Morgunblaðið - 16.03.1993, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1993
25
Hjálpsamur ríkisstjóri
NEIL Miller, ríkisstjóri í Georgíu, aðstoðar væntanlegan kjósanda við að losa bíl úr snjóskafli. „Ég sá fjölda bíla
sem höfðu lent í árekstri í hálkunni,“ sagði Ragnar Hlynur Jónsson, íslenskur námsmaður í Atlanta. „Yfirleitt
er öllum fyrirtækjum og skólum lokað þegar svona veður gengur yfir en snjórinn bráðnar fljótt í sólinni".
Ragnar sagði menn eðlilega lítt búna til vetraraksturs á þessum slóðum. „Þeir eru miklu vanari þrumuveðri eins
og því sem gekk yfir heima á Islandi fyrir skömmu og olli þar rafmagnsleysi“. Hann sagði tugi íslendinga búa
í Georgíu en sér væri ekki kunnugt um að nokkur þeirra hefði slasast eða orðið fyrir tjóni í óveðrinu.
Sjaldgæft sambland af
kafaldsbyl og fellibyl
St. Cloud. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
MESTI stormur aldarinnar í Bandaríkjunum varð til yfir Mexíkó-
flóa á föstudagskvöldið. Þar mættust kaldir loftstraumar frá slétt-
um Kanada og heitir og rakir loftstraumar yfir Mexíkóflóanum.
Aðfaranótt laugardags gekk veðrið austur yfir Flórída með gífur-
legum látum, þrumum og eldingum og olli stórfelldu tjóni þó að
fólk hefði verið varað við og flestir gert ýmsar varúðarráðstafan-
ir. Veðrinu var líkt við „ófreskju sem hefði hjarta kafaldsbyls
og sál fellibyls“. Allt að 100 mílna vindhraði mældist í hviðunum.
á ströngu ferðalagi um fyrrum lýð-
veldi Sovétríkjanna, telur að Banda-
ríkin geti bjargað bæði Jeltsín og
lýðræðinu í Rússlandi. Það muni á
hinn bóginn kosta peninga. Nixon
hefur lagt til að iðnveldin sjö grípi
inn í og fresti greiðslum á erlendum
skuldum sem stofnað var til í tíð
Sovétstjórnarinnar. Þá telur forset-
inn fyrrverandi að skilyrði þau sem
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hefur
sett Rússum fyrir frekari ljárhags-
aðstoð séu í senn óraunhæf og nið-
urlægjandi.
Hinn forsmáði snýr aftur
í Hvíta húsinu reyndust menn
tilbúnir til að hlýða á sjónarmið
Nixons. Tæpum 20 árum eftir að
hann hraktist þaðan niðurbrotinn
og forsmáður afréð Clinton að kalla
hann á fund sinn. í Washington
þykir það með ólíkindum að þessa
upphefð skyldi Nixon hljóta í stjórn-
artíð demókrata, sem er tæpum 40
árum yngri en hann og mótaðist
af nánast helgri andstöðu við allt
það sem Nixon og stjórn hans stóð
fyrir. Eiginkona Clintons, Hillary
Rodham Clinton, tók ekki á móti
forsetanum aldurhnigna enda var
hún árið 1973 í hópi lögfræðinga
sem vann að rannsókn Watergate-
málsins sem varð Nixon að falli og
hefði því samkvæmt skilgreiningu
hans verið réttnefndur „óvinur".
Fundurinn með Nixon hefur
styrkt stöðu Clintons. Stuðningur
hans gerir Clinton kleift að verjast
árásum þeirra sem teljast til hægri
vængs Repúblikanaflokksins er
hann leggur áætlanir sínar um að-
stoð við Rússa fyrir þingheim. Hins
vegar er ekki ljóst hvaðan þeir pen-
ingar eiga að koma á þessum niður-
skurðartímum í Bandaríkjunum.
Nú þegar hefur verið ákveðin að-
stoð við Rússa í ár sem nemur 300
milljónum Bandaríkjadala, sem að
sönnu má teljast dropi í hafið. Tal-
ið er að þessi upphæð þreföld sé í
hverjum mánuði flutt til Vestur-
landa frá Rússlandi en þar er brost-
inn á fjármagnsflótti. Þetta þýðir á
hinn bóginn ekki að slík aðstoð Sé
með öllu gagnslaus. Áköfustu fylg-
ismenn og aðdáendur Kissingers
viðurkenna að veita megi Rússum
lán til nákvæmlega skilgreindra
verkefna á sviði efnahagsmála.
