Morgunblaðið - 06.05.1993, Síða 26
r
26
Svíar að
rétta úr
kútnum
SÆNSKA efnahagslífið er nú
smátt og smátt að rétta úr kútn-
um og botninum hefur verið náð
að sögn sænskra hagfræðinga.
Segja þeir, að helsta visbend-
ingin um þetta sé að vörupönt-
unum til útflutningsfyrirtækja
hafí fjölgað um 6% í febrúar
og til annarra fyrirtækja um
3%. Ails hefur pöntununum
fjölgað um 8% á fyrsta fjórð-
ungi ársins, á heimamarkaði um
6% og í útfiutningi um 9%, að
sögn danska dagblaðsins Politi-
ken.
Afturkippur í
Bandaríkjunum
VÍSITÖLUR sem notaðar eru
sem helsti mælikvarði á ástand
bandarískra efnahagsmála féllu
meira í marsmánuði en nokkru
sinni á síðustu tveimur árum,
að sögn bandaríska viðskipta-
ráðuneytisins. Lækkaði sam-
setta vísitalan um 1% eftir að
hafa hækkað um 0,5% í febr-
úar. Ástæðan er samdráttur í
byggingariðnaði og atvinnu-
leysi.
Fyrsta fórn-
arlambið
FORINGI í sérsveitum rússn-
esku lögreglunnar, Vladímír
Toloknejev, sem slasaðist í átök-
um lögreglunnar við kommún-
ista og þjóðernissinna í Moskvu
1. maí, lést í gær á sjúkrahúsi.
Er hann fyrsti maðurinn, sem
lætur lífið í þeim pólitíska óróa,
sem nú er í Rússlandi, en hann
varð á milli þegar vörubifreið
var bakkað á hann. Er óttast,
að dauði hans auki enn á spenn-
una en andstæðingar Borísar
Jeltsíns búa sig undir ný mót-
mæli á sunnudag. Jeltsín segir
hins vegar, að þeim, sem kynda
undir ofbeldi, verði hér eftir
engin miskunn sýnd.
Sakir bornar
á ráðherra
HELMUT Kohl, kanslari Þýska-
lands, hefur beðið sérfræðinga
í sinni þjónustu að kanna ásak-
anir á Gúnther Krause sam-
gönguráðherra en hann er sagð-
ur hafa misnotað opinbert fé.
Krause flutti heimili sitt frá
Berlín til Eystrasaltsstrandar-
innar og á misnotkunin að hafa
verið í því fólgin, að hann hafí
látið ríkið greiða kostnaðinn við
það. Krause hefur raunar viður-
kennt, að ráðuneytið hafí greitt
þennan kostnað en lögfræðingur
hans segir, að það sé löglegt.
Tímaritið Stern segir hins veg-
ar, að um lögbrot sé að ræða.
Áður hefur Krause orðið uppvís
að því að nota opinbert fé til
að greiða vinnukonu sinni laun.
Heimaland
fyrir hvíta?
HVÍTIR menn í Suður-Afríku
gætu sagt sig úr lögum við rík-
ið ef ekki tekst að semja um
sjálfstjórn þeirra. „Við viljum
ákveða sjálfir framtíð okkar.
Ef við getum ekki gert það með
samningum, munum við hug-
leiða að stofna okkar eigið ríki,“
sagði Tienie Groenewald hers-
höfðingi í viðtali við Reuters-
fréttastofuna. Groenewald, sem
er fyrrverandi yfirmaður leyni-
þjónustu hersins, er einn af fjór-
um uppgjafaherforingjum, sem
reyna nú að sameina hvíta menn
í kröfunni um sjálfstætt ríki
hvítra manna. Kveðst hann vilja
forðast ofbeldi en reyni stjórnin
að knýja þá, sem ekki vilja, til
að búa við yfirráð svartra
manna, muni hugsanlega verða
gripið til vopna.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1993
Reuter
Leiðangur til bjargar skógarbirni
BRESKIR hermenn fóru í gær á brynvarinni bifreið til borgarinnar Vitez í
Bosníu til að leita að skógarbimi, sem er þar í vörslu króatískra hermanna.
