Morgunblaðið - 20.05.1993, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1993
GETURVERIÐ AP VIP
SÚJW.f1'- UNPLUGGEPli
wsm'&SEMtíh
v umm j-JA
r .m'MKiNN \
vmmwmwi
ÉOSEdlFIWHJíWÉR
wt\Mmmw
Sð/VGW NOKK RflR J
HENPINGflR! yá
k fí fífíÐUK^
ar ekki saua fipsnm
i sammw-Mfó ,
SOUNPTÉKK-
I SðLON
lonSiímUM [ v
EitJHTVEIR.
INNSTUN5HN
spah'i nmnvNNt
^HfíU'O '
aKUREfflt
QK.pimzrfítj mni-
LEWPIR. zim
s&SQ’nmm
00 SVð (PACKIDntE
FUWPESTÖff) 'l
Ýi’DfíaEIDiO 22M\_
smróajM
A S?MS)VH
ysj n srHNJJ
C>aN réfíHi
Næst, útgáfutónleikar
á Tunglinu 27. og BIG
BANG Þotunni,
Keflavik 28. Svo!??...
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Veiðimaðurinn
ÞAÐ ER kominn fiðringur í veiðimenn og eftir norðanáhlaup og
nepju síðustu daga var hæglætisveður á Akureyri í gær. Guðmundur
Gunnarsson notaði það til að renna fyrir bleikju á Leirunum og kom
ekki tómhentur heim.
29 milljónajtap hjá Hrað-
frystihúsi Ólafsfjarðar
Ólafsfjörður
AÐALFUNDUR Hraðfrystihúss
Olafsfjarðar hf. fyrir rekstrar-
árið 1992 var haldinn nýlega,
en félagið rekur hraðfrystihús
og fiskimjölsverksmiðju í Ólafs-
firði. Erfiðleikarnir sem sjávar-
útvegurinn gengur nú í gegnum
endurspegluðust í rekstri fé-
lagsins sem rekið var með 29
milljóna króna tapi þegar tekið
hafði verið tillit til 10,6 milljóna
króna greiðslu úr Verðjöfnunar-
sjóði sjávarútvegsins. Til saman-
burðar var tap félagsins á árinu
1991 tæpar 38 milljónir króna.
Rekstrartekjur ársins 1992 voru
327,7 milljónir króna en rekstrar-
gjöld námu 298,1 milljónum króna.
Afskriftir voru 21,2 milljónir króna
og fyrir fjármagnsliði var rúmlega
8 milljóna króna hagnaður af
rekstrinum. Er það talsverð breyt-
ing frá árinu á undan sem sýndi
18 milljóna króna tap fyrir fjár-
magnsliði.
Á árinu störfuðu 36 starfsmenn
að meðaltali hjá félaginu við heils-
ársstörf og námu launagreiðslur
samtals 66,9 milljónum króna.
Hagræðing
Stöðugt er unnið að hagræðingu
og endurbótum á rekstri félagsins.
Nýleg flæðilína er í notkun í frysti-
húsinu og á síðasta ári voru eignir
seldar fyrir 11,8 milljónir króna.
Þá komu 25 milljónir króna i nýju
hlutafé inn í félagið á árinu.
Framkvæmdastjóri Hraðfrysti-
húss Ólafsfjarðar er Karl Guð-
mundsson, en Jón Þorvaldsson er
formaður stjómar.
SB
Litháenskir dýralæknar
í kynnisferð hérlendis
Ytri-Tjörnum, Eyjafjarðarsveit.
TVEIR dýralæknar frá Litháen, Darius Bakutis, aðstoðarmaður
yfirdýralæknis Litháens og Zygimautas Simelionis, sem er sjálf-
stætt starfandi dýralæknir eru í eins mánaðar heimsókn á íslandi
á vegum Dýralæknafélags íslands með stuðningi utanríkisráðuneyt-
is. Dýralæknamir eru að kynna sér störf starfsbræðra sinna hér
á landi.
