Morgunblaðið - 08.06.1993, Side 54

Morgunblaðið - 08.06.1993, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1993 Efstir að stig-um Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson EINAR Gunnlaugsson og Gísli G. Jónsson eru efstir að stigum í flokki sérútbúinna jeppa í íslands- mótinu í torfæru. Hér eru kapparnir þreyttir og skítugir eftir átök við mýrlendi i keppninni á Hellu. Hörð barátta á Hellu Akstursíþróttir Gunnlaugur Rögnvaldsson GÍSLI G. Jónsson og Einar Gunnlaugsson börðust um sigur í sérútbúna flokknum í QMI tor- færunni á Hellu á laugardaginn, en Ragnar Skúlason var sagður sigurvegari í flokki götujeppa, en i þeim flokki á eftir að af- greiða kæru sem gæti breytt úrslitum. Keppnin á Hellu má muna fífil sinn fegurri og reyndar þurfa skipuleggjendur torfærumóta árs- ins að fara að taka sig á varðandi brautarlagningu og skipulag mót- anna, eigi þessi vinsæla aksturs- íþróttagrein ekki að missa flugið. Þrjú mót hafa verið haldin, tvö til íslandsmeistara og í engu þeirra hefur náðst að búa til verulega líf- legar þrautir og spennan hefur verið í lágmarki. Þó tók steininn úr í keppninni á Hellu, þar sem þraut- imar í sérútbúna flokknum voru sumar hverjar það auðveldar að götujepparnir hefðu getað leyst þær auðveldlega. Aðeins akstur í mýri reyndi verulega á getu jeppa og ökumanna, síðan voru tvær þrautir af sex eins og sunnudags- bíltúr fyrir keppendur. Virðist tutt- uga ára reynsla manna í skipulagn- ingu mótsins ekki hafa skilað sér og reyndar mættu skipuleggjendur móta gera meira af því að leita til keppenda, bæði núverandi og fyrr- verandi við brautarlagningu. Að sama skapi þarf að huga að því að áhorfendur vilja sjá skemmtileg tilþrif í þrautum, það þarf ekki endilega veltur til að skapa stemmningu, heldur kúnstugar þrautir. Ekki ánægður í sérútbúna flokknum öttu kappi um sigurinn þeir Einar Gunnlaugs- son frá Akureyri, sem vann síðasta mót og Gísli G. Jónsson frá Þor- lákshöfn. Báðir hafa þessir kappar nú 35 stig til íslandsmeistara. „Það virðist ætla að verða mesta barátt- an á milli okkar Einars, hvað sem • gerist síðar á tímabilinu. Ég var engan veginn ánægður með þraut- imar á Hellu, en bíð spenntur eftir mótinu á Egilsstöðum þar sem þrautimar hafa verið skemmtilegar síðustu ár,“ sagði Gísli G. Jónsson í samtali við Morgunblaðið. „Braut- inar eiga að vera þannig að jepp- amir séu á mörkum þess að kom- ast þær, þó ekki endilega þannig að snarbrött börð verði á vegi manna. Það má vel leggja skemmti- iegar brautir með hliðarhalla og vandasömu klifri. Á Hellu vom þrautirnar léttar og eftir aksturinn í ánni var mér farið að leiðast þóf- ið, þannig að ég tók stökk yfir hól í lokin. Sú þraut hefði átt að vera á tíma, það var lítið að gerast í mörgum þrautanna,“ sagði Gísli. Hann vann sérútbúna flokkinn með 15 stiga mun með 1.620 stig, Einar varð í öðm sæti með 1.605 stig og Reynir Sigurðsson því þriðja með 1.470 stig. I flokki götujeppa var baráttan að venju milli Ragn- ars Skúlasonar, Guðmundar Sig- valdasonar og Þorsteins Einarsson- ar. Ragnar var - tilkynntur sem sigurvegari, Guðmundur í öðm og Þorsteinn í þriðja, en úrslitin vom kærð, þar sem Þorsteinn taldi að hann hefði ekki fengið rétta stiga- gjöf í einni þraut. Verður sú kæra tekin fyrir af Landssambandi ís- lenskra akstursíþróttafélaga, en Þorsteinn sætti sig ekki við úr- skurð dómnefndar á staðnum. Verði hún tekin til greina færist Þorsteinn í fyrsta sætið að stigum. Helgi