Morgunblaðið - 08.06.1993, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1993
Hestamót Harðar
Hart barist í A-flokki
Hestar
Valdimar Kristinsson
Þátttaka á mótum hjá Herði
hefur verið afar góð á undan-
förnum árum en var nú heldur
minni nú eins og virðist vera
hjá flestum ef ekki öllum félög-
um. Mótið hófst síðdegis á föstu-
dag og var forkeppni gæðinga,
unglinga og barna lokið fyrir
miðnættið. Hestakosturinn hj?
Harðarmönnum virðist heldur
lakari undanfarið ef marka má
einkunnir. Sérstaklega voru
hestar í A-flokki slakir í for-
keppninni. Aðeins einn hestur
Dagur frá Mosfellsbæ náði veru-
lega góðri einkunn 8,35 og var
langefstur en eitthvert óstuð var
á honum í úrslitunum og missti
hann efsta sætið til Spáar frá
Varmadal. B-flokks hestarnir
voru snöggtum betri en í úrslit-
um hélst röðin lítið breytt og
Bráinn frá Kílhrauni sigraði
örugglega auk þess sem hann
var valinn fegursti gæðingur
mótsins.
í bamaflokki breyttist röðin all
nokkuð þótt Magnea Rós sem er
í sérflokki héldi efsta sætinu ör-
ugglega. Sömuleiðis sigraði Guðm-
ar Þór Pétursson af miklu öryggi
í unglingaflokki en hann var einn-
ig með hest í A-flokki gæðinga þar
sem hann hafnaði í öðru sæti, góð-
ur árangur hjá ungum pilti.
Harðarmenn hafa alltaf boðið upp
á keppni unghrossa fjögra og fimm
vetra og sigraði nú eldfrískur foli
frá Álfhólum Jarl að nafni en hann
er undan Feyki frá Hafsteinsstöð-
um. Nú í þriðja skiptið var boðið
upp opna töltkeppni þar sem Sig-
urður V, Matthíassson á Bessa
vann það fágæta afrek að vinna
sig upp í fimmta sæti upp í sigur-
sætið. Var það skoðun margra sem
fylgst hafa með hestinum Bessa í
gegnum tíðina að hann hafi sjaldan
eða aldreri verið betri í töltkeppni
en þama í úrslitunum.
Kappreiðar voru nokkuð líflegar
en fjórir riðlar voru í bæði 150 og
250 metra skeiði. Snarfari og
Morgunblaðið/Valdimar Kristjnsson
Oumdeilanlegur sigurvegari unghrossakeppninnar, Jarl frá Álfhól-
um, lengst til hægri, knapi er Guðlaugur Pálsson.
Það fór vel um brekkudómara og aðra mótsgesti á bekkjunum á
Varmárbökkum í góða veðrinu.
Sigurbjöm Bárðarson náðu frá-
bæmm tíma í 150 metrunum 13,9
sek. sem er aðeins tvö sekúntubrot
frá gildandi íslandsmeti. Sigur-
björn var einni með þann fljótasta
í 250 metrunum Léist frá Keldud-
al. Fyrir viku síðan var látið að
því liggja að stökkgreinar kapp-
reiða væm liðnar undir lok en svo
virðist þó ekki vera því ungu menn-
imir í Herði kröfðust þess að stökk
yrði meðal keppnisgreina. Þótt
ekki væri stökkið sérlega spenn-
andi að þessu sinni þá er þetta
vísbending um að ekki séu allir
sáttir við að gefa það upp á bátinn
endanlega. Veðrið lék við keppend-
ur og mótsgesti báða dagana sem
mótið stóð yfir og vom menn að
dunda sér við kappreiðarnar í ró-
legheitum fram á kvöld og kvart-
aði enginn því vel fór um mann-
skapinn á góðu mótssvæði í fögra
umhverfi.
Urslit urðu annars sem hér seg-
ir:
A-flokkur
1. Spá frá Varmadal, F.: Kolbakur
730, Gufunesi, M.: Háþekja,
Varmadal, eigandi Kristján Magn-
ússon, knapi Erling Ó Sigurðsson,
8,21.
2. Kalsi frá Litla Dal, F.: Örvar
850, Hömrum, M.; Tamda Grána,
L.-Dal, eigandi Pétur Jökull Há-
konarson, knapi Guðmar Þór Pét-
ursson, 8,15.
3. Gosi frá Syðri-Brekkum, F.:
Feykir 966, Hafst.st. M.: Bára
4668, eigandi Þröstur Karlsson,
knapi Þorvarður Friðbjömsson,
7,97.
