Morgunblaðið - 04.12.1992, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1992
29
Hvernig á að verðleggja?
Nú er fátt sem bendir til, að tak-
markanir á framboðs- eða eftir-
spurnarhliðinni verði til að hindra,
að einkavæðingin nái fram að
ganga. Þriðja atriðið kann að verða
erfíðast: Rússar verða að komast
niður á aðferð til að ákveða verð á
eignarhlutum í fyrirtækjum til sölu
á opnum markaði. Einnig þurfa þeir
á að halda milliliðum í fjármálavið-
skiptum til að halda lífí í markaðn-
um. Þar er einnig ýmislegt athyglis-
vert að gerast.
Stjórnvöld ákváðu í nóvember-
byijun lagalega umgerð um fjárfest-
ingarsjóði. Síðan hafa um 300 sjóðir
verðið skráðir. Það bendir til, að
margir Rússar telji, að þeir geti
grætt á að fjárfesta í stórum fyrir-
tækjum fyrir hönd annars fólks.
Yfír 14.000 smáfyrirtæki hafa
verið einkavædd í Rússlandi það sem
af er þessu ári. Að vísu eru það
aðeins 11% af heildarfjölda smáfyrir-
tækja, en ekki 60% eins og stefnt
var að í upphafi árs. Nú vinna um
30 milljónir manna hjá einkafyrir-
tækjum í Moskvu, Pétursborg og
Nízní Novgorod.
Þar sem viðleitnin til að hafa ör-
uggt taumhald á fjármálum og
seðlaprentun hefur misfarist í Rúss-
landi felast mikilvægustu umbæt-
urnar á einu ákveðnu sviði í einka-
væðingunni. Anatolí Tsjúbajs að-
stoðarforsætisráðherra tókst að
vinna bug á andúð, sem vart varð í
upphafi hjá þingmönnum og stjórn-
endum fyrirtækja. Þar með voru
sköpuð skilyrði fyrir óafturkallan-
legri tilfærslu á ríkiseignum í hendur
einkaaðila. Þó að aðrar umbætur í
Rússlandi kunni að fara út um þúf-
ur, virðist einkavæðingin vera um
það bil að takast.
Heimild: The Economist
Reuter
Kommúnistar hóta Patten
Chris Patten, landstjóri Breta í Hong Kong, á skrifstofu sinni. Stöðugar
árásir stjórnar kommúnista í Peking á fyrirætlanir Pattens um aukið
lýðræði í nýlendunni ollu í gær mesta verðhruni í kauphöllinni sem orð-
ið hefur í rúm þijú ár. Pekingstjórnin krafðist þess í gær að Patten
drægi tillögur sínar til baka, ella gæti farið svo að hún rifti samningi
þar sem kveðið er á um rétt Hong Kong til sjálfstjórnar í eigin málum í
50 ár eftir að hún sameinast Kína 1997. Embættismenn í Peking segja
að falli Patten ekki frá áformum sínum kunni kínverska stjórnin að
hætta öllum samningaviðræðum um framtíð Hong Kong. Þeir benda á
að þótt þetta bijóti í bága við samning Kínveija og Breta frá 1984
hafi bresk stjórnvöld gert það sama þegar þau hættu viðræðunum í 15
mánuði eftir fjöldamorð kínverska hersins á Torgi hins himneska friðar
í Peking árið 1989.
Fyrirhugaðar forsetakosningar í Júgóslavíu
Panic dæmdur óhæfur
að tæknilega uppfyllti hann kösn-
ingalöggjöfina þar sem hann hefði
haft íbúð á sínu nafni á leigu í
Belgrad í rúmt ár. Kjörstjórnin sagði
hins vegar að hann hefði ekki dval-
ist nógu lengi í landinu, hefði einung-
is haft þar fasta baúsetu frá því
hann kom frá Kaliforníu í júlí til
þess að taka við starfi forsætisráð-
herra.
Með ákvörðun kjörstjórnarinnar
er talið að möguleikar Panic á að
koma í veg fýrir að Slobodan Mi-
losevic nái kjöri í forsetakosningun-
um séu að engu orðnar.
Samtök múhameðstrúarríkja
(OIC) hafa veitt Sameinuðu þjóðun-
um (SÞ) frest til 15. janúar næst-
komandi til þess að finna raunhæfa
lausn á stríðinu í Bosníu. Hafa ríkin
krafist þess að Serbar verði beittir
hörðu vegna framferðis þeirra gegn
islömskum íbúum Bosníu. í yfirlýs-
ingu frá OIC, sem telur 50 ríki
múslima, var ekki frá því greint til
hvaða ráða samtökin hygðust grípa
yrði SÞ ekki við kröfu þeirra.
Bclgrad, Jeddah. Reuter.
SERBNESK kosningayfirvöld úrskurðuðu í gær að Milan Panic forsæt-
isráðherra gæti ekki boðið sig fram við forsetakosningarnar 20. desem-
ber næstkomandi. Honum var gefinn tveggja daga frestur til að áfrýja
úrskurðinum.
Ákvörðunin var rökstudd með til forsetaembættisins verði að vera
þeim hætti að Panic uppfyllti ekki ríkisborgarar og hafa dvalist í land-
reglur um búsetulengd í landinu. inu í eitt ár að minnsta kosti.
Þær kveða á um að frambjóðendur Aðstoðarmenn Panics sögðu í gær
Þrírmenn fórust í flugslysi í Svíþjóð
Eins hreyfils vél
hrapar á Bromma
LÍTIL einshreyfils flugvél af
gerðinni Piper Malibu hrapaði
skömmu eftir flugtak frá
Bromma-flugvelli í Stokkhólmi í
gærmorgun. Tveimur mínútum
eftir flugtak slitnuðu fjarskipti
við vélina og þegar flugmaðurinn
reyndi að snúa aftur til baka
missti vélin skyndilega afl og
hrapaði til jarðar. Hún lenti á
bifreið á bílastæði, þar sem
kviknaði í henni, og skall síðan
á íbúðarhús. Þrír Svíar sem voru
í vélinni létu Hfið í slysinu, en
þeir voru á leið í viðskiptaferð
til Bretlands.
Bromma er úthverfi skammt frá
miðborg Stokkhólms og hefur lengi
verið deilt hart um flugvöllinn þar.
Jóhann Árelíuz, íslendingur og íbúi
í Bromma, segir að til hafí staðið
að leggja völlinn niður en það sem
af sé þessu ári hafí umferðin um
völlinn í stað þess aukist stöðugt.
„Til að menn geti gert sér í hugar-
lund hvernig ástandið er má segja
að ónæði af vellinum sé mun meira
en af Reykjavíkurflugvelli, vegna
fjölda véla, sem um hann fara,“
sagði Jóhann.
Hann bætti við að margir íbúar
óttuðust að eitthvað svipað og gerð-
ist við Schiphol-flugvöll í Amster-
dam gæti gerst í Bromma; flugvöll-
urinn væri algjör dauðagildra. Ekki
eru margir íslendingar búsettir í
Bromma, en þar er hins vegar að
fínna íslendingahúsið, félagsheimili
íslendinga í Stokkhólmi. Er það í
um kílómetra fjarlægð frá slys-
staðnum.
tSAii PURPO
MQLIDO IVlEDIi
ENVASADO At ALTO
inatural f
^CUIJIVI PAC
KAFFI MARINO góöa kaffið
í rauðu dósunum frá MEXÍKÓ
418*111
Skútuvogi 10a -104 Reykjavík - Pósthólf 4340 - Sími 686700 - Telefax 680465