Morgunblaðið - 31.07.1993, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JUU 1993
Kyrrsetumaður á skíðauám-
skeiði í Kerlingarfj öllum
Sumir eru vanir skíðamenn sem
hafa komið nokkrum sinnum áður
og hafa jafnvel verið á skíðum í
Austurríki eða Colorado, aðrir eru
að stíga á skíði í fyrsta skipti á
ævinni og vita varla hvað snýr
fram og aftur á skíðum, enn aðr-
ir eru einhvers staðar þar á milli.
Sumir eru í fínum skíðagöllum,
aðrir í regnfötum eða íþróttagöll-
um, hinir innvígðu hafa sumir
skíðin með sér og sólarvörn og
hvíta varasalva, byijendur koma
sumir allslausir hvað það varðar
og verða eins og soðnir humrar á
litinn eftir fyrstu tímana.
En að loknum fyrsta degi, þeg-
ar þátttakendurjiafa safnast sam-
an í heitu pottunum, eru allir jafn-
ir og allir álíka lerkaðir eftir átök-
in við brekkumar, þótt sum skíða-
svæðin standi varla undir nafni
sem brekkur - en það skilja byrj-
endumar ekki fyrr en daginn eft-
ir þegar þeir eru útskrifaðir í
raunverulega brekku. Þá sýnast
byijendabrekkurnar ekki sá vett-
vangur stórra átaka sem þær
höfðu verið daginn áður.
Sjö ára í andanum
Það em líka allir jafnir á kvöld-
vökunum sem haldnar em í stóra
skálanum fljótlega eftir kvöldmat.
Þar leiða sönginn tveir skíðakenn-
arar með gítara og allur hópurinn
syngur dúvaggí-dúvaggí eins og
lífið eigi að leysa. Þátttakendur í
námskeiðunum skiptast á um að
leggja til skemmtiatriði á kvöld-
vökunum og þau em að mestu
hefðbundin: „sjálfboðaliðar" em
skikkaðir til að borða epli upp úr
vaskafötum fullum af vatni eða
láta spil ganga frá munni til
munns eða fara i akróbatík-
æfingar með kústskaft án þess
að sleppa nokkum tíma af því
takinu. Þetta er eins og barnaaf-
mæli og fólk á öllum aldri samein-
ast, sjö ára í andanum, skríkjandi
af ánægju og hamingju yfir afrek-
um dagsins og sameiningu fjöl-
skyldunnar undir jökli.
Og svo skreiðist maður ofan í
pokann sinn fyrir klukkan ellefu
um kvöldið, dásamlega þreyttur,
uppfullur af heilnæmu fjallalofti
og með kakóbragð í munninum.
Um morguninn er ekki laust við
að maður finni fyrir harðsperrum
í hnjám og læmm - en það gera
fleiri, það leynir sér ekki á göngu-
lagi samferðarfólksins upp stig-
ann á leið í morgunmat.
Þar svigna matborðin undan
heilnæmum kræsingum og starfs-
fólk Skíðaskólans í Kerlingarfjöll-
um bendir manni á að nauðsyn-
legt sé að borða vel og mikið til
að vera búinn undir átök morg-
unsins. Kennaramir og annað
starfsfólk virðist raunar vera sam-
safn af geðslegasta fólki á ís-
landi. Það er hreystin og hollustan
uppmáluð - enda borðar það
soðna hafra í morgunmat! - spilar
á gítar og syngur dúvaggí á kvöld-
vökum eins og atvinnumenn (enda
er allt að því skilyrði fyrir því að
fá vinnu við skíðakennslu að
kunna á gítar og halda lagi!) og
tekst að auki að kenna stirðu
kyrrsetufólki að þeysast niður
brekkur með stíl á öðmm og þriðja
degi. Jæja, kannski vantar eitt-
hvað upp á stílinn - en ánægjan
er sú sama.
Bremsað með slaufu og stæl
Ég hafði satt að segja miklar
efasemdir um að ég myndi hafa
gaman af því að fara á skíðanám-
skeið í Kerlingarfjöllum. Ég hafði
aldrei stigið á skíði, ég á ekki
skíðagalla, gleraugun geta dottið
af mér og brotnað, annar fóturinn
er stærri og passar áreiðanlega
ekki í neina skíðaskó - og hvað
ef maður hrasar á þijú hundmð
kílómetra hraða niður snarbrattan
jökul og hálsbrýtur sig? Og var
þetta ekki líka fokdýrt?
