Morgunblaðið - 05.01.1993, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 05.01.1993, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 1993 skólar/námskeið tölvur ■ Tölvuskóli í fararbroddi. Ný námsskrá fyrir vorönn 1993. Viö bjóðum nú Ópus Allt námskeiöin í samvinnu við íslenska forritaþróun. At- hugið að auglýst verð á Ópus Allt nám- skeiðum í námsskrá gilda einungis fyrir þá, sem eru með þjónustusamning við íslenska forritaþróun. Almennt verð er 20% hærra. Excel og Word námskeið á sérverði. Námskeið í tölvugrafík. Fáðu senda námsskrá. ■ Tölvunotkun í fyrirtækjum. Nám sem veitir FORSKOT í atvinnulíf- inu. Markmið námsins er að útskrifa fjöl- hæfa starfsmenn með alhliða hagnýta kunnáttu í notkun PC tölva í fyrirtækj- um. Hefst 18. janúar og lýkur 16. júní, 252 klst., mán.-fim. kl. 16-19. Innritun hafm. Fáðu sendar upplýsingar. ■ Tölvubókhald. Kvöldnámskeið (35 klst.), sem hefst 26. janúar. Hentar öllum, sem vilja afla sér hagnýtrar kunnáttu í tölvubókhaldi. Upp- lagt fyrir þá, sem eru með sjálfstæðan rekstur. Notuð eru Ópus Allt bókhalds- forritin við kennsluna. Tölvuskóli Stjórnunarfélags íslands og Nýherja. Sfmar 621066 og 697768. tungumál ■ Útlendingar Viljið þið læra íslensku? Námskeiðin okkar eru að byrja. Upplýsingar í síma 668143 frá kl. 19-20. ■ Enskunám i Englandi. M.a. 3ja mánaða námskeið. ÓUk þyngdarstig. Vióurkennd próf. Allt að 20% vetrarafsláttur. Upplýsingar í síma 32492. MÍMSAÐSTQÐ ■ Námsaðstoð vió grunn-, framhalds- og háskólanema. Flestar námsgreinar. Einkatímar - hópar. Reyndir réttindakennarar. Innritun í síma 79233 kl. 14.30-18.30. Nemendaþjórvustan sf. ■ Stafsetningarnámskeiðin eftirsóttu eru að hefjast. Upplýsingar og innritun í síma 668143 milli kl. 19.00-20.00. ■ Enskunám f Englandi í Brighton á suðurströnd Englands er viðurkenndur enskuskóli sem hefur ver- ið starfandi síðan 1962. Við skólann starfa eingöngu sérmenntaðir kennarar. Hægt er að velja margvísleg námskeið, s.s. almenna ensku og viðskiptaensku. Námskeiðin eru frá 2 vikum upp í 1 ár og sérstök sumarnámskeið. Allar nánari upplýsingar veitir fulltrúi skólans á íslandi í síma 93-51309, Guðný. ýmislegt ■ Frá Heimspekiskólanum Kennsla hefst 11. janúar. Eftirtalin námskeið eru í boði: Hugtakatengsl (5-7 ára), Tengsl manns og náttúru (8-9 ára), Mál og hugsun (9-10 ára), Ráðgátur og rökleikni (11-13 ára), Siðfræði (13-14 ára), Ráð- gátur og röídeikni (16 ára og eldri). Upplýsingar og innritun í símum 628083 og 628283. ■ 'Sálrækt - styrking líkama og sálar „Body-therapy“ ★ „Gestalt" ★ Lífefli ★ Líföndun ★ Dáleiðsla ★ Slökun m.m. Námskeið að hefjast. Sálfræðiþjónusta Gunnars Gunnarssonar, s. 12077,641803. ■ Bréfaskólanámskeið: Teikning, litameðferð, listmálun með myndbandi, bamanámskeið, skraut- skrift, hýbýlafræði, innanhússarkitektúr, garðhúsagerð og hæfileikapróf. □ Við kynnum nýtt námskeið í Husasótt Fáðu sendar upplýsingar um skól- ann meö þvf að hringja í sfma 627644 allan sólarhringinn. 