Morgunblaðið - 04.12.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.12.1992, Blaðsíða 2
MORGUNBLÁÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1992 Könnun Félagsvísindastofnunar Litlar breyting- ar á afstöðunni til stj órnarinnar RÚMUR meirihluti, eða 51,5% svarenda í skoðanakönnun, sem Félags- vísindastofnun hefur gert fyrir Morgunblaðið, segist andvígur ríkis- stjórninni. Stuðningsmenn stjómarinnar eru 28,5% og 19% segjast vera hlutlaus. Könnunin var gerð 25.-30. nóvember. Hér um bil engin breyting hefur orðið á afstöðu til ríkisstjórnarinnar frá síðustu könnun Félagsvísindastofnunar. Ríkisstjómin hafði stuðning 28,1% svarenda í seinustu könnun Félags- visindastofnunar í júní, en andstæð- ingar hennar voru 52,8% og hlutlaus- ir 19%. Munurinn á þessum niður- stöðum og fylgistölum í könnuninni, sem gerð var í nóvemberlok, er ekki tölfræðilega marktækur. í könnuninni var einnig spurt um fylgi við stjómmálaflokka. Sé afstaða til ríkisstjómarinnar greind eftir flokkum, kemur i ljós að yfirgnæf- andi meirihluti stuðningsmanna allra stjómarandstöðuflokkanna er stjóm- inni andvígur. Um 80% sjálfstæðis- manna eru jafnframt stuðningsmenn stjómarinnar. Hins vegar eru 28,4% Konu ógnað með hnífi HÓPUR lögreglumanna leitaði karlmanns um tvítugt við íþrótta- hús Snælandsskóla og í Fossvogs- dal upp úr kl. 23 í gærkvöldi. Maðurinn ógnaði konu með hnífi við inngang íþróttahússins. Konan, sem er starfsmaður íþróttahússins, var að koma út úr húsinu þegar maðurinn réðst að henni og otaði að henni hnífnum. Hún komst inn í húsið aftur án þess að maðurinn gerði henni mein. Hún hringdi á lögreglu og bað um aðstoð. Þegar lögreglumenn úr Kópavogi komu á staðinn var maðurinn horfinn á braut. Seinna var kallað á aðstoð Reykjavíkurlögreglunnar við leitina. stuðningsmanna Alþýðuflokksins stjórninni andvíg og ekki nema 58,2% fylgismenn hennar. Könnun Félagsvísindastofnunar náði til 1.500 manna úrtaks af öllu landinu, á aldrinum 18-75 ára. Nettósvörun var 73%. Sjá einnig blaðsíðu 22. Ríkissjóður endurgreiðir ósóttan skyldusparnað af hátekjum Um 2.700 manns ei samtals 73 miUjónum króná FJÖLDI íslendinga er þessa dagana að fá ávísanir frá ríkissjóði í pósti og er þar um að ræða endurgreiðslur á skyldusparnaði af hátekjum sem lagður var á á árunum 1975 og 1976 en viðkomandi höfðu ekki hirt um að leysa til sín aftur. Eigendur skyldusparnaðarskirteina sem gefin voru út á sínum tíma gátu leyst þau út á árunum 1978 og 1979 en margir þeirra hirtu aldrei um að sækja skirteini sín eða að leysa út inneignir sínar og hefur andvirði þeirra því legið óhreyft hjá ríkisfé- hirði. Er alls um að ræða um 2.700 manns sem eru skráðir fyrir skyldu- sparnaðarskírteinum og er saman- lögð upphæð sem greiða á út nú 73 milljónir króna. Meðalupphæð ávís- ana er 27 þúsund krónur en upphæð- imar eru þó mjög mismunandi í ein- stökum tilvikum, flestar nokkuð lægri en dæmi eru um verulega hærri upphæðir að sögn Sigurðar Þorkelssonar ríkisféhirðis. Umræddur skylduspamaður var lagður á háar tekjur á árunum 1975 og 1976 og svo aftur 1978 en á því ári var spamaðurinn lagður inn á bankareikninga. Upphæðimar voru bundnar í þrjú ár en síðan gátu eig- endur innleyst skírteini sín á árunum 1978 og 1979. Voru eigendur skyldu- sparnaðarins margsinnis hvattir til að sækja skyldusparnaðarskírteini sín til Gjaldheimtunnar en sumir hirtu ekki um það, að sögn Sigurð- ar. Skírteinin báru vexti og verðbæt- ur í 15 ár eða til 1. nóvember 1990 og til 1. nóvember 1991. Fyrir ári var tekin ákvörðun um að greiða út andvirði skírteinanri þar sem þau voru þá hætt að ber ávöxtun. „Það hefur tekið tíma hafa upp á eigendunum, marg hveijir eru látnir og sumir hafa flui úr landi og við höfum ekki fundið heimilisfang þeirra allra. Þetta sem við erum að senda út núna fer að- eins til þeirra