Morgunblaðið - 20.05.1993, Page 50

Morgunblaðið - 20.05.1993, Page 50
50 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1993 fclk í fréttum SJONVARP Gráturinn í þáttunum var raunverulegur Sara Polly, sem leikur Söru í þáttunum Leiðinni til Avonlea segist hafa orðið þekkt fyrir að gráta í þáttun- um. Það sem almenningur vissi þó ekki, var að tárin voru ekki leikaraskapur heldur raunveruleg. Móðir hennar var nefnilega með krabbamein og hún dó rétt eftir að Sara hafði slegið í gegn sem sjónvarps- stjarna. Hún segir að auðvitað hafi þetta verið erfitt tímabil, en hún hafi það gott núna. Það var árið 1990 sem móðir hennar dó og aðeins viku eftir jarðarförina mætti Sara aftur í myndverið tilbúin í fleiri upptökur. Hún vildi ekki láta snúast í kringum sig með vorkunnsemi heldur ósk- _aði eftir því að komið væri fram við hana eins og alla aðra. Hún segir að allir þeir sem leika í þáttunum og stjórna þeim séu frábærir og þeir hafí hjálpað henni mjög mikið. Dagurinn hjá Söru er mjög langur, hún vaknar klukkan fjögur á morgnana og vinnur oft langt frameftir á kvöldin. Hún dregur ekki undan að þetta sé erfitt, því fyrir utan vinnuna þarf hún að sinna náminu. Tónleikabar Vitastíg 3, sími 628585 Fimmtudagur 20. maí Opið frá kl. 21-01 Sappaaðdáendui! Sappakvöld í kvöld. Mætum í Sappastuði. Föstudagskvöld: Valdimar Flygenring og hljóm- sveitin Bláeygt sakleysi. Sara með stóra bróður sínum, Mark, en það var einmitt hann sem hvatti til þess að hún færi í prufutökur. Sara, sem er 13 ára, býr í Toronto í Kanada með föður sínum Michael, sem er breskur leikari, og 25 ára bróður sín- um Mark, en það var einmitt hann sem taldi foreldra sína á að leyfa Söru að fara í prufu- tökur fyrir auglýsingar, þegar hún var aðeins fjögurra ára. Sara er sjónvarpsstjarna með eigin bílstjóra og hún vinnur sér inn mikla peninga meðan hún hefur hlutverkið í Leiðinni til Avonlea. Hún seg- ist þó ekkert vera farin að velta fyrir sér að kaupa stórt hús heldur stefni hún á Ox- fordháskóla í Bretlandi þegar hún hafi aldur til. I frítímanum fínnst Söru gaman að lesa og þá gjarnan ljóð með vinum sínum, sem eru oft helmingi eldri en hún, eða þá að hún situr og spilar á gítar. Þó hún sé bara 13 ára á hún kærasta, en hann býr langt frá henni. Hún segir það vera mikinn galla, því að síma- reikningurinn sé svo ofboðs- lega hár. C.UOSM C’- Slt/L7AC,E?-0 COSPER Þessi frábæra franska söng- og leikkona heldur tvenna tónleika á Hótel íslandi fimmtudags- og föstudagskvöld Fimmtudagur - KK-band Föstudagur - Júpiters Miöaverð aðeins 1.200 kr Miðasala og borðapantanir í síma 687111. HQTEL IMD Sigríður Sunna Aradóttir hlaut fyrstu verðlaun fyrir söguna sína Systkini. Linda Ösk Þorleifsdóttir hafnaði í fyrsta sæti með ljóð sitt Astin er úti. SAMKEPPNI Krakkar úr Tjarnar- skóla sigursæl Ut er komið ljóða- og smásagnakverið Bleik- ar bólur á vegum Félagsmið- stöðvarinnar Tónabæjar, en sex verðlaun, þrjú í hvorum flokki, voru veitt í samkeppni sem fram fór í vetur á vegum félagsmiðstöðvarinnar. Eft- irtektarvert er að fjórar við- urkenningar fóru til nem- enda í Tjarnarskóla. Alls bárust 86 smásögur og 107 ljóð í keppnina, en bókafor- lögin Iðunn, Vaka-Helgafell og Mál og menning gáfu vegleg verðlaun. Mikið lagt up úr persónulýsingum Sigríður Sunna Aradóttir í 9. MSH hreppti fyrsta sæti í smásagnakeppninni. „Ég hef aldrei áður tekið þátt í neinni svona keppni. Kennar- inn sendi inn sögurnar, án þess að við vissum af því, svo að ég varð rosalega undr- andi þegar hringt var í mig og mér sagt að ég hefði unn- ið,“ sagði Sigríður í stuttu spjalli við Morgunblaðið. „í Tjarnarskóla er mikið lagt upp úr bókmenntum, bæði ljóðum og sögum. í sögunum er t.d. lögð áhersla á per- sónulýsingar og svo er mjög nákvæmlega farið út í rit- gerðir.“ Sigríður hlaut Sturlunga- sögu og skáldsögur eftir Pét- ur Gunnarsson í verðlaun. Hún segist hafa lesið mjög mikið þegar hún var yngri, en heldur hafi dregið úr því að undanförnu. Nú orðið les hún þyngri bækur til dæmis eftir Halldór Laxness. Hún segist hafa byijað að lesa þær af skyldurækni, en nú þyki henni þær skemmtileg- ar. „Sérstaklega finnst mér Salka Valka skemmtileg, en Brekkukotsannál las ég í lestrarkeppninni, svo ég fór frekar hratt yfir hana. Ég þarf bara að lesa hana aft- ur,“ segir hún. Verðlaunasætin Í fyrsta sæti í ljóðakeppni hafnaði Linda Ósk Þorleifs- dóttir með ljóðið Ástin er úti, í 2. sæti Guðjón Elmar Guðjónsson með ljóðið Snjór, vatn og sól og í 3. sæti lenti Sindri Sindrason með ljóðið Ljóð. Þau eru öll úr Tjarnar- skóla. í 2. sæti í smásagna- keppninni lenti Arnþrúður Ingólfsdóttir í 2. sæti með söguna Hvernig maður breytist þegar rigningin kemur, í 3./4. sæti lentu þær Dagbjört Jónsdóttir og Elísa Pétursdóttir með söguna Tvær geðveikar stúlkur, en Laufey Geirsdóttir lenti einn- ig í 3./4. sæti með söguna Litla stjarnan. DANSSVEITIN ásamt Evu Ásrúnu Albertsdóttur í kvöld og alla helgina Aðgangseyrir kr. 800.- Opið frá kl. 22-03 Borðapantanir í síma 68 62 20 _ Laugaw*gi 45 - s. 21 255 BLÚSPARTÝ VINIRDÓRA ásamt fjölda gesta, þ.á m. TREGASVEITIN, BOBBY HARRISON, SNIGLABANDIÐ, PÁLL RÓSINKRANS Föstudagskvöld: STJÓRNIN í góöum gír

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.