Morgunblaðið - 04.12.1992, Síða 34

Morgunblaðið - 04.12.1992, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1992 Þingsályktunartillaga um sjávarútvegssamning við EB Deilt um hvort veiðiheim- ildir séu jafngildar eða ekki JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra mælti í gær fyrir þings- ályktunartillögu um staðfestingu samninga við Efnahagsbandalag Evrópu, EB, um fiskveiðimál og lífriki hafsins. Þ. á m. er samningur um skipti á veiðiheimildum, 3.000 tonn af karfa fyrir 30.000 tonn af loðnu. Utanríkisráðherra og Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra teíja hér vera um að ræða jafngildar veiðiheimildir. Halldór Ásgríms- son (F-Al) fyrrverandi sjávarútvegsráðherra telur svo ekki vera. Hann treystir sér ekki til að styðja þennan samning. Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra gerði grein fyrir þingsályktunartillögunni um að heimija ríkisstjóminni að staðfesta fyrir íslands hönd í fyrsta lagi samn- ing í formi erindaskipta milli íslands og EB um fiskveiðimál sem gerður var í Óportó 2. maí 1992 og í öðru lagi samninginn um fiskveiðimál sem gerður var milli íslands og EB í Bmssel 27. nóvember 1992. Utanríkisráðherra sagði að með þessum samningum væri fyllt upp í eyðu sem verið hefði í samskiptum okkar við EB í fiskveiðimálum i um tvo áratugi. Utanríkisráðherra sagði samkomulag hafa-tekist um öll meg- inatriði í Óportó 2. maí síðastliðinn. En eftir hefði verið að ganga frá framkvæmdaratriðum og ramrna- samningi við bandalagið. Utanríkis- ráðherra viðurkenndi að síðan hefðu samningaviðræður dregist á langinn og hefði verið reynt að gera það Ekki flokkspóltísk atkvæðagreiðsla um samkeppnislög í GÆR voru greidd atkvæði um frumvarp til samkeppnislaga eftir 2. umræðu. Þingmenn telja flest í þessu frumvarpi vera til bóta. í efnahags- og viðskiptanefnd tókst góð samstaða um afgreiðslu þessa máls, að frátöldum ellefta kafla frumvarpsins um framkvæmd sam- keppnisreglna o.fl. samkvæmt samningnum um Evrópska efnahags- svæðið, EES. í meðförum efnahags- og við- skiptanefndar tók frumvarpið veru- legum breytingum og lagði nefndin fram alls 36 breytingatillögur. Full- trúar stjómarandstöðu í nefndinni stóðu að nefndaráliti og breyting- artillögum með fyrirvara um þau ákvæði er varða samning um Evr- ópskt efnahagssvæði, EES. Stein- grímur J. Sigfússson fulltrúi Al- þýðubandalagsins í nefndinni stóð Stíórnar- uði er a móti EES EGGERT Haukdal (S-Sl) telur það bestu gafir til þjóðarinnar að at- vinnuleysi hyrfi og samningurinn um EES yrði felldur. í gær voru greidd atkvæði um að vísa til ríkisstjómarinnar frumvarpi stjórnarandstöðunnar um breytingu á 21. grein stjómarskrárinnar um að 3/4 meirihluta þyrfti til samþykkt- ar samnings sem fælu í sér afsal á -fellveldi. Greidd voru atkvæði með nafnakalli. Eggert Haukdal (S-Sl) gerði grein fyrir sínu atkvæði. Þing- maðurinn sagði nú blasa við eftir að Kvennalistinn og Framsóknar- flokkurinn hefðu skipt sér upp í fylk- ingar með. og á móti frumvarpinu um EES, að það yrði senn að lögum. Afdrif þeirrar tillögu sem nú lægi fyrir virtust því ekki lengur skipta máli. Eggert sagði það vera bestu jólagjöfina til íslensku þjóðarinnar auk þess að losna við atvinnuleysið að frumvarpið um EES hefði verið -iellt nú rétt fyrir jólin. Eggert sagð- ist í trausti þess að það mál sem nú væri til atkvæða yrði gaumgæfi- lega skoðað þá segði hann já við þeirri tillögu að vísa þessu máli til ríkisstjórnarinnar. Tillaga