Morgunblaðið - 04.12.1992, Side 58

Morgunblaðið - 04.12.1992, Side 58
58 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 4. DESEMBER 1992 HANDKNATTLEIKUR Eyjamenn vísa ásök- unum Valsmanna á bug en biðjast afsökunar á broti leikmanns liðsins í síðasta leik EYJAMENN hafa beðið Vals- menn afsökunar á framkomu eins leikmanns ÍBV eftir deildarleik liðanna í Eyjum s.l. þriðjudagskvöld, en vísa öðrum ásökuntim Reykjavík- urliðsins á bug og búa sig undir fyrirhugaðan bikarleik félaganna í Eyjum annan laugardag. Valsmenn kærðu leikmann ÍBV til HSÍ fyrir framkomu við- komandi gagnvart tveimur Vals- mðnnum. Stefán Jónsson, formað- ur handknattleiksdeildar ÍBV, sagði við Morgunblaðið að um- rætt atvik væri óveijanlegt og hefðu Eyjamenn beðið Valsmenn afsökunar á þvf. Þetta væri leið- indamál, sem ætti sér nokkra for- sögu, en ÍBV hefði þegar tekið á því og sett leikmanninn í ótíma- bundið bann. í blaðinu í gær var haft óbeint eftir formanni handknattleiks- deildar Vals að áhorfendur hefðu brugðist ókvæða við, þegar Vals- menn köliuðu á lögregluna, og hótað öllu illu. Það voru ekki áhorfendur, sem hótuðu öllu illu heldur aðstandendur Eyjaliðsins að sögn formannsins og er beðist velvirðingar á mistökunum. En vegna þessa fóru Valsmenn fram á að bikarleikir ÍBV og Vals í karla- og kvennaflokki færu ekki fram í Eyjum heldur á hlutlausum velli. Stefán sagði að þama færi kollegi sinn hjá Val með rangt mál og auk þes væri furðulegt að blanda kvennaliðunum í um- ræðuna. „Einkennilegt er að þess- ir menn og fleiri segja að mjög gaman sé að leika í Eyjum og þeir hrósa áhorfendum héma, en um leið og eitthvað bjátar á verð- ur allt vitlaust. En umræðan er komin langt frá því sem í raun gerðist, Valsmenn fara með ós- annindi og ég vísa ummælum um aðstandendur Eyjaliðsins heim til föðurhúsanna.“ Stefán sagðist vel skilja kæru Vals vegna leikmannsins, „en enginn af okkar mönnum ögraði eða hótaði Valsmönnum eins og þeir segja. Við munum senda HSI greinargerð og skýra okkar hlið málsins, en gemm annars ráð fyrir bikarleikjunum héma 12. desember." ■ MATTHÍAS Bjarki Guð- mundsson, leikmaður Þróttar í Reykjavík, er blakmaður ársins 1992. Blaksambandið greindi frá þessu í gær. ■ ARNAR Gunnlaugsson var kjörinn knattspyrnumaður ársins af stjóm KSÍ í síðustu viku. ■ JÓSTEINN Einarsson, þjálfari Hvatar á Blönduósi, var útnefndur besti leikmaður liðsins í sumar á uppskemhátíð knattspyrnudeildar fyrir skömmu._ ■ SVANHVÍT Sveinsdóttir var kjörin best í kvennaflokki Hvatar. Efnilegasti leikmaður var kjörinn Orri Baldursson í meistaraflokki karla en í meistaraflokki kvenna Erla Jakobsdóttir. ■ VALGEIR M. Baldursson og Hermann Arason, sem léku með knattspyrnuliði Stjörnunnar í sum- ar, hafa verið ráðnir þjálfarar meist- araflokks Hvatar. Héðlnn Gllsson í leik með Dússeldorf. Héðinn er í hópi markahæstu manna HÉÐINN Gilsson hefur gert 69 mörkfyrir Dusseldorf í 12 leikj- um þýsku úrvalsdeildarinnar í vetur og er f hópi markahæstu manna, var fjórði í röðinni fyrir síðustu umferð. Hins vegar hefur gengi liðsins verið annað en ætlað var og eftir 16:15 tap gegn Kiel á útivelli i fyrrakvöld er það í