Morgunblaðið - 04.12.1992, Blaðsíða 12
1/J
HídHM&8tíG .1- HUDAQ
:i>Ih hBÖJ8
fTíIJfOí) HWP.Z9Cf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR
4. DESEMBER 1992
«' per- 4*
Frönsk bók um
Víkinga o g Kelta
KOMIN ER út í Frakklandi bókin „Les Vikings et les Celtes" eftir
dr. Jean Renaud, en hann hefur um Iangt árabil kennt norræn mál
og norrænar bókmenntir við háskólann í Caen í Frakklandi. Doktors-
ritgerð Renauds fjallaði um skosku eyjamar í norrænum bókmennt-
um. Hann hefur skrifað um Suðureyjar og Orkneyjar og m.a. þýtt
Færeyingasögu. Þessi bók kemur út hjá Quest France bókaforlaginu,
sem áður hefur gefið út eftir sama höfund bókina Víkingarnir og
Normandí, þar sem mikilla norrænna áhrifa gætir sem kunnugt er.
Em báðar bækurnar í flokki sögulegra bóka undir heitinu: De Memo-
ire d’homme: l’histoire.
Utþensla Víkinganna til vesturs
er fyrirbrigði sem frá lokum 13.
aldar markaði stór spor um allan
hinn vestræna heim, einkum í kelt-
neskum löndum, segir í kynningu á
bókinni. Þessi bók rekur fyrst sög-
una, þar sem hver kafli fjallar um
viðkomandi landsvæði: Skotland og
eyjarnar, írland, Wales, Cornwall
og Bretagne. En Víkingarnir skildu
ekki bara eftir sig rústir einar held-
ur höfðu þeir mikil og oft kröftug
áhrif á íbúana sem fyrir voru. Seinni
hluti bókarinnar fjallar um það
hvemig Keltamir nutu engu síður
en Norðurlandamenn þessara beinu
Jólasýning sunnudaginn 27. des. kl. 20.
Nýárssýning laugardaginn 2. janúar kl. 20
Gjafakortin okkareru tilvalin jólagjöf!
Miðasalan er opin frá kl. 15-19 en til kl. 20 sýningardaga.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 11475. Leikhúslínansími99-1015.
Það lýsir af degi
samskipta, sem var viðhaldið til
góðs eða miður góðs. Áhrifín af
snertingu menningar þessara þjóða
má enn sjá í þessum löndum, eins
og Jean Reaud rekur, jafnvel allt
suður á Bretagne.
Áhugi er nú mikill á ferðum og
menningarstraumum frá norrænum
Víkingum í Frakklandi. Nú hefur
bók dr. Jeans Renauds um Víkinga
og Kelta bæst við til fróðleiks
áhugafólki um það efni.
♦ » ♦----
Uppákomur
á sýningu
Steingríms
TVÆR uppákomur verða á mál-
verkasýningu Steingríms Th. Sig-
urðssonar í Galleríi Rið í Gúl að
Hallveigarstíg 7 um þessa helgi.
Hin fyrri er í dag, föstudag klukk-
an 17 til 19, en þá lei_kur KK-band-
ið blús og kántrýlög. Á sunnudagss-
íðdegi syngur þar ung söngkona frá
Akranesi. Sýningin, sem er 73. sýn-
ing Steingríms er opin um helgar
frá klukkan 14 til 23.
Bókmenntir
Jenna Jensdóttir
Þórhallur Guðmundsson:
Lampi gömlu konunnar.
Mynd á kápu: Guðmundur Þór-
hallsson.
Prentsmiðjan Rún hf. 1992.
Þetta er önnur ljóðabókin sem
Þórhallur Guðmundsson gefur út. Í
fyrra kom eftir hann Myrkskilin
orð. Hinni nýju ljóðabók er skipt í
þijá kafla sem heita: Sól/Myrkur,
Andvökubókin og Handan við vöku-
heim.
