Morgunblaðið - 06.05.1993, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 06.05.1993, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1993 KORFUKNATTLEIKUR Phoenixáenn möguleika Phoenix heldur velli í baráttunni við Lakers eftir að hafa unnið 107:102 á heimavelli Lakers í fyrri- nótt. Lakers leiðir 2 - 1 og á möguleika á að tryggja sér sigur á heimavelli. Serbinn Vlade Divac var mjög góður og setti persónulegt met í úrslitakeppni, skoraði 30 stig fyrir Lakers. Hjá Phoenix var Charles Barkley stigahæstur með 27 stig, en nýliðinn Richard Dumas var með 18 stig. Frá Gunnari Valgeirssyni í Bandaríkjunum Þegar tvær mínútur voru til leiks- loka var Lakers sjö stigum undir, en tvö þriggja stiga skot rötuðu rétta leið og munurinn eitt stig. Phoenix tryggði sér síðan sigur með öruggum vítaskotum í lokin. „Þá sýndum við góð varnartilþrif og þau gerðu gæfu- muninn," sagði Barkley, „en þjálfar- in bjargaði okkur með ótrúlegri trú á okkur.“ „Við erum ekki mjög vonsviknir,“ sagði Randy Pfund, þjálfari Lakers. „Allir leikirnir hafa verið mjög jafnir og ég er ekki hræddur við næstu viðureign." Meistararnir frá Chicago rúlluðu yfir lið Atlanta Hawks með tíu stiga mun, 98:88, og eru þeir komnir í átta liða úrslit. Stigahæstir í liði Chicago voru Jordan með 39 stig og Horace Grant með 17 stig. í liði Atlanta Hawks var Dominique Wilk- ins stigahæstur með 29 stig. í þriðja leikhluta var Jordan leiddur af lei- kvelli með meiddan ökla en hann kom inná skömmu síðar. Indiana vann auðveldan sigur á New York, 116:93 á heimavelli sín- um. Reggie Miller var stigahæstur í liði Indiana með 36 en Defief Schrempf var líka drjúgur með 29 stig. Patrick Ewing skoraði 19 stig og Anthony Mason var með 14 stig. New York leiðir 2-1. Utah vann Seattle 90:80 í Salt Lake City. Karl Malone og Jeff Mal- one voru stigahæstir í liði Utah, Malone með 23 stig en Malone skor- aði 19 stig. í liði Seattle voru Sam Perkins og Eddie Johnson stigahæst- ir með 20 stig hvor. Utah leiðir 2-1. Reuter Michaei Jordan meiddist og fór af velli í þriðja leikhluta, en kom aftur í fjórða hluta og var stigahæstur hjá Chicago. Serbi slasast mikið SERBNESKUR leikmaður í grísku úrvalsdeildinni fkörfu- knattleik slasaðist illa í síðustu viku og miklar líkur eru taldar á að hann verði iamaður það sem eftir er ævinnar. Slobodan Jankovic leikur með Panionios og í leik gegn Pan- athinaikos í undanúrslitum deildar- innar á miðvikudaginn fékk hann dæmda á sig fímmtu villuna undir lok leiksins. Jankovic var ekki alls- kostar sáttur við villuna og í bræði sinni gekk hann að stólpanum sem heldur körfunni uppi og skallaði í hann með þeim afleiðingum að hann hné alblóðugur í gólfið. Hinn þrítugi körfuknattleiksmað- ur slasaðist illa. Tvær sprungur komu í mænu hans og hefur hann verið lamaður síðan, aðeins getað hreyft höfuðið. Læknar treysta sér ekki til að segja til um hvort hann geti gengið á nýjan leik, en líkur eru taldar á að hann verði lamaður til æviloka. FOLK ■ JUAN Antonio Sanmranch, forseti Alþjóðu Ólympíunefndarinnar, IOC, er nú staddur í Istanbul í Tyrklandi þar sem hann ávarpar ársþing Alþjóðasamtaka íþróttafréttamanna, AIPS, í dag. Hann sagði við komuna til Tyrklands í gær að Istanbul ætti möguleika á að halda Olyrnp- íuleikana árið 2000. „Það hefur orðið mik- il bylting í íþróttalífínu í Tyrklandi og íþróttimar skipa stfellt hærri sess í lffí Tyrkja,“ sagði Samaranch. ■ ISTANBUL