þriðja neðsta sæti með 6 stig. Héðinn, sem gerði 6/3 mörk, var nokkuð sáttur með sjálfan sig, en ekki liðið. „Þrátt fyrir að spiia vel eins og í tveimur síðustu leikjum hefur Oheppnin elt okkur sem skugginn og við tapað með minnsta mun — misst af mikilvæg- um stigum undir lok leikjanna," sagði Héðinn við Morgunblaðið eft- ir tapið í Kiel. Hann sagði að heima- menn hefðu komist í 5:1, en Dússeldorf náð að jafna og eftir það hefði allt verið í jámum. „Við fengum gullið tækifæri til að jafna fimm sekúndum fyrir leikslok, en homamaður okkar skaut framhjá úr dauðafæri.“ Dússeldorf taldi fyrir tímabilið að raunhæft væri að stefna á 8. til 10. sætið í vetur. Héðinn sagði að 22 leikir væru eftir og því ekki öll von úti enn, en sjálfsagt væm margar ástæður fyrir slæmu gengi. „Ein er sú að línumennimir, sem vom keyptir fyrir tímabilið, hafa algjörlega bmgðist," sagði Héðinn. „Til dæmis fékk annar þeirra fjögur dauðafæri í Kiel en gerði ekki mark í leiknum. Svona hefur þetta verið leik eftir leik og svo er komið að mótherjamir hafa ekki áhyggjur af línumönnum okkar, láta þá vera, en einbeita sér að öðram mönnum, sem gerir okkur auðvitað erfiðara fyrir.“ Héðinn sagði að kominn væri tími til að snúa blaðinu við „og halda út í 60 mínútur,“ eins og hann orðaði það. Tækifærið gæfist á heimavelli gegn Schutterwald um helgina, en Schutterwald er með stigi meira en Dússeldorf. Óskemmtileg afmælisgjöf Sigurður Bjarnason átti 22 ára afmæli á þriðjudag og ætlaði að halda uppá það með sigri gegn Leutershausen á útivelli í fyrra- kvöld, en Grosswallstadt tapaði 24:19. „Þetta fór illa,“ sagði Sigurður. „Seinni hálfleikur var vonlaus hjá okkur, engin markvarsla og sóknar- leikurinn slakur. Mér gekk illa og gerði aðeins þrjú mörk.“ Grosswallstadt er með 12 stig og fór niður í 12. sætið, en fimm lið em með 13 stig. Liðið mætir Lemgo í næstu umferð. HAFNABOLTI || BORÐTENNIS / DANMÖRK Lið Giants áfram íSan Francisco GENGIÐ var frá sölu á hafna- boltaliði Giants um síðustu helgi og verður liðið áfram í Sán Francisco, en um tíma var talið að liðið yrði selt til St. Petersburg. Eigandi Giants, Bob Lurie, komst að samkomulagi við hóp manna um að þeir keyptu félagið á litlar 100 milljónir dollara, eða tæpa sex milljarða ÍSK. í forystu þeirra sem keyptu er verslunarkeðj- an Safeway. Mikil ánægja er í San Francisco með að liðið skuli áfram vera þar. Lurie samdi um sölu á liðinu í ág- 'U til St. Petersburg fyrir 110 milljónir dollara en þá gripu yfir- völd í borginni inní og gerðu allt sem þau gátu til að halda liðinu í San Francisco og það tókst. Reynd- ar þurfa eigendur annarra liða, eða samtök þeirra að samþykkja samn- inginn og er talið líklegt að það verði gert á næsta fundi þeirra sem vefður fljótlega. Kjartani gengur ágætlega Kjartan Briem Kjartani Briem, borðtennisleik- ara, hefur gengið vel í Dan- mörku þar sem hann er við nám í rafmagnsverkfræði. Kjartan hefur leikið með Bronshoj en félagið hef- ur verið með tvö lið í 3. deild og eitt í þeirri fyrstu. Kjartan hefur leikið í 3. deild en á morgun leikur hann fyrsta leik sinn í 1. deild og mætir danska meistaranum Alan Bentsen. „Ég er svona