Með þeim voru starfsmenn alþjóðlegra dýravemdarsamtaka sem segja að
bjöminn sé vannærður og vanræktur, en því neita króatísku hermennimir.
Dýravinimir vilja flytja björninn á vemdarsvæði í Grikklandi en óvíst er
hvort hermennimir láti það eftir þeim þar sem þeim líkar ekki slík afskipta-
semi útlendra dýravina. Bjöminn hefur verið nefndur MacKenzie, eftir kana-
dískum hershöfðingja sem stjómaði friðargæsluliðum Sameinuðu þjóðanna
í Sarajevo í fyrra. A myndinni gefur einn dýravinanna biminum að éta.
Kalda baðið getur
aukið kynhvötina
KALT bað einu sinni á dag kann að vera besta leiðin til að auka
kynhvötina, að því er vikublaðið European hefur eftir breskum
vísindamönnum. Þeir segja að kalt bað geti einnig verið heilsubót
fyrir fólk sem þjáist af „uppaflensunni" svokölluðu og þá sem
hafa of lágan blóðþrýsting.
Samkvæmt rannsókn Throm-
bosis Research Institute í Lund-
únum eykst framleiðsla hormóna
sem stjórna kyngetu karla og frjó-
semi kvenna í þeim sem lauga sig
köldu vatni daglega.
Vísindamenn stofnunarinnar
könnuðu áhrif misjafnlega kaldra
baða í mismunandi langan tíma á
líkama sjálfboðaliða. Þeir segjast
hafa komist að því að hvítum fmm-
um, sem vinna á ýmsum veirum,
fjölgi í þeim sem baði sig daglega
í köldu vatni þannig að þeim sé
ekki eins hætt við flensu og öðrum
kvillum. Hjá nokkrum sjálfboðalið-
anna jókst einnig hárvöxtur.
„Menn verða að athuga að
þetta er ekki allra meina bót, en
v leið til að fá líkama okkar til að
starfa betur,“ sagði Vijay Kakk-
ar, yfirmaður stofnunarinnar.
Andreotti á blaðamannafundi í Róm
Segir engar sann-
anir vera gegn sér
Upplýsingar um gífurlega spillingu
hjá ítalska símafyrirtækinu
Róm, Mflanó. Reuter.
GIULIO Andreotti, fyrrverandi
forsætisráðherra Ítalíu, ítrekaði í
gær fyrri yfirlýsingar um að hann
hefði aldrei haldið hlífiskildi yfir
mafíuforingjum og sagði dómar-
ana engar sannanir hafa gegn
sér. Uppvíst er orðið um gífurlega
spillingu í tengslum við endurnýj-
un ítalska símakerfisins fyrir
nokkrum árum en til hennar var
vanð tugmilljörðum króna.
Á fréttamannafundi, sem Andre-
otti boðaði til, gerði hann lítið úr
framburði fyrrverandi mafíósa, sem
sagt hafa frá tengslum hans við
mafíuna, og sagði hann skáldskap
líkastan. „Lygin er stuttfætt," sagði
hann og brá fyrir sig ítölskum máls-
hætti, sem táknar, að sannleikurinn
komi fljótt í ljós.
Andreotti sagði, að enginn hefði
barist meira gegn mafíunni en hann
og rakti ýmis dæmi um það en við-
urkenndi, að hann og aðrir leiðtogar
Kristilega demókrataflokksins hefðu
átt að reka þá menn í flokknum,
einkum á Sikiley, sem grunaðir
hefðu verið um samstarf við maf-
íuna.
2,5 milljarðar í mútur
Æðstu yfirmenn símafyrirtækis-
ins ASST, sem heyrir undir Póst og
síma á Ítalíu, hafa verið handteknir
og er búist við fleiri handtökum
næstu daga. Koma þær í kjölfar
upplýsinga, sem Cesare Romiti,
framkvæmdastjóri Fiats, hefur gefið
um mútur og spillingu varðandi út-
boð á síðasta áratug. Þá var unnið
að mikilli endurnýjun ítalska síma-
kerfisins fyrir um 100 milljarða ísl.
kr. Talið er, að fyrirtæki, sem buðu
í verkin, hafi orðið að bera fé á
embættis- og stjórnmálamenn til að
fá þau og eru mútugreiðslurnar
sagðar hafa numið 2,5% af upphæð-
inni allri eða um 2,5 milljörðum.