35 Útifundur á Lækjartorgi Stuðningur við mannréttindabar- áttu Palestínumanna ÚTIFUNDUR, sem Félagið Ísland-Palestína gekkst fyrir á Lækjar- torgi 30. desember, lýsti eindregnum stuðningi við mannréttindabar- áttu Palestínumanna gegn útlegðardómum og fyrir alþjóðlegri vernd ibúa herteknu svæðanna. Jón Baldvin Hannibalsson utanrikisráð- herra, hefur ritað Yitzhak Rabin forsætisráðherra ísrael bréf, þar sem hann lýsir áhyggjum íslenskra stjórnvalda vegna aðstæðna 400 landlausra Palestínumanna sem vísað hefur verið frá hernumdu svæðunum. í samþykkt útifundarins er þess krafíst að Palestínumennirnir fái að snúa tafarlaust heim til sinna fjölskyldna og jafnframt er skorað á ríkisstjórn íslands að stuðla að refsiaðgerðum gegn ísrael ef þar- lend stjómvöld sleppa mönnunum ekki úr herkví og lúti alþjóðalögum. Þá segir, „Útifundurinn gerir þá kröfu til ríkisstjómar íslands að hún tjái ísraelsstjóm fordæmingu ís- lendinga á voðaverkum ísraelska hemámsliðsins, sem skotið hefur til bana fjölmarga óbreytta borgara á síðustu dögum, jafnt börn sem full- orðna, vegna mótmæla þeirra við útlegðardómi 415 menninganna. Fundurinn væntir þess að ríkis- stjóm íslands skipi sér í röð þeirra sem krefjast alþjóðlegrar vemdar á vegum Sameinuðu þjóðanna fyrir Palestínumenn á herteknu svæðun- um.“ í bréfí utanríkisráðherra eru ísra- elsk stjórnvöld hvött til að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að umræddum Palestínu- mönnum verði séð fyrir nauðþurft- um. Einnig er látin í ljós von um að ákvörðun um brottvísun Palest- ínumannanna verði afturkölluð og að mál þeirra fái eðlilega meðferð fyrir dómsstólum. Þá hefur Þingflokkur Samtaka um Kvennalista sent ríkisstjórnum ísrael og íslands bréf, þar sem skor- að er á íslensk stjómvöld að standa vörð um mannréttindi hvar sem er í heiminum. Jafnframt er skorað á íslensk stjómvöld að fordæma að- gerðir ísraela og beita sér með öll- um tiltækum ráðum fyrir því, að Palestínumennimir fái þegar í stað að snúa aftur til heimkynna sinna. R AÐ AUGL YSINGAR Magnús Elíasson, löggiltur endurskoðandi, hefur flutt starfstöð sína frá Flókagötu 65, Reykjavík, í Ármúla 40, Reykjavík, frá og með 1. janúar 1993. Nýtt símanúmer er 677622 og faxnúmer 677632. Gestaíbúðin Villa Bergshyddan í Stokkhólmi íbúðin (3 herbergi og eldhús í endurbyggðu 18. aldar húsi), er léð án endurgjalds þeim, sem fást við listir og önnur menningarstörf í Helsingfors, Kaupmannahöfn, Osló eða Reykjavík, til dvalar á tímabilinu 15. apríl til 1. nóvember 1993. Umsóknir um dvöl í Villa Bergshyddan, þar sem fram komi tilgangur dvalarinnar og hvaða tíma sé óskað, svo og upplýsingar um umsækjanda, skal senda til Hásselby Slot, Box 520, S-162 15 Vállingby, fyrir 28. febrúar nk. Ekki eru notuð sérstök umsóknareyðublöð. Nánari upplýsingarfást hjá skrifstofu borgar- stjóra, sími 632000. HÚSNÆÐt ÓSKAST Einbýlishús óskast til leigu Traust fyrirtæki óskar eftir einbýlishúsi á Stór-Reykjavíkursvæðinu til leigu í 2 ár. Þarf að vera laust fljótlega. Nánari upplýsingar veitir: Helgi Jóhannesson hdl., Lágmúla 7, Reykjavík, sími 812622, fax 686269. íbúð óskast Markaðsstjóri hjá stóru fyrirtæki óskar eftir góðri íbúð í Árbæjarhverfi til leigu í 2-3 ár frá 1. febrúar. Margt kemur til greina, svo sem einbýli, rað- hús eða 4-5 herb. íbúð í fjölbýlishúsi. Fjölskyldan er skilvís, snyrtileg og reyklaus. Tilboð sendist til auglýsingadeildar Mbl., merkt: „1x2". KENNSIA Listdansskóli íslands Ballettímar fyrir gamla nemendur Tímar hefjast aftur miðvikudaginn 6. janúar kl. 18.30 og verða framvegis á mánudögum kl. 20.00 og miðvikudögum kl. 18.30. Nánari upplýsingar í síma skólans 679188. nolbrautasxúunn Innritun oq val BREIÐH0LTI ........ ^ námsáfanga í Kvöldskóla F.B. fyrir vorönn 1993 fer fram mánudaginn 4. og þriðjudaginn 5. janúar kl. 16.30-19.30 báða dagana. Kennt er á eftirtöldum sviðum: 1. Bóknámssviði. 2. Félagsgreinasviði. 3. Heilbrigðissviði. 4. Listasviði. 5. Matvælasviði. 6. Tæknisviði. 7. Viðskiptasviði. Skólameistari. ATVINNUHÚSNÆÐI Hamraborg 7 Til leigu skrifstofuhúsnæði. Á 2. hæð: 32 fm, 45 fm, 166 fm (skiptan- legt). Á 3. hæð: 100 fm (skiptanlegt). Upplýsingar á skrifstofutíma í síma 642286 eða 44415. Lán til viðhaldsframkvæmda Með hliðsjón af hinu erfiða atvinnuástandi á félagssvæði sjóðanna hafa stjórnir neðan- greindra lífeyrissjóða í Hafnarfirði ákveðið að gefa sjóðsfélögum sínum kost á lánum til 10 ára, enda sé eftirfarandi skilyrðum fullnægt: 1. Að láninu verði varið til viðhaldsfram- kvæmda eða endurbóta á húseign sjóðs- félaga. 2. Að verkið verði boðið út til félaga í MVB eða Meistarafélagi iðnaðarmanna í Hafn- arfirði skv. nánari reglum þar um. 3. Að veð séu eins og reglur sjóðanna gera ráð fyrir á hverjum tíma. 4. Umsóknum sé skilað til mælingastofu Félags byggingariðnaðarmann, Bæjar- hrauni 2, Hafnarfirði, sem mun veita allar nánari upplýsingar. Lánin eru verðtryggð miðað við lánskjaravísi- tölu og vaxtakjör eru meðalvextir banka og sparisjóða á verðtryggðum lánum sem nú eru 9,2%. ....... Stjormr sjoðanna. wmmauglýsingor FÉLAGSLÍF FERÐAFELAC # ÍSLANDS MÖRKiNNI 6 • SÍMI 682533 Þrettándaganga og blysför um byggðir álfa og huldufólks - í Öskjuhlíð Miðvikudaginn 6. janúar efnir Ferðafélagið tll þrettándagöngu um álfa- og huldufólksbyggðir í öskjuhlíð. Blys verða seld áður en gangan hefst. Til gamans verður stuðst við kort sem Yngvi Þór Loftsson hjá Borgarskipu- lagi Reykjavikur teiknaði eftir til- sögn Erlu Stefánsdóttur um hut- iðsvætti á höfuðborgarsvæðinu. Gangan hefst kl. 20.00 og verður lagt af stað frá Hótel Loftleiöum. Ekkert þátttökugjald en blys kosta kr. 200. Að göngu lokinni veröur staldrað við hjá álfa- brennu Vals við Hlíðarenda. Áætlaöur göngutími er 1 klst. og þvi tilvalin ferð fyrir alla fjöl- skylduna, unga sem aldna. Myndakvöld fimmtu- daginn 7. janúar Fimmtudaginn 7. janúar (ath. breytingu á vikudegi) verður næsta myndakvöld F.í. i Sóknar- salnum, Skipholti 50a, og hefst stundvíslega kl. 20.30. Björn Hróarsson fer víða um landiö og segir frá í máli og myndum náttúrufyrirbærum og athyglis- verðum svæðum m.a. Surtsey, nýjar myndir úr hellaferðum og hverasvæði veröa heimsótt. Jóhannes I. Jónsson sýnir og segir frá ferð um „Litla hálendis- hnnginn'*. m.a. liggur leiðin um fáfarin svæði norðan og sunnan Hofsjökuls. Aðgangur kr. 500 (kaffi og með- læti innifaliö). Ferðafélag íslands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.