sem við höfum haft upp á. Næsta skref er að hafa up| á dánarbúum og er ætlunin að skiptaráðendur til að koma því t| skila,“ sagði Sigurður. Lögreglan rann á lyktina Lögreglumenn af Breið- holtsstöð stöðvuðu brugg- framleiðslu í húsi í austur- borginni um kl. 15 í gær. Lögreglan hafði haft grun um að bruggað væri í húsinu og ók framhjá því í gær, til að kanna málið. Það má því segja að hún hafí runnið á lyktina, því hún sá að bruggar- inn var að störfum. Innan dyra var hann í óða önn með bruggtækin og hellti lögreglan niður um 200 lítrum af gambra og 10 lítrum af landa. íslenzkir aðilar vilja flytja fisk með vörubílum um Evrópu Vilja flutningakvóta um Alpan Samgönguráðuneytið hefur skrifað yfirvöldum í Austurríki og sótt um leyfi fyrir stórar flutningabifreiðir tíl að flytja varning yfir Alpana. Að sögn Davíðs Stefánssonar, deildarsljóra í samgöngu- ráðuneytinu, á Island rétt á hlutdeild í „flutningakvóta“ um Austur- ríki sem væntanlegt aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins. Um- sókn ráðuneytisins er tilkomin vegna áhuga íslenzkra aðila á að hefja fiskflutninga yfir Alpafjöll til Suður-Evrópu. Umferð þungra flutningabif- reiða um Alpalöndin Austurríki og Sviss hefur verið háð leyfum vegna mengunarhættu og umferðar- þunga. Fjöldi leyfa um löndin tvö var einn helzti ásteytingarsteinn- inn í samningum Evrópubanda- lagsins og EFTA um EES á síð- asta ári. Samkomulag náðist við Austurríkismenn um leyfi fyrir ferðir 1.263.000 flutningabíla ár- lega. Að sögn Davíðs Stefánssonar er ekki sótt um mörg leyfi fyrir íslendinga að þessu sinni, heldur sem samsvarar einni ferð fram og til baka á degi hveijum. „Þetta opnar fyrir möguleika á því að fljúga með fískinn til dæmis til Lúxemborgar og aka með hann í gegnum Austurríki til Ítalíu eða þriðja ríkis, utan EES, til dæmis Ungveijalands," sagði Davíð í samtali við Morgunblaðið. „Við komumst inn í flutningakvótann vegna aðildar að EES og nú er í athugun að nýta þá möguleika sem þetta opnar í íslenzkum sjávarút- vegi.“ íslenzkir aðilar vilja fá heimil til að flylja fisk á bílum í gegnui Alpana til S-Evrópu. í dag Verðlagsmál Bolli Krístinsson verslunarmaður segir að framleiðendur selji vöru dýrar til íslands en til annarra landa 27 Kapitalisminn i Rússlandi Einkavæðing á sigurbraut 28 Handknattleikur Eyjamenn vísa ásökunum Vals- manna á bug 58 Leiðari_____________ Lykill að aukinni velmegun 30 Fasteignir ► Gæðastjóm í byggingariðn- aði-JóIaljós-Flísar-SkuIdir íbúð- areigenda Daglegtlíf ► Jólakort úr Morgunblöðum - Bilaþjófnaðir í Danmörku - Tungumálagarpur - Kennsla fatlaðra í MH - Óman- dvöl- Viðgerðarlínan - Níu stunda ferð til að ná í slasaðan mann FERÐ lögreglubíls og sjúkrabíls frá Húsavík að Grímsstöðum á Fjöllum í gær tók um fimm klukkustundir, en venjulega tekur uin l'/2 stund að aka þessa leið. Blindbylur var, en loks tókst að ná í slasaðan mann og flytja hann á sjúkrahúsið á Húsavík. Honum heils- ast nú vel. Óskað var eftir sjúkrabíl að um í axlarlið og síðan var haldið aftur til byggða. Þá var snjóplógur úr Mývatnssveit kominn til móts, við logregbna 0g sjúkrabílinn og sóttist ferðm því mun betur. Þó tók um tvær og hálfa klukkustund að aka til Húsavíkur aftur, en alls tók Ieiðangurinn níu klukkustundir Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar heilsast manninum vel, en hann var lagður inn á sjúkrahús- ið á Húsavík til aðhlynningar. Grímsstöðum vegna manns, sem hafði farið úr axlarlið, þegar hann var að vinna við vörubíl austan Grímsstaða. Lögreglubíll slóst í för með sjúkrabílnum og sóttist ferðin seint vegna blindbyls og afleitrar færðar. Að sögn lögreglu tókst að fikra bílunum tveimur áfram með því að nota spil og moka frá þeim. Þegar bílarnir tveir komu að Grímsstöðum kom læknir mannin-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.