Morgunblaðið - 06.05.1993, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C
lOO.tbl. 81.árg.
FIMMTUDAGUR 6. MAI 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ljósmynd/Vamarliðið í Keflavík
ORRUSTUÞOTA af gerðinni F-15 frá varnarstöðinni í Keflavík fylgist með sovéskri herflugvél af gerðinni „Bear D“ í nágrenni íslands. Hámarki náði flugumferð
Sovétmanna við ísland árið 1985 er þotur varnarliðsins flugu í veg fyrir 170 sovéskar herflugvélar.
*
Bandarísk stjórnvöld undirbúa breytingar á varnarviðbúnaði á Islandi
Mikill niðurskurður er
fyrirhugaður 1 Keflavík
Kostnaðarsamur rekstur Keflavíkurstöðvarinnar talinn kalla
á fækkun fiugvéla - SkoðanaágTeiningnr milli Pentagon og
stjórnkerfisins - íslensk sendinefnd væntanleg* til Washington
Washington. Frá Agnesi Bragadóttur blaðamanni Morgunblaðsins.
MIKILL niðurskurður á starfsemi og umsvifum bandaríska varnarliðs-
ins í Keflavík er nú í undirbúningi meðal bandarískra sljórnvalda.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins úr bandaríska stjómkerfinu
er einkum horft til þess að minnka flugvélaflota Bandaríkjahers á
íslandi. Væru allar P-3 flugvélar hersins og F-15 orrustuþotur kallað-
ar heim til Bandaríkjanna hefði slíkt í för með sér um 1400 manna
fækkun í varnarliðinu. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa
ofangreindar breytingar verið til umræðu í bandaríska vamarmála-
ráðuneytinu (Pentagon) og utanríkisráðuneytinu að undanfömu.
Utanríkisráðuneyti íslands barst nýverið
skeyti þar sem hugmyndir í þessa veru
voru reifaðar. Bandarísk stjórnvöld telja
samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
nauðsyn á breytingum og vilja í kjölfar
loka kalda stríðsins draga úr hemaðarum-
svifum sínum í Evrópu. Auk þess leggja
bandarísk stjómvöld áherslu á að fram-
fylgja þeirri stefnu Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta að draga úr fjárlagahalla.
Augljóst er talið að skoðanaágreiningur
er innan bandaríska stjómkerfísins, á milli
Pentagon og stjórnmálamanna um hversu
langt skuli ganga í niðurskurðinum.
Óskað eftir viðræðum
Til stóð að bandarísk sendinefnd færi
héðan frá Washington til íslands til við-
ræðna við íslensk stjórnvöld nú í byijun
maí um breytt og minna hlutverk herstöðv-
arinnar í Keflavík. Heimildir Morgunblaðs-
ins herma á hinn bóginn að íslensk stjóm-
völd hafi óskað eftir því að senda viðræðu-
nefnd hingað til Washington og aðfallist
hafi verið á það. Sendinefnd frá íslandi
er því væntanleg innan skamms til Wash-
ington.
Samkvæmt upplýsingum bandarískra
stjórnvalda hefur það ekki komið til tals
að hætta allri starfsemi á vegum varnarl-
iðsins í Keflavík en meðal annars mun það
hafa verið til skoðunar að kalla allan flug-
flota Bandaríkjahers á íslandi heim til
Bandaríkjanna. Rætt er um að tveir val-
kostir séu til staðar: annars vegar vemleg-
ur niðurskurður sem hefði í för með sér
ofangreinda fækkun í herliði Bandaríkja-
manna á íslandi; hins vegar margvíslegar
smávægilegar breytingar. Sá fyrri er talinn
mun líklegri niðurstaða, en þó er mögulegt
að bil beggja verði farið. Bandarísk stjóm-
völd horfa til þess hversu kostnaðarsamur
rekstur herstöðvarinnar í Keflavík er í sam-
anburði við aðrar herstöðvar. „Við viður-
kennum þó, þrátt fyrir allt, að við erum
með tvíhliða varnarsamning við ísland, sem
við erum ekki með við nokkurt annað ríki
og þann samning munum við virða,“ sagði
talsmaður Bandaríkjastjórnar í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins.
