Morgunblaðið - 04.12.1992, Side 30

Morgunblaðið - 04.12.1992, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1992 seei naaMaaaa a fluoAauTgóa HÍI/IOI3T8A3 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1992 aiGAJHVIUDflOM a Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fuiltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Lykill að aukinni velmegnn velme krátt íyrir að fáar alþjóðlegar stofnanir hafi meiri áhrif á ilmegun um allan heim en GATT, almenna samkomulagið um tolla og viðskipti, er þessu fyrirbæri almennt sýndur lítill áhugi. Samt gæti það skipt sköpum varðandi efnahags- þróun, hér á landi jafnt sem annars staðar, hvort það samkomulag sem nú er verið að vinna að nái fram að ganga. GATT á, líkt og t.d. Aiþjóða gjald- eyrissjóðurinn, upptök sín að rekja til þess andrúmslofts aukinnar al- þjóðlegrar efnahagssamvinnu, sem fór að gæta eftir síðari heimsstyij- öldina. Uppi voru hugmyndir um viðskiptastofnun, sem hefði það hlutverk að efla fijáls viðskipti í heiminum. Undirrituðu 23 þjóðir almennt samkomulag um tolla og viðskipti í þeim tilgangi í október 1947. Áformin um viðskiptastofn- unina fóru skömmu síðar út um þúfur en eftir stóð almenna sam- komulagið, sem meðal annars á að sjá til þess að tollalækkanir verði ekki bættar upp með viðskiptahindr- unum. í nokkrum viðræðulotum hafa aðildarríkin, sem nú telja 108, ákveðið að samkomulagið nái til æ fleiri sviða og spannar það nú stærstan hluta alþjóðlegra við- skipta. íslendingar gerðust aðilar að GATT til bráðabirgða árið 1964 en formlega 1967. Sú viðræðulota GATT, sem nú er loks að ljúka, hófst í Punta del Este í Úrúgvæ í október árið 1986. Viðræðunum var haldið áfram í Genf, þar sem GATT hefur höfuð- stöðvar sínar, og varð fljótlega ljóst, að landbúnaðarmálin yrðu sá mála- flokkur, sem erfiðast yrði að ná samkomulagi um, en upphaflega var stefnt að samkomulagi í desember 1990. Hafa deilur um landbúnað nú staðið íinnulaust í tvö ár og enn er sá möguleiki til staðar, að ágrein- ingurinn verði Úrúgvæ-lotunni allri að falli, þrátt fyrir að samninga- menn Evrópubandalagsins og Bandaríkjastjórnar hafí fyrir skömmu náð málamiðlun í landbún- aðarmálum. Þó að hér og þar í heiminum, meðal annars hér á landi, hafi menn haft misjafnar skoðanir á samkomu- laginu sem nú liggur fyrir hefur andstaðan hvergi verið eins mikil og í Frakklandi. Franskir bændur hafa gripið til mjög harðra aðgerða gegn samkomulaginu. Auk hefð- bundinna mótmæla hafa þeir ráðist á útibú bandarískra fyrirtækja í Frakklandi og gengið berserksgang fyrir utan höfuðstöðvar Evrópu- þingsins í Strassborg. Franska ríkis- stjómin hefur látið undan kröfum bændanna og krefst þess að Evrópu- bandalagið hafni samkomulaginu. Margt bendir líka til að andstaða við GATT sé að aukast víðar í Evr- ópubandalaginu og mætti til að mynda sex þúsund manna þýsk sendinefnd til að taka þátt í mót- mælunum í Strassborg á mánudag. Formlega setja Frakkar það fyrir sig að þær aðgerðir sem felast í .málamiðlun EB og Bandaríkja- stjómar, fyrst og fremst sú ákvörð- un að minnka niðurgreiðslur í land- búnaði um 21%, gangi mun lengra en þær breytingar sem samþykktar vom í maí á sameiginlegri landbún- aðarstefnu bandalagsins. Breyting- amar þá vora ekki síst gerðar til að liðka fyrir GATT-samkomulagi og áttu að mynda hinn formlega umboðsramma framkvæmdastjórn- arinnar