Morgunblaðið - 04.12.1992, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 04.12.1992, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 4. DESEMBER 1992 OACTTJT8()r>l (jírjA íRVrnn'! Áframsendist ekki! eftir Úlfar ■* Þormóðsson Satt best að segja hélt ég að Olafur Ragnar Grímsson væri kom- inn á launaskrá hjá Reiknistofu bankanna þegar ég sá sögnina að „áframsenda" prentaða feitu Ietri framan á umslag sem mér barst á dögunum frá þeirri stofnun því snilldaryrði af þessum gæðaflokki hafði ég hvorki séð né heyrt síðan ég nennti síðast að orðtaka ræðu þessa mektarmanns. En þar sem á umslaginu stóð „Áframsendist •» ekki“ vissi ég að þessi sending gat ekki verið frá nefndum Ólafi því hann þráir ekkert heitar en orðið hans „áframsendist" um víðan völl. Auðvitað er nýyrðasmíð af þessu tagi ekki einvörðungu bundin við Ólaf Ragnar og næstum því of- stæki að tengja slíkt beint við hann, kallgarminn. En því gerði ég það að þessu sinni að ég hafði fengið í sama póstburði bréf frá Alþýðu- bandalaginu hans. Bréf þetta hafði að geyma orðsendingu, hvatningu og gíróseðil. Verið var að biðja um fyrirframáskrift að nýju blaði og „daglegu símblaði“. Takmarkið var að safna 2.000 áskrifendum og ( hefja síðan útgáfu að blaði sem ætti að „kasta sterkum ljósgeislum inn í íjölmiðlaþokuna og sprengja þagnarmúra ... túlka pólitísk hita- mál og skýra ... myndbirtingar í lit af flokksmönnum eiga að skapa jákvæð viðhorf í garð starfs á veg- um Alþýðubandalagsins". Og sím- blaðið, sem hinir stórhuga „áfram- hugsuðir" ætluðu einnig (ætla einn- ig) að gefa út, átti líka að vera hægt að fá „sent í pósti ef óskað er. Sérhönnuð póstbréf og símbréf, . í flokkslitum og með stimplum * AB-frétta, eru notuð til útsend- inga“. Þetta er mjög nauðsynlegt því „viðbrögð við atburðum og út- spil geta ratað leiðina inn í hina ýmsu fjölmiðla, niðurklippt og mat- reidd að þeirra hætti, en síðan birt- ast að okkar hætti í vikublaði flokksins eða öðrum Alþýðubanda- lagsblöðum“. Mig setur hljóðan, að mínum hætti, að loknum lestri hvatningar- bréfs þessa. Hljóður með bréfíð í kjöltunni rak ég augun í það neðst á síðunni að flokkurinn hafí komið sér upp útgáfuþjónustu sem annast „kostun og framkvæmd í sambandi við útgáfuverkefnin sem fram- kvæmdastjóm Alþýðublaðsins fela útgáfustjóminni" og stóð mig að því að vera að hugsa hvort ekki væri hægt að fela útgáfuverkefni fyrir útgáfuþjónustu af þessu tagi með einhveijum hætti. Og ég ákvað að bíða með að „áframserida" gíróseðilinn og sjá hversu margir mundu „áfram- senda“ sinn seðil fullgreiddan en greiða þess í stað gjaldfallið víxil- blað sem ég hafði skrifað upp á fyrir flokkinn og hljóðaði upp á fímmtíuþúsundkall. Ég þyrfti áreiðanlega ekki að bíða lengi því ætlunin var aðeins að safna 2.000 fyrirframáskriftum. Svo leið ein vika af annarri; reyndar man ég ekki hvað þær eru orðnar margar því hvatningarbréf- ið er ekki dagsett fremur en önnur sígild verk. Það er að minnsta kosti orðið það langt um liðið að ég er búinn að hafa tíma til að sækja „málþing" „að þeirra hætti" sem flokkurinn hélt. Þar náði ég niður á blað nýju orðtaki sem „formaður- inn“ smíðaði sjálfur og faldi fyrir fundarmönnum með sínum hætti í setningunni „það er búið að ríða þjóðinni slíka skuldabagga“. Ég hafði líka tíma til þess að komast að því „að okkar hætti" að flokkur- inn, sem átti nokkrar krónur