Valur Georgsson vann fyrstu moto-cross keppnina Úthaldið mikilvægast Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Svifið til sigurs JAFNVÆGI og úthald er nokkuð sem keppendur í moto-cross þurfa að hafa til að bera svo árangur náist. Hér svífur íslands- meistarinn Helgi Valur Georgsson á Honda til sigurs. ÍSLANDSMEISTARINN í moto- cross, Helgi Valur Ge- orgsson á Honda CR 250 hóf titilvörnina á sunnudaginn, þegar hann vann fyrstu moto- cross keppnina, sem gildir til fslandsmeistara á sunnudag- inn. Keppnin fór fram á keppn- isbraut Vélhjólaíþróttaklúbbs- ins við Sandskeið. Helgi Valur varð íslandsmeist- ari í fyrra, en eftir lægð í nokkur ár í þessari keppnisgrein virðist áhuginn aftur vera að vakna, en moto- cross er talin ein erfiðasta íþróttagrein sem hægt er að stunda. Hérlendis aka keppendur í 3 x 15 mínútur á hlykkjóttri braut með fjölda stökkpalla. „Út- haldið er mikilvægast hjá okkur, ef menn eru ekki í góðu líkamlegu ástandi þá þýðir ekkert að keppa,“ sagði Helgi í samtali við Morgun- blaðið. Hann ekur nýju Honda CR 250 véhjóli og vann tvær umferð- ir af þremur í keppninni um helg- ina, eða tvö moto eins og keppend- ur kalla umferðimar. Vaxandi áhugi Reynir Jónsson var harðasti keppinautur Helga og hirti af honum fyrsta sætið í síðustu um- ferðinni, en það nægði ekki til sigurs, þar sem Helgi vann hinar tvær. „Líklega verður baráttan milli okkar Reynis, en það eru samt alltaf að koma upp sterkari ökumenn og áhuginn fer vaxandi. Það eiga að geta orðið hátt í tutt- ugu keppendur í hverri keppni, nóg er af hjólunum. íþróttin hefur ekki náð sér á strik eftir blóma- skeið árin 1981-1984, en vonandi verður nú breyting á,“ sagði Helgi. Ásgeir og Bragi unnu Militec rallið Sekúnduslagur Fremstu keppendurnir í Militec ralli Stillingar og Bifreiða- íþróttakiúbbs Reykjavíkur lögðu allt í sölurnar í baráttunni um sigurlaunin í keppninni, sem gilti til íslandsmeistara i rall- akstri. Aðeins 41 sekúnda skildi að fyrstu þijá bílana, en íslands- meistararnir Ásgeir Sigurðsson og Bragi Guðmundsson á Metro kreistu fram sigur eftir mikla baráttu við feðgana Rúnar Jóns- son og Jón Ragnarsson á Mazda og Steingrím Ingason og Pál Kára Pálsson á Nissan. Aðeins fimmtán sekúndur skildu á milli gulls og silfurs að keppni lok- inni. Keppnin var sú fyrsta í 11 mán- uði þar sem margfaldir Rúnar og Jón náðu að sýna klærnar. Máttu meistaramir Ásgeir og Bragi hafa sig alla við á keppnisbíl, sem hefur talsverða yfirburði yfír aðra bíia. I upphafi lék Steingrímur líka á alls oddi, en eftir að splitti í gírkassa gaf sig varð hann að skipta af varkámi milli gíra sem kostaði hann tíma. Örfáar sekúndur „Þetta byijaði vel hjá okkur, við náðum strax forystu, en munurinn varð aldrei nema örfáar sekúndur," sagði Ásgeir í samtali við Morgun- biaðið, „Svo þurftum við að taka verulega á þegar vélin tapaði afli, einn strokkur af sex hætti að virka og við náðum aldrei að finna út hvað olli biluninni. Við ókum því virkilega hratt í gegnum beygjum- ar og fórum einum gír hærra í all- ar beygjur en til þessa, að vísu með minna afl til taks, en bíllinn var notaður til hins ýtrasta. Við týndum varadekk og allt lauslegt úr honum á lokakaflanum til að létta hann, Rúnar var geysilega grimmur, en við náðum að hanga á fyrsta sætinu og bæta stöðuna á Iokasprettinum. Þetta var mikil spenna_ og skemmtileg keppni," sagði Ásgeir. Rúnar var á sama máli. Hann hefur átt við erfið bakmeiðsli að