Árangurinn af slíkri aðstoð verður
hins vegar ekki mælanlegur fyrr
en að löngum tíma liðnum.
Grundvallarviðmið og
valdarán
Framganga Clintons í þessu efni
þykir um margt minna á Wilson
fyrrum forseta og það þykir lýsa
núverandi forseta vel að hann telur
að utanríkisstefnu Bandaríkjanna
beri ekki einvörðungu að marka
með tilliti til bláberra þjóðarhags-
muna á hveijum tíma heldur verði
einnig að hafa í huga ákveðin sið-
ferðisleg grundvallarviðmið. í þessu
efni beri Bandaríkjamönnum að
styðja mann sem kjörinn hafi verið
forseti Rússlands í lýræðislegum
kosningunum.
Það er ekki síst með tilliti til
þessa sem menn velta nú vöngum
yfir því hver viðbrögð Bills Clintons
og bandarískra stjórnvalda verða
ákveði Jeltsín að grípa til þeirra
„neyðarráðstafana" sem hann hefur
haft á orði að reynast kunni nauð-
synlegar til að brjóta á bak aftur
arfleifð Sovétkommúnismans. Við
blasir að Jeltsín þyrfti á stuðningi
hersins að halda og slíkt „valdarán“
í nafni lýðræðisins gæti kostað
blóðsúthellingar. Þá þykir ýmsum
sýnt að Clinton muni ef til vill neyð-
ast til að endurskoða þá áherslu sem
hann hefur lagt á niðurskurð á vett-
vangi öryggis- og varnarmála en
þrátt fyrir ótal fundi með sérfræð-
ingum í málefnum Rússlands um
þá algjöru óvissu sem þar ríkir hef-
ur forseti Bandaríkjanna ákveðið
að hraða beri framkvæmd þeirra
áætlana sem fyrir liggja um lokun
herstöðva og fækkun í liðsafla
Bandaríkjanna.
Heimildir:TAe Daily Telegraph,
International Herald Tribune ofl.
Stormurinn olli tugmilljóna tjóni á
húsum, aðallega hjólhýsum og fær-
anlegum húsum, sem mynda heilu
hverfín víða í Flórída, og ekki síður
á rafmagnslínum. Yfir 2 milljónir
heimila voru án rafmagns á föstu-
dagskvöldið, m.a. fór rafmagn af
mestum hluta Jacksonville, stærstu
borgarinnar í N-Flórída, og sums
staðar var rafmagnslaust í tvo sólar-
hringa.
Stormurinn felldi hundruð stórra
tijáa og mörg þeirra féllu á hús og
húsvagna og brutu og eftir það tætt-
ust þau sundur í stormhviðunum.
Að minnsta kosti 18 menns létu lífið
af völdum stormsins er hann gekk
yíir Flórída og það var aðeins upp-
hafið af dauðaslóð hans. Um hádegi
í gær var talið að 101 hafi látið lífið
af völdum þessa mikla óveðurs, allt
frá Kúbu til Kanada. Samkvæmt
Reuíers-fréttum létust þrír á Kúbu
og embættismaður þar taldi tjónið
gríðarlegt, mun meira en í óveðri sem
olli miklum skaða í fyrra. Að þessu
sinni urðu miklar skemmdir á hafnar-
mannvirkjum í Havanna.
Eftir að stormurinn gekk austur
og norðaustur yfir Flórída frá
Mexíkóflóanum fékk hann nýja nær-
ingu frá heitum loftstraumum við
austurströndina og tók þá að grafa
hvert ríkið af öðru í svo kynngimagn-
að fannfergi, að sögur greina vart
frá öðiai eins.
