Morgunblaðið - 08.06.1993, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1993
39
Auðbjörg Sigurðar-
dóttir — Minning
Fædd 5. nóvember 1923
Dáin 31. maí 1993
|
Mig langar að minnast Auðbjarg-
ar Sigurðardóttur föðursystur
■ minnar með örfáum orðum, en hún
’ varð bráðkvödd á heimili sonar síns
31. maí sl.
... á snöggu augabragði,
af skorið verður fljótt,
lit og blöð niður lagði, -
líf mannlegt endar slcjótt.
(Hallgrimur Pétursson)
Svo snögglega kvaddi hún Auja
frænka mín þetta líf.
Auja var fædd 5. nóvember 1923,
og hefði því orðið sjötug í haust.
Hún ólst upp á Brekkum í Holtum.
Fimm voru systkinin, en auk þess
dvöldu á Brekkum mörg önnur börn
um lengri eða skemmri tíma, og
, þar að auki vinnufólk og var þetta
glaður hópur, og oft vitnað til þess
tíma bæði af Auju og öðrum. Eng-
_ um duldist að mikil var vinnan, en
gleði yfir góðum endurminningum
yfirskyggir allt annað.
Auja var talin glögg á sauðfé,
og kom það í hennar hlut að líta
eftir lambánum á vorin. Hún var
mesti reiðfantur, sagði afí minn,
og fékk helst aldrei nógu viljugan
klár. Hugurinn var líka oft í sveit-
inni, og alltaf spurt frétta að bú-
skapnum. Stundum fékk maður
sögur á móti og þá kom glampi í
augun og alltaf var hlegið.
Auja giftist eftirlifandi manni
sínum Jóni Ingvarssyni, miklum
ágætismanni, og eignuðust þau
einn son, Eirík.
Fyrst þegar ég man eftir, bjuggu
þau hjón á Vitastíg 7 í Reykjavfk.
Þar var um margra ára skeið sjálf-
sagður viðkomu- og áningarstaður
fyrir alla fjölskylduna. Auja var ein-
stakur gestgjafi og mikill höfðingi
heim að sækja, enda voru margir
sem komu í heimsókn. Lítil frænka
mín, sem oft var hjá Auju, hitti
naglann skemmtilega á höfuðið
| þegar hún lýsti gestakomum á
þessa leið: „Þær eru skrýtnar kon-
umar sem koma til hennar Auju.
Þær segja alltaf: „Ekki vera að
hella uppá fyrir mig, ég ætla ekk-
ert að stoppa." En svo sitja þær
lengi, lengi og drekka úr mörgum
kaffíbollum."
Þessi litla saga segir meira en
mörg orð um það viðmót sem okkur
mætti, sem nutum gestrisni þeirra
Auju og Jóns.
Eftir að þau eignuðust bíl, Auja
og Jón, ferðuðust þau mikið um
ísland, en seinustu árin komu utan-
landsferðir í þeirra stað og voru þau
hjón nýkomin úr sinni fjórtándu
ferð þegar endalokin bar svo brátt
að.
Auja var hætt vinnu utan heimil-
is, en nú hafði lífíð fengið nýjan
tilgang. Eiríkur kvæntist Maríu
sinni fyrir tæpum tveim árum og í
ágúst í fyrra fæddist þeim Auju og
Jóni sonardóttir sem hlaut nafnið
íris Mjöll. Fyrir átti María tvær
dætur. Tengdadótturina mat Auja
mikils og var það gagnkvæmt, og
tók hún fúslega að sér að gæta
telpnanna þegar þörf var á. Af því
hafði hún mikla ánægju, og var hún
þessari ungu fjölskyldu bæði skjól
og hlíf.
Styrk stoð er nú fallin úr frænd-
garði okkar, og verður það skarð
ekki fyllt.
En víst er það gott að geta
gefið þann tón í streng
sem eftir að ævin er liðin
ómar þar þýtt og lengi.
Nú sit ég hér hljóður og hugsi
og horfi yfir gömul kynni
og söknuður breytist í blessun
og bæn yfir minning þinni,
(Sigurjón Friðjónsson)
Við, sem erum fjölskylda Auju,
söknum nú vinar í stað, en þegar
við hittumst í framtíðinni, bæði á
ættarmótum og við önnur tæki-
færi, munum við tala um hana og
minnast hennar með virðingu og
hlýju eins og við minnumst afa
míns og ömmu, Guðjóns Hjartar-
sonar, Möggu og annarra öðlinga,
sem nú eru látnir, en okkur þótti
svo vænt um.
Ég votta Jóni, Eiríki, Maríu og
dætrunum alla mína samúð, og
fínnst það vel við hæfí að ljúka
þessum minningarorðum með er-
indum úr Hugleiðingu eftir Svein-
björn Beinteinsson.
Hvort sem ég kom af heiðum
hrakinn og vegamóður
eða frá lífsgáskans leiðum
leikfús og viðræðugóður,
gott var löngum að leita
liðs hjá manni sem vildi
heldur vera en heita
heill þegar reyna skyldi.
