Morgunblaðið - 08.06.1993, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1993
„ Ég hélt þab brcúcobl i sbónum mlnum.'
Með
morgiinkaffinu
Við getum komist að samkomu-
lagi. Ef þú hættir að tala um
fyrrverandi konuna þína, skal
ég hætta að tala um TILVON-
ANDI eiginmann minn.
Við verðum að biðja ykkur að
sýna okkur ferðadagskrána
ykkar aftur.
HÖGNI HREKKVlSI
BREF I II. BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329
Um eftirlaunamál Sambands-
ins og klippt sjónvarpsviðtöl
jafnvel í hinu rétta samhengi hefði
ég átt að fylgja ummælum mínum
úr hlaði með meiri fyrirvörum en
hér varð raun á. Eins og fram
kemur í ársskýrslu Sambandsins
tengjast þeir fyrirvarar m.a.
nokkrum dótturfyrirtækjum þess
sem nú búa við mjög erfiða stöðu.
Mikið klippt sjónvarpsviðtöl
vandmeðfarin
Vegna þess fréttamanns sem
átti við mig viðtalið skal fram tek-
ið að hér var áreiðanlega á ferð-
inni misskilningur þeirrar ættar
sem kenndur er við góða trú. Hins
vegar sýnir þetta litla dæmi hvað
mikið klippt fréttaviðtöl geta verið
vandmeðfarin. Getur þá svo farið
að menn fari að tala hvor fram
hjá öðrum eins og hér gerðist.
Eftir þessa reynslu er það eindreg-
in skoðun mín að örstutt frétta-
viðtöl fyrir sjónvarp eigi að birta
óklippt; þau eru hvort eð er ekki
til skiptanna. Þá sýnist það og
réttlætiskrafa að spumingar
fréttamanna séu látnar heyrast
um leið og svör hinna spurðu.
Þetta gegi ég fréttastjórunum til
góðfúslegrar íhugunar. Enginn
ritstjóri mundi leyfa sér að birta
blaðaviðtal þar sem hinn spurði
kæmi fyrst með svörin og síðan
væm spumingamar samdar eftir
á, án vitundar hins spurða.
Með þökk fyrir birtinguna.
SIGURÐUR MARKÚSSON,
stjómarformaður Sambands
íslenskra samvinnufélaga.
Ábendingar
um íslenskt mál
Frá Sigurði Markússyni:
Undirritaður sér sig knúinn til
að koma á framfæri leiðréttingu
og athugasemd vegna fréttaviðtals
við hann í fréttum RÚV-sjónvarps
að kvöldi föstudagsins 4. júní, að
afloknum aðalfundi Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga.
Fréttamaðurinn ræddi við mig
á skrifstofu minni um aðalfundinn,
ársreikning fyrir árið 1992 og
fleira. M.a. ræddum við um eftir-
launaskuldbindingar Sambands-
ins, en samkvæmt ársskýrslu er
talið að skuldbindingar Sambands-
ins sjálfs séu á bilinu 120 til 130
m.kr. að því tilskildu að hvert og
eitt af fyrirtækjum Sambandsins
standi við sitt. Fréttamaður spurði
hvort Sambandið gæti staðið við
þessar skuldbindingar og ég svar-
aði á þessa leið: „Sambandið á
nokkum veginn fyrir þessum
skuldbindingum samkvæmt þeim
reikningi sem við lögðum fram í
dag.“
Hið óvænta innskot
Mér var mjög brugðið þegar ég
sá og heyrði viðtalið um kvöldið,
mikið klippt. Á undan svari mínu
um eftirlaunamálin hafði nú bæst
kafli, lesinn á fréttastofu, þar sem
segir að eftirlaunaskuldbindingar
Sambandsins séu 383 m.kr. en þar
er raunar um að ræða skuldbind-
ingar Sambandsins og átta fyrir-
tækja annarra. í framhaldinu er
svo svar mitt spilað af bandinu:
„Sambandið á nokkurn veginn fyr-
ir þessum skuldbindingum...“
o.s.frv. Fréttastofa sjónvarpsins
gerði þessa sundurslitnu umsögn
að fyrirsögn og aðalefni fréttar-
innar og gerði það misskilninginn
ennþá bagalegri.
Eftir á að hyggja
Eftir á að hyggja skal játað að
Frá Aðalsteini Jens Loftssyni:
Um nokkurt skeið hefur að
mínu mati farið vaxandi notkun á
orðinu flóra í mjög misskildu sam-
hengi og á það ekki síst við þann
aðila sem hefur tekið að sér að
rita greinarkom í blaðinu, þar sem
fjallað er um ýmsa fjölmiðla. Sem
dæmi má nefna orðið fjölmiðla-
fióra og fjölbreytileiki fjölmiðla-
flórunnar. Þegar að er gáð i orða-
bókum kemur í ljós að orðið flóra
er gamalt orð af latneskum upp-
mna og hefur ávallt sömu merk-
inguna, þ.e. jurta- eða plönturíki.