sem fer með samningamálin fýrir hönd bandalagsins í GATT- samningunum. Ef Frakkar ætla að koma í veg fyrir að GATT-samkomulagið taki gildi, standa þeim tveir kostir til boða. í fyrsta lagi geta þeir reynt að fá fleiri aðildarríki til að mynda bandalag með sér gegn samkomu- laginu og í öðra lagi geta þeir beitt neitunarvaldi, líkt og franska þingið hefur veitt stjóminni h'eimild til. Það má telja fremur ólíklegt að Frakkar beiti neitunarvaldi, jafnvel þó að þeir fái ekki önnur ríki í iið með sér. Neitunarvaldinu yrði að beita á ráðherraráðsfundi í EB og, þá þegar GATT-samkomulagið verður borið upp í heild sinni til atkvæða. Það ber að hafa hugfast að minnihlutastjórn sósialista í Frakklandi er mjög veik fyrir. Hvert hneykslismálið á fætur öðru hefur grafið undan trausti í garð hennar og sýna kannanir að jafnt ríkis- stjómin, sem Francois Mitterrand Frakklandsforseti, eiga undir högg að sækja. Allt bendir til að stjómin bíði mikinn ósigur þegar gengið verður til þingkosninga þar í landi í febrúar á næsta ári. Það síðasta sem Pierre Bérégovoy, forsætisráð- herra Frakklands, hefur þörf fyrir er að fá jafn sterkan þrýstihóp og bændur upp á móti sér. Því miður veltur hins vegar meira á afstöðu Frakka en afdrif sósíalista í stjórn landsins. Efnahagslíf heims- ins hefur verið í miklum öldudal á síðustu misseram og bendir fátt til að ástandið fari batnandi á næst- unni. Helsta vonin sem menn hafa getað bundið trúss sitt við er GATT- samkomulag. Þó um fátt annað hafí verið rætt opinberlega en land- búnaðarkaflann er með þessu sam- komulagi verið að auðvelda alþjóða- viðskipti með fjölmarga aðra vöra- flokka. Er talið að árlega muni GATT-samningur þýða aukin við- skipti í heiminum fyrir allt að 200 milljarða Bandaríkjadollara árlega. Slík vítamínsprauta gæti orðið til . að hleypa þeim krafti í efnahagslíf- ið sem svo sárt er saknað. Það er því mikill ábyrgðarhluti að fella þetta samkomulag vegna ágreinings um niðurgreiðslur í landbúnaði. Þrátt fyrir að landbúnaður eigi sér mjög ríka hefð í Frakklandi er hann einungis um 6% þjóðarfram- leiðslunnar þar í landi, eða svipað og t.d. í iðnríkinu Þýskalandi. Frakkar eiga því jafn mikið undir GATT-samkomulagi og önnur ríki. Það sem vakir fyrir ríkisstjórninni er því líklega fyrst og fremst að vinna tíma fram yfir kosningar. Hæstiréttur um bráðabirgðalög á BHMR 1990 Skorti á að farið væri eftir jafnræðisregluimi 31 HÆSTIRÉTTUR ákvað í gær að félaga í Bandalagi háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna bæri greiðslur 4,5% launahækkunar sem samið var um 1989. Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar felldi hækkunina úr gildi með bráðabirgðalögum í ágústbyrjun 1990 og höfðað var mál af hálfu ríkisstarfsmanns í Félagi islenskra náttúrufræðinga, eins aðildarfélags BHMR, til að láta reyna á lögmæti þessa. í Borgardómi var ríkið sýknað og ekki talið að brotið væri gegn ákvæðum stjórnar- skrárinnar. Hæstiréttur klofnaði, meirihlutinn dæmdi ríkið til að borga 4,5% hækkun frá september 1990 til febrúar 1991 að frádregnum hækkunum sem bráðabirgðalögin kveða á um. Dómurinn vísaði ekki í einstakar greinar stjórnarskrárinnar en taldi að 5. grein bráðabirgða- laganna um BHMR færi gegn grundvallarreglu íslenskra laga um jafn- rétti. Minnihluti Hæstaréttar vildi staðfesta niðurstöðu héraðsdóms og taldi jafnréttisregluna