4. Dagur frá Mosfellsbæ, F.:
Blakkur 977, Reykjum, M.: Drottn-
ing 5391, Stykkish., eigandi Leifur
Kr. Jóhannesson, knapi Eysteinn
Leifsson, 8,35.
5. Pæper frá Varmadal, F.: Nátt-
fari 776, Y-Dalsg., M.: Jörp,
Varmadal, eigandi og knapi Björg-
vin Jónsson, 7,95.
B-flokkur
l.Bráinn frá Kílhrauni, F.: Nátt-
fari 776, Y-Dalsg., M.: Rauðka
4006, Eyjarh., eigandi og knapi
Sævar Haraldsson, 8,48.
2. Flóki frá Sigríðarstöðum, F.:
Neró 991, Bjarnarhöfn, M.:
Dimma, Sigr.st., eigandi og knapi
Guðríður Gunnarsdóttir, 8,46.
3. Háfeti frá Egilskoti, F.: Gáski
920, Hofst., M.: Lýsa, Mosfellsbæ,
eigandi Barbara Meyer, knapi
Sævar Haraldsson, knapi í úrslit-
um eigandi, 8,39.
4. Víðir frá Hala, F.: Þokki 1048,
Garði, M.: Stjarna, Hala, eigandi
og knapi Sigurður Sigurðarson,
knapi í úrslitum Kristinn M.
Sveinsson, 8,41.
Sigurður V. Matthíasson á Bessa, lengst til vinstri, vann sig upp úr fimmta sæti í fyrsta sætið. Aðrir
eru Friðfinnur á Stíganda, Sævar á Bráni og Jens á Skugga, en Elsa Magnúsdóttir, sem hafnaði í fjórða
sæti, yfirgaf karlaveldið.
Sparisjóður Ólafsfjarðar
Veruleg útlána-
töp á liðnu ári
Ólafsfjörður
FRÁ árinu 1914 hefur Sparisjóður Ólafsfjarðar gegnt lykilhlut-
verki í Ólafsfirði. Hann er eina peningastofnunin í bænum og
hefur jöfnum höndum þjónað einstaklingum, fyrirtækjum og
sveitarfélaginu. Sparisjóðurinn stendur traustum fótum, eigið
fé hans nam í lok síðasta árs 111,753 milljónum króna. Að auki
á sparisjóðurinn á afskriftarreikningi útlána rúmlega 43 milljón-
ir króna.
Á síðasta ári var hagnaður
sparisjóðsins eftir skatta 644 þús-
und krónur á móti 3,6 milljóna
króna hagnaði árið á undan. Á síð-
asta ári varhins vegar sett til hlið-
ar á afskriftarreikning útlána tæp-
lega 31 milljón króna til að mæta
fyrirsjáanlegum töpum í útlánum.
Sambærileg tala fyrir árið 1991
var 23,7 milljónir króna.
Útlánatöp
Það er því ljóst að sparisjóðurinn
mun ekki fara varhluta af þeim
miklu þrengingum sem yfir þjóðar-
búið ganga og þurfa að taka á sig
veraleg útlánatöp.
Heildarinnistæður sparisjóðsins
í árslok voru 719,7 milljónir króna.
Útlán í árslok námu 842,2 milljón-
um króna. Hjá sparisjóðnum störf-
uðu að meðaltali 7 manns á árinu
og námu launagreiðslur 14,5 millj-
ónum króna. Sparisjóðsstjóri er
Þorsteinn Þorvaldsson og Svavar
B. Magnússon er formaður stjórn-
ar.
SB
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins komið
FYRSTA skemmtiferðaskip sumarsins sigldi inn Eyjafjörðinn í gærmorgun. Það er ítalskt, skráð í Monróv-
íu og innanborðs voru farþegar frá Þýskalandi og Frakklandi. Margir þeirra brugðu undir sig betri fætinum
og fóru í skoðunarferð austur í Þingeyjarsýslu, að Goðafossi og síðan að Mývatni. Mikil fjölgun er á kom-
um skemmtiferðaskipa til Akureyrar í sumar, alls er búið að tilkynna komu 28 slíkra skipa, en í fyrra voru
þau 19 talsins. Gert er ráð fyrir að með skipunum 28 komi um 20 þúsund manns, farþegar og áhöfn.
Akureyrarhöfn hefur um 200 þúsund krónur í tekjur að meðaltali af hveiju skemmtiferðaskipi, þannig að
gera má ráð fyrir að tekjur hafnarinnar af skipakomunum nemi um eða yfir 5 milljónum króna.