Morgunblaðið - 06.05.1993, Blaðsíða 13
13
MORGUNBLAjDIE) 'FIjMMTiUDAGUR 6. MAÍ 1993
Ballerína: Sæmundur Valdimars-
son.
arflugið býður þykir mér hann ná
heillegustum árangri. En þegar hann
reynir að auka á hina listilegu út-
komu með aðskotahlutum og magna
þannig áhrifamátinn nálgast hann
að mínu mati full mikið svið listiðn-
aðarins nema í stöku tilvikum.
Þannig er hið stóra verk „Sólris"
áhrifamikið fyrir hina hreinu og
kláru skírskotun og ætti að taka sig
mjög vel út eitt sér og í réttu um-
hverfi. Á meðan listamaðurinn hefur
skurðjárnið í höndunum er honum
alveg óhætt að beita hugarfluginu,
eins og fram kemur í verkunum
„Klúbbur" þar sem eru nokkur and-
lit í hring inni í trjábol og „Ljúfa“ en
í því verki fer hann alveg og beint
inn í trjábolinn.
Einfaldleikinn, sem skín úr mynd-
unum „Á ströndinni" og „Ballerína"
er heillandi og einnig mætti nefna
verk eins og „Glasabörn", „Heima-
sæta“ og fleiri í þeim dúr.
Annars er spurn hvort ekki hefði
mátt grisja sýninguna aðeins til hags
fyrir sterkari heildaráhrif.
Fjölbreytileiki heimsins
Bókmenntir
Guðmundur Heiðar
Frímannsson
Jón Ormur Halldórsson: Löndin
í suðri, Heimskringla, 1992, 247
bls.
íslendingar trúa því gjarnan um
sjálfa sig, að þeir viti meira um
heimsbyggðina en títt er um aðrar
þjóðir. Og víst er um það, að þeim
leikur mörgum á tungu fjölbreyti-
legur fróðleikur um margvíslegar
staðreyndir umheimsins. En þegar
aðeins nánar er skoðað, eru þeir
alveg jafn bundnir eigin aðstæð-
um og aðrir og fáir menn í land-
inu kunna skil á þeim staðreynd-
um, sem gera aðrar þjóðir og
breytni þeirra skiljanlegar. Enda
þarf iðulega að hafa töiuvert fyrir
því að afla slíkra upplýsinga og
maður þarf að skilja samhengi
hlutanna til að átta sig á mikil-
vægi þeirra.
Eg held, að þetta sé satt um
þekkingu okkar á nálægum lönd-
um. Fæst okkar leiðum við hug-
ann að því, að brezka ríkið er
ekki þjóðríki í sama skilningi og
íslenzka ríkið eða danska ríkið.
En þegar íjær dregur á jarðar-
kringlunni, vitum við minna og
skiljum minna. Það er því umtals-
verður fengur að hafa fróðan
mann til leiðsagnar um huldu-
heima fjarlægra landa og þjóða.
Jón Ormur Halldórsson, stjóm-
málafræðingur, hefur kennt al-
þjóðastjórnmál við Háskól'a ís-
lands, ritað ýmislegt um alþjóða-
mál og verið reglulegur höfundur
í útvarp um svipuð efni.
Fyrir síðustu jól kom út bók
eftir Jón Orm um þau fjarlægu
lönd og þjóðir, sem þessi árin eru
nefnd suðrið. Þau hafa verið nefnd
þriðji heimurinn, vanþróuð lönd,
þróunarlönd og sjálfsagt ýmislegt
annað.
Bókinni má skipta í þijá hluta.
Fyrstu þrír kaflarnir glíma við
spruninguna um af hveiju Evrópa
var voldugasta heimsálfan á nýöld
og fram á okkar dag. Annar hluti
bókarinnar segir af samfélögum,
byggingu þeirra og gerð í austur-
löndum nær, suður Asíu og suð-
austur Asíu, Afríku og rómönsku
Ameríku. í þriðja og síðasta hluta
bókarinnar er fjallað um margvfs-
legan vanda suðursins og viðleitni
manna til að ná tökum á honum.
