Morgunblaðið - 06.05.1993, Page 2

Morgunblaðið - 06.05.1993, Page 2
2 MORGUNBLAÐJÐ FIMMTUDAGUR 6. MAI 1993 Á SAMEIGINLEGRI æfíngu Landhelgisgæslunnar og Björgunarsveitar- innar Sæbjargar á Flateyri æfðu menn björgun úr strönduðu skipi. Varð- skipið Óðinn lagðist fyrir akkeri 150 metra undan ströndinni og þaðan var skotið línu í land. Þegar líflínan hafði verið strekkt og björgunarstóll- inn klár voru menn ýmist dregnir í land eða um borð. íslensk ferðamannaþjónusta á árinu 1993 Veruleg fjölgun er- lendra ferðamanna VERULEG fjölgun hefur orðið á komu erlendra ferðamanna til ís- lands það sem af er árinu miðað við sama tíma i fyrra. Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði þeim um 3.000, eða úr 23.255 í fyrra og í 26.189 í ár sem er 12% aukning. Mést var aukningin í apríl eða 15,7%. Hvað veturinn í heild varðar var hlutfailslega mesta aukningin í ferðum frá meginlandi Evrópu og Bretlandi. Þannig fjölgaði breskum ferðamönn- um um 35% á tímabilinu október-apríl í ár miðað við sama tímabil sl. vetur og þýskum ferðamönnum fjölgaði um 34% milli þessara tímabila. Tæplega 148.000 ferðamenn komu til landsins í fyrra og er útlit fyrir að ljöldi þeirra verði svipaður í ár að sögn Birgis Þorgilssonar ferðamálastjóra. „Horfumar virðast þokkalegar miðað við efnahags- ástandið alls staðar í kringum okkur en ástand atvinnu- og efnahagsmála og ferðaþjónustu fylgist mikið að,“ sagði hann í þessu sambandi. Hann sagði að Þjóðveijar hefðu í fyrsta skipti verið flestir á íslandi í fyrra og útlit væri fyrir að þeir yrðu það aftur í ár. Aftur á móti sagði hann ljóst að eitthvað myndi standa á fjölgun ferðamanna frá Bandaríkj- unum í ár. Búist hafði verið við að ferðum Bandaríkjamanna til Evrópu fjölgaði um allt að 10% á þessu ári vegna batnandi efnahagsástands í landinu en nú er talið ólíklegt að sú spá rætist. Frá Bandaríkjunum komu 21.600 ferðamenn til íslands í fyrra. Lítil breyting á ferðamáta Þegar litið er til ferðamáta sagði Birgir að lítil breyting hefði orðið þar á þó sennilega mætti greina ein- hveija fjölgun ferðamanna sem ferð- uðust á eigin vegum. Hann sagðist ekki halda að ferðamönnum sem kæmu með sinn eigin mat fjölgaði og benti í því sambandi á að leyfíleg- ur matarskammtur inn í landið hefði verið minnkaður úr 10 kg í 3 kg og ef ferðamenn kæmu með meira þyrftu þeir að greiða sérstakan toll af matnum. Yfirlæknir leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins Færri konur koma til krabbameinsskoðunar VERULEGA hefur dregið úr komum kvenna á leitarstöð Krabba- meinsfélagsins frá áramótum, miðað við sömu mánuði í fyrra. Þá hafa einnig færri konur á aldrinum 40-69 ára komið til sérstakrar bijóstakrabbameinsleitar. Kristján Sigurðsson, yfirlæknir leitar- stöðvarinnar, sagði að þessi þróun væri áhyggjuefni, en erfitt væri að koma auga á skýringar þessa. Kristján sagði að síðstliðin fimm ár hefði um 81% kvenna, sem boð- aðar væru í skoðun, sinnt kallinu. „Fyrstu fjóra mánuði ársins fækk- aði komum á leitarstöðina í Reykja- vík um 12%, miðað við sömu mán- uði í fyrra,“ sagði hann. „Yfír land- ið allt er samdrátturinn 9%.“ Kristján sagði að Krabbameins- félagið hefði gert samninga við verkalýðsfélögin Dagsbrún, Iðju og Framsókn, um að sjúkrasjóðir fé- laganna greiði 1.500 króna göngu- deildargjaldið fyrir félagskonur. Þá greiða félagskonur í VR 'h af göngudeildargjaldinu. „Ef þessi dræma aðsókn tengist hræðslu kvenna við að það sé dýrt að koma í skoðun til okkar, þá bendi ég á að göngudeildargjaldið hefur ekki hækkað síðan í fyrra. Ég get ekki fullyrt að efnahagsaðstæður í þjóð- félaginu eigi sök á minnkandi að- sókn, en það getur verið dýrt að spara þennan kostnað," sagði Kristján. Færri í brj óstamy ndatöku Þá sagði hann annað áhyggju- efni vera, að mæting kvenna á aldr- inum 40-69 ára í sérstaka bijósta- myndatöku hefði einnig dregist saman. Um 7% færri konur á þess- um aldri mæta til þeirrar skoðunar heldur en koma til leghálsskoðunar. Skák á St. Martin Helgi er efstur HELGI Ólafsson vann banda- ríska stórmeistarann Joel Benjamin í sjöttu umferð, sem tefld var á opna Alþjóðlega skákmótinu, á Saint Martin í gær. Er