ekki brotna. Svokölluð samflotsfélög BHMR gerðu kjarasamning við fjármálaráð- herra fyrir hönd ríkissjóðs í maí 1989 eftir sex vikna verkfall. Daginn eftir sömdu önnur aðildarfélög BHMR um sömu býti við ráðherr- ann. Fyrsta grein samningsins kvað á um að endurskoða skyldi launa- kerfi háskólamenntaðra ríkisstarfs- manna, með það að markmiði að þeir nytu sambærilegra kjara við menn í einkageiranum með svipaða menntun og í hliðstæðum störfum. Stofnuð var kjarasamanburðarnefnd til þess arna og sagt í 5. grein samn- ingsins að lægi ekki fyrir lokaálit 1. júlí 1990 skyldi greitt upp í vænt- anlega hækkun þannig að menn færðust að jafnaði upp um einn og hálfan launaflokk eða 4,5%. Félagsdómur um 4,5% hækkun Nefndin hafði ekki lokið störfum á tilsettum tíma og um miðjan júní 1990 tilkynnti ríkisstjórnin leiðtog- um BHMR þá ákvörðun að greiða ekki hækkunina sem 5. grein fjallar um. Þetta taldi BHMR ólögmætt og stefndi Ólafi Ragnari Grímssyni þá- verandi fjármálaráðherra fyrir Fé- lagsdóm. Dómurinn tók kröfu banda- lagsins til greina og ákvað seint í júlí að frá byijun mánaðarins skyldi borga BHMR fólki 4,5% kauphækk- un. Þá hófust árangurslausar samn- ingsumleitanir stjórnvalda og BHMR manna. Þann 3. ágúst voru svo sett bráðabirgðalög sem þegar tóku gildi um það meðal annars að fella brott 5. grein samningsins við BHMR og þá 15. um að laun bandalagsfólks fýlgi almennum hækkunum. Bráðabirgðalögin í formála að lögunum segir að eftir ákvarðanir Vinnuveitendasam- bands íslands og Vinnumálasam- bands samvinnufélaganna um að greiða sínum félagsmönnum sömu hækkun og BHMR fólk fái, og þar sem samningaviðræður hafi engan ávöxt borið, beri brýna nauðsyn til að grípa inn í. Koma verði í veg fyrir víxlhækkanir Iauna og verðlags og treysta efnahagsleg markmið sem aðilar vinnumarkaðar og ríkisstjóm hafi náð saman um. í bráðbirgðaíogunum segir að laun skuli hækka um 2% 1. desember 1990, um 2,5% 1. mars og um 2% 1. júlí 1991. Þá era ákvæði BHMR samningsins um launahækkanir felld úr gildi og sagt að samningurinn gildi með breytingum laganna fram í september 1991. Málshöfðun Félagi í Félagi íslenskra náttúru- fræðinga höfðaði mál vegna bráða- birgðalaganna fyrir Borgardómi í október 1990 og krafðist launa- hækkunar samkvæmt samningi frá septemberbyijun. Fyrir dóminn komu forsætisráðherra og forystu- menn aðila vinnumarkaðarins og lögð vora fram ýmis gögn. Ríkið tefldi fram minnisblaði fjármála- ráðuneytis um líklega víxlverkun launa og verðlags í kjölfar 4,5% hækkunar BHMR og útreikningum Þjóðhagsstofnunar um hugsanlega verðbólguþróun yrðu bráðbirgðalög- in felld úr gildi. BHMR lagði fram rannsókn Hagfræðistofnunar Há- skólans um hverfandi áhrif hækkun- arinnar og skýrslu hagfræðideildar Seðlabankans um að skynsamleg túlkun kjarasamninga ASI/VSÍ feli ekki í sér vá óðaverðbólgu. Aðalrökin BHMR benti í upphafi málflutn- ings í héraði á það meginmarkmið samninganna að færa kjör félags- manna til samræmis við kjör sam- bærilegra starfsmanna í einkageir- anum. Ríkið svaraði með að segja bráðabirgðalögin sett til verndar þjóðarsátt og gegn verðbólgu. Af hálfu stefnanda, félaga í BHMR, var því haldið fram að ríkisstjómin hefði með bráðabirgðalögunum brotið gegn 2., 28., 67. og 73. greinum stjórnarskrárinnar. Héraðsdómur taldi að svo væri ekki og staðfesti minnihluti Hæstaréttar þá niður- stöðu