Mun mest af þessu fé hafa runnið
til kristilegra demókrata og sósíal-
ista.
-------♦-----------
Bjartsýni
í friðar-
viðræðum
Jerúsalem. Reuter.
HÁTTSETTUR fulltrúi PLO,
Frelsissamtaka Palestínumanna,
sagði í gær, að hugsanlegt væri,
að samninganefndir Israela og
Palestinumanna gæfu út sameig-
inlega viljayfirlýsingu varðandi
helstu málin í friðarviðræðunum.
Nabil Shaath, pólitískur ráðgjafi
Yassers Arafats, leiðtoga PLO, sagði
í viðtali við ísraelska útvarpið, að
samningsvilji ísraela og Bandaríkja-
manna hefði aukist. „Við teljum nú
möguleika á að gefa út sameiginlega
viljayfirlýsingu um helstu málin og
erum að vinna að því,“ sagði Shaath.
Shasth sagði, að viljayfirlýsingin
myndi verða um löggjafarvald Pal-
estínumanna, kosningar á Vestur-
bakkanum og á Gaza-svæðinu, yfir-
stjórn hemumdra svæða og bráða-
birgðasjálfstjórn.
Hiroshi Nakajima endurkjörinn forstjóri WHO eftir harðar deilur um störf hans
Smyglaði hann fornminjum frá
Víetnam í sérsmíðuðum kistum?
Sakaður um helgimyndasmygl frá Rússlandi - Sagður hafa keypt sér
stuðning með fjárveitingum til vafasamra verkefna í þróunarlöndum
„ÞAÐ blasir við að starfsemi Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinn-
ar (WHO) verður ekki svipur hjá sjón næstu fimm árin eða með-
an Hiroshi Nakajima gegnir starfi forstöðumanns hennar,“ sagði
Sighvatur Björgvinsson heilbrigðismálaráðherra í samtali við
Morgunblaðið í gær en hann situr nú ársfund WHO í Genf. Fyrstu
dagar fundárins hafa snúist um stjórnarhætti Nakajima sem sak-
aður hefur verið um að misnota fjármuni stofnunarinnar til að
tryggja eigin stöðu. Eftir harðar deilur á þinginu var hann endur-
kjörinn yfirmaður stofnunarinnar til fimm ára í gær með 93 at-
kvæðum gegn 58. Réði úrslitum að fulltrúar Asíu- og Afríkuríkja
slóu skjaldborg um Nakajima.
„Nakajima fékk fleiri mótat-
kvæði en búist hafði verið við og
færri stuðningsatkvæði. Sömuleiðis
sátu færri þjóðir hjá en búist hafði
verið. Framkvæmdaráð stofnunar-
innar hafði samþykkt með 18 at-
kvæðum gegn 13 í janúar sl. að
leggja til að hann gegndi áfram
starfi forstöðumanns og því hefur
verið haldið blákalt fram að hann
hafi orðið að kaupa þann stuðn-
ing,“ sagði Sighvatur Björgvinsson.
„Já, við greiddum atkvæði gegn
því að Nakajima héldi starfinu. Það
gerðu eihnig Bandaríkin, öll hin
Norðurlöndin, EB-ríkin og öll ara-
baríkin. Þetta eru ríkin sem borgað
hafa starfsemi stofnunarinnar,"
sagði Sighvatur en þess má geta
að árstillag íslands til stofnunarinn-
ar er' á sjöttu milljóna króna.
„Ég geri ráð fyrir því að úrslit
atkvæðagreiðslunnar eigi eftir að
segja til sín í starfsemi WHO. Full-
trúi Bandaríkjanna sagði til dæmis
berum orðum að hann ætti ekki von
á því að bandaríska þingið fengist
til að veija krónu til stofnunarinnar
á grundvelli þeirrar skýrslu sem
hann yrði að gefa þegar heim
kæmi,“ sagði Sighvatur.
