Morgunblaðið - 16.03.1993, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1993
Minning
Guðjón Valgeirs-
son lögfræðingur
Fæddur 13. maí 1929
Dáinn 7. mars 1993
Þeir voru ekki margir stúdent-
arnir sem innrituðust í lagadeildina
árið sem öldin var nákvæmlega
hálfnuð. Einn þeirra var Guðjón
Valgeirsson sem útskrifast hafði frá
Menntaskólanum í Reykjavík þá um
vorið. Við hofðum aldrei hist fyrr
en á þessum fögru haustdögum.
Hann var að sunnan en ég einn
þeirra fáu norðanmanna sem hugð-
ust leggja stund á lögfræðina.
Kynni okkar tókust á fyrstu dögun-
um þar sem við sátum hlið við hlið
og hlýddum á Ólaf Lárusson hefja
lesturinn í miðjum obligasjónsrétt-
inum og Armann Snævarr leiða
okkur um hin dularfullu völundar-
hús Árna biskups og Kristinréttar
hans.
Frá þeim tíma vorum við Guðjón
vinir og á þá vináttu bar aldrei
skugga upp frá því. Mér er í fersku
minni hve skemmtilegur hann var
við þessi fyrstu kynni, opinskár,
félagslyndur og hress í andanum.
Og það breyttist ekkert þótt árin
liðu. í hans augum voru erfiðleik-
arnir ekki nema smávægilegir far-
artálmar, sérstaklega hannaðir til
að sigrast á þeim. Þegar við hinir
áttum það til að leggjast í víl og
vol út af því sem nú þættu smámun-
ir, svo sem tímabundnu peninga-
leysi eða ofurþungum prófum, var
það Guðjón sem taldi í menn kjark
af sinni eðlislægu bjartsýni og stór-
hug. Sjálfur var hann raunar hinn
prýðilegasti námsmaður. Þótt hann
legði sig daglega ekki meir eftir
lögvísinni en við félagar hans lauk
hann lagaprófi ári fyrr en við hinir
og það með ágætri fyrstu einkunn.
Svo stuttur námstími var í þá
daga sjaldgæfur og bar vott um
mikla elju og ágætar gáfur. Við það
bættist að Guðjón var þá þegar
orðinn fjölskyldumaður og fyrsta
bamið, Valgeir, kominn í heiminn.
Halda mætti að Guðjón hefði lítt
sést á mannamótum eða stúdenta-
fögnuðum vegna anna við námið.
En því fór fjarri. Hin létta lund
hans gerði hann hvarvetna að au-
fúsugesti og þá ekki síður að hann
var manna óvílnastur og höfðingja-
djarfastur. Seint mun í hugum okk-
ar félaganna §úka yfír minningarn-
ar frá þeim glöðu árum.
Síðar á lífsleiðinni lagði Guðjón
gjörva hönd á margt sem hér verð-
ur ekki rakið en þar nýttist honum
hvarvetna góð lögfræðimenntun
hans. Ég hefí stundum leitt að því
hugann hve mætur lögmaður Guð-
jón hefði orðið ef hann hefði gert
það að aðalstarfi sínu. Þar hefðu
vel nýst margir bestu kostir hans,
snerpa, áræði og dugnaður þegar á
þurfti að halda og óvenjuleg hjálp-
semi.
Alla ævina var Guðjón mikíll
sjálfstæðismaður og það í þess orðs
bestu merkingu, ekki íhaldsmaður
heldur maður frjálslyndis.
Á skólaárunum störfuðum við
saman í Vöku og mörgum árum
seinna tókum við upp þann þráð á
ný. Við undirbúning alþingiskosn-
inganna árið 1983 í Reykjaneskjör-
dæmi kom Guðjón þar til starfa af
sínum gamla dugnaði og einurð og
átti stóran þátt í þeim ágæta
árangri sem náðist í þeirri hörðu
baráttu. Þá sá ég að vini mínum
var hvergi brugðið og um þá lið-
veislu munaði meir en flestra ann-
arra.
Nú hefur sól brugðið sumri og í
dag kveðjum við Guðjón Valgeirs-
son. Ástvinum hans öllum sendi ég
samúðarkveðjur í minningu um
góðan dreng.
Gunnar G. Schram.