með rökum sem sagt verður frá hér á eftir. Fjármálaráðherra var sýknaður af kröfu náttúrafræðings- ins í héraði. Umfjöllun Hæstaréttar Hæstiréttur breytti þessari ákvörðun í gær en fjallaði ekki um fyrrnefnd ákvæði stjórnarskrárinn- ar. í upphafi dóms réttarins er getið um þjóðarsáttarsamningana svo- nefndu milli ASÍ og VSÍ og síðar fleiri aðila um 9,5% launahækkun í fímm skrefum frá febrúar 1990 til september 1991. Félagsmenn BHMR, um 3% allra launamanna, áttu ekki hlut að þessum samningum enda bundnir af gildandi samningi. Gerð er grein fyrir endurskoðun- arákvæðum samnings BHMR við rík- ið og getið um niðurstöðu Félags- dóms á grandvelli þeirra um að greiða 4,5% hækkun frá 1. júlí. Þá segir meirihluti Hæstaréttar að harkaleg viðbrögð hafi orðið við nið- urstöðunni, aðilar þjóðarsáttarsamn- inga hafi krafist sömu hækkunar til harida félagsmönnum sínum með vís- un til þeirrar forsendu sáttarinnar að launaþróun þeirra yrði sú sama og annarra. Kristín Guðmundsdóttir formaður sjúkraliða Ahugamálin víkja fyrir félagsmálum KRISTÍN Guðmundsdóttir for- maður Sjúkraliðafélags íslands hefur verið mjög í sviðsljósinu undanfarna daga sökum aðgerða félagskvenna í kjarabaráttu sinni. í gær mættu sjúkraliðar til starfa eftir tveggja sólarhringa aðgerð- ir. Kristín mætti hins vegar á samningafundi hjá sáttasenyara ásamt viðsemjendum klukkan 14 í gær og stóð fundurinn enn á miðnætti. Kristín á ættir að rekja til ísafjarð- ar og undir Eyjafjöll og raunar ólst hún upp í hópi sex systkina frá 3ja ára aldri á bænum Miðgrund undir EyjaQöllum þar til hún flutti til Reykjavíkur ásamt manni sínum 17 ára gömul. Kristín er fædd í Reykjavík, dóttir hjónanna Guðmundar Jóns Ámason- ar frá ísafírði og Sigríðar K. Jóns- dóttur frá Miðgrund. Er hún flutti frá Eyjafjöllum 17 ára átti hún von á fyrsta barni sínu og manns hennar Diðriks ísleifssonar og fljótlega varð Kristin Guðmundsdóttir hún útivinn- andi húsmóðir í Reykjavík, fyrst sem starfsstúlka á Landspítalan- um í hálfu starfi. , Árið 1976 fluttu hún og maður hennar til Sví- þjóðar og bjuggu þar um þriggja ára skeið en eftir að þau komu heim aftur vann hún fyrst á Hrafnistu í hálfu starfí og síðan hóf hún sjúkraliðanám sem hún lauk 1982. Kristín segir að fljótlega eftir að náminu lauk hafi afskipti hennar af félagsmálum bytjað. „Eg fékk vinnu á skurðdeild Landspítalans og varð brátt aðaltrúnaðarmaður spítalans fyrir sjúkraliða," segir hún.'Fyrir sex áram gaf Kristín kost á sér í stjóm félagsins og endaði þá sem varafor- maður í stjórn sem Hulda S. Ólafs- dóttir veitti forstöðu. „Ég ætlaði ekki að gefa kost á mér í stjórnina á þessum tíma en atvikin æxluðust þannig að það varð úr,“ segjr Kristín. „Ég var í uppstill- ingarnefnd og að sjálfsögðu ekki við haéfí að ég gæfi kost á mér. Hinsveg- ar gekk okkur illa að fá fólk í stjórn- ina og lagt var hart að mér að gera það. Eg sagði mig því úr uppstilling- amefndinni og var kosin.“ Kristín varð síðan formaður Sjúkr- aliðafélagsins fyrir tveimur árum. Aðspurð um hvemig henni hafí fund- ist að vera í sviðsljósinu undanfama daga segir Kristín að það hafí oft verið afskaplega þreytandi. „En á hitt ber að líta að hafí þetta verið félaginu til framdráttar og ég getað kynnt málstað okkar með þessum hætti er slíkt af hinu góða,“ segir hún. „Ég tel að þessar aðgerðir okk- ar hafi fyrst og fremst sýnt hina miklu samstöðu sem er meðal sjúkr- aliða um að bæta kjör sín.