Morgunblaðið - 16.03.1993, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6, Wl REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1655 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Mögiileikar á vega-
gerð í Kína kannaðir
í tengslum við samvinnu kínver-
skra stjórnvalda og íslenskra aðila
um byggingu lakkrísverksmiðju í
Kína hafa komið upp hugmyndir
um frekari samvinnu og möguleika
í því sambandi fyrir Islendinga.
Verkfræðistofa Sigurðar Thorodd-
sens hf. vann að frumhönnun
pfakkrísverksmiðjunnar og er ráð-
gjafi við byggingu hennar. Viðar
Olafsson framkvæmdastjóri verk-
fræðistofunnar sagði í gær að í
Mat á greiðslugetu
Framtaldar
tekjur gilda
NOKKUR dæmi eru um það, að
menn tjái húsbréfadeild Hús-
næðisstofnunar að þeir hafi hærri
tekjur en fram kemur í skattfram-
tali þeirra — með öðrum orðum
að þeir tejji ekki rétt fram til
skatts. Stofnunin tekur hins vegar
aðeins mark á framtöldum tekj-
um, þegar hún metur greiðslu-
getu manna vegna íbúðarkaupa,
að sögn Sigurðar Geirssonar
deildarstjóra.
Sigurður sagði að nokkuð væri
um að menn, sem væru með sjálf-
stæðan rekstur eða ynnu aukavinnu
í frístundum, gæfu ekki hluta tekna
sinna upp til skatts. Hins vegar
reyndu þeir að fá mat á greiðslugetu
niiðað við raunverulegar tekjur sín-
ar, en ekki framtaldar tekjur.
„Svarið hjá okkur er alltaf það
sama þegar menn reyna að fá okkur
til að taka tillit til þessa," sagði Sig-
urður. „Þeir verða að leggja fram
skriflega staðfestingu á þessum
launum, annars tökum við ekki mark
á þeim. Það er ekki hægt að ætlast
til þess að við sem ríkisstofnun tök-
um tillit til tekna, sem menn gefa
ekki upp gagnvart annarri rík-
isstofnun."
Mikil íbúða-
byggð rís á
Kirkjutúni
SAMKOMULAG hefur tekist um
uppbyggingu á svæðinu þar sem
Borgarskáli Eimskipafélagsins
stendur nú, en þar er áformað
að byggja nokkur hundruð íbúðir.
Svæðið markast af Borgartúni,
Kringlumýrarbraut, Sigtúni og
Nóatúni og heitir það Kirkjutún.
* Samkomulagið um uppbyggingu
Kirkjutúns verður undirritað í dag,
en að því standa Eimskip hf., ístak
hf., Álftárós hf. og Þak yfir höfuð-
ið, en innan vébanda þess eru Ör-
yrkjabandalag íslands, Sjálfsbjörg,
Landssamtökin Þroskahjálp, Sam-
tök aldraðra, Bandalag íslenskra
sérskólanema, Stúdentaráð, Leigj-
endasamtökin og Búseti.
framhaldi af því hafi verið tekin
upp samvinna milli þeirra, Halldórs
Jóhannssonar landslagsarkitekts,
sem er einn eigenda lakkrísverk-
smiðjunnar, og Vegagerðar ríkis-
ins um könnun á möguleikum á
verkefnum í vegagerð.
Vegagerðin þátttakandi
Jón Birgir Jónsson aðstoðar-
vegamálastjóri var í Guangzhou-
héraði í Kína fyrir helgina til að
ræða við stjórnvöld um hugsanleg
vegagerðarverkefni fyrir íslenska
aðila. Helgi Hallgrímsson vega-
málastjóri sagði í samtali við Morg-
unblaðið að þegar verkfræðistofur
væru að athuga með verkefni í
vegagerð erlendis væri stundum
leitað til Vegagerðarinnar með
aðstoð og vildi Vegagerðin reyna
að verða við sem flestum óskum
af því tagi. Ferð Jóns Birgis til
Kína tengdist slíku tilviki.
Þá hafa íslenskir aðilar hafið við-
ræður við kínversk stjómvöld um
markaðssetningu á fiski, vörukaup
og framleiðslu.
S.J. Mulder, aðaldeildarstjóri
þeirrar deildar bankans sem annast
hefur viðskiptin vegna Stálfélags-
ins, sagði í samtali við Morgunblað-
ið að bankinn teldi að brotajárns-
birgðirnar hafi verið um 16 þúsund
tonn en skiptastjóri hafi metið þær
sex þúsund tonn. Ekki hefði verið
talin ástæða til að vera við uppboð-
ið vegna ágreiningsins. Sagði hann
að ef rannsóknin leiddi í ljós að
bankinn hefði beðið skaða vegna
þessa myndi bankinn gera kröfu til
þeirrar fjárhæðar.