er ein þriggja borga í Evrópu sem sótt hafa um leikana árið 2000. Hinar eru: Berlín í Þýskalandi og Manchester í Englandi. Auk þess hafa Peking, Brasilía og Sydney í Ástralíu sótt um leikana. Ólympíunefndin ákveður á fundi sínum í Monte Carlo í september hvar leikamir verða haldnir. ■ TVEIR íslenskir íþróttafréttamenn, Skapti Hallgrimsson formaður Samtaka íþróttafréttamanna og Samúel Örn Erl- ingsson, sækja AlPS-þingið í Istanbul. Ný stjóm var kosin í Samtökum íþróttáf- réttamanna í síðustu viku, en hana skipa þeir Skapti Hallgrímsson, Jón Kristján Sigurðsson og Arnar Björnsson. ■ AXEL Vatnsdal, sem hefur leikið fimm leiki með Þór á Akureyri í 1. deild karla í knattspyrnu, hefur skipt yfir í Völsung. ■ ORMARR Örlygsson hefur leikið með KA að undanförnu og verður sennilega með liðinu í 2. deild knattspymunnar í sumar. BORÐTENNIS Island með á HM í sjöunda sinn ÍSLENDINGAR verða á meðal keppenda á HM í borðtennis sem hefst í Gautaborg um næstu viku. Þetta er í sjöunda sinn sem ísland á fulltrúa á HM. Sex keppendur verða sendir að þessu sinni, fjórir karla og tvær konur. m Jsland tók fyrst þátt í heimsmeist- - aramóti 1977. Besti árangur ís- lendinga á HM til þessa var 1981 er mótið var haldið í Novi Sad í Júgóslavíu, en þá hafnaði karlaliðið í 48. sæti. Kvennaliðið náði besta árangri sínum 1977 og lenti einnig í 48. sæti. ísland keppir í flokki B-þjóða og er karlaliðið í riðli með Búlgaríu, Spáni, Króatíu, Mexíkó, Jórdaníu og Tælandi. Kvennaliðið er í riðli með Ástralíu, Slóveníu, Ghana og Georg- íu. íslenska karlaliðið er skipað þeim Kjartani Briem, íslandsmeistara úr KR og Víkingunum Kristjáni Jóns- syni, Bjarna Bjarnasyni og Ingólfi Ingólfssyni. Kvennaliðið skipa Að- albjörg Björgvinsdóttir og Ingibjörg Árnadóttir og eru þær báðar úr Vík- ingi. Gunnar Jóhannsson, formaður Borðtennissambands Islands, sagði að þátttökuþjóðimar á HM hafí aldr- Kjartan Brlem ei verið fleiri en nú, eða 89. „Við erum hóflega bjartsýnir á okkar gengi enda við sterkar þjóðir að etja bæði hjá körlunum og konunum. Við gerum okkur helst vonir um að vinna Ghana í karlaflokki, en vitum ekkert um styrkleika Georgíu. Satt að segja held ég að kvennaliðið eigi litla möguleika á að vinna leik í riðla- keppninni," sagði Gunnar. í liðakeppninni eru einungis ein- liðaleikir og eru þrír í hverju liði. Tveir leika tvo leiki og síðan sá þriðji einn leik. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki sigrar. í kvennaflokki eru tveir í liði, en þar eru spilaðir tveir einliðaleikir og einn tvíliðaleikur. Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki sigr- ar. Kjartan Briem tekur aðeins þátt í liðaképpninni þar sem hann þarf að gangast undir próf í rafmagns- verkfræði í Danmörku þegar ein- staklingskeppnin fer fram. Tveir íslenskir dómarar dæma á HM og er það í fyrstá sinn. Það eru þeir Árni Ziemsen og Albrecht Ehmann. Auk þeirra fara Hjálmar Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, Hu Daoben, þjálfari Víkings og Gunnar Jóhannsson, formaður BTI. Kosnaður Borðtennissambandsins við þessa ferð er áætlaður um 600 þúsund krónur, en þess má geta að mótshaldari greiðir gistingu og uppi- hald fyrir 5 keppendur frá hverri þjóð, þjálfara og alla dómara. Hvernig fer stórskytta Vals, ÓLAFUR STEFÁNSSOIM, að þvíað gera öll þessi mörk? Með skotstíl homamanns ÓLAFUR Stefánsson, vinstri handar skytta deildar- og bikar- meistara Vals í handknattleik, vakti