Loftvarnir og kafbátaleit
P-3 vélar og F-15 þotur Bandaríkja-
manna í Keflavík hafa annast loftvamar-
og kafbátaeftirlit, einkum með sovéskum
flugvélum og kafbátum. Þetta hlutverk
flugvélanna telja bandarísk stjórnvöld að
sé nú einungis fyrir hendi að mjög tak-
mörkuðu leyti. Fram til ársins 1985 voru
12 herþotur af gerðinni F-4 staðsettar hér
á landi. Þegar umsvif Sovétmanna jukust
um miðjan áratuginn voru þær endurnýjað-
ar og til íslands komu 18 þotur af gerð-
inni F-15 „Eagle“. Þær eru nú tólf en
fækkunin var ákveðin sumarið 1991
Háttsettir starfsmenn Pentagon sögðu
fyrr í þessari viku að verið væri að kanna
að hve miklu leyti væri hægt að skera nið-
ur starfsemi þessa á Keflavíkurflugvelli.
Morgunblaðið hefur upplýsingar um að
íslensk stjómvöld hafi bent þeim banda-
rísku á að þrátt fyrir hrun Sovétríkjanna
væm Rússar enn með mikinn herafla í
norðri og af þeim sökum væri óráðlegt að
stórdraga úr styrk vamarliðsins í Keflavík.
Bandarísk stjómvöld hafa lýst þvi
sjónarmiði sínu að eðlilegt væri að íslensk
og bandarísk stjómvöld skiptu með sér
rekstrarkostnaði af Keflavíkurflugvelli, þar
sem hann væri ekki einungis herflugvöllur
heldur einnig aðalflugvöllur landsins.
Ákvörðun innan skamms
Bandarísk stjómvöld líta þannig á að
þótt starfsemi herstöðvarinnar í Keflavík
komi til með að taka umtalsverðum breyt-
ingum, muni stöðin áfram hafa hlutverki
að gegna svo sem fýrir millilendingar fyrir
bandarískar herflugvélar. Jafnframt er litið
þannig á að áfram sé hemaðarleg staðsetn-
ing landsins mikilvæg jafnvel þótt aðstæður
í heiminum hafi dregið úr þýðingu Keflavík-
urstöðvarinnar um stundarsakir hið
minnsta. Rætt er um að endanlegar ákvarð-
anir verði að liggja fyrir innan skamms
vegna afgreiðslu íjárlaga Bandaríkjaþings.
Boða samráð við íslendinga
Bandarísk stjómvöld leggja áherslu á
að þótt fýrirhugaðar séu ákveðnar breyt-
ingar á starfsemi og umsvifum varnarliðs-
ins í Keflavík þá hafi ekkert endanlega
verið ákveðið. Að sögn heimildarmanna
blaðsins verður reynt að taka allar slíkar
ákvarðanir í eins miklu samráði við íslensk
stjórnvöld og unnt er. Ekki liggur enn fyr-
ir hvenær breytingar munu taka gildi.
Rætt er um að ákveðnar breytingar verði
gerðar þegar í stað en aðrar á lengri tíma.
Reuter.
Friðarviðræður í Bosníu
Konstantín Mitsotakis, forsætisráðherra
Grikklands, sem sést hér ásamt Radovan
Karadzic, leiðtoga Bosníu-Serba, hvatti í
gærkvöldi til að friðaráætlunin yrði sam-
þykkt án skilyrða.
Bosníu-Serbar
setja skilyrði
Pale, Brussel. Reuter.
FLEST benti í gærkvöldi til að fulltrúa-
samkunda Bosníu-Serba myndi sam-
þykkja alþjóðlega friðaráætlun um Bosn-
íu. Greindi Ta/yug-fréttastofan frá þessu
og sagði samþykkið vera háð því skil-
yrði að refsiaðgerðum gegn fyrrverandi
Júgóslavíu verði aflétt innan þriggja
vikna.
Þá eru Bosníu-Serbar sagðir krefjast þess
að þau landsvæði sem eru í höndum Serba
verði tengd saman. Owen lávarður, samn-
ingamaður Evrópubandalagsins í friðarvið-
ræðunum, hafði fyrr um daginn sagt að Serb-
ar gætu engin skilyrði sett. Þeim stæðu ein-
ungis tveir kostir til boða, að samþykkja eða
hafna samkomulaginu.