Morgunblaðið - 05.01.1993, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 05.01.1993, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANUAR 1993 5 Á árinu 1991 greiddum viö út um 740 milljónir króna í vinninga. Á sama tíma greiddi t.d. íslensk getspá um 370 milljónir í Lottóvinninga , en þar er vinningshlutfalliö aðeins 40% ÞAÐ ER EKKISPURNING í HVAÐA HAPPDRÆTTIÞÚ ÁH AÐ SPILA TIL AÐ VINNA! Þátttaka í happdrætti ræðst ýmist af stuðningi við gott málefni eða af von um vinning. Gylliboð um glæsilega vinninga segja þó ekki allt, því vinningshlutfallið í happdrættum hér á landi getur farið allt niður í 17%, og vinningslíkumar eru oft litlar. Happdrætti Háskólans hefur nú algjöra sérstöðu, með eitt hæsta vinningshlutfall í heimi, 70%, stórglæsilega peningavinninga og nú mestu vinningslíkur í happdrætti á íslandi, þar sem annað hvert númer getur unnið - 1:2 ! Á árinu 1992 greiddum við út 810 milljónir króna í vinninga til viðskiptavina okkar af 1165 milljóna veltu. Berðu þetta saman við önnur happdrœtti hérlendis. Þú getur hagað þátttöku þinni eftir fjárhag og valið milli þess að spila á EINFALDAN, TROMP eða NÍU. Þú leggur mismikið undir og vinningsupphæðin ræðst af því. Með einföldum tekur þú litla áhættu en gætir átt milljónir í vændum. Trompmiði gefur fimmfaldan vinning og með Níuna á hendi gœtir þá orðið með auðugri mönnum á Islandi. Miðaverð er óbreytt, einfaldur miði kostar aðeins 600 krónur. Komdu við hjá næsta umboðsmanni HHÍ við fyrsta tækifæri og tryggðu þér vinningsmiða. Við drögum 15. janúarl HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.