Þar er sagt frá hungri, mannfjölda
og þróunaraðstoð og þeim þjóðfé-
lagsvanda, sem tengist þessu
þrennu.
Eins og sjá má er mikið efni
haft hér undir og það þarf engan
að undra, þótt ólíkir hlutar bókar-
innar séu misgóðir. Sjálfum finnst
mér fyrsti og þriðji hlutinn mun
betri en annar hlutinn. Til þess
l'ggja ýmsar ástæður en þó sú
helzt, að í þeim hlutum er verið
að fást við mjög mikilvæg atriði
til skilnings á nýlegri sögu og
nútímanum og höfundur leitast
skipulega við að rannsaka og
hafna _eða fallast á rök um þessi
efni. Ég get ekki betur séð, en
hér sé fengist við margt af því,
sem allir áhugamenn um þessi
efni hljóta að leiða hugann að og
reyna að taka afstöðu til. Það
þýðir ekki, að mér finnist allar
niðurstöður höfundar afspymu
sannfærandi. En nógu margar
Jón Ormur Halldórsson
þeirra eru nógu sannfærandi til
að flestir, sem um þessi mál
hugsa, hljóta að vilja skoða þessa
bók og skilja.
Annar hluti bókarinnar, sem er
lýsing á tildrögum samtímans í
ólíkum hlutum suðursins, virðist
mér heldur lakari en hinir. Það
kann að stafa af því, að það er
óhjákvæmilegt annað en að fara
á sjö mílna skóm yfir efnið og
ýmsar staðhæfingar hljóta að orka
tvímælis. Það er erfiðara en í hin-
um hlutunum að raða efninu upp
í kringum eitt eða fáein mikilvæg
atriði. En þó verður að taka fram,
að þetta á ekki við um alla kafla
í þessum miðhluta bókarinnar.
Beztir af þeim eru kaflarnir um
suður og suðaustur Asíu.
Til að nefna dæmi um vafasam-
ar staðhæfingar má benda á bls.
92-93. Þar er fjallað um Líbanon
pg vikið að hlutverki innrásar
Israels í suðurhluta landsins til
að vinna bug á hryðjuverkamönn-
um Palestínumanna. Það er sagt
að þúsundir manna hafi látizt í
innrásinni og nokkur hundruð í
kunnri árás á flóttamannabúðir á
þeim slóðum. Við þessa frásögn
er það að athuga, að ártala er
hvergi getið eða dagsetninga og
því er erfitt að átta sig á nákvæm-
lega, hvað talað er um. En það
er sjálfsagt að líta svo á, að hér
sé átt við innrás ísraela árið 1982.
Það er líka ástæða til að átta sig
á, að tala fallinna er mjög um-
deild meðal annars vegna þess,
að vestrænir ijölmiðlar létu ljúga
sig fulla um, að á fyrstu vikum
innrásarinnar hefðu 10 þúsund
látizt og 600 þúsund væru heimil-
islaus.
Það mætti nefna önnur dæmi
um eðlileg ágreiningsefni. Ég þyk-
ist vita til dæmis, að hægt sé að
gera öðruvísi grein fyrir nýlendu-
stefnunni, en hér er gert, og þurfa
menn þá ekki að fara leið Leníns
í því efni. En ég held, að Jón
Ormur hafí rétt fyrir sér um, að
styrkur verzlunarstéttarinnar í
Evrópu eigi mikinn þátt í þeirri
sérstöku þróun skiptingar heims-
ins og heimsviðskipta síðustu ald-
irnar, sem átt hefur sér stað. En
nóg um það. Þetta er góð bók,
læsileg og fróðleg um fjöldamarga
hluti og ætti að vera fengur öllum,
sem vilja hugsa um þessi efni.
