Morgunblaðið - 04.12.1992, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 04.12.1992, Qupperneq 44
¥i.......... Hörð keppni fyrir sjáanleg’ á Kauphall- amiótinu um helgina Jón Baldursson og Aðalsteinn Jörgensen voru dýrasta parið á fyrri Kauphallarmótum. A myndinni sést þegar þeir voru boðnir upp á fyrsta mótinu. Brids Guðmundur Sv. Hermannsson HIÐ árlega Kauphallarmót Bridgesambands Islands verð- ur haldið um helgina á Hótel Loftleiðum. Spilamennskan hefst klukkan 13 á laugardag en mótið byijar í raun á föstu- dagskvöld klukkan 21 þegar Haraldur Blöndal býður upp þátttökupörin 28 eins og hon- um einum er lagið. Þetta er í þriðja skipti sem Kauphallarmótið er haldið, en keppnisformið er sniðið eftir frægu móti sem Cavendish-spila- klúbburinn í New York hélt þar í borg um margra ára skeið. Fyrir mótið eru pörin nefnilega seld hæstbjóðanda og uppboðsféð er sett í verðlaunapott og í móts- lok skipta „eigendur" efstu par- anna með sér verðlaunafénu. Meðan á mótinu stendur er rekinn hlutabréfamarkaður þar sem hlutabréf í pörunum ganga kaupum og sölum og gengi bréf- anna ræðst af því hvemig spila- mennskan gengur. Þar hafa sést há kauptilboð í pör sem standa vel, um leið og þau sem eru neð- arlega era boðin á afslætti. Verð- bréfamarkaður íslandsbanka sér um kauphöllina eins og undanfar- in ár. Fyrir þessar sakir er Kaup- hallarmótið mjög óvenjulegt og heilmikil skemmtun fyrir áhorf- endur jafnt og spilara. Sérstak- lega er uppboðið á pöranum bráð- skemmtilegt og á fyrri mótum hefur verið mikill slagur um sig- urstranglegustu pörin. Þeir Aðal- steinn Jörgensen og Jón Baldurs- son vora eftirsóttastir á báðum fyrri mótunum. Á fyrsta uppboð- inu seldust þeir á 145 þúsund krónur og sú fjárfesting borgaði sig því þeir unnu mótið með yfir- burðum og skiluðu eigendum sín- um 370 þúsund króna arði. Þetta var eitt þeirra spila sem þeir Jón og Aðalsteinn græddu vel á í þessu fyrsta Kauphallarmóti. Norður ♦ 87 ♦ ÁK3 ♦ KD98 ♦ ÁG93 Austur ♦ G5 ¥ D8742 ♦ 32 ♦ K952 Suður ♦ ÁKD10962 ¥96 ♦ Á1074 ♦ - Þeir Aðalsteinn og Jón spiluðu biðsagnakerfí, þar sem annar biður sífellt um upplýsingar með lægstu sögn og hinn svarar. Opn- unin á 1 laufi er sterk og Jón mat suðurspilin ígildi laufopnun- ar þótt hápunktarnir væra ekki nægilega margir. Og svo fór vél- in í gang. Vestur Norður Austur Suður _ AJ — JB — — — 1 lauf pass 1 hjarta pass 1 spaði pass 1 grand pass 2 lauf pass 3 lauf pass 3 tíglar pass 4 tíglar pass 4 hjörtu pass a.pass 4 spaðar pass 7 spaðar Aðalsteinn svaraði fyrst jafnri skiptingu, næst neitaði hann 5- lit, þá sýndi hann skiptinguna 2-3-4-4, síðan 17-18 hápunkta og loks 6 kontról, (ása og kónga). Jón taldi sig nú vita nóg til að segja alslemmuna enda vora 13 slagir öraggir en margir létu hálfslemmuna nægja. í fyrra vora Jón og Aðalsteinn slegnir á 200 þúsund krónur enda höfðu þeir unnið heimsmeistara- titil í millitíðinni. Þá urðu þeir félagar í 6. sæti en sigurvegarar urðu aðrir heimsmeistarar, Guð- mundur Páll Arnarson og Þorlák- ur Jónsson sem voru slegnir á 150 þúsund krónur og sigurinn færði eigendum þeirra tæpar 470 þúsund krónur í aðra hönd. Þessir spilarar verða allir með- al þátttakenda nú eins og raunar flestir aðrir sterkustu spilarar landsins. Guðmundur og Þorlák- ur spila saman að venju en Jón og Aðalsteinn era með nýja spil- afélaga: Jón spilar við Sævar Þorbjömsson og Aðalsteinn við Björn Eysteinsson. Oll þessi pör verða væntanlega eftirsótt og auk þess má búast við háum boðum í Guðlaug R. Jóhannsson og Öm Amþórsson, Sverri Ár- mannsson og Matthías Þorvalds- son, Karl Sigurhjartarson og Pál Valdimarsson og Sigurð Sverris- son og Val Sigurðsson svo nokk- ur pör séu néfnd. Áðgagnur er ókeypis fyrir áhorfendur, bæði að uppboðinu á föstudagskvöld og mótinu sjálfu. Vestur ♦ 43 ¥ G105 ♦ G65 ♦ DG764 __________Brids______________ Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsfélag kvenna Mánudaginn 7. desember stóð til að hefja sveitakeppni hjá félaginu en því hefur nú verið frestað til 11. jan- úar nk. Þess í stað verður spilaður eins kvölds Mitchell tvimenningur nk. mánudag og mánudaginn 14. desem- ber verður boðið upp á jólaglögg og létta spilamennsku. Bridsfélag Hreyfils Að loknum sjö umferðum í sveita- kepponinni er staðan spennandi. enn jöfn og Birgir Sigurðsson 142 Sigurður Ólafsson 142 Daníel Halldórsson 139 Ólafur Jakobsson 136 Árni Kristjánsson 123 í áttundu umferð spila m.a. sveitir Birgis og Sigurðar saman. Bridsfélag Sauðárkróks Þá er Butlertvímenningnum lokið. Úrslit: GunnarÞórðarson-SigurðurSverrisson 184 EinarGíslason-HalldórJónsson 178 Kristján Blöndal - Einar Svanss., Skúli Jóns. 175 JónSindriTryggvason-LárusSigurðsson 173 Birgir Rafnsson - Sigurgeir Angantýsson 173 Gunnar Péturss. - Garðar Guðjónsson Stefán Skarphéðinsson 171 Mánudaginn 7. desember verður spilaður eins kvölds tvímenningur. Bridsfélag Suðurnesja Jólatvímenningurinn hófst sl. mánu- dag og spiluðu 14 pör. Keppnin stend- ur í þijú kvöld og telja tvö kvöld til sigurs í keppninni. Þetta gefur þeim, sem eiga „slæman dag“ eitt kvöldið aukna möguleika. Auk þess eru ein- hverjir sem ekki geta mætt nema tvö kvöld og enn aðrir sem vilja vera með eitt kvöldið þá er það velkomið þótt þeir keppi ekki til jólaverðlaunanna. Staðan eftir fyrsta kvöldið: Gunnar Guðbjömsson - Valur Símonarson 205 Jóhannes Sigurðsson - Logí Þormóðsson - GísliTorfason 190 Birkir Jónsson - Gísli ísleifsson 188 Óskar Pálsson - Sigurhans Sigurhansson 168 Jóhann Benediktsson - Sigurður Albertsson 162 Spilað verður nk. mánudagskvöld kl. 19,45 í Hótel Kristínu í Njarðvíkum. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Keppnisstjóri er ísleifur Gíslason. VERÐ 5.990 VERSLIÐ ODYRL Mikið úrval af skíðagöllum hvergi betra verð ATH. takmarkað magn Sér tilboð ÁÐUR NÚ BARNA SKÍÐAGALLAR c AQ0- 2.500- H20 JOGGING GALLAR i q 'jjQr 5.475.- KÖRFUBOLTA SKÓR A. 3uQ- 1.990.- BARNA JOGGING GALLAR r ‘J'JQ- 3.990.- H20 PEYSUR C j5G~ 3.990.- Verð á skíðágöllum Fullorðins kr. 7.990.- Barna st. 80 - 120 kr. 3.500 Barna st. 120 - 1 70 kr. 5.990 Laugavegi 62-Sími 13508 Má hengja á hurðir eöa hvar sem er innandyra. Ótrúlega skemmtilegt. Verð kr. 4.990 Frábær jólagjöf inni körfuboltaspjald ^ Kristján Tryggvason og Sólveig Eyjólfsdóttir í nýju versluninni ásamt barnabarninu Unni Magnúsdóttur. Alímingar sf. flylj- ast í stærra húsnæði ÁLÍMINGAR sf. fluttust um síð- ustu mánaðamót í stærra og betra húsnæði í Síðumúla 23, Selmúla- megin, en fyrirtækið hefur verið til húsa í Ármúlanum í fjölda ára. Helsta verkefni fyirtækisins hef- ur verið álímingar bæði á bremsu- diska og kúplingsdiska, auk þess sem diskar og skálar hafa verið renndir, en fyrirtækið hefur verið starfrækt í 35 ár. Stofnandi fyrirtækisins var Kjart- an Lorange, en árið 1990 keyptu það hjónin Kristján Tryggvason og Sólveig Eyjólfsdóttir. Límt er á bremsuklossa og kúplingsdiska í all- ar gerðir fólksbíla, vörubíla, dráttar- véla, lyftara, spil og flugvélar. Álím- ingar eru því meðal frumkvöðla í endurvinnslu á íslandi. Frá því er núverandi eigendur tóku við rekstri fyrirtækisins hefur vöruval aukist og eru nú til sölu í fyrirtækinu allt er viðvíkur hemlum, einnig eru seldir þar Bimbo-örygg- isbarnastólar, bílaáklæði, öryggis- brettahlífar og sitthvað fleira. Verkstæðismóttaka Álíminga er Síðumúlamegin. ♦ ♦ ♦------ Steikarkvöld haldið á Heliu VEITINGAHÚSIÐ Laufafell á Hellu bryddar upp á nýjungum laugardaginn 5. desember en þá verður krökkum grunnskólans á Hellu boðið á rokk- og popptón- leika með hljómsveitinni Her- bertstrasse frá kl. 17-18. Um kvöldið verður tekið á móti matargestum með jólaglöggi frá kl. 19. Hljómsveitin Herbertstrasse mun síðan leika fyrir dansi frá kl. 23 til 3. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.