Þetta reyndist allt saman rangt
og í fyrsta skipti í manna minnum
kvíði ég ekki vetrinum, vetri fylg-
ir snjór og í snjónum er hægt að
renna sér á skíðum í Skálafelli
eða Bláfjöllum. Mig hafði lengi
grunað að það hlyti að vera gam-
an að renna sér niður brekku og
ráða nokkurn veginn hvernig
maður færi og hvar ferðinni lyki.
Það reyndist rétt. Ég þurfti ekki
skíðagalla (um tíma lá meira að
segja við að maður þyrfti engin
föt, slík var veðurblíðan), gleraug-
un duttu ekki af mér, skíðaskóm-
ir pössuðu og ég komst aldrei á
300 kílómetra hraða niður jökul-
inn til að hálsbijóta mig.
Við vorum nokkur saman sem
LJósm.: Ómar Valdimarsson
Önnur kynslóð fjallamanna er að taka við í Kerlingarfjöllum. Hér
eru bræðrasynimir og nafnamir Örnólfur Þorvarðarson og Örn-
ólfur Valdimarsson.
Ljósm.: Ómar Valdimarsson
Heitt kakó og smurt brauð í hádeginu er vel þegið.
aldrei höfðum stigið á skíði og
vorum leidd áfram, hægt en
ákveðið, inn í leyndardóma skíða-
íþróttarinnar, allt frá því að
standa á skíðum á jafnsléttu og
til þess að bremsa með slaufu og
stæl við diskalyftuna neðst í
brekkunni. Aðrir, sem lengra voru
komnir, voru ofar í brekkunni og
þurftu ekki að læra grundvallar-
atriðin, heldur vörðu tíma sínum
í að slípa stílinn. Og einn daginn
kom sólbrenndur skíðakennari á
snjótroðara, hengdi þá innvígðu
aftan í sig og silaðist upp á Snæ-
koll í nærri 1.500 metra hæð yfír
sjávarmáli. Þar renndu ofurhug-
amir sér niður nær snarbrattar
hlíðamar og komu beint í kakó
og smurt brauð í glampandi sól-
skini og hita. Meira að segja ungl-
ingspiltar, sem alla jafna em of
töff til að blanda geði við venju-
legt fólk, komu úr þessari ferð
brosandi út að eyrum með ævin-
týraglampa í augum og sögðu að
hætti síns tíma: Jess! Svo bentu
þeir upp á þverhnípta kletta Loð-
mundar, sem skagar upp í himin-
hvolfið ofan við skíðasvæðið, og
sögðu: Sjáðu snjóröndina sem
liggur þarna niður? Þarna fer ég
næst.
Engir arabar á útimarkaði
Já, já, gott og vel, sagði Gunna
frænka þegar hún hafði hlustað
á ferðasöguna og skoðað myndir
af mismunandi bröttum brekkum
og bæklingum með myndum af
skíðum og skíðaskóm, en eitthvað
kostar svo öll dýrðin.
Jú, en ekki nærri eins mikið
og sólarlandaferðin þín í fyrra sem
þú komst heim úr bæði staurblönk
og langtimbruð. Ef þú ferð á eig-
in bíl á fjögurra daga námskeið
- þú getur líka verið í tvo daga
eða fimm - kostar þetta þig
18.700 krónur. Fyrir það færðu
gistingu, fjórar máltíðir á dag,
skíðakennslu, skíði og skíðaskó,
rútuferðir upp í fjall og til baka
og lyftupassa og lærir óteijandi
dúvaggí-lög á kvöldvökunum.
Fyrir Stínu litlu kostaði námskeið-
ið 9.850 krónur. Ef þið farið með
rútu úr bænum kostar það fjögur
þúsund kall fram og til baka fyrir
þig og tvö þúsund kall fyrir Stínu.
Og svo máttu ekki gleyma því að
þegar þú ert kominn upp í fjöllin
er engin hætta á að arabi á
útimarkaði plati þig til að kaupa
leðuijakka eða trommusett fyrir
þijátíuþúsund peseta.
Við ætlum aftur síðar. Til að
slípa stílinn.
TEXTI OG MYNDIR:
Ómar Valdimarsson.