Ræddum við oft með orðum
yfir hófsemdarskálum
margt sem var föpuður forðum
fátt var dauft í þeim málum.
Líf þeirra liðnu daga
lék þar um stund á vörum,
minning um heimahaga
hljómaði glöggt í svörum.
Nú er skarð fyrir skildi.
Skal þó héðan að frétta
margt sem í minningagildi
miðar fram til hins rétta.
Orðstef mitt einkum skyldi
okkur söknuðinn létta
vörðubrot, sem ég vildi
væri til marks um þetta.
Blessuð sé minning Auðbjargar
Sigurðardóttur.
Sigríður Jónasdóttir.
Mágkona mín, Auðbjörg, er látin.
Öðlingskona, hjartahlý, hreinlynd
og heilsteypt, er gengin á vit feðra
sinna.
Ung naut ég þess, að Auðbjörg
leit til með syni mínum og gerði
það með slíkum ágætum, að bæði
ég og sonur minn mátum hana öðr-
um fremur til æviloka. Slík kona
eins og Auðbjörg var, bóndadóttir
að austan, er gekk ung inn í vax-
andi borgarsamfélag og samlagað-
ist því undrafljótt þrátt fyrir ævar-
andi minningar um æskustöðvarn-
ar, er aðdáunarverð.
Ung bast hún bróður mínum,
Jóni, tryggðaböndum og slitnaði
aldrei þráður þeirra á milli. Fullorð-
in naut hún þeirrar gæfu að einka-
barn þeirra, Eiríkur, kvongaðist
erlendri konu, Maríu, er jók við
ættbogann og gerði Auðbjörgu að
hamingjuríkri ömmu. Guð blessi
fjölskyldu þá alla.
Eftirlifandi systur og bróður
Auðbjargar, sem stóðu alla tíð eins
og klettur við hlið elskaðrar systur,
fylgi gæfan ein. Jóni bróður mínum,
sem er nú kominn til ára sinna,
óska ég friðsældar eftir hamingju-
rík ár.
Blessuð sé minning Auðbjargar,
mágkonu minnar. Eiginmaður, son-
ur, tengdadóttir, systkini og annað
tengdafólk gleyma aldrei þessari
konu, harma þá konu mjög, sem
hugsaði fyrst og fremst um aðra,
seinast og síst um sig sjálfa.
Sigríður Ingvarsdóttir.
ERFIDRYKKJUR
l)¥HL
IÍB0KÍ5
Sími 11440
[ÓPFERÐIl
1ÖFUM GÆÐA HÓI’BIFREIÐAR
Fm\ 12 TIL 65 I AR6F.GA
18
LEITIÐ UPPLÝSINGA
HOPFERÐAMIÐSTOÐIf
Bildshöfða 2a,
siml 685055, Fax 674969
FÆRAVINDU-RAFGEYMAR
SONNEHSCHEIN DRYFIT A200
Fyrir þá, sem ekki velja ódýra skammtímalausn.
Rafgeymar, sem gerðir eru fyrir mikið álag.
— Viðhaldsfríir: Missa ekki samband vegna spansgrænu.
— Bundin sýra: Engin lekahætta, jafnvel þó að geymir brotni.
— Djúphleðsluþolnir: Þola að standa tómir í allt að fjórar vikur.
— Óhóð staða: Mega standa hvernig sem er, jafnvel ó hvolfi.
— Mjög lóg sjólfafhleðsla: Mega standa í bótnum ó milli vertíða.
— Vatnsþéttir: Þola þrýsting utan fró niður ó 30 m dýpi.
— Samþykktir: M.a. af Veritas og Lloyd til notkunar í skipum.
AOgengdeg Sorronöoröur ó enöingu rolgeymo
ryxnö. AH
R AFT JEK J A VERSLUN ÍSLANDS HF.
Skútuvogi 1 b, pósthólf 4213 - 124 Reykjavík.
Sími 91 -688660 - fax: 91 -680776.
skólar/námskeið
I _______:______
tónlist
■ Söngsmiðjan auglýsir
Stutt hnitmiðuð sumarnámskeið fyrir
fólk á öllum aldri, laglausa sem lagvísa.
Kennd verður raddbeyting og sungin lög
í léttum sumaranda. Fyrirhuguð er helg-
arferð í Þórsmörk í lok námskeiðs.
■ Söngleikjasmiðja fyrir krakka
3ja vikna riámskeið þar sem krakkarnir
læra aö syngja og leika.
Upplýsingar og skráning alla virka daga
frá kl. 10-17 á skrifstofu Söngsmiðjunn-
ar, Listhúsi í Laugardal, sími 682455.
tungumál
■ Enskuskóli nærri York
Alm. námskeið 2-20 vikur. Stöðupróf í
upphafi náms. Fámennir hópar (6-7).
Viðurkennd próf ef óskað er.
Upplýsingar gefa Marteinn eða
Ágústína, sími 811224 eftir kl. 19.
Enska málstofan
■ Sumarnámskeið:
Vantar þig þjálfun í að tala ensku?
Við bjóöum námskeið með áherslu á
þjálfun talmáls. Fámennir hópar. Nýjir
nemendur geta byrjað hvenær sem er.