til ráðstöfunar fyrir síðustu kosning- ar, skuldar nú á annan tug millj- óna, svo og komst ég að því með sama hætti að einvörðungu 278 höfðu „áframsent" gíróseðilinn. Mér vannst einnig tími til þess að horfa á auglýsingu í sjónvarpinu um nærbuxnasafn Össurar og fór að hugsa um það hvort Össur, Mörður, Magga Bjöss, Kristín Ólafs, Guðmundur stúdent og fleiri þeirra trúnaðarmenn Ólafs sem yfírtóku flokkinn með honum og settu Þjóðviljann og sóSíalismann út í hom og undir nýriðna skulda- bagga yrðu ekki stjómendur og hugmyndafræðingar hins nýja sím- blaðs í póstáskrift og fannst það nógu fyndin tilhugsun til þess að borga þijú þúsund krónur fyrir- fram. En þá mundi ég eftir því að þetta fólk er komið á tvist og bast og vex nú og dafnar í öðram stjórn- málaflokkum en Ólafur formaður og þá jafnframt að ég vissi ekki einu sinni hveijir em nánustu sam- starfsmenn Ólafs nú því svo oft skiptir hann um trúnaðarmenn að sínum hætti. Svo var það í síðustu viku að ég horfði á „áframbirtingu" á nær- buxnaauglýsingu Össurar og í kjöl- farið var birt frétt um brotajáms- verksmiðjuna. Nú mega ekki marg- ir halda að ég tengi pólitíska tilvist Ólafs, Össurar, Marðar og Guð- mundar stúdents við brotajárns- hauga. Það var klingjandi hinnar nýju sagnar að „áframsenda“ sem tengdi þetta allt. Það var nefnilega verið að kaupa, selja og „áframselja" brota- jámsverksmiðjuna. Reikningslega lítur brotajáms- reikningsdæmið svona út í mínum huga eftir frétta„áhorfíð“: Verksmiðja er byggð fyrir 2.000 milljónir króna. Lán til uppbyggingar og reksturs var á annan milljarð, rúmlega 1.000 milljónir. Svo fór hún á hausinn. Búnaðarbankinn og Iðnlánasjóð- ur, sem þjóðin á sjálf, höfðu lánað ríflega 300 milljónir í þetta ævin- Úlfar Þormóðsson „Bið um þessi skilaboð til „útgáfuþjónustunn- ar, flokksins og for- mannsins“ að áfram- senda mér ekki AB-bréf fyrr en þeim hefur ver- ið snarað á móðurmál- ið, hefja ekki kostnað- arsama útgáfu en „áframgreiða“ skuldir flokksins þegar í stað.“ týri til „að skapa ný atvinnutæki- færi“. Þes'sar tvær stofnanir keyptu þrotabúið fyrir rúmar 50 milljónir. Það fylgdi fréttinni að það hafði rétt verið fyrir kostnaðinum sem fylgdi því að þessi nýja verksmiðja fór yfímm. Hvað um það. Nú ’á bankinn og sjóðurinn tveggja milljarða króna verksmiðju fyrir hönd þjóðarinnar og greiðir fyrir á að giska 350 milljónir þegar allt er talið; lán og kaupverð. Þetta er fínn bisness því með í kaupunum fylgdu meira en Frá Svíþjóð „Þetta hlýtur að lagast...“ eftir Magnús Einar Sigurðsson Samdráttur, kreppa. Þú lest um þetta, þú heyrir um þetta í útvarp- inu, heyrir og sérð þetta í sjónvarp- inu. Víst er þetta hrikalegt, at- vinnuleysið eykst dag frá degi, en samt svo fjarlægt þínu „öryggi". Þú dæsir og færð þér öísopa og bíður kvöldmatarins þetta föstu- dagskvöld. Lífið er í föstum skorðum, börn- in vaxa og dafna í leik og starfi, engin vandamál með þau. Konan er sátt við sitt, vinna frá morgni til kvölds, heiman og heima, þetta 14 til 16 tíma á sólarhring. Það er þér reyndar hulið og þú færð þér ölsopa um leið og þú reisir þig »til að flytja þig á milli stóla. Matur- inn er framreiddur. Helgin líður átakalaust, þú dund- ar þér ögn með bömunum á meðan konan tekur til matinn, þvottinn og í íbúðinni. Þú ert glaður með þitt, þú ert „fyrirvinnan". Þú ert sterkur og sæll karlmaður þegar þú leggur þig