Það var vorið 1976 að Guðjón
og Halla buðu Siggu og mér í mat
upp í Hraunbæ. Þetta var í fyrsta
skipti sem ég hitti Guðjón. Hann
var fljótur að átta sig á hverra
manna ég var, enda hafði hann
verið í sama bransa og pabbi nokkr-
um árum áður fyrir norðan, hann
á Skagaströnd og pabbi á Króknum.
Allt upp frá þessu voru heimsóknir
tíðar og sérstaklega gaman að
fylgjast með brennandi áhuga hans
á bamabörnunum. Hann gleymdi
aldrei afmælisdögum né lét sitt eft-
ir liggja á hátíðisdögum. Þó svo að
hann væri ekki að bera tilfinningar
sínar á borð, gat hann ekki leynt
því að hann var pínulítið montinn
af að fá lítinn Guðjón afastrák í
maí í fyrra.
Guðjón var traustur og öruggur
fyrir í fjármálum og viðskiptum.
Þáðum við Sigga aðstoð hans í nær
öllum stórmálum okkar svo sem
íbúðarmálum, bílamálum, atvinnu-
málum og ekki síst byggingarfram-
kvæmdum. Þegar við reistum húsið
okkar í Löngumýri var stundum
eins og hann væri sjálfur að byggja.
Hann kom oft og stundum daglega
og hélt iðnaðarmönnum við efnið
ef þess gerðist þörf.
Guðjón og Halla ferðuðust mikið
saman og komu m.a. til okkar þeg-
ar við bjuggum í Danmörku. Fyrir
réttu ári síðan, þegar ég flutti heim,
mánuði á undan Siggu og stelpun-
um, bjó ég hjá þeim í einn mánuð
í Sólheimunum. Ég fann að honum
þótti vænt um að ég leitaði til þeirra
og var sambúðin skemmtileg og
afslöppuð.
Ég kveð ekki eingöngu
tengdapabba, heldur einnig góðan
vin.
Ragnar Marteinsson.
Fundum okkar Guðjóns Valgeirs-
sonar bar fyrst saman síðla kvölds
í vetrarmánuði á árinu 1950.
Gamall vinur minn, Páll S. Páls-
son lögmaður, var ásamt mér að
setjast inn í bifreið til þess að aka
heimleiðis frá skrifstofu Páls á
Skólavörðustíg. Þá kallaði kven-
maður á okkur Pál og bað okkur
að bíða aðeins. Hér reyndist vera á
ferðinni Margrét., systir mín, og
með henni ungur maður. Þau voru
að koma af samkomu úr Breiðfirð-
ingabúð og þurftu að fá far. Þessi
ungi maður með Margréti var Guð-
jón Valgeirsson, sem síðar varð eig-
inmaður hennar.
í þessari ökuferð upphófust strax
fjörugar umræður og ég man vel
um hvað þær snerust. Það fór ekk-
ert á milli mála, að Guðjón Valgeirs-
son hafði ákveðnar skoðanir, var
hress og vasklegur og vel heima
um marga hluti. Upp úr þessu juk-
ust kynni okkar Guðjóns og vin-
skapur sem entist meðan báðir
lifðu.
Þegar ég stóð í byggingu húss
fjölskyldu minnar í Njörvasundi 2
vann .ég eftir bestu getu að ýmsu
við bygginguna. Sá sem hjálpaði
mér mest í þeirri vinnu var Guðjón,
sem þá var orðinn mágur minn.
Ég man mjög skemmtilegar stundir
þegar við vorum að hreinsa móta-
timbur eða leggja skolprör og sí-
feilt gengu skoðanaskipti og „disk-
usjónir" milli okkar. Við vorum
sammála um sumt, en annað ekki.
Guðjón lá ekkert á skoðun sinni á
vesaldómi Framsóknar- og kaupfé-
lagsstefnu, en ég reyndi að veijast
og sækja að íhaldsstefnunni eftir
mætti.
Hvað sem leið umræðu þessari
að öðru leyti var okkur báðum
skemmt og vinskapur okkar styrkt-
ist.
Guðjón var afartraustur liðsmað-
ur Sjálfstæðisflokksins og lá ekki á
liði sínu til framdráttar flokknum
og stefnu hans. Ég hefí fyrir satt
að eitt sinn á kosningadegi hafi
Bjarni Benediktsson sagt um leið
og hann heilsaði Guðjóni: „Já, Guð-
jón minn, þú ert okkar maður þrátt
fyrir allt mágastandið."
