Morgunblaðið - 08.06.1993, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 08.06.1993, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JUNI 1993 21 Sjópróf vegna þyrlusjúkraflugs á miðin Omöguleg aðstaða þyrlulækna að hafa ekki björgunarþyrlu SJÓPRÓF vegna veikinda sjómanns sem fékk innvortis blæðingar um borð í hafnfirska frystitogaranum Haraldi Kristjánssyni og ákvörðunar um að sækja hann hófust í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Sjóprófin beinast einkum að því að upplýsa atriði sem varða öryggi sjómanna þar sem ekki eru taldar líkur á refisverðum atrið- um og ekkert liggur fyrir um bótakröfur. Læknir á Borgarspítalan- um sagði að læknar þyrlusveitarinnar yrðu að byggja ákvarðanir sínar á takmörkuðum upplýsingum. Þá væru þeir settir í ómögu- lega aðstöðu þar sem þeir réðu ekki yfir flutningstæki þegar langt væri sótt (stórri björgunarþyrlu) og gætu aðeins reitt sig á útlent herlið. Sjómaðurinn sem hér um ræðir, Eiríkur Ragnarsson skipstjóri í afleysingum, sagðist í samtali við Morgunblaðið vonast eftir því að sjóprófín leiði til breytinga á núver- andi vinnureglum, framvegis verði allur vafí um hvort sækja ætti veika eða slasaða sjómenn á miðin túlkað- ur þeim í hag. Haraldur Kristjánsson HF var á djúpkarfamiðunum um 280 sjómílur suðvestur af Reykjanesi laugardag- inn 8. maí síðastliðinn þegar Eiríkur Ragnarsson veiktist. Fram kom í sjóprófunum að Eiríkur hafði verið veikur frá því á föstudag, talið sig vera að fá flensu. Um klukkan 17 lá við að yfir hann liði þar sem hann var við vinnu og fór hann þá í koju og annar stýrimaður tók við stjórn skipsins. Um klukkan 19 kom niður af honum allmikið blóð og sagði Guðbjartur Pétursson, fyrsti stýrimaður, sem þá var tekin við stjórninni um borð að þá hafi hann sett á fulla ferð til lands og haft samband við stjómstöð Landhelgis- gæslunnar og gefið upplýsinar um veikindi sjómannsins. Stöðugt hafi verið fylgst með líðan mannsins og upplýsingum komið áleiðis til lækna. Læknir á þyrluvakt og sérfræð- ingur á slysadeild Borgarspítala ráðguðust um málið og töldu um kvöldið líklegast að maðurinn væri með iðrakveisu eða bólgur í þarmi. Þyrlulæknirinn taldi þá ekki ástæðu til að láta ná í sjúklinginn fyrr en morguninn eftir þegar skipið væri komið það nálægt landi að hægt yrði að senda þyrlu Landhelgisgæsl- unnar eftir honum. Fram kom við sjóprófin að Land- helgisgæslan telur að afskipti sín af málinu hafi fyrst hafist klukkan 19.53 þegar læknir Borgarspítalans lét vita af veikindum sjómannsins og að skipveijar hafi þá verið búnir að hafa samband við lækninn. Stýri- maðurinn segist hins vegar ekki hafa talað beint við lækna fyrr en klukkan að verða hálf þrjú um nótt- ina þegar hann hafi verið orðinn alvarlega hræddur um skipstjórann og fengið beint samband við lækni. Var um það beðið að dómurinn afl- aði nánari upplýsinga um fjarskipt- inn til að skýra þetta misræmi. Óskað aðstoðar Varnarliðsins Mikið blóð gekk nokkrum sinnum niður af manninum og fram kom að líðan hans versnaði eftir því sem lengra kom fram á nóttina. Klukkan að verða hálf þijú barst Landhelgis- gæslunni tilkynning um vernandi ástand mannsins og eftir samtal stýrimannsins og - læknisins var ákveðið klukkan 2.46 að fá Varnar- liðið til að sækja hann um borð. Þá var strax haft samband við Varnarliðið og um það bil einni klukkustund og 25 mínútum eftir að sú beiðni var lögð fram fóru þyrlurnar af stað. Var upplýst í prófunum að Varnarliðið þyrfti einn og hálfan klukkutíma til að und- irbúa sjúkraflug sem þetta. Þegar um aðstoðina var beðið spurði yfir- maður hjá Varnarliðinu hvort um líf eða dauða væri að tefla og svar- aði Landhelgisgæslan því játandi. Sjúkraflugið gekk vel og var sjúklingurinn