hinnar sérstöku stjórn- laganefndar um að vísa málinu til ríkisstjómar var samþykkt með 32 atkvæðum gegn 24 en 7 þingmenn voru fjarverandi. að einni sjálfstæðri breytingartil- lögu um ákvæði um eignarhlut markaðsráðandi fyrirtækja á sviði samgangna. Við atkvæðagreiðslur í gær vom mörg eða flest ákvæði samþykkt með samhljóða atkvæðum. Tillaga Steingríms J. Sigfússonar var felld með 22 atkvæðum gegn 28. Einn stjórnarliði, Össur Skarphéðinsson (A-Rv), studdi tillöguna. Þegar greidd voru atkvæði um 11. kafla um framkvæmd sam- keppnisreglna o.fl. samkvæmt samningum EES, gerðu ýmsir stjórnarandstæðingar grein fyrir andstöðu sinni við þennan kafla þótt þeir lýstu stuðningi við annað í frumvarpinu. Þetta var sérstak- lega heyranlegt við samþykkt 44. og 47. greinar. Stjómarandstæð- ingar létu í ljós þá von og trú að endanleg afgreiðsla þess frumvarp yrði ekki fyrr en ljóst yrði hvaða afdrif frumvarpið til staðfestingar á samningnum um EES fengi. Við atkvæðagreiðslur um ákvæði í þess- um kafla studdu að jafnaði 29-30 stjómarliðar samþykkt ákvæða frumvarpsins eða breytingartil- lagna efnahags- og viðskiptanefnd- ar. Eyjólfur Konráð Jónsson (S-Rv) og Eggert Haukdal (S-Sl) greiddu atkvæði gegn samþykkt 47. greinar um Eftirlitsstofnun EFTA og EFTA-dómstólinn. Ingi Björn Al- bertsson (S-Rv) og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (SK-Rv) greiddu ekki atkvæði, og það gerðu heldur ekki sjö þingmenn Framsóknarflokks, Finnur Ingólfsson (F-Rv), Guð- mundur Bjarnason (F-Ne), Halldór Ásgrímsson (F-Al), Ingibjörg Pálmadóttir (F-Vl), Jóhannes Geir Sigurgeirsson (F-Ne), Jón Kristj- ánsson (F-Al) og Valgerður Sverris- dóttir (F-Ne). tortryggilegt. En ástæðan hefði ver- ið sú að ekki hefði verið vilji til að flana að neinu. Utanríkisráðherra taldi að skipti veiðiheimilda væru okkur hagstæð og væri það mat sjávarútvegsráðu- neytisins að 30.000 tonn af loðnu væru verðmætari en 3.000 tonn af karfa. Hvort heldur við miðuðum við viðmiðanir sjávarútvegsráðuneytis- ins eða EB. Hins vegar væri vitað að göngur loðnu væru óvissar. Því hefði orðið að ná því fram að ef loðn- an myndi bregðast yrðu karfaveið- amar teknar til endurskoðunar. Þessi krafa hefði náð fram að ganga. Ef loðnuveiðar yrðu skornar niður myndi hið sama gilda um karfaveið- amar. Og ef loðnuveiðin myndi bregðast myndu samningsaðilar koma saman til að gera viðeigandi ráðstafanir. í lok framsöguræðu sinnar lagði framsögumaður til að þessu máli yrði vísað til síðari umræðu og ut- anríkismálanefndar. Ekkí jöfn skipti Halldór Ásgrímsson (F-Al) fyrrver- andi sjávarútvegsráðherra gagn- rýndi utanríkisráðherra fyrir að hafa veikt samningsstöðu íslands með gáleysislegum yfirlýsingum. Halldór sagði það vera meginmál hvort um væri að ræða skipti á jafngildum veiðiheimildum, hann teldi ekki vera svo. Með ákveðnum reiknistuðlum mætti reikna heimildimar fyrir loðn- unni 20% verðmætari. En Halldór benti á að þessir stuðlar giltu ekki í skiptum útgerðarmanna eða væm í samræmi við verð á fiskmörkuðum. Samkvæmt sínum upplýsingum væri loðnutonnið nú selt á um 4.000 kr. En karfi hefði verið seldur innan- lands á um 60 krónur kílógrammið. Utanríkisráðherra myndi reynast erfitt að finna íslenska útgerðar- menn sem vildu skipta á 3.000 tonn- um af karfa og 30.000 tonnum af loðnu á sléttu. Halldóri Ásgrímssyni var en spum hvort ekki hefði mátt leita eftir því að íslendingum hefði verið heimilt að láta af hendi í stað karfa á ís- landsmiðum