Morgunblaðið - 24.07.1993, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 1993
O
Mikil afköst í sumarvinnu skólafólks
700 þús. plöntur gróð-
ursettar á Hólmsheiði
VINNUFLOKKAR skólafólks
á aldrinum 16 til 17 ára hafa
unnið við gróðursetningu á
Hólmsheiði í sumar. Gróður-
settar voru 700 þúsund plönt-
ur og er það svipað magn og
í fyrra.
Tæplega eitt þúsund ungmenni
vinna að þessu átta vikna verkefni
í sumar og eru það mun fleiri en
undanfarin ár, að sögn Ásgeirs
Svanbergssonar aðstoðar fram-
kvæmdastjóra Skógræktarfélags
Reykjavíkur, sem sér um fram-
kvæmdir en verkefnið er kostað
af Reykjavíkurborg.
Var eyðimörk
Ásgeir sagði, að auk gróður-
setningar væri mikil vinna fólgin
í að stinga niður rofabörð, sá og
huga að gróðri sem fyrir er og er
að koma upp. „Hólmsheiðin hefur
tekið gífurlegum stakkaskiptum á
síðustu árum,“ sagði hann. „Það
sjá þeir sem muna hvernig þessi
eyðimörk leit út fyrir sex til sjö
árum. Eftir því sem ræktuninni
miðar áfram fjölgar verkefnum.
Það er meira vinna við aðhlynn-
ingu, áburðargjöf, stígagerð fyrir
gangandi og hestamenn. Það
mætti því ætla að áframhald verði
á verkefnum fyrir skólafólk á
Hólmsheiði.“
Morgunblaðið/Þorkell
Gróðursettning á Hólmsheiði
SKÓLAFÓLK hefur að venju unnið við gróðursetningu á Hólms-
heiði í sumar og voru settar niður um 700 þúsund plöntur.
Meiriháttar fjölskylduhátíð
laugardaginn 24. iúlí á íþróttasvæðinu í Grafarvogi
kl 1 3.00 - 17.00
K V U .
Tryllt torfærutröll reyna með sér. Aðgangseyrir er
kr. 700 fyrlr fullorðna og kr. 400 fyrlr böm.
Fyrsta Hafnaboltakeppnln á íslandl.
Flmm í liðl. Skránlngargjald kr. 1.000.
Íslandsmeistarakeppní '93
Tryllt hjól og ófærar.
Hægt að leggja af stað mllll kl. 13.00 og 16.00.
Þátttökugjald kr. 1.000. Veglegir vlnningar.
LSBjtí U'j IXíiííJiJjjjöíiJJiJö LlfiöJib'j J zz\m\
LISTFLUG í HÁLOFTUNUM
KL. 13.30 OG KL. 14.30.
FELAGAR UR FORNBILAKLUBNUIR SYNA
ALONAR GLÆSIKERRUR OG GLJAFÆGÐA GRIPI.
BYLJGAN SÉR UM AQ HALQA UPPI RÉTTRI
STEMMINGU. VALTYR BJORN KYNNIR.
Fjölbreytt og skemmtileg leiktæki fyrir börn. Kaffi- og veitingasalo.
HREYSTI
- fritkandi verslun •
SKEIFUNNI 19 • S: 681717 • FAX: 813064
Aukahlutir Vamhlutir Sérpantanir