kominn á Borgarspít- alann þegar klukkan var langt gengin í átta á sunnudagsmorgun- inn. Þá var hann í lífshættu að mati lækna. Samkvæmt vottorði læknis á Borgarspítalanum var Ei- ríkur aðeins með um það bii þriðung af eðlilegu blóðmagni við komuna á spítalann. Var hann skorinn upp og er á batavegi. Orsök blæðing- anna hafa ekki verið skýrð að fullu, en Eiríkur hefur eftir lækni sínum að blæðingarnar hafi líklega verið vegna sprunginnar æðar í ristli. Dæmigert fyrir starf þyrlulækna Jón Baldursson læknir, sérfræð- ingur á Borgarspítalanum, sagði við sjóprófin að versnandi líðan og minnkandi lífsmark sjúklingsins hefði ráðið því að ákveðið var að óska aðstoðar Varnarliðsins. Hann sagði að þetta tilfelli væri dæmi- gert fyrir starf lækna þyrslusveitar- innar. Þeir þyrftu oft að byggja ákvarðanir sínar á takmörkuðum upplýsingum úr mikilli fjarlægð og yrðu að treysta því fólki sem á staðnum væri. Benti hann á að þeir væru settir í ómögulega að- stöðu þar sem þeir réðu ekki yfir flutningstæki og gætu aðeins reitt sig á útlent herlið. Hann sagði að ef aðstæður hefðu verið betri, og var hann þar að vísa til björgunar- þyrlu, hefði átt að sækja sjúklinginn fyrr. Eftir á að hyggja væri hægt að sjá að margt hefði bent til slæms ástands hans en ekki væri hægt að áfellast þyrlulækninn sem tekið hefði réttar ákvarðanir miðað við fýrirliggjandi upplýsingar. Sagðist hann telja miður að hann skyldi hafa verið settur í þessa aðstöðu. Jónas A. Aðalsteinsson, lögmað- ur Sjólaskips hf. sem gerir Harald Kristjánsson út, óskaði eftir því að segulbandsupptökur af fjarskiptum Landhelgisgæslunnar yrðu lagðar fram við sjóprófin og sagðist Jón Magnússon lögmaður Landhelgis- gæslunnar verða við því. Jafnframt óskaði Jónas eftir því að dómurinn óskaði eftir því að fá starfsreglur þyrlusveitar lækna. Stjórnandi sjó- prófanna, Már Pétursson héraðs- dómari, frestaði prófunum um rúm- ar tvær vikur. Túlka á vafann sjómanninum ívil Eiríkur Ragnarsson sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki vita til þess að sjópróf hefðu farið fram vegna atvika sem þessarra. Hann sagðist telja gott að láta þau fara fram. Hann sagði að sér virtist sem einhver misskilningur hefði verið á ferðinni, annars hefði verið náð í liann fyrr. Hann sagði að sjómenn væru hvattir til að sækja sem mest á ijarlæg mið og sagðist hann allt- af hafa verið hræddur við að lenda með slasaða eða veika menn í svona aðstöðu. Hann sagði að ef aðeins ætti að ná í menn sem væru í bráðri lífshættu vaknaði spurningin um það hver ætti að meta hættuna, hvort til dæmis skipstjórinn ætti að bera þá ábyrgð. Hann sagði að við ákvarðanir um sjúkraflug ætti að túlka allan vafa veika eða slas- aða sjómanninum í hag og vonaðist til þess að sjóprófin leiddu til breyt- inga á núverandi vinnureglum. Sýning á MITSUBISHI og VOLKSWAGEN bifreiðum 8.-11 • iúní Við sýnum nýjustu bílana frá Mitsubishi og Volkswagen, m.a. stórglæsilegan Mitsubishi Galant og 10 manna Volkswagen Caravelle, á eftirtöldum stöðum: ale'O ÞRIÐJUDAGINN 8. JUNI: Kópasker Raufarhöfn Þórshöfn Vopnafjöröur MIÐVIKUDAGINN 9. JUNI: kl. 10-11 kl. 12-13 kl.14-15 kl. 16-18 Egilsstaðir: Við Essó skálann kl. 10 -12 Seyðisfjöröur kl. 13 -15 Reyðarfjörður: Hjá Lykli kl. 16 -18 Norðfjörður kl. 19 - 21 FIMMTUDAGINN 10. JUNI: Eskifjörður kl. 10 -11 Fáskrúðsfjörður kl. 12 -13 Stöðvarfjörður kl. 14 -15 Breiðdalsvík kl. 15 -16 Djúpivogur kl. 17-18 FÖSTUDAGINN 11. JUNÍ: Höfn: Hjá Bílverki kl. 10 -13 Kirkjubæjarklaustur kl. 16 -17 Vík: Við Víkurskálann kl. 18 -19 Reynsluakið - það gefur besta raun! A MITSUBISHI Fremstur meðal jafningjs El 1 VOLKSWAGEN HEKLA VERND llMMVf R11S VIDURKINNING IDNIÁNASIÓDS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.