Morgunblaðið - 04.12.1992, Síða 11

Morgunblaðið - 04.12.1992, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1992" ipr Ur veiðifórum Kristjáns Gíslasonar __________Bækur_____________ Steinar J. Lúðvíksson Og áin niðar Höfundur: Kristján Gíslason Útgefandi: Forlagið 1992 218 bls. Stangaveiði er endalaus upp- spretta frásagna. Hjá veiðimönnum er frásagnarefnið óþijótandi og áheyrendur geta látið sér það lynda að hlýða jáfnvel á sömu veiðisöguna aftur og aftur því alltaf er hún sögð með nýjum blæbrigðum eða þá að stundin og stemmningin eru öðru- vísi en þegar sagan var sögð síðast. Jafnvel minnstu atvik og þau sem sýnast harla ómerkileg í augum þeirra er ekki stunda veiðiskap, geta.orðið kveikja að óborganlegri sögu. Það heyrist studnum að veiði- menn séu manna lygnastir og sjálf- sagt er það rétt að veiðisögur eru oft færðar í stílinn, þótt ekki sé nema til þess eins að gera þær skemmtilegri. En hitt held ég að sé þó sanni nær að velflestir þeirra, sem stunda veiðiskap, að einhveiju ráði, hafí lent í margvíslegum ævin- týrum sem þeir einir skilja sem eiga sama áhugamál og hafa upplifað það sem gerist á bökkum veiðiáa eða vatna. Með bókinni „Og áin niðar“ leiðir Kristján Gíslason, sem er í hópi kunnustu veiðmanna landsins og einn fremsti fluguhnýtarinn hér- lendis, áhugafólk um veiðilendur sínar og opnar þeim sýn í veiðiævin- týri þau sem hann hefur upplifað. Þetta er önnur bók Kristjáns um stangaveiði og er hún eins upp byggð og hin fyrri. Hann lætur les- endur hlýða á rabb sitt við ónafn- greindan frænda sinn sem hann er að leiða um þá leyndardómsfullu stigu sem stangveiðin er. Og rétt eins og frændinn fylgja lesendurnir Kristjáni þögulir og njóta frásagna hans og leiðsagnar því viða kemur Kristján við í bókinni. í aðfaraorðum sínum segist hann raunar ekki hafa lent í mörgum ævintýrum í veiði- skapnum en bendir réttilega á að fleira sé matur en feitt ket, það þurfí ekki stórkarlalegar mannraun- ir til þess að veiðimenn taki til máls og deili upplifun sinni með öðrum. Kristján segir í bók sinni að hann hafi stundað veiðiskap í hartnær fímmtíu ár. Hann man því tvenna tíma og kemur það glögglega fram í bókinni. Er greinilegt að Kristján saknar hins liðna þegar veiðmenn gátu verið meira út af fyrir sig og voru ekki ofurseldir kapphlaupi um veiðistaði og veiðileyfi, gátu jafnvel brugðið sér heim á sveitabæi og spurt hvort þeir mættu ekki renna. Nú er það aumur veiðstaður sem ekki er barinn frá morgni til kvöids allt veiðitímabilið og samkeppni milli veiðimanna um veiðistaðina er óneitanlega orðin töluverð. Segir Kristján raunar frá slíkum slag í bók sinni þegar hann og félagi hans urðu að láta í minni pokann fyrir fjórhjólavæddum veiðiköppum við Elliðaárnar. Framkomu á borð við þá, sem þar er lýst, kallar Kristján umgengnishelti og er það réttnefni. Athyglisverð er einnig sú kenning, sem Kristján drepur á í bókinni, að hin gífurlega ásókn hafí orðið til þess að menn freistist til þess að minnka og minnka þær flugur sem þeir nota við veiðiskapinn. Sjálfsagt hafa margir velt því fyrir sér hvern- ig á þvi standi að fiskarnir séu hættir að taka eins stórar flugur og oftast var veitt á hér á árum áður og er þessi skýring Kristjáns raunar mjög sennileg. Því er ekki að neita að bók Krist- jáns Gíslasonar er misjöfn að gæð- um. Þegar honum tekst best upp hafa frásagnir hans yfir sér ljóð- rænt yfirbragð og af þeim speglast virðing fyrir náttúrunni, umhverfinu og veiðiskapnum og minna þær þá stundum á frásagnir hins kunna veiðimanns og rithöfundar, Bjöms Blöndals, sem skildi eftir sig mikið ritað mál um veiðiskap. Hugleiðing- ar Kristjáns um umgengni á veiði- slóðum og atferli bæði fiska og manna eru líka hinar skemmtileg- ustu og vel fram settar. Af þeim geta veiðimenn örugglega dregið lærdóm. Þá lætur Kristjáni einnig vel að gera góðlátlegt grín að eigin veiðiskap. Má sem dæmi nefna kafla sem heitir „Maddama Karolína" en þar segir höfundur m.a. frá veiði- skap sínum í Laxá í Kjós og þegar Krislján Gíslason hann setti í beljuhala í afturkastinu. Það er sennilega besti kafli bókar- innar. Víðar í bókina nálgast Krist- ján veiðiskap sinn með hógværri kímni en stundum er lítillætið svo mikið að það virkar jafnvel nei- kvætt á lesandann. Megin veikleiki þessarar annars ágætu bókar er sá að stundum finnst manni Kristján hálfpartinn teygja