Morgunblaðið - 20.05.1993, Síða 43

Morgunblaðið - 20.05.1993, Síða 43
________________________MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAI 1993 Lilja Eiríksdóttir, Selfossi — Minning Sýn mér, sólarfaðir, sjónir hærri en þessar málið mitt er síðast miklar þig og blessar. Sýn mér sætt í anda sæla vini mína, blessun minna barna burtför mína krýna. Dæm svo mildan dauða, Drottinn, þínu barni eins og léttu laufi lyfti blær frá hjami, eins og lítill lækur ljúki sínu hjali, þar sem lygn í leyni liggur marinn svali. (Matthías Jochumsson) skeið í Sundhöll Selfoss. Hún var ein af stofnendum Kvenfélags Selfoss og vann því félagi svo vel sem hún mátti. Hún starfaði líka mikið fyrir Sjálfsbjörgu, landssamband fatlaðra. Við Lilja áttum svolítið sameigin- legt, reyndar heilmikið. Báðar vorum við ömmur Unu Bjargar og Áma Víðis sem lengst af þjuggu undir sama þaki og hún, svo að þau höfðu miklu meira af henni að segja en ömmu í sveitinni, a.m.k. þangað til þau fóru að koma hingað í kaupa- vinnu að sumrinu. Við kynntumst fyrir svo sem 20 árum, þegar sonur minn, Hjörtur, og Helga, dóttir hennar, ákváðu að eyða ævinni saman. Lilja var mild og móðurleg í við- móti og vildi öllum gott gera. Hún vildi láta hafa sem minnst fyrir sér, en bar hag annarra þeim mun meira fyrir bijósti. Slíkra er gott að minn- ast. Lilja var orðin ekkja, þegar við kynntumst. Hún var hætt að vinna úti og bjó áfram á Skólavöllum 2. Innan fárra ára fluttust Hjörtur og Helga með börnin sín tvö á efri hæðina á Skólavöllum 4, sem er undir sama þaki, bara annar inn- gangur. Þau, eins og annað ungt fólk, sem keppir að því að eignast þak yfir höfuðið, urðu að sjálfsögðu bæði að vinna úti. Una Björg, sem nú er að verða 18 ára, og Árni Víðir, sem fermdist núna á pálmasunnudaginn, voru alltaf velkomin til Lilju ömmu, þegar pabbi og mamma voru í vinn- unni og þau voru enn ung og smá. Það er og verður þeim ómetanlegt. Auk þess sem þau áttu traust og gott heimili hjá foreldrum sínum áttu þau annað athvarf hjá ömmu sinni og hún gaf sér ævinlega nógan tíma til að sinna þeim. Þau eiga eftir að búa að þeim forréttindum alla ævi. Þegar þau stækkuðu gátu þau að nokkru endurgoldið henni umhyggj- una, sem hún sýndi þeim ungum. Síðustu tvö árin hrakaði heilsu henn- ar, svo hún þ'urfti á sífellt meiri hjálp að halda til þess að þurfa ekki að dveljast á sjúkrastofnun. Þá hjálp átti hún sannarlega inni hjá ijölskyld- unni á efri hæðinni, enda var hún fúslega veitt. Síðustu misserin bjó hún að mestu hjá Helgu og Hirti og naut umönnunar þeirra og barnanna. Lilju langaði til að lifa ferminguna hans Árna Víðis, yngsta barnabarns- ins. Henni varð að þeirri ósk. Hún var óvenju hress þann fallega dag og gat notið samvistanna við börn, barnabörn, barnabarnabörn og aðra vandamenn. Hún var falleg þennan 43 dag eins og jafnan áður. Hún var óvenju glæsileg kona og bauð af sér góðan þokka eins og allir, sem ævin- lega bera meiri umhyggju fýrir öðr- um en sjálfum sér. En nú átti hún skammt eftir ólif- að. Á miðvikudeginum í sömu viku fékk hún áfall og lést að 10 dögum liðnum. Þá rættist önnur