þetta sunnudags- kvöld. Þú flettir blaðinu um leið og þú skóflar í þig komflögunum og það era samskonar efnahagsfréttir og vanalega í blaðinú þennan mánu- Idagsmorgun. Þú morgunropar um leið og þú leggur frá þér blaðið, klappar börnunum á kollinn og kyssir konuna á kinnina þar sem hún er að koma bömunum af stað í skólann. Þér fmnst hún kannski örlítið afundin, áttar þig bara ekki á því að hún á að vera mætt á sama tíma og þú. Þegar þú heilsar vinnufélögun- um eru viðbrögðin öðravísi. Menn era hljóðir og stjórinn kemur til þín og ert þú þá líka með bréf í höndunum. Vegna starfsaldurs he- furðu þijá mánuði upp á að hlaupa. Þig setur hljóðan og veist ekki þitt ijúkandi ráð. Allt fer á fleygiferð í huga þér. Hvað er til ráða? Að lokum segirðu við sjálfan þig, þetta hlýtur að lagast, ég nefni ekkert heima. Næsta dag er skrifað um fyrir- tæki þitt í blaðinu og þú sest niður með ijölskyldunni. Þið komist að því að fjárhagslega verður þetta ekki svo erfítt, a.m.k. ekki fyrsta árið, atvinnuleysisbæturnar eru það háar og þú færð líka að „vita“ að konan er með svipuð launakjör og þú, en bömin spyija þig af hveiju þú fáir þér ekki bara vinnu í öðra fyrirtæki. Þessa þrjá mánuði lætur þú eins og ekkert sé, enn ertu „fyrirvinnan". Svo byijar það. Atvinnuleysið er orðið þitt hlutskipti. Þú tekur þessu af karlmennsku til að byija með. Sinnir þínu stimpilkorti, ferð á vinnumiðlunarskrifstofuna reglu- bundið, ræðir við félagana um ástandið, mænir göturnar og kann- ar verðlagið. Tíminn bara líður og þú lest í fagblaðinu að það verði erfitt fýrir atvinnulausa félaga sem orðnir era 40 ára að komast aftur inn í brans- ann. Tíminn bara líður og þú verður stjómsamari og stjómsamari heima fyrir. Allt í einu áttar þú þig á því að bömin eru nú ekki öll þar sem þau era séð og konan er ótrúlega hirðulaus. Þú vekur athygli á þessu oftar og oftar, dag út og dag inn. Tíminn líður og það byijar að renna upp fyrir þér að þú ert einskis virði. Nafn þitt er ekki einu sinni nothæft á venjulegan afborgunar- víxil. Tíminn líður, bara líður og þú verður hljóðari og hljóðari, þú ferð ekki úr húsi ótilneyddur og þá helst ekki fyrr en farið er að skyggja. Konan og börnin gera allt til að létta þér lífíð, þau læðast um og era þér blíð. Þú ert ekki einu sinni beðinn um að vaska upp. Þú sem varst svo sterkur og stoltur. Tíminn bara líður og í síðasta sinn tekurðu á honum stóra þínum og gengur lengra og lengra út í kalt, svart vatnið. Svona getur það verið. Miklir erfiðleikar heija nú á sænska þjóð- félagið og samfara þeim hefur at- vinnuleysi aukist gífurlega. Þessir erfíðleikar hófust fyrir alvöra árið 1989 og hefa farið stigversnandi síðan. Ef marka má spádóma fjöl- margra hagfræðinga mun ástandið halda áfram að versna allt til árs- ins 1994. Atvinnuleysi er mikið böl, bæði fyrir einstaklinginn og þjóðfélagið í heild. Hið opinbera reynir að draga úr atvinnuleysinu með ýmsu móti. Miklu fjármagni er veitt til svokallaðrar vinnumarkaðsmennt- unar. Þar er atvinnulausum gefinn kostur á raunhæfri menntun af ýmsum toga á launum. Séu þeir sem stunda slíkt nám ekki taldir með er atvinnuleysi um 7% í Sví- þjóð í dag, séu þeir hins vegar tald- ir með er það um 10%. Atvinnuleys- 20.000.000 kg af brotajárni. Niðurstaðan er sú að einhveijir, Landsbankinn (þjóðin), ríkissjóður (þjóðin), verkalýðurinn (þjóðin) og fleiri og fleiri