“ Hvað áhugamálin varðar segir Kristín að þau verði að víkja fyrir félagsmálunum. Sem stendur er hún í hálfu starfi sem sjúkraliði á Land- spítalanum og hálfu starfí sem for- maður félagsins en það sé oft á tíðum mun meira. Þau hjónin eiga þijú böm á aldrinum 18-25 ára og aðeins það yngsta er enn heima. „Ég hef ávallt verið mikill náttúraunnandi og það hefur verið mitt aðaláhugamál. Hinsvegar hef ég ekki fundið mikinn tíma til að sinna því á undanförnum árum,“ segir Kristín. Rétturinn vísar til þess álits for- ystumanna í stjórnmálum, úr röðum vinnuveitenda og launamanna, að grípa yrði til bráðabirgðalaga til að koma í veg fyrir víxlhækkanir launa og verðlags eftir félagsdóminn. Greint er frá því sem að framan er rakið um bráðabirgðalögin. Sagt ’að með þeim hafí launahækkun sem Félagsdómur hafði dæmt samflots- fólki verið tekin af því frá fýrsta september og tilteknar hækkanir í samræmi við þjóðarsáttarsamninga látnar koma í staðinn. Þessu hafí samflotsfélög ekki viljað una og talið að bráðbirgðalögin brytu gegn stjómarskránni. „Dómstólar eiga úrskurðarvald um hvort almenn lög samrýmist ákvæðum stjórnarskrár og hvort þau hafi orðið til á stjómskipulegan hátt. Eðlisrök leiða til að hið sama gildi um bráðbirgðalög,“ segir næst í dómi Hæstaréttar. Síðan segir að ekkert liggi fyrir um í hvaða mæli niður- staða endurskoðunar, og röðunar í launaflokka BHMR hefði leitt til raunhækkunar á launum félags- manna, hefði hún haft eðlilegan framgang. Með niðurstöðu Félags- dóms hafi ábyrgð ríkissjóðs á starfs- lokum kjarasamanburðarnefndar orðið virk. Laun allra hafí því hækk- að um 4,5% og þannig greidd í júlí og ágúst. Hækkunin sem viðurkennd hafí verið með dómi hafí komið til á sérstakan hátt og ekki byggst á 15. grein kjarasamningsins um almenn- ar hækkanir. Ekkert liggi heldur fyrir um að aðilar þjóðarsáttarsamn- inga hafi ekki getað fengið launa- hækkanir á gildistíma þeirra með tilfærslum milli flokka. Að þessu athuguðu fær Hæstirétt- ur ekki séð að aðrir hafi, samkvæmt almennu ákvæði þjóðarsáttar um forsendur hennar, átt rétt til al- mennrar hækkunar á grunni ákvörð- unar Félagsdóms. Bent er á hve lít- ill hluti launamanna sé í BHMR og sagt að félagsmenn samflotsfélag- anna hafí þurft að þola skerðingu á áunnum réttindum sem félagar ann- arra stéttarfélaga hafí ekki þurft að þola. Jafnræðisreglan brotin Rétturinn segir álit Hagfræði- stofnunar um óveraleg áhrif 4,5% hækkunar til BHMR félaga einna óhrakið. Samflotsfélög BHMR hafi haft sama rétt og skyldur og önnur stéttarfélög í kjarasamningum. Lög- gjafinn hafí ríkan rétt haft til að standa vörð um efnahagsmarkmið ríkisstjórnar og aðila vinnumarkað- ar. Síðan segir orðrétt í dómi Hæsta- réttar: „Hins vegar verður að haga almennri lagasetningu í samræmi við þá jafnræðisreglu sem hér á við og víða er byggt á í stjórnarskrá ís- lands, meðal annars í ákvæðum hennar um álÖgur á þegnana' og skerðingu réttinda þeirra ef til þess þarf að koma. Þegar ríkjandi aðstæð- ur við setningu bráðabirgðalaganna eru metnar í heild þykir á það hafa skort að þessi regla hafí verið virt og urðu þau því ekki skuldbindandi gagnvart áfrýjanda að því er varðaði þá 4,5% launahækkun sem hún hafði þá þegar öðlast." Tilgangur laganna girti fyrir framtíðarhækkanir Vegna tilgangs