að koma til og hef staðið mig vel í 3. deildinni þannig að ég var valinn í 1. deildar liðið fyrir leik helgarinnar við Homing, sem er í efsta sæti, alla vega fyrir þessa umferð,“ sagði Kjartan. „Mitt lið kom upp úr 2. deildinni í fyrra og er nú í 6. sæti. Ég er í sæmilegri æfingu en eftir jól ætla ég að æfa miklu betur því þá verð- ur minna að gera hjá mér í skólan- um. Það er dálítið öðruvísi að æfa hér en heima, það er einhvem veg- in meiri alvara í æfíngunum heima. Danir era svo léttir og taka hlutun- um ekki of alvarlega. Það kemur reyndar á móti að hér er meira af góðum spiluram þannig að maður þarf ekki að æfa eins mikið til að vera í góðri æfíngu,“ sagði Kjartan. KRAFTLYFTINGAR Kári bikarmeistari Bikarmótið í kraftlyfUngum fór fram á Patreksfirði um helgina. Mótið var jafiiframt IsiandsmeisL aramót í öldungaflokld, en 16 keppendur tóku þátt. Kári Elíson varð bikarmeistari. Hilmar Gunn- arsson setti ungiingamet (-23 ára) í 75 kg flokki (250 kg í hnébeygju) og Eriendur Eiríksson í 82,5 kg flokki (260,5 kg í hnébeygju). Gcir Þórólfeson setti lslandsmet í öldungaflokki (+40 ára)-i 82,5 kg flokki (185 kg). Úrslit: Flokkur Nafn Þyngd Hnéb. Bekkpr. RéttsL Samt Stig 75,0 kg Kári Elíson 74,95 240,0 175,0 282,5 697,5 463,73 75,0 kg Hilmar Gunnarsson 75,00 250,0 115,0 235,0 600,0 398,70 82,5 kg Ólafur Sveinsson - 80,85 250,0 145,0 245,0 640,0 401,60 82,5 kg Eriendur Eiríksson 82,50 260,5 150,0 220,0 630,5 390,16 82,5 kg Ólafur Krisljánsson 82,50 210,0 115,0 235,0 560,0 346,81 82,5 kg Vilhjálmur Hauksson 82,50 170,0 135,0 205,0 510,0 315,84 82,5 kg Geir Þóiólfeson 82,15 185,0 105,0 160,0 450,0 279,50 90,0 kg Bárður Ólsen 89,65 262,5 155,0 282,5 700,0 410,69 90,0 kg Reynir Bess Júlíusson 90,00 250,0 160,0 260,0 670,0 392,15 90,0 kg FIosi Jónsson 89,00 250,0 157,5 250,0 658,5 384,83 90,0 kg Njáll Torfason 85,85 175,0 125,0 230,0 530,0 319,54 100 kg Magnús Bess Júlíusson 100,00 280,0 185,0 270,0 735,0 407,19 100 kg Unnar Garðarsson 98,60 230,0 165,0 270,0 665,0 370,74 110 kg Baldvin Skúlason 108,20 250,0 220,0 300,0 770,0 423,27 110 kg Ragnar A.Gunnarsson 101,90 200,0 105,0 240,0 545,0 299,59 +125 kg Guðmundur O. Siguiðsson 125,50 240,0 140,0 280,0 660,0 343,46 KNATTSPYRNA / ITALIA Vogts deilir á fyrirkomulagið Berti Vogts, Þýskalands, landsliðsþjálfari deilir á fyrir- komulagið á Ítalíu og segir að það eigi að stöðva að itölsk félög geti keypt marga bestu leikmenn heims án þess að þeir fái tækifæri að leika með félögunum. Flest stóru félögin á Ítalíu era með fímm til sex er- lenda leikmenn, þrátt fyrir að þau geti aðeins telft fram þremur út- lendingum í leik. „Það skaðar knattspyrnuna að margir bestu leikmenn heims sitja leik eftir leik á áhorfendapöllunum. Ég hef spurt hvers vegna - þegar ég hef 8éð leikmenn eins og Ruud Gullit og Thomas Hassler hvíla leik eftir leik,“ sagði Vogts, sem vill breyta kerfínu á Ítalíu þannig að félög þar geti aðeins verið með fjóra erlenda leikmenn í herbúðum sinum. „Leikmennirnir fjórir eiga allir að vera á leikskýrslu, en að- eins þrír þeirra inn á vellinum í einu,“ sagði Vogts.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.