Einnig bjóóum við námskeió i viöskipta-
ensku og einkatíma.
Upplýsingar og skráning í síma
620699 frá kl. 14-18 alla virka daga.
myndmennt
■ Sumarnámskeið
Hvað ætlar þú að gera i sumar?
Haldin verða tvö 5 daga námskeið í júní
og júlí í myndsköpun í Lýsuhólsskóla
undir Jökli. Við vinnum með ólík efni,
s.s. náttúruefni, pappír og liti, leir og gifs.
Uppl. og skráning hjá Steinunni,
s. 11889, og Ólínu, s. 44105.
■ Sumarnámskeið
30% afsláttur og 3 afborganir. Leiðrétt-
ing á námsefni í miðjum júh' og í byrjun
september.
Grunnteikning, líkamsteikning, litameð-
ferð, listmálun, skrautskrift, garðhúsa-
gerð, innanhússarkitektúr, híbýlafræði
og bamanámskeið í teikningu og föndri.
Innritun í síma 91-627644 eða í póst-
hólf 1464, 121 Reykjavík.
handavinna
■ Ódýr saumanámskeið
Sparið og saumið sumarfötin.
Mest 4 nemendur í hóp. Faglærður
kennari. Upplýsingar í síma 17356.
ýmislegt
iullordinsfræbslan
■ Grunn-, framhalds- og háskóla-
áfangar: Matshæfir F-prófáfangar
sumarannar FF eru að hefjast; 102-3,
202-3, 302-3; ISL, ENS, DAN, SÆN,
NOR, ÞÝS, SPÆ, STÆ, TÖL, EÐL,
EFN, BÓKH, TÖLV, + STÆ 303, 403.
28./6. hefjast 3 v. hraönámskeið á morg-
unt. í ensku f. fullorðna og dagt. í ís-
lensku f. útlendinga. 15./7. hefjast:
1) Aðfararnám háskólanáms í EFN f.
HJÚK, LÆKN, T-LÆKN, LÍF og EFN
(0 ein.).
2) EFN læknisfræðideildar (0 ein.).
3) STÆ greining I og II f. verkfræði-
og raunvísindanema (0 ein.).
Fullorðinsfræðslan, sími 7 11 55.
M A I A R 6.
V í N K I 11 B B 11 R \ B
■ Kynnir
Flóru íslands við matargerð
Fræðslufyrirlestur veróur haldinn
þann 8. júní nk. kl. 20 til 22 í stofu 101
í Odda, húsi félagsvísindadeildar Háskól:
íslands (á móti Norræna húsinu).
Guömundur Sigurjónsson, matreióslu-
meistari, mun kynna notkun villtra jurta
viö matargeró í máli og myndum.
Aógangseyrir er 800 kr. fyrir meðlimi
í Matar- og vínklúbbi AB, en fyrir aðra
1.000 kr. InnifaUn eru fjölrit með megin-
atriðum efnisins í handhægu og hagnýtu
formi. AUir velkomnir.
Sýnikennslunámskeið verður haldið
í Matreiðsluskólanum okkar í Hafnarfirði
þann 15. júní nk. Námskeiðið stendur í
eina kvöldstund og er opið öUum sælker-
um. Þar verður notkun villtra jurta sýnd
í verki og gestum gefst kostur á að
bragða á góógætinu. Skráning í sima
653529 eða á fyrirlestrinum.
Sýnikennslunámskeið veröur haldið
í Matreiðsluskólanum okkar í Hafnarfirði
þann 14. júní nk., ætlað fagfólki í hótel-
og veitingagreinum. Námskeiöið stendur
í eina kvöldstund, þar sem sýnt verður
hvemig veitingastaðir geta nýtt sér flóm
Islands við matargerð. Skráning í síma
653529 eða á fyrirlestrinum.
Klúbbmeðlimum um allt land standa
jafnframt til boða fyrirlestrar og nám-
skeið um þetta viðfangsefni eftir sam-
komulagi. Nánari upplýsingar hjá Matar-
og vínklúbbi AB í síma 643170.
tölvur
■ Krakkar og foreldrar
Af tölvum má hafa bæði gagn og gaman.
TölvuskóU Reykjavíkur heldur 24 klst.
námskeið fyrir börn og unglinga á aldrin-
um 10-16 ára þar sem megin áhersla
er lögð á gagniö en gamanið er aldrei
langt undan. Eingöngu er kennt á PC
tölvur. Velja má um morgun- eða síðdeg-
istúna. Innritun er hafin.
■ Tölvunám fyrir unglinga
hjá Nýherja í sumar.
30 klst. á aðeins kr. 12.900!
Nám, sem veitir unglingum forskot við
skólanámið og verömætan undirbúning
fyrir vinnu síðar meir. Fræðandi,
þroskandi og skemmtUegt nám.
• 8.-23. júní kl. 9-12 eða 13-16.
• 28. júm'- 9. júlíkl. 9-12eða 13-16.
• 9.-20. ágúst kl. 9-12 eða 13-16.
Upplýsingar í síma 697769 eða 697700.
■ NÝHERJI