bráðbirgðalag- anna, að koma í veg fyrir víxlhækk- anir og verðbólgu, segir Hæstiréttur félagsmanninn í BHMR hafa þurft að sætta sig við að girt væri fyrir almennar framtíðarhækkanir sam- kvæmt 15. grein samningsins. Setn- ingu bráðabirgðalaganna er í Hæsta- rétti jafnað til uppsagnar samnings- ins með gildi frá 1. nóvember. Því fellst rétturinn á að BHMR fólk hafí þurft að sætta sig við hækkanir sam- kvæmt lögunum á móti þegar feng- inni hækkun, jafnóðum og þær féllu til eftir 1. nóvember 1990. Niðurstaða málsins er því sú að fallist var á kröfu BHMR um 4,5% hækkun á laun félagsmannsins í september, október, nóvember, des- ember og janúar, að frádregnum hækkunum sem þegar hefðu verið greiddar. Þar var um að ræða 2,5% hækkun í desemberbyrjun. Við hækkanir þessar, að upphæð 22.600 krónur í tilviki félagsmannsins sem málið höfðaði, leggjast dráttarvextir til greiðsludags. Málskostnaður dæmdist á ríkissjóð. Minnihlutinn vildi sýkna ríkissjóð Minnihluti Hæstaréttar lýsti þeirri skoðun að kröfur BHMR styddust ekki við stjórnarskrána. Var 2. grein stjómarskrárinnar ekki talin útiloka almenna lagasetningu um kjör fé- lagsmanna BHMR eftir 1. september 1990. Talið var að löggjafarvaldið væri ekki með bráðabirgðalögunum að færa sig inn á svið dómsvaldsins eftir þann dag. Minnihlutinn taldi að 28. grein stjórnarskrárinnar um að brýna nauðsyn þurfi að bera til setningar bráðabirgðalaga hefði ekki verið brotin. Minnihlutinn tók ekki afstöðu til þess hvort krafan í málinu væri eign í skilningi 67. greinar stjómarskrárinnar. Þó var bent á í. sératkvæðinu að í bráðabirgðalögun- um hefði falist almenn takmörkun eignarréttar ef svo væri. Brytu lögin því ekki gegn þessari grein. Loks taldi minnihluti réttarins að 73. grein stjórnarskrárinnar um félagafrelsi ætti ekki við í málinu. Jafnréttisregla íslensks réttar kemur næst til umfjöllunar minni- hlutans. Talið er að jafnrétti sem lög vernda megi afmarka með hliðsjón af þeim hagsmunum sem í húfí eru, tilgangi mismununar og rökum fyrir henni og því hversu mikil mismunun- in er. Niðurstaða minnihlutans er að ekki hafi verið um ólögmæta mis- munun að ræða. Mál BHMR dæmdu hæstaréttar- dómaramir Guðrún Erlendsdóttir, Hjörtur Torfason og Hrafn Braga- son, Freyr Ófeigsson dómstjóri og Stefán Már Stefánsson prófessor. I minnihluta voru Þór Vilhjálmsson hæstaréttardómari og Sveinn Snorrason hæstaréttarlögmaður. Málið sótti Viðar Már Matthíason hæstaréttarlögmaður fyrir hönd áfrýjanda en fyrir ríkissjóð flutti málið Gunnlaugur Claessen ríkislög- maður. Niðurstaðan veldur ekki keðjuverkun - segir Friðrik Sophusson fjármálaráðherra „ÖÐRUM kjarasamningum er ekki stefnt í hættu, niðurstaða Hæstarétt- ar veldur ekki keðjuverkun," segir Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra. „Þótt meirihluti réttarins fallist á rétt BHMR fólks til 4,5% launa- hækkunar koma lögbundnar hækkanir til frádráttar." Friðrik segir það fara eftir túlkun á niðurstöðu Hæstaréttar hvort háskólamenntaðir ríkis- starfsmenn hljóti bráðlega greiðslur frá september 1990 fram til febr- úar árið eftir eða til marsmánaðar. Þann fyrsta mars hækkuðu Iaun um 2,2% og auk desemberhækkunar var komið yfir þau 4,5% sem ekki var heimilt að taka af háskólamönnum. Friðrik segir að um 3.200 manns í aðildarfélögum BHMR hafí starfað hjá ríkinu á þessum tíma. Því megi giska á að ríkið