Morgunblaðið - 04.12.1992, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 04.12.1992, Qupperneq 15
 lilð Lára Rafnsdóttir á Háskólatónleikum Tónlist Ragnar Björnsson Lára Rafnsdóttir er þekkt sem ágætur píanóleikari með einsöngv- urum og kórum, en sem einleikari á píanó er hún minna kunn og a.m.k. hefur undirritaður ekki áður heyrt hana á einleikstónleikum. Var því þó nokkur tilhlökkun að kynnast þessari hlið á píanóleik Láru. Hún valdi sér síður en svo auðveld verkefni til flutnings þess- ar 30 mínútur sem listamaðurinn fær til ráðstöfunar á þessum há- degistónleikum. Papillons op. 2 er viðkvæmt í flutningi og ekki það auðveldasta til að byrja tónleika með. En Lára stóðst það álag af töluverðu öryggi út þessi 12 „smá- “stykki Roberts Schumanns. Hitt er annað að meðferð hennar á þessum „endurminningum" Schumanns var á töluvert öðrum nótum en a.m.k. undirritaður hefur nokkumtíma heyrt. Sem betur fer er sönn list þeim töfrum ofin að hún þolir margskonar túlkunar- meðferð og stundum getur maður aðeins sagt: „Ég heyri þetta á allt annan veg — og skil.“ Lára lék þessi stykki vægast sagt mjög rómantískt og spurning er hversu langt maður getur leyft sér að ganga í þá átt á tónsmíð sem skrif- uð er í hárómantískum anda. Á mörkum var að Lára tæki fullt til- lit til formerkja, áherslur, hraðaval og styrkleiki, sem Schumann lætur fylgja nótunum og fyrir undirrit- aðan var flutningurinn of sætur, Lára Rafnsdóttir of frjáls, en Lára hélt sínu striki, var sjálfri sér samkvæm út alla þættina „og hvað getur þá séntil- maður sagt“? Sama má segja um Pólonesuna op. 53 í As-dúr eftir Chopin, þótt hún væri spiluð af töluverðu öryggi, þá minnti flutn- ingurinn ekki minna á ballöðu, en kannski er líka munurinn á ballöðu og pólonesu minni en maður hélt. Frá Leikfélagi Akureyrar Gamanleikurinn „Útlending- urinn“ frumsýndur umjólin NÚ ERU æfingar vel á veg komn- ar á gaman- og spennuleiknum „Útlendingurinn" eftir banda- ríska leikskáldið Larry Shue, sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir 27. desember. Höfundurinn fékk hugmyndina að leikritinu á ferð sinni um Japan. Hann komst þá að því að þar gat hann hagað sér á hinn undarlegasta máta, án þess að nokkrum þætti það skrítið. Leikritið fjallar um Charlie sem þjáist af feimni og minnimáttar- kennd. Vinur hans býður honum með sér í ferð frá heimkynnum þeirra í Bretlandi til Suðurríkja Bandaríkjanna. Þar neyðist hann til að umgangast fólk, en þegar hann vill flýja heim aftur, verður það þrautalending vinar hans að segja Charlie dularfullan útlending sem ekkert skilji, því þá þarf Charlie ekki að halda uppi samræðum. Sjö leikarar fara með stór hlut- verk; Þráinn Karlsson sem leikur Charlie, Sigurveig Jónsdóttir, Aðal- steinn Bergdal, Bryndís Petra Bragadóttir, Jón Bjarni Guðmunds- son, Sigurþór Albert Heimisson og Björn Karlsson. Auk þeirra birtast nokkrar dularfullar aukapersónur í Nýjar bækur Skáldsaga eftir Birg- ittu