í Missisippi, þar sem snjór er
næsta sjaldséður kyngdi niður 15-20
cm snjólagi og f Birmingham í Alab-
ama varð snjólagið 35-40 cm. í
Tennessee og Kentucky snjóaði
40-50 cm. Álíka snjókoma varð í
fjallahéruðum Georgíu og S-Karól-
ínu, en í N-Karólínu snjóaði enn
meir og varð snjólagið víða 60 cm
djúpt. Þar urðu einnig flóð við strönd-
ina og a.m.k. þrír létu lífið.
Frost í Orlando
Stormurinn stóð á annan sólar-
hring í Flórída og hafði í för með
sér óvenjulega loftkælingu. Aðfara-
nótt sunnudags varð víða frost í
Norður-Flórída og sl. nótt náði frost-
línan suður fyrir Orlando og er talin
hafa valdið miklum spjöllum á
ávaxtauppskerunni.
Stormurinn var óvenju lífseigur.
Við hjónin ókum frá Orlando til Fort
Lauderdale á laugardaginn eftir
tveimur hélztu hraðbrautum lands-
ins. Vindurinn var þá enn svo mikill
að það tók í bílinn eins og gerist í
sterkum vindhviðum í íslenzkum
stormum í Hvalfirði og á Kjalamesi.
Ökumenn drógu úr hraða þegar þeir
áttu erfitt með að halda bílum sínum
innan akreinamerkinga.
Nýr „Babelsturn“
reistur fyrir EB?
Brussel. The Daily Telegraph.
EVRÓPUBANDALAGIÐ (EB) íhugar nú tillögu um að reist-
ur verði skýjakljúfur með fjarskiptamastri, alls tæpur kíló-
metri að hæð, fyrir starfsemi þess. Nái tillagan fram að
ganga verður þetta hæsta mannvirki í heimi, um helmingi
hærra en Sears-turninn í Chicago.
Þeir sem gagnrýna tillöguna
kalla hana „Babelsverkefnið“.
Spænskt arkitektafyrirtæki, L35
Arquitectos, lagði til að turninn
yrði reistur í Brussel og kæmi í
stað Berlaymont-byggingarinnar,
sem bandalagið þarf að rýma þar
sem hún þykir óhæf sem vinnu-
staður vegna asbest-mengunar.
Góður hljómgrunnur
Juan Mendoza, einn af spænsku
arkitektunum, segir að tillagan
hafi fengið góðan hljómgrunn þeg-
ar hún var kynnt fyrir embættis-
mönnum bandalagsins en eftir er
að leggja hana fram formlega fyr-
ir belgísku stjórnina, sem tekur
ákvörðun um hvernig húsnæðis-
mál EB verða leyst. „Evrópa verð-
ur að hafa eitthvað til að sýna
stórfenglegan metnað sinn í fram-
tíðinni,“ sagði Mendoza.
Turninn yrði nógu stór til að
hýsa alla starfsmenn Evrópu-
bandalagsins, alls 13.000 manns,
og þar yrðu einnig skrifstofur
þingmanna Evrópuþingsins og
stórt hótel. Áætlað er að bygging-
in kosti jafnvirði 80 milljarða
króna og Mendoza lagði áherslu á
að kostnaðinum yrði mætt með
fjárfestingum fyrirtækja.
Hærri en Sears
Hæsta mannvirki í heimi er
EES-samningurinn
Viðbótar-
bókun
undimtuð
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni,
fréttaritara Morgunbladsins.
VIÐBÓTARBÓKUN við
samninginn um Evrópska
efnahagssvæðið (EES)
vegna fráhvarfs Svisslend-
inga verður undirrituð í
Brussel á morgun, miðviku-
dag.
Jafnhliða munu aðildarríki Frí-
verslunarbandalags Evrópu
(EFTA) annars vegar og Evrópu-
bandalagsins (EB) hins vegar
skiptast á bréfum þar sem lagt
er fyrir að tollaívilnanir á landbún-
aðarafurðum frá EB sem samið
var um samhliða EES skuli taka
gildi 15. apríl.
Fyrirvarar ekki nefndir
Það verða aðalsamningamenn
EFTA sem undirrita viðbótarbókun-
ina ásamt fastafulltrúum aðildar-
ríkja EB í Brussel. Hannes Haf-
stein mun undirrita bókunina fyrir
Islands hönd. Jafnframt verður
staðfest samkomulag ríkjanna um
að tvíhliða samningar um innflutn-
ingsívilnanir á landbúnaðarafurðum
frá suðurhluta EB taki gildi um
miðjan næsta mánuð.