einhveijar þær heimildir á öðmm miðum sem þeir hugsanlega gætu aflað með samningum við aðr- ar þjóðir. Halldór lét og í ljós þá skoðun að tímabært væri að segja upp tvíhliða fiskveiðisamningi við Belga. Halldór Ásgrímsson viðurkenndi að fiskveiðisamningur við EB væri nauðsynleg forsenda fyrir samning- um um evrópskt efnahagssvæði, EES, og hér hefði verið um erfitt samningamál að ræða. í sumum atriðum hefði tekist vel til með þenn- an samning, s.s. varðandi eftirlits- þáttinn. En þyngra vægi að hér væri ekki um jafngild skipti á veið- heimildum að ræða. Þess vegna treysti hann sér ekki til að styðja þennan samning. Ólafur Ragnar Grimsson (Ab- Rn) taldi þennan sjávarútvegssamn- ing vitna um að fallið hefði verið frá öllum _ meginkröfum íslendinga. Anna Ólafsdóttir Björnsson (SK- Rn) taldi að hér hefði verið gerður samningur á forsendum EB. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra taldi að hér væri um að tefla ágæta samninga fyrir íslend- inga. Og um leið yrði að skoða þá í því Ijósi að þeir væru um leið lokan- iðurstaða í þeim samningum sem við hefðum tekið þátt í um EES. Sjávar- útvegsráðherra var ekki sammála mati Halldórs Ásgrímssonar á gildi veiðiheimildanna. Hann taldi að skiptin væru jafngild. Það mætti ekki miða við einstök söludæmi því markaðsverð væri mjög breytilegt. Það yrði að taka mið af lengra tíma- bili eins og stuðlar sjávarútvegsráðu- neytisins gerðu. Núverandi og fyrrverandi sjávar- útvegsráðherrar skiptust á skoðun- um og rökum um stuðla og gildi veiðheimilda. Jón Baldvin Hannib- alsson utanríkisráðherra og Ólafur Ragnar Grímsson (Ab-Rn) skiptust á rökum og orðaskeytum um meint brottfall frá samningsmarkmiðum íslendinga. Einnig var minnst á yfír- lýsingar utanríkisráðherra og frétta- tilkynningar og einnig mismunandi túlkanir á erindaskiptunum í Ópórtó í vor. Anna Ólafsdóttir Bjömsson og Steingrímur J. Sigfússon (Ab- Ne), Jóhann Ársælsson (Ab-Vl) tóku einnig til máls. Laust eftir kl. 19. frestaði Guðrún Helgadóttir þingforseti fundi en boð- aði jafnframt framhald umræðunnar kl. 20.30. Stuttar þingfréttir Lög frá Alþingi „Fyrir nokkru var samþykkt sem lög frá Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 31/1987 um flugmálaáætlun og fjáröflun til framkvæmda í flugmálum. Þessi lög kveða á um að ekki skuli leggja gjald á flugvélaeldsneyti sem sé undanþegið gjaldtöku í milliríkja- samningum. Þetta frumvarp var flutt vegna ábendinga bandarískra stjórnvalda um að gjaldtaka af bandarískum flugfélögum standist ekki gagnvart samkomulagi milli íslands og Bandaríkjanna. I bráða- birgðaákvæði þessara nýju laga er heimild til að endurgreiða banda- rískum flugfélögum það gjald sem þau hafa greitt frá 1. júlí 1987. í síðustu viku var samþykkt frumvarp um hópuppsagnir frum- varp þetta var lagt fram í tengslum við samning um Evrópskt efnahags- svæði, EES. í meðförum félags- málanefndar var gildistökuákvæði frumvarpsins breytt á þann veg að ekki er miðað við gildistöku EES heldur taka Iögin gildi 1. janúar 1993. Þessi lög tryggja launþegum nokkru betri rétt ef/þegar til hóp- uppsagna kemur. Ennfremur var samþykkt þingsá- lyktunartillaga um fullgildingu frí- verslunarsamnings milli ríkja Frí- verslunarsamtaka Evrópu, EFTA, og Tékkneska og slóvakíska sam- bandslýðvfeldisins. í samningum felst m.a. að komið verður á fríversl- un með fisk strax við gildistöku. Fjárfesting útlendinga Viðskiptaráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um