Eins og að líkum lætur er ótal
margs að minnast frá öllum þessum
árum. Samverustundir með vensla-
fólki og vinum þeirra Guðjóns og
Margrétar voru margar á heimilum
fjölskyldnanna hér í Reykjavík, á
Seyðisfírði og víðar. Ég minnist
einnig laxveiða með Guðjóni og
góðra stunda í glaumi og gleði stúd-
entalífsins. Einnig átti ég mikil
skipti við hann vegna starfa okkar
beggja.
Áhugamál Guðjóns Valgeirsson-
ar voru mjög mörg bæði í leik og
starfí. Hann var mikill útvistarmað-
ur, ágætur skíðamaður, ötull félagi
í skíðadeild Ármanns, tók miklu
ástfóstri við skíðasvæðin svo sem í
Jósefsdal og víðar og hafði raunar
mikla unun af fjallaferðum og ann-
arri útivist, enda þekkti hann mjög
vel mörg þessi svæði og kunni frá
að greina og því var öll leiðsögn
hans um þessi mál lifandi og
skemmtileg. Hann var félagi í Flug-
björgunarsveit íslands, að því að
ég held frá fyrstu árum sveitarinn-
ar. Guðjón var einnig skáti á yngri
árum.
Guðjón Valgeirsson var heilsu-
góður fyrri hluta ævi sinnar og
góðum íþróttum búinn í hvívetna.
Heilsa hans var ekki eins góð hin
síðari ár og má vera að Guðjón
hafí ekki gætt hennar sem skyldi
og það orðið honum að ýmsu leyti
þungt í skauti.
Guðjón var greindur maður, góð-
ur námsmaður, dugmikill og örugg-
ur í störfum sínum. Ég hef af því
langa reynslu að ef hann lofaði ein-
hveiju þá stóð það eins og stafur
á bók.
Foreldrar Guðjóns voru Valgeir
Guðjónsson múrarameistari, vest-
fírskur maður, og ‘Sigríður Arin-
björg Sveinsdóttir úr Reykjavík.
Þessum merku hjónum var ánægju-
legt að kynnast og sama er að segja
um bræður Guðjóns þá Gunnar og
Kjartan og þeirra fjölskyldur.
Æskuheimili Guðjóns var á
Njálsgötu 32 í Reykjavík og þar var
raunar einnig heimili þeirra Mar-
grétar, þegar börn þeirra öll fædd-
ust.
Stúdent frá MR varð Guðjón
1950 og lögfræðingur frá Háskóla
íslands árið 1955, héraðsdómslög-
maður árið 1958.
Hann starfaði nokkur ár hjá lög-
reglustjóra á Keflavíkurflugvelli og
hjá borgarfógeta í Reykjavík vegna
Tollstjóraembættisins, hann var
framkvæmdastjóri hraðfrystihúss-
ins Hólaness hf. á Skagaströnd um
skeið, hann stundaði almenn lög-
fræðistörf nokkurn tíma, einnig
vann hann hjá Skattstofu Reykja-
víkur alllengi og síðast var hann
nokkur ár deildarstjóri við Hlutafé-
lagaskrá íslands. Hér var talið það
helsta um nám og störf Guðjóns
Valgeirssonar og stóð hann alls-
staðar vel að verki með vitsmunum
sínum, dugnaði og drengskap.
Guðjón kvæntist árið 1951 fyrri
konu sinni, Margréti Árnadóttur
Vilhjálmssonar frá Hánefsstöðum í
Seyðisfírði og Guðrúnar Þorvarðar-
dóttur úr Keflavík og Njarðvíkum.
Guðjón og Margrét eignuðust
fjögur börn og eru þijú á lífí. Elst-
ur barna þeirra er Valgeir, tónlist-
armaður og félagsráðgjafi, kvæntur
Ástu Kristrúnu Ragnarsdóttur, for-
stöðumanns námsráðgjafar í Há-
skóla íslands, en börn þeirra eru
Árni Tómas 15 ára, Arnar Tómas
3 ára og nýfætt stúlkubarn.
Annað bamið, stúlka, dó í fæð-
ingu.
Þá er Guðrún Arna, hjúkrunar-
fræðingur, sölumaður hjá Glóbus
hf., gift Pétri Hafsteini Bjarnasyni,
framkvæmdastjóra hjá Saga-fílm.
Þeirra börn eru Bjarni Þór, 13 ára,
og Edda Björk, 8 ára.