þurfí á næstu dögum eða vikum að borga þessu fólki milli 100 og 150 milljónir króna alls. Gera megi ráð fyrir að hver og einn fái fímmtung mánaðarlauna sinna í um- slagi frá fjármálaráðuneytinu þegar útreikningi lýkur að viðbættum drátt- arvöxtum. Þetta þýðir að sögn ráð- herrans 4,5% ofan á laun september- mánaðar 1990, 4,77% á laun október og nóvember, 2,22% eftir lögbundna hækkun í desember, janúar og jafn- vel febrúar. „Hér era menn byijaðir að reikna og það getur tekið einhveija daga eða vikur,“ segir Friðrik. „Eftir stendur að ríkisstjómin gat sett bráðabirgða- lögin, einungis ákvæði þeirra um BHMR eru talin brot á grundvallar- reglu um jafnrétti. Þau verða þess vegna leiðrétt, en það er túlkunaratr- iði sem ekki hefur verið tekin afstaða til í ráðuneytinu hvort leiðréttingin taki til fimm eða sex mánaða." Opnað fyrir að kjarasamn- ingnrinn sé kominn í gildi - að sögn Páls Halldórssonar formanns BHMF, Páll Halldórsson formaður Bandalags háskólamenntaðra ríkisstarfs- manna segist hvorki telja dóm Hæstaréttar sérstakan sigur né ósigur fyrir BHMR. Hins vegar virðist með dómnum vera opnað fyrir, að kjara- samningur BHMR og ríkisins sé aftur kominn í gildi. „Það er gott að héraðsdómnum er hrandið og það er einnig jákvætt áð í dómnum eru löggjafanum settar ákveðnar skorður um lagasetningu. Loks tel ég að dómurinn opni ákveðna möguleika á að nýta ákveðnar grein- ar frá kjarasamningi BHMR og ríkis- ins, þannig að því leyti til er þarna um ákveðinn sigur að ræða. Þetta er hins vegar ekki skýr dómur, og það er slæmt ef menn þurfa að lenda í átökum út af því hvemig eigi að túlka dóma,“ sagði Páll. Hann sagði, að dómurinn tæki ekki á málsástæðum sem uppi hefðu verið, svo sem hvort bráðabirgðalögin brytu í bága við stjórnarskrá, heldur væri aðeins fjallað um jafnræðisreglu. „En það er ljóst að dómurinn telur að við setningu bráðabirgðalaganna hafí verið gengið of langt. Það er einnig merkilegt hvað dæmdur er hár máls- kostnaður á ríkið sem gefur til kynna að dómurinn telji það vera í vondum málum. Það sem hins vegar kemur á móti er að þeir taka áhrif 15. greinar kja- rasamningsins út [sem fjallar um að aðilar geti krafíst breytinga á samn- ingi yrðu almennar hækkanir á launa- kjöram annarra Iaunþega], a.m.k. meðan á þjóðarsáttartímabilinu stendur. Það þýðir hins vegar ekki að greinin gildi ekki núna. Þeir segja einnig að líta megi á setningu bráða- birgðalaganna sem uppsögn á sarni^- ingi. Þegar þetta tvennt er skoðað’í ljósi 12. greinar samningsréttarlaga um að farið skuli eftir samningi, sem fallinn er úr gildi, þar til nýr hafi verið gerðir, þá held ég að þetta gefí til kynna að þessar greinar samnings- ins hafí vaknað aftur til lífsins," sagði Páll. En félagar í BHMR hafa ekki feng- ið launahækkanir sem fólust í al- mennu kjarasamningunum sem gerð- ir voru sl. vetur. Þar er um að ræða 1,7% launahækkun og orlofsuppbót. Páll sagði aðspurður, að í dómnum kæmi skýrt fram að ríkisstjórnin, sem setti bráðabirgðalögin, hefði farið út fyrir sínar heimildir. „Við höfum túlk- að bráðabirgðalögin sem valdníðslu og þessi dómur staðfestir það éflf.i frekar," sagði Páll Halldórsson. Rannsóknatengt framhalds- nám við Háskóla íslands eftirHelga Valdimarsson Flestar deildir Háskóla íslands eru að byggja upp framhaldsnám, sem hefur það markmið að þjálfa stúdenta til sjálfstæðra vísinda- og