sam- ráði við Staðlaráð íslands að láta þýða IEC/ CENELEC staðla, sem fjalla um raflagnir í byggingum. Staðlarnir eru á ensku. Þeir, sem hafa áhuga á að gera tilboð í verk- ið, vinsamlegast hafið samband við Raf- magnseftirlit ríkisins, Síðumúla 13, sími 814133, sem fyrst til að fá nánari upplýs- ingar. UTIVIST ferðir og haustlitirnir i hámarki. Sameiginleg grillveisla og kvöld- vaka á laugardagskvöld. Farar- stjórar: Ingibjörg S. Ásgeirsdótt- ir og Sigurður Einarsson. Miðasala á skrifstofu Útivistar. Opiö frá 12-17. Útivist. I.O.O.F. Ob.1 = 1739158'A = Hallveigarstig 1 • simi 614330 Dagsferðir þriðjudaginn 15. september Um næstu helgi 18.-20. sept. haustlita- og grillveisluferð í Bása. Þá er komið að einni vinsælustu ferð ársins. Fjölbreyttar göngu- I.O.O.F. Rb. 4 = 1419158 -

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.