hann langefstur á mótinu með sex vinninga. Margeir Pétursson vann bandaríska stórmeistarann _Dim- itri Gurevich í gær, Jón L. Áma- son gerði jafntefli við þýska al- þjóðlega meistarann Schmittdiel og Karl Þorsteins vann banda- ríska undrabarnið Waitzkin. í dag Uppbót á loðnuvertíð__________ Strákarnir á vakt Bryngeirs íFiski- mjölsverksmiðju Vinnslustöðvar- innar í Eyjum hrepptu fyrsta vinn- ing á lottómiða 4 Fjölgun d Akureyri Ahafnir og farþegar skemmtiferða- skipa sem koma til Akureyrar eru fleiri en bæjarbúar 33 Dekkin hafq lækkaö_____________ Verðmunur nýrra og sólaðra hjól- barða hefur minnkað verulega 34 Leiöari________________________ Hvar er Þróunarsjóðurinn? 28 Bankaeftirlitið kannar hlutabréfasölu í Softis BANKAEFTIRLIT Seðlabankans er nú að kanna hvort farið hafi verið að lögum við sölu á þeim hlutabréfum sem hugbúnaðarfyrirtækið Soft- is hf. auglýsti til sölu sl. föstudag. Að sögn Þórðar Ólafssonar, forstöðu- manns Bankaeftirlitsins, vildi eftirlitið kanna hvort útboð hlutabréf- anna hefði farið fram í andstöðu við gildandi lög, annars vegar gagn- vart Softis og hins vegar Kaupþingi sem hefur skráð bréfin til sölu á Opna tilboðsmarkaðnum. Einnig hefur bankaeftirlitið verið að athuga hvort hugsanlega væri um að ræða villandi kynningu á sölu hlutabréf- anna. Kaupþing hefur sent frá sér tilkynningu þar sem tekið er fram að fyrirtækið hafi ekki að neinu leyti tekið þátt í auglýsingunni heldur sé einungis umboðssöluaðili að bréfunum. Viðskipti/Atvinnulíf Dagskrú ► Hlutafé Samskipa lækkað um ► Kvikmyndir vikunnar - 400 millj. - Helmingssamdráttur Breskur fréttaþulur sker upp hjá Armannsfelli - Bjartsýni þjá herör gegn neikvæðum fréttum Softis - Álftarós og Armannsfell - Gervihnattarás fyrir Ástralíu - innleiða nýja byggingaraðferð Bylting á byltingu ofan Þórður Ólafsson sagði að Banka- eftirlitið hefði tekið til athugunar umrædda auglýsingu frá Softis og frétt sem birtist í Morgunblaðinu sama dag vegna ákvæða í gildandi lögum um verðbréfaviðskipti og verð- bréfasjóði. „Þau kveða á um að þeg- ar um er að ræða útboð á verðbréfum sem boðin eru almenningi til kaups eigi útboðið að fara fram fyrir milli- göngu verðbréfafyrirtækja. Utgef- endur hlutabréfa geta hins vegar gefið út hlutabréf sjálfir en þá með undanþágu frá Verðbréfaþingi ís- lands,“ sagði Þórður Til að kanna hvort sala hlutabréf- anna stæðist lög kallaði Bankaeftir- litið fulltrúa Kaupþings á sinn fund. „Á þeim fundi skýrðu forsvarsmenn Kaupþings sinn hlut í þessu máli og eftir fundinn óskaði Bankaeftirlitið eftir frekari gögnum um hlutafjárút- boð Softis sem Kaupþing hafði milli- göngu um að útvega Bankaeftirlit- inu. Við erum ekki búnir að ljúka okkar athugun á þessu máli.“ Athugasemd Kaupþings Kaupþing hefur sent frá sér at- hugasemd vegna auglýsingarinnar þar sem segir: „Vegna auglýsingar frá hugbúnaðarfyrirtækinu Softis hf. ! Morgunblaðinu föstudaginn 30. apríl vill Kaupþing hf. koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri: Kaupþing hefur hlutabréf í Softis í umboðssölu og eru þau skráð á Opna tilboðsmark- aðnum. Kaupþing átti ekki þátt í ofan- greindri auglýsingu Softis hf., heldur er einungis söluaðili að bréfunum. Kaupþing hefur ekki metið virði fyrir- tækisins og mælir því hvorki með eða á móti kaupum á hlut í félaginu. Þeir aðilar sem kaupa hlut í félaginu verða sjálfír að meta á grundvelli þeirra upplýsinga sem fyrir liggja hvort um áhugaverðan fjárfestingar- kost er að ræða.“ Sjábls. B4 -----» ♦ ♦---- Heiðrún til Grindavíkur Kaupsamning- ur samþykkt- ur samhljóða BÆJARSTJÓRN Grindavíkur samþykkti samhljóða í gær drög að samningi við búsljóra þrotabús EG hf. í Bolungarvík um kaup á togaranum Heiðrúnu ÍS. Ekki er ákveðið hvað gert verður við skip- ið en nógir verða til að nýta kvóta þess, að sögn bæjarstjórans. Kaupverð togarans er 430 milljón- ir kr. Jón Gunnar Stefánsson bæjar- stjóri sagði í gærkvöldi, þegar hann var spurður að því hvort Grindavíkur- bær væri að fara út í bæjarútgerð, að menn myndu hugsa sig vel um áður en ákvörðun yrði tekin um slíkt. ( ( ( ( ( ( ( ( ( f ( ( (

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.