í fyrri ljóðabók höfundar leynd-
ust neistar skáldskapar, sem vöktu
forvitni um framhald. Lampi gömlu
konunnar geymir um margt ólíkari
ljóð. Og hann hefur þroskast í ljóða-
gerð sinni. Hann agar betur hugs-
anir sínar og leitar víðar fanga en
áður. Samt kemst hann ekki langt
frá tjáningu og horfnum stundum
og verður oft eins og eini þátttak-
andinn í ljóðinu. Hann er opnari
tilfínningalega, sem leiðir til þess
að myrkviði vonleysis greiðist sund-
ur og auðveldar honum að leyfa lífs-
töfrunum að skyggnast inn í vitund-
ina og ruska þar til:
Ljós frá öðrum heimi/ Og nóttin
hún kemur/ svo mjúk og svo hlý/
bjöllur hringja í fjarska/ hendur
stijúka andlit þitt/ leggja aftur
augun/ og þá sérðu/ á flugi fugl-
anna/ og í hreistri fiskanna/ að þú
hefur/ hvergi farið.
Varkárni gagnvart gleði og
gáska ávinnur sér oftast réttinn til
hófsemdar á slíkum munaði:
XVII./ Það rofar hægt til á himn-
inum/ og orðið er nægilega bjart/
til að íhuga orð þín/ um morguninn
sem ber/ með sér söknuð eða sorg/
ef horft er á hann/ koma upp úr
hafinu.
Mörg Ijóðanna eru myndræn og
snerta lesandann sem slík:
Þórhallur Guðmundsson
Sumarósk
í grárri og stilltri
skímu næturinnar
læddist ég áfram
í niðurbældu grasinu
inn í miðja breiðu
vaggandi stráa
til að hremma fíðrildi
sem skildi eftir sig
silfurlitað far
í lófa mér.
Yrkisefni er líkt í öllum ljóðaköfl-
unum og þeir eiga það líka sameig-
inlegt að sumt er vel ort og nær
til lesanda - annað ekki. Það er til
vansa hve margar stafsetningarvill-
ur eru í bókinni. Sýnilegt er að
ekki er þar um sérvisku höfundar
að ræða, heldur beinlínis komið til
af virðingarleysi fyrir góðu máli og
að hann kærir sig kollóttan: „... með
gagnsægja fluguvængi...“ „... við
fúlann skurð...“, „... blasir
lyngt/stöðuvatn við...“. Áf nógu
er að taka og er slíkt afar sjald-
gæft í ljóðabókum.
Að lokum eitt fallegt ljóð:
XII./ Þú sast með mér þann/
dimmviðrasama desemberdag/ og
við drukkum kaffi/ og líkjör sem
bragðaðist/ eins og glóaldin/ nú
óma orð þín í herberginu:/ ég vil
sitja með þér/ að eilífu og horfa á
hægfleyg/ snjókorn lenda varlega/
á jörðinni til að bráðna./
Myndskreyting á kápu (og senni-
lega í 'bók) eru eftir Guðmund Þór-
hallsson. Snotur útgáfa.
Nú er hagstætt verð á íslenskum æðardún.
Hann er fáanlegur hjá framleiðendum,
útflytjendum og sængurfataverslunum.
Dúnsæng er vegleg jólagjöf - Veljum íslenskt.
Æðarræktarfélag íslands.
8
s
VELIIÐ ÞAÐ BESTA
VEUIÐl fö
Ifö HREINLÆTISTÆKI
- SÆNSK GÆÐAVARA ■WWMIiiTiun’iri ir ii 1. 'nia——M—11 r 1 ■ •.
FASTI BYGGINGAVORU-
VERSLUNUM UM LAND ALLT.
Hans heilagleiki
Maharishi Mahesh Yogi
frumkvöðull Innhverfrar
íhugunar, Vedískra vís-
inda og tækni Maharishi,
Maharishi vedaháskólans
og Maharishi Ayur-Ved.
Maharishi hefur uppgöt-
vað stjórnarskrá aflieim-
sins í sjálf-vísandi vitund
hvers einstaklings, sem
og í greind sem fólgin er í
sérhverjum þætti sköpun-
arinnar.