Jóhannesarpassía J.S. Bach
Kristinn Sigmundsson syngur
hlutverk Jesú á nýjum diski
NYLEGA var gefin út geisladiskur með flutningi Hljómsveitar 18.
aldarinnar og nokkurra stórsöngvara á Jóhannesarpassíu J.S. Bachs
á vegum hollenska stórfyrirtækisins Philips. Diskurinn hefur fengið
lofsamlega dóma í fagtímaritum erlendis en Kristinn Sigmundsson,
óperusöngvari, fer með hlutverk Jesú í verkinu. Graham Dixon,
tónlistargagnrýnandi breska fagtímaritsins Classic CD, segir að
Kristinn fari af nærgætni og alúð með orð Krists á krossinum þó
honum hætti stundum til að ýkja. Tímaritið gefur flutningnum 4
stjörnur af 5 mögulegum.
Kristinn sagðist hafa farið í tón-
leikaferð með Hljómsveit 18. aldar-
innar og hefði diskurinn verið tekinn
upp í Hollandi undir lok hennar eða
rétt eftir áramót í fyrra. Hann sagði
að hljómsveitin, sem léki á upprunar-
leg hljóðfæri, væri afar virt, og
Frans Briigge, stjórnandi hennar
ekki síður. Aðspurður kvaðst hann
vera afar ánægður með útkomuna á
diskinum.
Þrír diskar fyrir Decca
Breska hljómplötufyrirtækið
Decca gefur út 3 geisladiska með
þátttöku Kristins um þessar mundir.
Sá fyrsti er flutningur Drottning-
holm hljómsveitarinnará Don Gio-
vanni eftir Mozart í óperunni í
Stokkhómlmi árið 1989. Diskurinn
kom út árið 1990 og var sérstaklega
verðlaunaður af samtökum sænskra
gagnrýnenda árið eftir. Á diskinum
fer Kristinn með hlutverk II Comm-
endatore.
Onnur upptaka á Töfraflautunni
eftir Mozart fór fram með sömu
hljómsveit í fyrrasumar og er áætlað
að sá diskur komi út seinna á þessu
ári að sögn Kristins. Hann fer með
hlutverk Sarastros í verkinu. Að lok-
um má svo geta þess að Kristinn
tekur þátt í flutningi á nútímaóper-
unni Die Gezeichneten (Hinir mörk-
Islandsför
í september
Kristinn, sem býr í Wiesbaden,
ætlar að syngja á íslandi í sept-
ember en efnisskráin er óráðin.
uðu) eftir Franz Schreker í Berlín í
ágúst á þessu ári og verður flutning-
urinn tekinn upp af Decca.
Fellur sæmilega í geð
Þegar frekar var spurst fyrir um
hvað Kristinn hefði fyrir stafni um
þessar mundir kom fram að hann
hefði í félagi við þá Viðar Gunnars-
son og Gunnar Guðbjörnsson, óperu-
söngvara við óperuna í Wiesbaden,
haldið tónleika með íslenskum söng-
lögum á alþjóðlegri listahátíð í borg-
inni 1. maí. Húsfyllir var á tónleikun-
um og hefur afar jákvæð gagnrýni
fýlgt í kjölfar þeirra.
Annars sagðist Kristinn vera á
förum til Stuttgart þar sem hann
tæki þátt í uppfærslu á Öskubusku
eftir Rossini en þaðan lægi leiðin til
Genfar til að taka þátt í uppfærslum
á Töfraflautunni og Brúðkaupi Fíga-
rós. Þannig sagði Kristinn að ekkert
lát væri á vinnu. „Þetta gengur vel
og fellur sæmilega í geð, að ég held,“
sagði Kristinn en von er á honum
hingað til lands í september.
%1600 cc vél meö innspýtingu
% Sídrif % Lœsing í millikassa
#5 gfrar • Vökvastýri
• Álfelgur o.fl.
Verö kr.
1.295.000. stgr.
meö ryövörn og skráningu.
ARA
Skúlagötu 59 Reykjavík S. 619550 1943-1993