í umræðum sem urðu á Evrópu-
þinginu fyrir helgina lögðu þeir
þingmenn sem til máls tóku áherslu
á mikilvægi þess að framlög EFTA
til lífskjarajöfnunar innan EB væru
óskert. Þingmenn sögðu að stefna
ætti að því að staðfesta samninginn
fyrir 1. júlí. Samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins sá enginn þing-
manna ástæðu til að fjalla um þá
fyrirvara sem Spánverjar settu
fram á ráðherrafundi í síðustu viku.
KTHI-sjónvarpsmastrið í Fargo í
Norður-Dakóta, um 620 metrar á
hæð, en það næsthæsta er CN-
fjarskiptaturninn í Toronto, sem
er um 550 metrar.
Sears-turninn í Chicago, 443
metrar, er hæsta skrifstofubygg-
ingin, um 30 metrum hærri en
World Trade Center á Manhattan
og 6Q hærri en Empire State-
byggingin. Hæsta byggingin í
Evrópu er Canary Wharf-turninn
í Lundúnum.
Bílamarkadurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut
Kopavogi, sími
671800
MMC Lancer GLX '89, brúnsans., sjálfsk.,
ek. 50 þ. Rafm. í rúðum o.fl. Toppeintak.
690 þ. stgr.
Citroén BX 14TE '90, blár, 5 g., ek. 64
þ. V. 680 þ. Skipti á dýrari.
Ford Econoline 350 4 x 4 6.9 diesel, '87,
grásans, sjálfsk., ek. 116 þ., upphækkaður
35“ dekk, No Spin aftan, o.fl, Úrvalsbíll.
V. 2.1 millj., sk. á ód.
Daihatsu Feroza SX 4 x 4 ’91, 5., ek. 11
þ. Veltigrind o.fl. V. 1.180 þ.
Daihatsu Charade GTTi Turbo '88, svart-
ur, 5 g. ek. 73 þ., álfelgur o.fl. V. 490 þ
stgr.
Toyota Corolla XL ’91, 5 dyra, rauður, 5
g., ek. 34 þ. Vökvast., central o.fl. V. 790
þ. Sk. ód.
Ford Escort CL '86, gott eintak, ný skoð-
aður ’94. V. 240 þ. stgr.
Honda Civic GTi 16 v., ’88, 5 g., ek. 95
þ. Sóllúga o.fl. V. 690 þ. Sk. á ód.
Daihatsu Feroza EL il ’89, 5 g., ek. að-
eins 43 þ. V. 890 þ.
Opel Kadett 1300 LS 5 dyra '85, gott
útlit, uppt. vél o.fl. V. 260 þ.
Toyota 4 Runner V-6 '91, rauður, sjálfsk.
ek. 22 þ. Sóllúga, rafm. i rúðum, álfelgur,
33“ dekk o.fl. V. 2,4 millj.
Toyota Corolla XL 1600 Liftback 16 v.
'92, rauður, 5 g., ek. aðeins 20 þ. V. 1.030
þ. Sk. á ód.
Range Rover 4 dyra '85, hvitur, 5 g., ek.
aðeins 86 þ. V. 1.150 þ. Sk. á ódýrari.
Subaru 18001 GL Station '87, blásans.
sjálfsk., ek. 110 þ. Rafm. í rúðum o.fl
Gott eintak. V. 690 þ. stgr.
Daihatsu Charade TX '91, 5 g., ek.
19 þ. V. 630 þ.
MMC Galant GLSi Super Saloon '91
sjálfsk. m/öllu, ek. 31 þ. V. 1.400 þús.
Sk. á ód.
Ford Bronco 8 cyl. (302) '74, sjálfsk.
mikið endurnýjaður. Gott óstand. V. 480
þ. Góð lán.
MMC Lancer GLXi hlaðbakur '92,
sjálfsk., ek. 13 þ. V. 1.080 þ.
Seat Ibiza 1200 ’86, 3 dyra, 5 g., ek. 75
þ. Gott eintak. V. 160 þ. stgr.
Þú svalar lestrarþörf dagsins