Með þessarri þekkingu
er unnt að fullkomna
alla þætti í lífi og starfi
einstaklingsins og með
henni geta allar ríkis-
stjómir yfirstígið vanda-
mál og öðlast getu til
að uppfylla margháttuð
markmið þegna sinna.
Maharishi vedaháskólinn í Hollandi hýður uppá
HAGNÝTA ÞEKKINGU Á LÖGMÁLUM
NÁTTÚRUNNAR OG LEIÐTOGAÞJÁLFUN
Námskeið í þjálfun ráðgjafa, kennara og stjórnenda
Fólki, sem nýlega er komið á hamingjusamt samfélag án vanda-
eftirlaunaaldur og hefur löngun mála og sjúkdóma á sviði heil-
til að þjóna samfélaginu, er boðið að brigðis, menntunar, iðnaðar, við-
öðlast nýja þekkingu á lögmálum skipta og ríkisumsvifa, með því að
náttúmnnar og skapa heilbrigt og hagnýta lögmál náttúmnnar.
Átta-vikna námskeið verða í boði á eftirfarandi sviðum:
• Heildræn, náttúmleg heilsugæsla
sem miðar að forvörnum til að
stuðla að fullkomnu heilbrigði ein-
staklingsins og að sjúkdómalausu
samfélagi - Maharishi Ayur-Ved
heilbrigðismenntun.
• Að öðlast stuðning náttúmnnar til
árangurs í viðskiptum og einkalifi -
Vedísk stjómunarfræði Maharishi
og þróunarkerfi fyrir fyrirtæki.
• Notkun nýjustu vísindaþekkingar
á lögmálum náttúmnnar og nýupp-
götvaðrar stjómarskrár alheimsins
til að þjálfa stjórnmálaleiðtoga i að
mynda jafn fullkomnar rikisstjórn-
ir og stjórnvöld náttúrunnar em -
Æðri stjómmálafræði til farsællar
stjórnunar ríkisins.
• EINNAR VIKU NÁMSKEIÐ eingöngu
ætlað ráðhermm ríkisstjóma, alþing-
ismönnum og æðstu embættismönn-
um ríkisins. Tilgangur þeirra er að
hjálpa núverandi ríkisstjómum að
yfirstíga vandamál og uppræta alda-
gamlan vanmátt ríkisstjóma jafnvel á
yfirstandandi kjörtímabili.
• Að öðlast innsýn í fortíð, nútíð og
framtið til þess að uppræta hvers
kyns neikvæðni og njóta lífsfyllingar
án vandamála - Vedísk stjömufræði
- Maharishi Jyotish.
ÁTTA VIKNA NÁMSKEIÐIN HEFJAST EINNAR VIKU NÁMSKEIÐ HEFJAST
mánudagana: 7., 14., og 21. desember 1992;
11. janúar 1993; 8. mars 1993. 4. janúar 1993; 22. rnars 1993.
Þeir þátttakendur sem ljúka einu námskeiði eiga kost á að sækja hvaða námskeið
sem er af þeim átta vikna námskeiðum sem á eftir koma.
Námskeiðin verða haldin á hinni fallegu Sólarströnd Spánar (Costa del Sol).
Að þjálfun lokinni munu útskrifaðir nemendur
opna Maharishi Ayur-Ved heilsufræðslustöð-
var í sínum heimahögum í þeim tilgangi að
kynna gildi þekkingar á lögmálum náttúmnnar
fyrir heilbrigði og árangur á öllum sviðum lífsins.
Þeir verða jafnframt ráðgjafar í viðskiptum og
ríkisrekstri með það markmið að losa stjómun
undan vandamálum og færa lífið til samræmis
við. lögmál náttúmnnar. Forgang hafa þeir þátt-
takendur sem ekki þurfa fjárhagsstuðning a.m.k.
fyrst í stað, á meðan þeir eru að byggja upp
ráðgjafar- og kennslustarfsemi sína.
UMSÓKNUM SKAL SKILAÐ TIL: Maharishi Vedic University Course Office,
Hoge Boekelerweg 255, 7532 RE Enschede, Hollandi. Tel: +31-53-353725, Fax: +31-53-339489