Yngst barna Margrétar og Guð-
jóns er Sigríður Anna, kennari við
Æfingadeild Kennaraháskólans,
gift Birni Ragnari Marteinssyni,
kerfisfræðingi hjá Hewlett Packard
umboðinu á Islandi. Þeirra börn eru
Margrét, 9 ára, Ragnheiður, 8 ára,
og Guðjón, næstum 10 mánaða
gamall.
Börn, tengdaböm og barnabörn
Guðjóns og Margrétar em mjög
glæsilegt dugnaðarfólk.
Guðjón og Margrét slitu samvist-
ir árið 1969.
Árið 1971 kvæntist Guðjón síðari
konu sinni, Hallveigu Halldórsdótt-
ur, ættaðri úr Hafnarfirði, ágætri
konu sem dyggilega stóð við hlið
hans í blíðu og stríðu og sendi ég
henni samúðarkveðjur.
Öllu fólki Guðjóns votta ég sam-
úð mlna og minnar fjölskyldu allrar.
Ég reyndi að hringja í Guðjón á
vinnustað hans örfáum dögum áður
en hann lést, en mér var sagt að
hann væri lasinn. Mér hefur verið
tjáð að síðasta vinnudag sinn hafí
hann verið fárveikur, en ekki hætt
vinnu fyrr en dagsverkinu var lok-
ið. En þá var svo af honum dregið
að hann komst ekki hjálparlaust út
í bifreið.
Þetta segir sína sögu um karl-
mennsku Guðjóns Valgeirssonar og
samviskusemi, en hann var einnig
ljúflingur og drengur góður sem
ekkert aumt mátti sjá, hvorki hjá
mönnum né málleysingjum.
Vilhjálmur Arnason.
____________Brids_______________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
íslandsmót kvenna og yngri
spilara í sveitakeppni 1993
íslandsmót yngri spilara og úrslit
íslandsmóts kvenna í sveitakeppni
voru spiluð í Sigtúni 9 um helgina.
Yngri spilararnir (fæddir '68 eða síð-
ar) byrjuðu á föstudagskvöld, þar voru
12 sveitir og spiluðu þeir einfalda
umferð, 12 spila leiki. Þetta var spenn-
andi keppni fram á síðasta spil þar
sem engin sveit tók afgerandi forystu.
Þegar einn leikur var eftir voru ís-
landsmeistaramir frá síðasta ári með
5 stiga forystu og unnu þessa keppni
þrátt fyrir 13-17 tap í síðasta leik.
Lokaröðin varð þessi:
íslandsmeistarar í svk. yngri spilara
1993. Sv. Sparisjóðs Siglufjarðar,
Ólafur Jónsson, Steinar Jónsson,
Hrannar Erlingsson og Sveinn R. Ei-
ríksson með 220 stig. I öðru sæti sv.
Karls O. Garðarssonar með 213 stig.
í þriðja sæti sv. Sjóvá-Almennra, Ak-
ureyri, með 201 stig.
í úrslitum í svk. kvenna voru 6
sveitir og spiluðu þær 20 spila leiki,
einfalda umferð. Þessi keppni var
spennandi ailan tímann og í síðustu
umferð áttust við sveit Þriggja frakka,
sem voru að verja Islandsmeistaratitil-
inn, og sveit Erlu Siguijónsdóttur og
voru þær báðar með 74 stig. En sveit
Þriggja frakka vann leikinn 21-9 og
þar með íslandsmeistaratitilinn, með
95 stig alls. í sveit Þriggja frakka
spiluðu Esther Jakobsdóttir, Valgerð-
ur Kristjónsdóttir, Hjördís Eyþórsdótt-
if, Anna Þóra Jónsdóttir og Ljósbrá
Baldursdóttir.
í öðru sæti var sveit Ólínu Kjartans-
dóttur með 89 stig. í þriðja sæti sveit
Erlu Siguijónsdóttur með 83 stig.
í lok móts afhenti Helgi Jóhannsson
forseti Bridssambands Islands verð-
launin.
íslandsmót í svk. - opinn
flokkur
í lok móts kvenna og yngri spilara
var dregið í riðla í íslandsmótinu, opna
flokknum, sem fram fer á Hótel Loft-
leiðum 25.-28. mars nk.
A-riðill:
1. Dröfn Guðmundsdóttir, Reykjanes.
2. Gísli Steingrímsson, Reykjavík.
3. Simon Símonarson, Reykjavík.
4. Öm Einarsson, Norðurland eystra.