Mútur
í samtalinu við Morgunblaðið
sagði heilbrigðisráðherra að fyrir
þinginu hefðu legið yfirlýsingar,
m.a. frá hans eigin starfsmönnum,
um að Nakajima hefði keypt sér
stuðning með því að veita peningum
til umdeildra verkefna í þróunar-
löndunum. „Flest þessara verkefna
voru út í hött og á engan hátt til
að efla heilbrigðiskerfið í viðkom-
andi löndum. Þannig var nefnt
dæmi í gögnum sem lágu fyrir fund-
inum að hann hefði ákveðið að veita
150.000 dollurum til þess að rann-
saka breytingar á heilbrigðiskerfínu
á Filippseyjum í tíð Corazon Aquino
forseta. Viðkomandi fulltrúi tók við
peningagreiðslunni en aldrei varð
neitt úr verkinu. Sú greiðsla hefur
farið beint í vasa viðkomandi,"
sagði ráðherrann.
Með kistusmið á sínum snærum
Sighvatur sagði að til marks um
ásakanirnar á hendur Nakajima
hefði í gær borist bréf inn á fund-
inn sem háttsettur japanskur
starfsmaður hjá WHO hafði ritað
japönskum stjómvöldum þar sem
fram komu þungar ásakanir í garð
forstjórans. „Nakajima er kunnur
fyrir söfnun gamalla muna og fom-
minja. í bréfinu er frá því sagt og
nafngreindur sérstakur starfsmað-
ur WHO á Filippseyjum sem haft
hefur þann starfa fyrir Nakajima
að láta smíða fyrir hann ferðakistur
með tvöföldum botni svo hann gæti
smyglað fornminjum, meðal annars
frá Víetnam. Þá hefur komið fram
að Nakajima var eitt sinn tekinn
fyrir tilraun til að smygla helgi-
myndum, íkonum, frá Rússlandi
sem er harðbannað og við liggur
þung refsing þar í landi,“ sagði
ráðherra.
„Þrátt fyrir kosninguna er um-
ræðum um notkun fjármuna stofn-
unarinnar og stjórnarhætti Nakaj-
ima ekki lokið. Þær eiga eftir að
halda áfram bæði á þinginu sjálfu
og í nefndum. Meðal annars eru til
umfjöllunar athugasemdir endur-
skoðenda stofnunarinnar en þær
eru margar hveijar mjög alvarleg-
ar. Það er með ólíkindum hvað dreg-
ið hefur verið fram í dagsljósið og
stofnunin verður ekki söm eftir
þetta,“ sagði Sighvatur.
Sighvatur Björgvinsson hélt
ræðu á þriðjudag á fundinum þar
sem hann fjallaði um það sem efst
væri á baugi í heilbrigðismálum
íslendinga. Ásamt honum eru full-
trúar íslands á fundinn, sem lýkur
í næstu viku, Páll Sigurðsson ráðu-
neytisstjóri, Dögg Pálsdóttir lög-
fræðingur alþjóðasviðs heilbrigðis-
ráðuneytisins og Ólafur Ólafsson
landlæknir.
Stolt Japana
Hiroshi Nakajima er fyrsti Jap-
aninn sem velst til forystu í stofnun-
um Sameinuðu þjóðanna (SÞ). Jap-
anir hafa talið sig hafa borið skarð-
an hlut miðað við framlag sitt til
SÞ og hafa japönsk stjómvöld beitt
sér ákaft fyrir endurkjöri hans; litið
svo á að heiður Japana væri í veði
en ríki sem lögðust gegn kjöri hans
vildu fremur kjósa Alsírmanninn
Mohammed Abdelmoumene sem
Nakajima setti af sem aðstoðar-
framkvæmdastjóra WHO í fyurra
eftir að Abdelmoumene gerði opin-
bert að hann hefði áhuga á stóli
japanska lyfjafræðingsins. Banda-
ríska blaðið New York Times hefur
skýrt frá þvi að svo hart hafi Japan-
ir beitt sér fyrir endurkjöri Nakaj-
ima að þeir hafi hótað því að hætta
efnahagsaðstoð við ríki sem ekki
vildu lýsa yfir stuðningi við hann.