breyt- ingu á lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, nr. 34 25. mars 1991. Frumvarp þetta er flutt til að laga reglur um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnu- rekstri hér á landi að ákvæðum samningsins um Evrópskt efna- hagssvæði, EES. Jafnframt eru lagðar til nokkrar aðrar breytingar í átt til aukins frjálsræðis. í þessu frumvarpi er lagt til að áfram gildi algert bann við fjárfest- ingu erlendra aðila í fiskveiðum og frumvinnslu sjávarafurða. Er það bann í samræmi við XII. viðauka samningsins um EES, en þar er íslandi veitt heimild til að viðhalda ótímabundið gildandi banni við fjár- festingu erlendra aðila í fiskveiðum og frumvinnslu sjávarafurða. En ein meginregla EES er að aðila í einu ríki innan EES skuli vera heimilt án takmarkana að fjárfesta í at- vinnurekstri í öðru ríki á svæðinu. Frumvarp til hjúskaparlaga Hjón geri hvort öðru grein fyrir fjármálum sínum DÓMSMÁLARÁÐHERRA, Þorsteinn Pálsson, hefur lagt fram á nýj- an leik frumvarp til hjúskaparlaga. Þriðja grein frumvarpsins ákveð- ur: „Iíjón skulu skipta milli sín verkefnum á heimili eftir föngum, svo og útgjöldum vegna heimilisrekstrar og framfærslu fjölskyldu. Hjónum er skylt að veita hvort öðru upplýsingar um efnahag sinn og afkomu.“ MÞMKSI í gær var dreift til þingmanna frumvarpi til hjúskaparlaga. Frum- varp þetta er alls 140 lagagreinar. Frumvarpið er samið af sifjalaga- nefnd sem í eiga nú sæti, dr. Ár- mann Snævarr fyrrverandi hæsta- réttardómari, Baldur Möller fyrr- verandi ráðuneytisstjóri, Drífa Páls- dóttir deildarstjóri og Guðrún Er- lendsdóttir hæstaréttardómari. Auður Auðuns fyrrverandi dóms- málaráðherra átti sæti í nefndinni uns hún lét af störfum að eigin ósk, tók hún þátt í mótun frum- varpsins á fyrstu stigum þess. Sifjalaganefnd leggur til að tveir lagabálkar verði felldir í einn. Ann- ars vegar lög um stofnun og slit hjúskapar og hins vegar lög um réttindi og skyldur hjóna. í fyrstu grein frumvarpsins er kveðið á um gildissvið laganna: „Lög þessi gilda um hjúskap karls og konu. Þau taka ekki til óvígðar sambúðar." Ef þetta ákvæði verður að lögum verður afnuminn sá mun- ur sem kann að vera í sifjalögum að því er varða lagastöðu karls og konu i hjúskap. Þriðja grein kveður á um: „Hjón skulu skipta milli sín verkefnum á heimili eftir föngum, svo og útgjöldum vegna heimilis- rekstrar og framfærslu fjölskyldu. Hjónum er skylt að veita hvort öðru upplýsingar um efnahag sinn og afkomu.“ í athugasemdum er bent á heimilisrekstur er víðtækara orð heldur en framfærsluframlög. í lagagreininni sé lagt til að hjónum sé almennt skylt að gefa hvort öðru upplýsingar um afkomu sína, þ.e. um tekjur, eignir og skuldir og horfur á næstunni. Helgist þetta af samstöðu hjónanna, sameigin- legri ábyrgð þeirra og trúnaði sem ríkir á milli þeirra. 5. grein frumvarpsins segir: „Hjúskap lýkur við andlát maka, vegna, ógildingar hjúskapar eða lögskilnaðar." Þegar frumvarpið var fyrst lagt fyrir 1. apríl í vor sætti orðalag 5. greinar nokkurri gagnrýni en þá hljóðaði lagagreinin: „Hjúskap lýkur fyrir andlát maka eða vegna ógildinga.r hjúskapar eða lögskilnaðar." Gert er ráð fyrir því frumvarpið taki gildi 1. júlí 1993. En þó er kveðið á um að fara skuli með kröf- ur um skilnað að borði og sæng eða lögskilnað, fyrir gildistöku laganna, eftir eldri lögum. Ef bæði hjón óska þess er þó unnt að beita reglum hinna nýrri laga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.