H. Halldórsdóttur DÆTUR regnbogans heitir bók Birgittu H. Halldórsdóttur. í kynningu útgefanda segir m.a.: „í þessari bók leiðir Birgitta lesend- um sínar aftur í aldir. Aðal söguhetj- an, Margrét, er nauðug gefin sýslu- manninum aðeins 16 ára að aldri. Sagan lýsir baráttu hennar við örlög- in og ástina. Dularfullt morð er framið á prestssetrinu og hinn grimmi og lostafulli böðull, Blóðugi Bergur, kemur við sögu ásamt Andrew, myndarlegum Englendingi sem kemur hjörtum kvennanna til að slá hraðar. Fjölmargar aðrar áhugaverðar persónur koma við þessa sögu.“ Útgefandi er Skjaldborg. Bókin kostar 1.990 krónur. Svart og hvítt Bókmenntir gervi Ku Klux Klan. Þýðandi er Böðvar Guðmundsson, leikstjóri Sunna Borg, leikmyndar- höfundur Hallmundur Kristinsson og búningahöfundur Freygerður Magnúsdóttir. Ljósahönnuður er Ingvar Björnsson og sýningarstjóri Hreinn Skagfjörð. í fréttatilkynningu segir að Út- lendingurinn sé fjórða og síðasta leikrit Larry Shue. Hér á landi hef- ur einungis verið flutt eftir hann gamanleikritið „Nördinn“ (The Nerd) hjá Gríniðjunni í Reykjavík. Fjórar sýningar verða á Útlend- ingnum hjá Leikfélagi Akureyrar milli jóla og nýárs. Miðasala hefst þriðjudaginn 8. desember. Hægt er að fá áskriftarkort með verulegum afslætti sem gilda bæði á gaman- leikinn og óperettuna Leðurblökuna sem frumsýnd verður í mars. --------♦ ♦ ♦-------- Sigrún Klara Hannesdóttir Sigrún Eldjárn: Sól skín á krakka. Rauði krossinn og Forlagið, 1992. Sunna og Pétur fara með for- eldrum sínum til Afríku. Mamma er læknir og pabbi á að kenna fólk- inu að vernda vatnsbólin. Sagan gengur út á kynni þessara íslensku barna og svartra barn í ótilgreindu landi. Þau gera sér grein fyrir mismun í tungumálum og menn- ingu og njóta lífsins við þessar nýju aðstæður. Börnin skiptast á leikföngum, lána svörtu bömunum fjarstýrðan bíl og fá í staðinn bíl úr niðursuðudós. Sunna skiptir á byrðum við litla afríska Sahai sem þarf venjulega að bera systkini sitt á bakinu, fer í skólann og borðar mat hjá afrískri fjölskyldu. Þetta er snotur lítil bók sem eflaust hefur verið samin í því skyni að draga úr fordómum enda gefin út af Rauða krossinum. En til þess að svona saga nái verulega tilgangi sínum þyrfti hún að vera betur tengd raunveruleikanum. Allt er á yfirborðinu spennandi, framandi og skemmtilegt og engin vandamál virðast til staðar. Helsta niðurstaðan er sú að fólkið í Afríku sé glaðara en fólkið á íslandi þótt þægindin séu lítil. Málverka- sýning í Gallerí Nínu INGUNN Jensdóttir heldur mál- verkasýningu í Gallerí Nínu, Sól- vallagötu 9, Reykjavík (inngangur frá Blómvallagötu), laugardag og sunnudag 5. og 6. desember nk. kl. 14 til 20 báða dagana. Njjar bækur ■ Setrið heitir skáldsaga eftir Isaac Bashevis Singer í þýðingu Hjartar Pálssonar. í kynningu útgefanda segir m.a.: „í sögunni er sögð saga gyðingsins Kalmans Jakobs sem eftir uppreisn í Póllandi 1863 fær greifasetur Jamp- olski-ættarinnar til ábúðar og verður