nýsköpunarstarfa. Svona nám gerir kröfu um nána samvinnu stúdents og kennara, stúdentinn þarf að læra að leysa rannsóknarviðfangsefni í samvinnu við kennara. Veralegur hluti af vísindafram- lagi kennara við erlenda háskóla tengist handleiðslu stúdenta í rann- sóknatengdu íramhaldsnámi. Oft starfa kennari og sérfræðingur saman að leiðbeiningu stúdents í slíku námi. Háskóli íslands hefur til þessa haft litla burði til að ann- ast þjálfun stúdenta í rannsókna- tengdu framhaldsnámi. Flestir vís- indamenn sem starfa á íslandi hafa því þurft að leita til erlendra há- skóla til þess að afla sér menntunar og reynslu til vísindastarfa. Þeir útheijar sem snúa heim hafa gjarn- an notið þjálfunar við mjög góðar erlendar vísindastofnanir, og Há- skóli íslands er þar af leiðandi lík- lega alþjóðlegri stofnun en margir mun stærri háskólar í nágranna- löndunum. Á hinn bóginn verður ekki séð hvernig Háskóli íslands getur á full- nægjandi hátt gegnt hlutverki sínu sem miðstöð nýsköpunar fyrir ís- lenskt þjóðfélag meðan hann skortir þær starfseiningar sem eru megin- uppspretta nýrrar þekkingar í há- skólum, þ.e. nemendur sem vinna að rannsóknaverkefnum undir handleiðslu kennara. Þess vegna hefur nú verið mörkuð sú stefna að byggja upp og efla slíkt nám við Háskóla íslands án þess þó að draga úr samvinnu íslendinga við erlendar vísindastofnanir að þessu leyti. Það rannsóknatengda framhaldsnám, sem byggja á upp við háskólann verður því að einhveiju leyti viðbót við þá þjálfun sem íslendingar fá í dag til nýsköpunar- og þróunar- „Enginn vafi er á því að rannsóknatengt fram- haldsnám við Háskóla Islands mun auka ný- sköpunarvirkni í þjóðfé- laginu, og jafnframt mun það stuðla að því að verandi vísindamenn takist á við þau við- fangsefni sem brýnt er að leysa hérlendis.“ starfa. Jafnframt er líklegt að rann- sóknatengt nám við Háskóla íslands verði til þess að efla tengsl skólans við erlendar vísindastofnanir og gera þau markvissari. Enginn vafi er á því að rann- sóknatengt framhaldsnám við Há- skóla íslands’mun auka nýsköpun- arvirkni í þjóðfélaginu, og jafnframt mun það stuðla að því að verandi vísindamenn takist á við þau við- fangsefni sem brýnt er að leysa hérlendis. Einnig er líklegt að ís- lenskir rannsóknamenn, sem hefja feril sinn með því að vinna að við- fangsefnum sem við blasa hérlend- is, muni L mörgum tilvikum geta haldið áfram að vinna að sömu eða hliðstæðum verkefnum, þegar þeir halda áfram námi við erlendar stofnanir. Síðast en ekki síst er uppbygging á rannsóknatengdu framhaldsnámi líkleg til að stuðla að aukinni sam- virkni milli Háskóla íslands og Rannsóknastofnana atvinnuveg- anna og tengja þar með háskólann ennþá betur við atvinnulífið í land- inu. Samvinnan getur annars vegar falist í því að stúdentar í framhalds- námi fái að njóta aðstöðu og reynslu sem er til staðar í þessum stofnun- um, og hins vegar kynnu einhverjir starfsmenn stofnananna að vilja ljúka framhaldsnámi. ' ^jláskóli íslands hefur nú markað skýra stefnu um uppbyggingu á Helgi Valdimarsson framhaldsnámi til nýsköpunar- starfa. Flestar deildir Háskólans hafa jafnframt gert þróunar- og kostnaðaráætlun um þetta fram- haldsnám og háskólaráð hefur sett um það sérstakar reglur. Höfundur erforseti læknndeildar og formaður vísindanefndar Háskóla fslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.