Mætti ekki á uppboðið
Helgi Jóhannesson segir að af-
Grjót fellur
af pöllum og
skemmir bíla
Á SKÖMMUM tíma hefur talsvert
tjón orðið á þremur fólksbílum
sem ekið hafa um Reykjanesbraut
vegna hruns af pöllum yfirhlað-
inna grjótflutningabíla sem sækja
efni í malarnám við Krísuvíkur-
veg.
Að sögn rannsóknarlögreglu í
Hafnarfirði virðast þunghlaðnir
grjótflutningabílarnir beygja á mik-
illi ferð inn á Reykjanesbrautina ef
þeir þurfa ekki að stöðva vegna
umferðar, og sáldrast þá möl og
steinar, allt upp í væna hnullunga á
götuna.
Tjón verður á bílum þegar stærstu
hnullungarnir falla af pöllunum og
aðvífandi fólksbílar ná ekki að
stöðva eða beygja fram hjá þeim
vegna umferðar á móti. Áð sögn
lögreglu taka stærstu steinarnir upp
undir stuðara á fólksbílum og geta
valda verulegum skaða á þeim bílum
sem ekið er á þá.
í þeim þremur tilvikum þar sem
skaðinn hefur orðið mestur hefur
ekki tekist að hafa upp á þeim bíl-
stjóra sem ábyrgðina bar.
staða bankans komi sér á óvart.
Full samvinna hafi verið með veð-
höfum meðan á skiptameðferð stóð
og í öllu verið farið eftir uppboðs-
og gjaldþrotaskiptalögum. Bankinn
hefði hins vegar ekki sinnt um að
gæta hagsmuna sinna á uppboði,
og líklega ekki talið brotajárnið
þess virði að bjóða í það.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá RLR er erindi bankans
nú til skoðunar en ekki hefur verið
tekin ákvörðun um rannsókn máls-
ins.
Sjá miðopnu: Af innlendum
vettvangi.
ÍSLENSKIR aðilar eru að athuga möguleikana á verkefnum
í Kína, meðal annars við vegagerð. Að vegagerðarhugmynd-
inni stendur íslensk verkfræðistofa, Vegagerð ríkisins og
einn af eigendum íslensku lakkrísverksmiðjuhnar í Kína.
Morgunblaðið/RAX
Vonbrigði í Stokkhólmi
EFTIR gott gengi á Heimsmeistaramótinu í handknattleik í Svíþjóð
varð íslenzka landsliðið fyrir áfalli í gær þegar það tapaði stórt fyr-
ir þýzka landsliðinu, 16:23. í dag mæta íslendingar Dönum og er þá
að duga eða drepast ef liðið á að eiga möguleika á verðlaunasæti í
mótinu. Sjá náuar í íþróttablaði.
l P
Vorið er í nánd
Morgunblaðið/Jóhann Óii Hilmarsson
ÞAÐ var vorlegt í höfuðborginni á sunnudaginn og eflaust hafa ýmsir hugsað um gróandann og sumar-
skrúðið og vonað að það versta væri liðið á erfíðum vetri. Á föstudaginn kemur eru jafndægur á vori
þegar dagur og nótt eru jafnlöng og úr því fer biðin að styttast.
Hollenskur bankí kærir gjaldþrotaskipti Stálfélagsins til RLR
Hótar að vara aðra banka
við viðskiptum á íslandi
HOLLENSKI bankinn Bank Mees & Hope hefur óskað eftir því í
bréfi til Rannsóknarlögreglu ríkisins að hún rannsaki tiltekna þætti
í skiptameðferð þrotabús Islenska stálfélagsins hf. en bankinn telur
sig hafa verið beittan svikum við mat á brotajárnsbirgðum sem bank-
inn átti veð í þegar verksmiðjan var tekin til gjaldþrotaskipta haust-
ið 1991. Bankinn hefur sent bústjóra þrotabúsins og eigendum verk-
smiðjunnar, Búnaðarbanka og Iðnþróunarsjóði, bréf þar sem lýst
er mikilli óánægju með íslenskt réttarfar og fjármálakerfi. í bréfinu
er því lýst yfir að bankinn telji það skyldu sína að upplýsa hið alþjóð-
lega bankakerfi eftir öllum hugsanlegum leiðum um þá misnotkun
sem bankinn hafi orðið fyrir í viðskiptum sínum á íslandi og slíkt
muni óhjákvæmilega hafa áhrif á lánsfjármöguleika íslands erlendis.
Umrætt brotajárn var selt Har-
aldi Þ. Ólasyni, eiganda Furu hf.,
fyrir 50 þúsund krónur á uppboði
sem haldið var 5. mars sl. en fulltrú-
ar Mees & Hope voru ekki viðstadd-
ir uppboðið og gerðu enga tilraun
til að bjóða í brotajárnið, að sögn
Helga Jóhannessonar bústjóra.