Ég legg því til að menn hætti að
skreyta mál sitt með slíkum hætti.
Notkun orðsins Ijósvaki er einn-
ig nokkuð sem ég kann illa við.
Það er einkum vegna þess að upp-
haflega er það notað sem þýðing
á orðinu „ether“ sem átti sam-
kvæmt tilgátu eðlisfræðinga að
vera óskilgreint efni í loftinu sem
útvarpsbylgjur bæmst með á sama
hátt og öldur ferðast á yfirborði
vatns. Fyrir mörgum áram sönn-
uðu eðlisfræðingar að þessi tilgáta
átti ekki við rök að styðjast og
því er að mínu mati út í hött að
nota orðasambönd eins og t.d.:
„Ég sendi þér kveðju á öldum ljós-
vakans." Ég legg því til að menn
notist frekar við orðið útvarp eða
hljóðvarp.
AÐALSTEINN JENS LOFTSSON,
Hæðargarði 34, Reykjavík.
Víkveiji skrifar
Hætt er við því að margir
íþróttaáhugamenn verði syfj-
aðir í vinnunni á næstunni. Ástæð-
an er sú að nú era úrslitaleikir
bandarísku NBA-deildarinnar í
körfuknattleik að hefjast, og Stöð
2 ætlar að sjónvarpa beint frá þeim.
Sá fyrsti hefst kl. eitt eftir mið-
nætti aðfaranótt fimmtudags.
Áhugi fyrir körfuknattleik hefur
farið ört vaxandi hér á landi síð-
ustu misserin og er það ekki síst
að þakka umfjöllun Stöðvar 2 um
NBA.
XXX
Handknattleikur og knatt-
spyma hafa alla jafna verið
„stóru“ íþróttagreinamar hér á
landi og þorri barna og unglinga
flykkst á æfingar í þeim greinum,
og einnig lagt stund á þær utan
dyra í frístundum. En samkeppnin
hefur eflaust aldrei verið meiri frá
körfuknattleiknum en einmitt nú.
Víkverja virðist líka sem svo að
hvert sem litið er megi sjá krakka
í körfuboltaleik. Gott dæmi um
gríðarlegan áhuga er að um eitt
þúsund manns tóku þátt í fyrstu
keppninni í „götukörfubolta" hér á
landi í Laugardalnum á laugardag-
inn. Skemmtilegt framtak þar á
ferðinni hjá Adidas-umboðinu.
XXX
A
Asmundur Stefánsson, fyrrver-
andi forseti ASÍ, hélt athygl-
isverðan fyrirlestur á ráðstefnu um
menntun og gæðastjómun, sem
Háskólinn á Akureyri hélt á föstu-
daginn fyrir norðan. Greint var frá
spá hans um bætta samkeppnis-
stöðu íslenskra atvinnuvega í blað-
inu á laugardag, en Asmundur
minntist á annað sem Víkveija
fannst athyglisvert. Hann sagði
furðulegt að hlusta á þær raddir
sem ráðist hefðu á samningsaðila
fyrir að velta miklum vanda á ríkis-
sjóð. Síðar sagði hann: „Ýmsir,
einkum úr röðum opinberra starfs-
manna, hafa ráðist að forystu ASÍ
fyrir að standa að því að fella nið-
ur gjöld sem atvinnurekendur
greiða. Þeir vísa frá þeim rökum
að gjöldin hafí verið inni í verðlag-
inu. Það minnir mig á bóndann sem
hélt heim á hesti sínum vel hlöðnum
og bað einhvem nærstaddan að
rétta sér poka sem eftir stóð. Sá
spurði í hálfgerðri angist, hvort
hann héldi að hesturinn þyldi þetta.
Hesturinn ber ekki það sem ég
ber, sagði karlinn, þar sem hann
sat á hestinum og sveiflaði pokan-
um á bak sér.“
XXX
Víkveiji er mikill áhugamaður
um knattspymu og hefur
fylgst með nokkrum leikjum á ís-
landsmótinu. Þeir hafa lofað góðu.
Þá hefur þáð sannast svo ekki verð-
ur um villst að lengi lifir í gömlum
glæðum. Atli Eðvaldsson átti t.d.
stórleik með KR um helgina og
Sveinbjörn Hákonarson hefur stað-
ið sig vel með Þór, en báðir era
þeir 36 ára, og elstu leikmenn
deildarinnar. Þá er Luka Kostic,
fyrirliði ÍA, sem nýlega fékk ís-
Ienskan ríkisborgararétt, 36 ára en
engu að síður lykilmaður í liði
meistaranna. Frammistaða þeirra
sýnir að aldur íþróttamanna skiptir
ekki máli ef þeir hafa gaman af
þvi sem þeir era að fást við.