ósk henn- ar. Hún vildi deyja að vori til. Börn hennar skiptust á að vaka yfir henni þar til yfir lauk. Ég ímynda mér að hún hefði viljað kveðja í sama anda og Matthías Joc- humsson gerði í versunum hér á undan, sem hún hefur vafalaust þekkt. Svo mikið kunni hún af sálm- um og Ijóðum. Einhvern veginn finnst mér að svona hafi hún hugs- að. Efst í huga hennar var umhyggj- an fyrir börnum hennar og öðrum vinum og vandamönnum. Blessuð sé minning hennar. Ingibjörg Bergþórsdóttir, Fljótstungu. Lilja var fædd í Reykjavík. For- eldrar hennar voru Eiríkur Ingi- magnsson, ökumaður, fæddur 29. júní 1877 á Akranesi, dáinn 11. maí 1948, og kona hans Elísabet Jóns- dóttir, fædd 11. maí 1878 á Brenni- stöðum í Borgarhreppi í Mýrasýslu, dáin 4. desember 1933. Lilja var elst fjögurra systkina, sem upp komust. Bræðurnir, Jón og Ingimagn, eru látnir, en systirin, María Wouters, fluttist til Bandaríkj- anna eftir stnð og býr nú í Flórída’. Lilja ólst upp í foreldrahúsum við Bræðraborgarstíg og gekk í Landa- kotsskóla. Þar naut hún m.a. hand- leiðslu mjög góðs móðurmálskenn- ara, sem hún minntist með virðingu og þökk. Guðrún hét hún. Hún varð líka fyrir áhrifum af þeirri trúrækni sem ríkti þarna og kunni mikið af sálmum, bænum og Ijóðum. Að lokinni skólagöngu vann hún við ýpiis störf, sem til féllu, svo sem fiskverkun og framreiðslu, en ljúfast var henni að minnast vinnu sinnar á fæðingarstofnun, sem Helga Níels- dóttir veitti forstöðu og lét þess oft getið að hún hefði gjarnan kosið sér ljósmóðurstarfið, ef hún hefði haft tök á að læra það. Árið 1934 giftist hún Brynjólfi Valdimarssyni, bifreiðastjóra frá Sól- eyjarbakka, sem fæddur var 1. jan- úar 1896 og lést 19. desember 1973. Hann stundaði mjólkurflutninga. Þau bjuggu á Selfossi frá 1939 til ævi- loka. Börn þeirra voru fimm: Eiríkur, sem er kvæntur Valgerði Bjömsdótt- ur. Þau eiga átta böm. Valdimar, kvæntur Jakobínu Kjartansdóttur. Þau eiga tvær dætur. Erlingur dó ársgamall. Elísabet, gift Steinþóri Þorsteinssyni. Þau eiga þijá syni. Helga, sem er gift Hirti Hjartarsyni. Þau eiga tvö börn. Alls eru bama- börnin orðin fímmtán og langömmu- börnin eru orðin sex. Eftir að Lilja fluttist til Selfoss var hún lengi framan af heimavinn- andi húsmóðir, saumaði allt og pijón- aði á fjölskylduna, og í kringum hana var allt smekklegt og snyrtilegt. Þegar bömin stækkuðu fór hún að vinna úti. Hún vann m.a. á Sjúkra- húsi Suðurlands og síðar um tíu ára KYNNINGARFUNDUR FARKLÚBBS VISA Sunnudaginn 23. maí, kl. 14 - 17 að Hótel Holiday Inn AÐ LEIGJA BÍL - BUDGET Rent a Car John Larsen, forstjóri VÍSA LEIÐIN UM EVRÓPU Sigmar B. Hauksson, fararstjóri AKSTUR í ÚTLÖNDUM Björn Pétursson frá FÍB KORTHAFATRYGGINGAR VISA Leifur Steinn Elísson, aðst.framkvstj. Jasskvartett Árna Scheving tekur sveiflu Kaffiveitingar í boði VISA ALLIR FAR- OG GULLKORTHAFAR VISA VELKOMNIR Nánari upplýsingar: FARKLÚBBUR Tsr UPPLÝSINGA- OG PJÓNUSTUMIÐSTÖÐ Höfóabakka 9, 112 Reykjavík Sími 91-671700, Fax 91-673462 ......, .. -i*. 'Xi w ■ 71 Höfðabakka 9, 112 Reykjavi||jiKmi 671700

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.