athygli í fyrra og skaut þá sér reyndari og eldri leikmönnum ref fyrir rass. Hann hefur haldið uppteknum hætti f vetur og var íaðalhlutverki ífyrsta leik Vals og FH um íslandsmeistaratitilinn, sem fór fram ífyrra- kvöld. Iþróttin skipar veigamikinn sess hjá þessari efnilegustu hand- boltaskyttu Iandsins, sem undirbýr sig í sumar með U-21s árs landslið- Steinþór >"u fyrir HM í Guöbjartsson Egyptalandi í sept- ember, en á milli leikja í úrslitakeppninni helgar pilturinn náminu krafta sína. Hann fer í lokapróf í erfðafræði á morgun og verður stúdent af náttúrufræðibraut 1 í MR í vor, en ætlar í læknisfræði í haust. Ertu ekki farinn að sætta þig við að leika sem skytta eftir að hafa spilað í horninu lengst af? „Ég lék í horninu upp alla yngri flokkana, en Theódór Guðfinns- son, sem þjálfaði okkur, lét mig skipta við útispilarann Valgarð Thoroddsen, þegar ég var á öðru ári í 2. flokki. Valli fór í hornið, en ég stækkaði ört á þessum tíma og var því settur í skyttuna. Ég vildi vera áfram í hominu til að bytja með, en það er miklu meira að gera fyrir utan, maður er meira í boltanum og því er það skemmti- legra.“ Skotstíllinn hjá þér er óvenju- legur. Hefurðu æft þig sérstaklega í þvi að vera öðruvísi en aðrir? „Ég hef öðruvísi skotstíl heldur en margir aðrir vegna þess að ég hef alist upp í horninu, en reyndar hefur verið reynt að beina mér frá þessari hreyfingu. Ég er ekki með þessa hefðbundnu skyttuhreyf- ingu heldur frekar úlnliðshreyf- ingu eins og hornamenn skjóta. Ég hef ekki verið nógu líkamlega sterkur og því frekar lagt áherslu á að styrkja mig til að komast í gegnum þessa gaura, en svo hef ég æft skotin með þungum bolta, 800 gramma bolta, og það hefur gefíst mjög vel. Þegar ég var í 2. flokki var ég oft með boltann í kjallaranum heima og dúndraði í vegginn. Það vom viðbrigði að byija með stóra boltana og þetta Morgunblaðið/Þorkell Ólafur Stefánsson, sem er 19 ára, lokar sig af á milli leikja og æfinga og les fyrir stúdentspróf, en gaf sér rétt tíma til að líta upp í gær. var ágætis lausn til að geta góm- að þá almennilega." Leggurðu mikið á þig? „Já, já. Þegar ég er að styrkja mig tek ég vel á og fínnst það gaman — „no pain, no gain“ [eng- inn verkur — engar framfarir] — annað gengur ekki. Þessi aldur, 18 til 21s árs, er besti tíminn til að styrkja sig og því er gott að nýta hann vel.“ Þú varst í öðrum íþróttagrein- um. Hvers vegna varð handboltinn fyrir vaiinu? „Ég hef gaman af körfubolta og „fússaranum" og fer reyndar stundum í tennis með pabba, en ég er ekki beint mikill þolkarl. Þetta með handboltann var frið- samleg þróun og í 2. flokki hætt- um við nokkrir félagarnir í fótbolt- ann og fórum í handboltann. Fyrst allir fóru fylgdi ég straumnum og þetta er ólíkt skemmtilegra." Þú ert líka í tónlistinni? „Hún fór reyndar fyrir ofan garð og neðan og það var mér að kenna. Ég var að læra á þver- flautu en hætti þegar ég fór í menntaskóla. En tónfræðin kemur sér oft ágætlega. Ég hlusta á lög, fínn gott lag, hripa nóturnar niður og spila þegar ég hef tíma, en ég er alæta á tónlist." Verður ekki erfitt að samræma handboltann og læknisfræðina? „Ég hef metnað í öllu, sem ég geri, en ég veit ekki hvernig þetta kemur til með að þróast. Eg ætla að gera mitt besta, skipuleggja tímann og þá á þetta að hafast, þó ég geri mér grein fyrir því að læknisnámið þarf sitt.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.