stríða, sem hann hlaut í veltu í fyrra, en lét það lítil áhrif hafa á sig í keppninni. „Það er langt síðan við feðgarnir höfum skilað skikkan- legum árangri. Nú komum við bet- ur undirbúnir en í síðustu mótum og það skilaði árangri," sagði Rún- ar, „Ég var í andlega góðu formi, undirbjó mig af kostgæfni, en hug- arfarið og einbeitingin skiptir öllu máli í rallakstri, þar sem menn aka á öðru hundraðinu og ekkert má klikka, ekki í sekúndubrot. Við náðum vel saman og það gekk allt upp, bíllinn var góður og það var gaman að velgja Metro mönnum undir uggum. Það var virkilega gaman að slá hraðametið á Lyng- dalsheiði, við fórum á 7.08 mínút- um yfir heiðina, sem er 15 km löng, en meðalhraðinn í keppninni var 117 km á klukkustund." Það var barist um meira en bara efstu sætin, í flokki óbreyttra bíla áttust við nokkrir kappar, en í þeim flokki er einnig keppt til íslands- meistara. Ólafur Sigurjónsson og Garðar Gunnarsson unnu flokkinn í fyrstu keppni ársins á Renault, en höfðu ekki erindi sem erfiði núna gegn Óskari Ólafssyni og Jóhannesi Jóhanessyni á Mazda. Ólafur velti bíl sínum á Lyngdals- heiði, en náði að halda áfram. Lanc- ia Arnar Stefánssonar og Ægis Ármannssonar varð aldrei veruleg ógnun við Óskar og Jóhannes, sem óku þétt í byijun en leyfðu sér svo að slaka meira á í lokin. „ Það var frekar lítil keppni í flokknum og ég hugsaði mest um að vinna flokk- inn, var um tíma áð spá í að eltast við Birgi Vagnsson og Halldór Gíslason í fjórða sætinu, en sá fljótt að Birgir var ekkert í skapi til að láta það af hendi. Við höfum sett stefnuna á titilinn í þessum flokki, en okkur gekk illa í fyrsta mótinu eftir að framdrif fór úr sambandi í fiórhjóladrifnum bílnum. Núna er allt til reiðu í titilslaginn,“ sagði Óskar. Sig-lir í land Guðbergur Guðbergsson fagnar landtöku í Viðey eftir eins kíló- metra langa siglingu á sjó á vélsleða. Ok vélsleða á sjó „MENN hafa verið aða tala um að fara út í Viðey á vélsleða eða jeppum í tvö ár og mér fannst tími til kominn að gera eitthvað í málinu. Svo var það vel við hæfi að sjómannadagurinn var um helg- ina og því kjörið að slá tvær flugur í einu höggi, halda upp á dag- inn með því að sigla vélsleða frá fjörunni við Áburðarverksmiðjunni og út í Viðey,“ sagði Guðbergur Guðbergsson vésleða- og rall- kappi, sem sigldi Yamaha vélsleða um eins kílómetra leið á sjó á sunnudagskvöld. Yamaha sleðinn var ekki sér- útbúinn að neinu leyti, nema því að lokað var fyrir Ioftraufar að framan með sterku límbandi til að vama því að sjór kæmist að vél- inni. „Ég var staðráðinn frá byijun að ná að sigla yfir, enda hafa menn mikið talað um að þetta væri hægt,“ sagði Guðbergur, „Við vor- um búnir að undirbúa okkur með því að sigla á polli við Kleifarvatn og vissum nokkuð að hveiju við gengum. Ég æddi af stað af gras- bakka í fjöruborðinu og náði strax góðri ferð. Sleðinn byijaði hins vegar að hoppa talsvert þegar ég nálgaðist Viðey þar sem við stífuð- um búkkann að aftan ekkert. Það slapp og það fór um mig ylur þeg- ar ég sá að ég myndi ná yfir. Þá var kúplingin byijuð að snuða lítil- lega vegna bleytunnar. Mér gekk vel að stýra vélsleðan- um á hafinu, en hef ekki hugsað mér að leggja þetta fyrir mig. Enda kom það á daginn að sleðinn sökk í bakaleiðinni, Árni Kópsson kafari var hins vegar með í þessu brölti og kafaði eftir sleðanum sem við drógum á tveimur gúmmíbátum í land,“ sagði Guðbergur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.