brot af þjóðinni, virð- ast vera að tapa meira en 700 milljónum króna á ævintýrinu öllu því þeim hefur einungis verið boðn- ar 100 til 300 milljónir króna fyrir | verksmiðjuna og lagerinn og hrá- efnið. Þetta verður tapið og meira til ef verksmiðjan verður „áfram- ( seld“. Tap þjóðarinnar, altso; tap allra nema ... Það er það! ( Það eru nefnilega allir og allt að tapa: Móðurmálið tapar reisninni og þjóðinni. Flokksmenn tapa sósíalismanum. Sósíalisminn tapaði málgagninu. Fólkið tapar vinnunni og pening- unum sínum. Þjóðin tapar sjálfri sér og landinu. Allir tapa nema ... Nú ætla ég að hætta þessu og „áframskrifa" ekki meira en rétt nægi til þess að þetta „útspil geti ratað leiðina inn í hina ýmsu fjöl- miðla“ og til þess að þetta sé „mat- reitt að þeirra hætti“ og án þess að mikil „kostun“ verði af. g Bið um þessi skilaboð til „útgáfu- ' þjónustunnar, flokksins og form- annsins" að áframsenda mér ekki / AB-bréf fyrr en þeim hefur verið ' snarað á móðurmálið, hefja ekki kostnaðarsama útgáfu en „áfram- | greiða“ skuldir flokksins þegar í stað og sinna stjómmálum á með- an, m.a. með því að koma í veg fyrir „áframsölu“ á þjóðareignum svo þjóðin hætti að „áframtapa“. Það er nefnilega kominn tími til þess að þeir tapi þessir „nema“, og þeir era rækilega skilgreindir í sósíalísku fræðunum ef þú ert bú- inn að gleyma því, flokksi. Þegar að þessu hefur verið unn- ið og árangur farinn að sýna sig má „áframhugsa" útgáfumál hreyfíngarinnar, jafnvel í flokkslit- um, ef þið þá „áframvitið" hvernig hann er á litinn, flokkurinn. Höfundur er fyrrverandi formaður sljómar Útgáfufélags ÞjóðvHjans. isbætur frá menn í 300 starfsdaga og í 450 starfsdaga séu þeir orðnir ^ 55 ára og nema þær 90% af launum en þó að hámarki 564 sænskar krónur á dag. Vinnumarkaðsmenntun þýðir í flestum tilvikum að fólk endurnýjar rétt sinn til atvinnuleysisbóta. Við venjulegar kringumstæður hefur þetta kerfí í raun þýtt að atvinnu- leysi hefur verið óverulegt. Nú er staðan hins vegar sú að þetta kerfi auk annarra aðgerða, m.a. atvinnu- bótavinnu, annar ekki eftirspurn. Margir hafa því glatað rétti sín- um til atvinnuleysisbóta eða sjá fram á það. Þá blasir við að leita þarf á náðir félagsmálastofnana og þar getur verið erfítt að fá liðsinni , og fáist það er það ekki í líkingu * við atvinnuleysisbætur. Þess er jafnframt krafíst hinn atvinnulausi . losi sig fyrst við bílinn og eigið húsnæði ef viðkomandi stofnun tel- ur það óþarflega flott. ( Já, atvinnuleysið er mikið böl. Auk hins efnahagslega vanda sem fólk stendur frammi fyrir eru hin andlegu og félagslegu áhrif afar nærgöngul og leika margan grátt, svo grátt að ekki er öllum gefíð að rísa undir því. Ef til vill er það erfíðarara fyrir Svía en marga aðra að mæta því mótlæti sem yfir þá dynur. Þeir hafa um langa hríð búið við mikið efnahagslegt og félagslegt öryggi, heilu kynslóðimar hafa aldrei kynnst mótlæti af þessum toga. Framundan era óvissutímar, stjórnmálamenn telja að lausn vandans felist í aðild Svíþjóðar að Evrópubandalaginu en meirihluti < þjóðarinnar er á móti aðild, ef marka má skoðanakannanir. Hvað framtíðin ber í skauti sér mun í tíminn leiða I ljós. Hitt er ljóst að Svíar eiga við mikla erfíðleika að etja um þessar mundir, meiri en ! elstu menn muna. Höfundur er prentari og starfar í Svíþjóð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.