brátt auðugur maður. Sú breyting sem við það verður á högum hans hefur djúptæk áhrif á allt líf hans, til góðs eða ills. Þegar hann er orðinn ekkjumaður kvænist hann öðru sinni. Það hjónaband verður vægast sagt stormasamt og þrátt fyrir ytri velgengni verður Kalman fyrir mörgum og þung- um áföllum í einkalífi sínu áður en Jæmur að sögulokum." Útgefandi er Setberg. Bókin er 390 bls. Verð 2.900 krónur. Birgitta H. Halldórsdóttir NÝTT NÝTT Teg. 9426 öklaskór með rennilás Svart leður. Stærðir 36-41. Verð 4.500 kr. Staðgreiðsluafsláttur - Póstsendum samdægurs. SKÆDI MÍLANÓ KRINGLUNNI8-12 S. 689345 LAUGAVEGI 61-63 — ' v Innanhússarkitekt ráðleggur viðskiptavinum Metró Guðrún Benediktsdóttir innanhússarkitekt, FHÍ, verður í versluninni Metró fimmtudag og föstudag kl. 14-18 og laugardag kl. 11-14 og veitir viðskiptavinum ráðleggingar um allt er varðar innréttingar, gólfefni, hreinlætistæki og litaval í málningu. SHt GROHE Villeroy & Boch Verið velkomin í Metró og þiggið ókeypis ráðgjöf. JtfkMETRÓ ___________í MJÓDD___________ ÁLFABAKKA 16 • REYKJAVÍK • SÍMI 670050 Sigrún Eldjárn Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut, Kopavogi, sími 671800 OPIÐ SUNNUDAGA KL. 14 - 18 Toyota Corolla Touring GLi '91, blár, 5 g., ek. 31 þ., dráttarkúla o.fl. Toppeintak. V. 1320 þús. Subaru 1800 GL statlon 4x4 '89, hvitur, 5 g., ek. 73 þ., rafm. í rúðum o.fl. Gott ástand. V. 890 þús. stgr. Toyota Hilux Extra Cap '91, m/húsi, rauð- ur, 5 g., ek. 33 þ., upphaekkaður, 33" dekk o.fl. V. 1650 þús., sk. á ód. Isuzu Trooper LS '88, 5 g., ek. 109 þ., 7 manna, rafm. i öllu of.l. V. 1150 þús., skipti. Nissan Prairíe 4x4 '88, 5 g., ek. 59 þ., 2 dekkjag. o.fl. Gott eintak. V. 850 þús. Nissan Patrol 6 cyl. '87, hvitur, 5 g.. ek. 56 þ., 33“ dekk o.fl. V. 1080 þús. stgr. Suzuki Fox 410 '87, blár, ek. 37 þ. V. aðeins 390 þús. stgr. Suzuki Samurai Hl Roof '88, 5 g., ek. 62 þ., mikiö breyttur (lækkuð hlutföll, heitur kvartás, flækjur o.fl.) V. 790 þús. Nissan Pathfinder V-6 '87, sjélfsk., ek. 70 þ. mílur, mikið af aukahi. V. 1650 þús. sk. á ód. Fjöldi góðra bifreiða á kjörum við allra hæfi MMC Pajero langur '88, bensín, hvítur, 5 g., ek. 69 þ., óvenju gott eintak. V. 1490 þús., sk. á ód. MMC L-300 4x4 '87, grásans, 5 g., ek, 94 þ., 8 manna. V. 980 þús. Mazda 626 GTi Coupé '88, rauöur, 5 g. ek. 87 þ., rafm. í öllu, álfelgur o.fl. V. 930 þús. Chevrolet Custrom Delux 4x4 Pick Up '86, m/húsi. 8 cyl.-305, sjálfsk., ek. 47 þ milur. Toppeintak. V. 1090 þús. Chevrolet Crew Cap „Z-71“ Pick Up m/húsi '92, 8 cyl. (350), sjálfsk., ek. 16 þ. milur. Mikið af aukabúnaði. V. 2.3 millj Lada Sport '88, 5 g., léttistýri, ek. 4t þ. Gott útiit. V. 270 þús. stgr. MMC Galant GLSi 4x4 '90, 5 g., ek. 52 þ., samlitir stuðarar, rafm. i öllu. V. 1290 þús., sk. á ód. Toyota Landcruiser langur '82, 6 cyl., 4 g., ek. 170 þ., 38“ dekk o.fl. V. 980 þús. VANTAR GOÐA BILA Á STAÐINN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.