Þeir munu dvelja í Eyjafirði í
eina viku og kynnast þar störfum
dýralæknanna Sigurborgar Daða-
dóttur og Ólafs Jónssonar við eg-
gjaflutninga, sæðistöku og júgur-
bólgurannsóknir. Þeir hafa verið í
viku í Búðardal hjá héraðsdýra-
lækni þar og munu síðan dvelja í
hálfan mánuð í Reykjavík og
Keflavík og fylgjast með sér-
greinadýralæknum á Keldum og
dýralæknum Dýraspítalans og
dýralæknum er starfa við heil-
Karlakór Akur-
eyrar-Geysir
heldur tónleika
Karlakór Akureyrar-Geysir held-
ur þriðju vortónleika sína í
Skemmunni á Akureyri í kvöld,
fimmtudagskvöldið 20.maí og
hefjast þeir kl. 20.30. Stjórnandi
kórsins er Roar Kvam.
Einsöngvarar með kómum eru
þeir Jón Þorsteinsson, tenór og Mich-
ael Jón Clarke, baritón.
Á efnisskrá em lög eftir innlenda
og erlenda höfunda, en Blásarasveit
æskunnar leikur undir í tveimur lög-
um, Landkjenning eftir Grieg og
Hermannakór úr Faust.
Kórinn heldur aðra tónleika með
sömu efnisskrá á sunnudaginn, 23.
maí.
(Fréttatilkynnine.)
brigðiseftirlit sveitarfélaga.
Miklir þurrkar
í Litháen eru um 1.000 dýra-
læknar og er nokkuð um atvinnu-
leysi á meðal þeirra. Á síðustu
tveimur ámm hefur stómm sam-
yrkjubúum verið skipt upp og
bændur hafíð sjálfstæðan búskap,
en miklir þurrkar hafa gert þeim
erfítt fyrir og þeir neyðst til að
selja og eða lóga hluta af kúnum
af þeim sökum. Sama virðist ætla
að vera upp á téningnum á þessu
vori, gífurlegir þurrkar og miklir
erfiðleikar í kjölfarið í landbúnaði.
Benjamín
—.....-------------
Bilavörur
Jazztónleikar
í gagnfræða-
skólanum
JAZZKVINTETTINN „Jazztalk“
kemur fram á tónleikum í Gagn-
fræðaskólanum á Akureyri á
sunnudagskvöldið, 23. maí kl.
20.30.
Kvintettinn hefur einkum leikið á
Kaupmannahafnarsvæðinu og í
kaffihúsum Norður-Sjálands, auk
heimsóknar til Finnlands. í hópnum
eru Palle Gylling, altsaxófónn, Jörg-
en Kmse, píanó, bassaleikarinn Pet-
er Bartels, söngkonan Hanne Marie
Lorenzen og Morten Brink, trommu-
leikari.
Kvintettinn mun taka þátt í RÚ-
REK jazzhátíðinni í Reykjavík dag-
ana 25. til 28. maí næstkomandi,
en síðan liggur leiðin til Grænlands
þar sem haldnir verða tónleikar á
þremur stöðum.
(Fréttatilkynning.)
H.ETTl' Aö RAKA A PER FOTLEGGINA!
\
TOUCH háreyðingarkremunum losar þú þig við óæskileg hár á þægilegan og sársaukalausan hátt
Regular
fyrir venjulega húð,
Bikini
■ fyrir "bikini" svæði
o kreminu er einfaldlega
rúllað á hársvæðið og
skolað af í sturtu eða
baði eftir tiltekinn tíma
(sjá leiðb.)
o húðin verður mjúk
- ekki hrjúf
o ofnæmisprófað
Sensitive
fyrir viðkvæma húð.
Útsölustaðir:
Flestar snyrtivöru-
verslanir, apótek og
snyrtivörudeidir
stórmarkaða.