5. Landsbréf, Reykjavík.
6. Hvolsvöllur, Suðurland.
7. Birgir Ö. Steingrímsson, Reykjanes.
8. Karl G. Karlsson, Reykjanes.
B-riðill:
1. Glitnir, Reykjavík.
2. Nýheiji, Reykjavík.
3. Gylfí Pálsson, Norðurland eystra.
4. Ingibergur Guðmundss., Norðurl. v.
5. S. Ármann Magnússon, Reykjavík.
6. H.Þ. kökugerð, Suðurland.
7. Roche, Reykjavík.
8. Guðmundur M. Jónsson, Vestfirðir.
C-riðill:
1. Sproti-Icy, Austurland.
2. Sparisjóður Siglufj., Norðurl. v.
3. Hreinn Björnsson, Vesturland.
4. VÍB, Reykjavík.
5. Sigurbjörn Þorgeirsson, Norðurl. e.
6. Daníel Gunnarsson, Suðurland.
7. Júlíus Snorrason, Reykjavík.
8. Sigfús Þórðarson, Suðurland.
D-riðill:
1. Tryggingamiðstöðin, Reykjavík.
2. Kristinn Kristjánsson, Vestfírðir.
3. Hrannar Erlingsson, Reykjavík.
4. Sjóvá-Almennar, Akranesi, Vesturl.
5. Eðvarð Hallgrímsson, Norðurl. v.
6. Hótel Bláfell, Austfirðir.
7. Herðir, Austfírðir.
8. Hjólbarðahöllin, Reykjavík.
Einnig var dregið um töfluröð innan
riðlanna og er þetta sú röð. Spila-
mennska hefst kl. 13 fimmtudaginn
25. mars nk. Spilaðir eru 32 spila leik-
ir, tveir á fimmtudag, tveir á föstu-
dag, tveir á laugardag og einn á
sunnudag. Tvær sveitir úr hveijum
riðli komast í úrslit íslandsmótsins I
sveitakeppni sem verður að venju spil-
uð um páskana á Hótel Loftleiðum.
Bridsfélag Húsavíkur
Húsavík.
SVEITAKEPPNI Bridsfélags
Húsavíkur er lokið og tóku þátt
í henni 10 sveitir, þar sem allar
sveitir kepptu saman.
Sveit Óla Kristinssonar sigraði
og hlaut 206 stig. Auk Óla skipa
sveitina Guðmundur Hákonarson,
Þóra Sigurmundsdóttir og Magnús
Andrésson. í öðru sæti varð sveit
Frá keppni hjá Bridsfélagi Húsavíkur. Morgunbiaðið/Siili
Þórólfs Jónassonar, með 175 stig,
í þriðja sæti sveit Björgvins Leifs-
sonar með 169 stig og í fjórða
sæti sveit Sveins Aðalgeirssonar
með 162 stig.
Næsta keppni er aðaltvímenning-
ur félagsins og verður þá keppt
eftir barómeter-formi.
- Fréttaritari.
Bridsfélag Breiðholts
Að loknum tveimur kvöldum í Butl-
er-tvímenning er staða éfstu para
þessi:
A-riðill.
EinarGuðmannsson-ÞórirMagnússon 79
Björgvin Sigurðsson - Björgvin M. Kristinsson 73
Guðbjöm Þórðarson - Guðm. Baldursson 68
B-riðill.
Baldur Bjartmarsson - Helgi Skúlason 79
Guðjón Siguijónsson - ívar Ingvarsson 72
ValgarðJakobsson-KristinnFriðriksson 68
Meðalskor 60
Keppni lýkur í kvöld.
Bridsfélag Kópavogs
Sl. fímmtudag lauk Bord a match
keppninni með sigri sveitar Ragnars
Jónssonar. Með Ragnari spiluðu Úlfar
Friðriksson, Georg Sverrisson,
Hróðmar Sigurbjörnsson, Gunnlaugur
Kristjánsson og Jón Ingi Björnsson.
Lokastaðan:
RagnarJónsson 136
Helgi Viborg 128
RagnarT.Jónasson 127
GuðmundurPálsson 117
Sveitin fyrirsunnan 113
Jón Ingi Ragnarsson 113
Næstu tvo fimmtudaga verður spil-
aður eins kvölds tvímenningur.