Morgunblaðið - 15.09.1992, Side 46

Morgunblaðið - 15.09.1992, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER 1992 Þing norrænna umhverfisvemdarsamtaka STÆRRI ÞYNNRI HANDHÆGARI MEIRI UPPLÝSINGAR Morgunblaðið/Kriatinn Á miðri mynd má sjá Svanhildi Skaftadóttur framkvæmdastjóra Landverndar, þar sem hún greinir frá niðurstöðum fundarins. Á hægri hönd hennar situr varaformaður Landverndar Gísli Júlíusson. Fundur umhverfisráðherra N orðurlandanna Umhverfismál verði forgangsverkefni í norrænu samstarfi Umhverfisráðherrar Norðurlandanna samþykktu á fundi sem þeir héldu í Kirkenes í Noregi 2.-5. september að umhverfismál skuli vera forgangsverkefni í norrænu samstarfi í samræmi við niðurstöðu fundar forsætisráðherra Norðurlandanna sem haldinn var í ágúst. Á fundi sínum í Kirkenes lögðu umhverfisráðherrarn- ir áherslu á að efla enn fremur samstarf á sviði umhverfismála, og einnig ræddu þeir forgangsröðun verkefna í þeim málaflokki. í fréttatilkynningu frá umhverf- isráðuneytinu kemur fram að um- hverfísráðherrar Norðurlandanna vilja einfalda samstarfið og ná betri árangri á sviði umhverfismála með því að fækka samstarfsnefnd- um, en á undanfömum átta árum hafa verið í gangi yfír 80 verkefni hjá 12 fastanefndum og fjórum vinnunefndum. Þetta hafi skapað skort á yfirsýn og í nokkrum tilfell- um hefðu verkefni skarast. Leggja ráðherrarnir til að nefndirnar verði færri og vinna þeirra árangursrík- ari, og megináherslu beri að leggja á verndun andrúmsloftsins og hafsins, hreinni tækni, þróun efna- notkunar, náttúruvemd og um- hverfisvöktun. Ráðherrarnir telja að flest um- hverfisvandamál megi leysa með aukinni alþjóðlegri samvinnu og að Norðurlöndin þurfi að leggja aukna áherslu á að leysa vanda- mál á nágrannasvæðum, svo sem á Kólaskaga. Á fundinum var fjall- að um mengun frá nikkelvinnslu í Rússlandi og vandamál er tengjast kjamorkuverum og losun geisla- virks úrgangs í Barentshafið. Nor- rænu ráðherrarnir áttu fund með V. Danilov Daniljan, umhverfisráð- herra Rússlands, og í boði hans skoðuðu þeir nikkelbræðslu og fóru um Kólaskaga og Múrmansk- svæðið. Á fundinum með rúss- neska ráðherranum var fjallað um vandamál vegna mengunar á og í grennd við Kólaskaga og vegna losunar geislavirks úrgangs í Bar- entshaf og Karahaf. Eiður Guðna- son umhverfisráðherra lýsti áhuggjum íslendinga vegna losun- ar geislavirks úrgangs í sjó og vegna hugsanlegra tilrauna- sprenginga á Novaja Zemlja, og þá fagnaði hann því að Rússar tækju nú í fyrsta skipti þátt í umræðum um Óslóar- og Parísar- samningana um varnir gegn meng- un sjávar í Norðaustur-Atlants- hafi. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Sett hafa verið niður blóm og tré við sorpeyðingarstöðina sem verið er að byggja í Eyjum. Vestmannaeyjar Bygging sorpeyðing- arstöðvar gengur vel Vestmannaeyjum. BYGGING húss sorpeyðingarstöðvar í Vestmannaeyjum er vel á veg komin og eru menn frá Norsk Hydro, framleiðanda stöðvarinnar, væntanlegir til Eyja á næstu dögum til að hefjast handa við uppsetn- ingu tækja stöðvarinnar. Jafnframt byggingu húss stöðv- arinnar er unnið að snyrtingu um- hverfis hana. Búið er að setja níður talsvert af trjám og blómum og hefur garðyrkjufólk Vestmanna- eyjabæjar unnið að því verki að undanfömu. Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri sagði að með þessu vildu bæjaryfírvöld leggja sitt af mörkum til að svæðið umhverfis sorpeyðing- arstöðina yrði sem snyrtilegast. Hann sagði að fljótlega hæfist malbikun svæðisins við sorpeyðing- arstöðina þannig að þegar stöðin yrði tekin í notkun í lok nóvember næstkomandi ætti allt umhverfí hennar að vera snyrtilegt og fínt. Grímur Samvinna Norðurland- anna er afar nauðsynleg ÁRLEGT þing norrænu umhverfisverndarsamtakanna var að þessu sinni haldið á Islandi dagana 28. ágúst til 1. september. Þátttakend- ur voru um tuttugu frá 8 aðildarfélögum en þar af voru fulltrúar tveggja samtaka frá Finnlandi. Á þessum fundum er jafnan rædd þau umhverfismál sem brýnust eru hverju sinni og í þetta skipti voru megin viðfangsefni ráðstefnunnar tvö. Annars vegar var rædd stefna norrænna stjómvalda í málum er varða skaðleg eitur- efni og hins vegar norræn samvinna í umhverfismálum í yósi EES-samningsins. Það er samdóma álit allra ráð- stefnugesta að ef rödd Norður- landa eigi að heyrast í umhverfis- málum og mark verði tekið á henni verði þjóðir í norðri að kom fram sameiginlega. Það er ennfremur áréttað að náttúruvemd er ekki einasta landvernd, vernd skóga og gróðurs, heldur einnig hafvernd og þá sérstaklega verndun sjávar- dýra. Loks er það álit þátttakend- anna að ekki dugi einungis að þrýsta á stjómvöld vegna setning- ar laga og reglugerða heldur verði almenningur að breyta hugarfari sínu og hugsa um og virða náttúr- una allt í kringum sig. Eitt þeirra mála sem hæst bar á fundinum var umræðan um áhrif EES-samnings á samvinnu Norð- urlanda í umhverfismálum. Fund- urinn ályktaði af því tilefni og sendi öllum forsætis- og umhverfisráð- herrum Norðurlanda afrit af þeirri ályktun. Ályktunin byggir í grunn- atriðum á þeirri kröfu að Norður- lönd standi saman þegar í húfi er náttúruvemdun á norðurslóðum. Norrænu umhverfisverndarsam- tökin krefjast þess einnig að þeir fái áheymarfulltrúa í umhverfis- málanefnd EFTA. Einnig var tekin fyrir umræða um skaðleg eiturefni og jafnframt aðgerðir stjórnvalda þar að lút- andi. Ráðstefnugestir voru sam- mála um að tvær leiðir væru fær- an. Hin fyrri er að þrýsta á stjórn- völd og krefjast harðra aðhaldsað- gerða svo haldið verði aftur af eit- urefnum í andrúmslofti jarðar. í annan stað var talið vænlegt að beita forvarnarstarfi og ná beint til almennings sem meðal annars gæti gerst í gegnum íjölmiðla. Ýmis smærri mál vom brotin til mergjar. Fundurinn samþykkti meðal annars að hefja skyldi sam- vinnu umhverfisverndarsamtaka á norðvestursvæðinu, það er á ís- landi, Færeyjum og Grænlandi. í samþykktinni segir að sérstök áhersla skuli lögð á að varðveita fjölbrejAileika lífríkis en gera veiði- mannaþjóðfélögum um leið kleyft að lifa í sátt við umhverfi sitt. Þá var samþykkt áskorun á fínnsku stjórnina að hætta við byggingu kjarnorkuvers þar í landi, en það yrði fimmta sinnar tegundar í landinu. Á fundinum voru líka dregnar saman niðurstöð- ur Ríó-ráðstefnunnar og þær ræddar með hagsmuni Norður- landa í huga. Loks voru á fundinum rædd ýmis staðbundin vandamál í umhverfisvemd. Næsti fundur Norrænu umhverfisverndarsam- takanna verður haldinn í Stokk- hólmi að ári.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.