iopann og verða mærðarleg- ur. Þetta á ekki síst við þegar á bókina líður og kemur að köflum um veðurfar og draumfarir. Þá virk- ar kaflinn um fluguhnýtara og ís- lenskar veiðiflugur dálítið losaraleg- ur. Þar fer Kristján yfir viðfangsefn- ið á hálfgerðu hundavaði, sennilega þó með ráðnum huga. Vel kann þó að vera að glöggir hnýtarar geti haft gagn af því, sem þar er sagt, en einvern veginn fínnst manni að Kristján hefði betur sleppt þættinum í þessari bók. Það væri hins vegar tvímælalaust að því mikill fengur að Kristján skrifaði bók með mynd- um og lýsingum af íslenskum veiði- flugum. Fáir eru fróðari um þau mál en eimitt hann; fáir hnýtarar hafa frumsamið jafn margar og fisknar flugur og hann og snilldar- handbragð hans við hnýtingar gæti verið öðrum til eftirbreytni. Fjölmargar ljósmyndir erii í bók- inni og eru þær misgóðar. Ástæðan er sjálfsagt sú að flestar fýrirmynd- imar hafa sjálfsagt verið litmyndir en eins og flestir vita hendir það oft að litmyndir fá á sig dálítið ank- annalegt yfirbragð þegar búið er að breyta þeim í svart-hvítar mynd- ir. Nýjar bækur Fyrstu tvær bækur Arbæjarsafns Bækurnar Söguspegill og Frum- leg hreinskilni eru komnar út. Þetta eru fyrstu tvær bækur af ritum Árbæjarsafns sem gefnar eru út í samvinnu við Hið ís- lenska bókmenntafélag, en í deiglunni er útgáfa fleiri bóka i tengslum við rannsóknir á vegum safnsins. I sumar gerðu Árbæjar- safn og Hið íslenska bókmennta- félag með sér samning um út- gáfu á ritum sem unnið verður að á vegum safnsins. Ritið, Söguspegill er gefið út í tilefni af 35 ára afmæli Árbæjar- safns. Fremst er ávarp forseta ís- lands, sem minnist þessara tíma- móta, en bókin geymir 22 greinar eftir starfsmenn og aðra sem tengj- ast safninu. Ritstjóri er Helgi M. Sigurðsson. Bókin, Frumleg hreinskilni, er afrakstur margra ára rannsókna Helga M. Sigurðssonar, sagn- og bókmenntafræðings, á verkum Þór- bergs Þórðarsonar. Bókin fjallar að meginhluta um árin 1912 til 1924, eða frá því sjálfsævisaga Þórbergs, Ofvitinn, skiíur við lesendur og þar til Bréf til Láru kom út. Að sögn Margrétar Hallgríms- dóttur, borgarminjavörður, eru út- gáfurnar að mestu byggðar á niður- stöðum rannsókna sem safnið hefur staðið fyrir og ritaðar af sérfræð- ingum þess. Reykvíkingafélagið styrkti útgáfu afmælisritsins, sem geyir ýmsar áhugaverðar greinar Hópurinn sem stóð að útgáfu afmælisritsins Söguspegils. um sögu Reykjavíkur. Huldu Val- týsdóttur, formanni Menningar- málanefndar Reykjavíkur var af- hent' fyrsta eintak af Söguspegli. Sverrir Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Hins íslenska bók- menntafélags kveðst ánægður með þessa samvinnu; ritin komi vel heim og saman við stefnu félagsins í útgáfumálum. Sigurður Líndal, for- seti félagsins segir mikið ánægju- efni, að samstarfið skuli hafa tek- ist, einkum þar sem Hið íslenska bókmenntafélag sé elsta menning- arstofnun Reykjavíkur, hafi starfað samfleytt frá 1816. Einnig sagði Sigurður að grein Lýðs Björnssonar í Söguspegli „Lækjargata 4“ tengd- ist sögu Hins íslenska bókmennta- félags. Útgefandi er Árbæjarsafn og Hið íslenska bókmenntafélag. Báðar bækurnar eru prentaðar í Odda. Torfi Jónsson hannaði báðar bóka- kápur og lagði með því grunn að útliti rita Árbæjarsafns. Söguspeg- ill er 394 blaðsíður og verð kr. 3.690. Frumleg hreinskilni er 119 blaðsíður og kostar kr. 2.590. HLJOMBÆR - SKIFAN o Kwtnn NÝÁRS FAGNAÐUR Föstudagskvöldiö 1. janúar 1993. zDa^á/cwí: FORSÍÐÚSTÚLKUR Úrslitakeppni og krýning. nóm, t&iiANn Húsiö opnaö fyrir matargesti kl. 19.00. Verö aöeins kr. 6.500. Gestir skarti sínu fegursta. BORÐAPANTANIR í SÍMA: 68 71 11 leikur fyrir dansi. f TANGO DE TEMPO leikur fyrir matargesti. HEIÐRÚN ANNA BJÖRNSDÓTTIR feguröardrottning syngur. LOS SVAKA GÆJOS á suörænu nótunum. SÖNGTRÍÓIÐ GIBB-BRÆÐUR úr Verzlunarskólanum. PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON kynnir og skemmtir. Fordrykkur völvunnar. Rjómalöguð sjávarréttasúpa. Veuve Clicquet kampavínssorbet. Eldristaðar nautalundir Vikunnar. Eftirlæti ljósmyndarans. ///jónuuíÁu/: María Rún Hafliðadóttir, fegurðardrottning íslands 1992, Unnur Steinson sýningarstúlka, Bragi Þór Ijósmyndari, Laufey Bjarnadóttir, forsíðustúlka ársins 1991 og Þórarinn Jón Magnússon ritstjóri. .'j/si/',<><)*//. S\IJ\ IIWS JÓ\S MÍ\S

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.