É
FINNST ÞÉR GAMAN AÐ FERÐAST? FINNST ÞÉR GAMAN AÐ UMGANGAST ÚTLENDINGA? GETU/?^
CQ
Q
LEIÐSOGUNAM
Leiðsöguskóli íslands hefst 8. sept. nk., ef næg
þátttaka fæst. Kennsla fer fram í Menntaskólanum í
Kópavogi. Umsóknareyðublöð liggja frammi í
skólanum 3.-6. ágúst frá kl. 17.00 - 19.00. Upplýsingar
verða gefnar í síma 643033 á sama tíma.
Æskitegt er að umsækjendur hafi:
1. Stúdentspróf og gott vald á erlendum tungumálum
(auk ensku t.d. þýsku, frönsku, Norðurlandamálum,
hollensku, spænsku, ítölsku eða japönsku).
2. Reynslu í ferðamennsku og þekkingu á íslandi.
3. Aðstæður til að vinna óreglubundna sumarvinnu.
4. Gott skap og jákvæðan hugsunarhátt.
5. Náð 21 árs aldri þegar námið hefst.
o=
5S
ft;
5
o
3
zn
ZX2
FS
Umsóknarfrestur rennur út 10. ágúst nk.
LEIÐSÖGUSKÓLI ÍSLANDS
§
^//i iQNVTSi nn Diawi nrasAHNB GvisvaaBi naand3H íonvisi wn inva a^a um inmv#'
Bændur hlynntir nýju
GATT-samkomulagi
FORYSTUMENN samtaka bænda innan Evrópubandalagsins og á Norð-
urlöndum ítrekuðu á fundi sínum í Reykjavík stuðning við að gert
verði nýtt GATT-samkomulag, samkomulag sem tekur fyllsta tillit til
mismunandi sjónarmiða og hagsmuna aðildarríkjanna, eins og nefnt er
í Punta del Este-yfirlýsingunni. Þar er lögð áhersla á að sköpuð verði
bætt skilyrði fyrir alþjóðleg viðskipti með búvörur og matvæli með
bættu jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar og auknum verðstöðug-
leika á heimsmarkaði.
Á hinn bóginn Iýstu fundarmenn
yfír áhyggjum vegna þróunar GATT-
viðræðnanna að undanfömu sem
hefur verið á skjön við ofangreind
markmið. Voru þau stjómvöld sem
aðild eiga að viðræðunum því ein-
dregið hvött til að veita landabúnað-
arhluta þeirra aukinn forgang og
vinna að honum samhliða hinum
hlutum viðræðnanna svo tryggja
megi að nýtt samkomulag verði
ásættanlegt öllum aðildarríkjum
GATT.
Fundurinn var haldinn 23.-24.
júlí í Reykjavík. í frétt frá bænda-
samtökum sem héldu fund segir að
fundarmenn hafí samþykkt að til
eftirfarandi atriða yrði að taka tillit
til í yfirstandandi viðræðum:
1. Hið fjölbreytta hlutverk sem land-
búnaður og landbúnaðarstefna gegn-
ir í Evrópu. Af þeim sökum verða
aðildarríki að hafa innan nýs GATT-
samkomulags svigrúm til að fylgja
eigin landbúnaðarstefnu, sem sé í
samræmi við þarfír hvers þeirra.
2. Aðildarríkin verða að geta fram-
fylgt með tilteknum aðgerðum, s.s.
innflutningstakmörkunum eða
breytilegum gjöldum þeim verðstöð-
ugleika á heimamarkaði sem fram-
leiðslukostnaður innan hvers þeirra
gerir nauðsynlegan.
3. Taka verður tillit til fæðuöryggis
einstakra þjóða og heimsins í heild
þegar landbúnaðarstefna er mótuð í
GATT-viðræðunum.
4. Gera verður kröfu til þess að al-
þjóðlegar reglur um heilbrigði
plantna og dýra veiti raunverulega
neytendavemd.
Styrkir
veittir til
útgáfu og
rannsókna
STYRKIR hafa verið veittir
úr Minningarsjóði Ársæls
Sigurðssonar og Sigurbjarg-
ar Pálsdóttur.
Þessir hlutu styrk:
1. Gunnar Á. Gunnarsson,
Vatnskarðshólum í Mýrdal. Kr.
200.000, til að rannsaka
byggðarþróun í Dyrhólahverfí
í Mýrdal. Áhrif efnahagsgerðar
og landkosta á þróun mannlífs
og félagsgerðar frá upphafí
byggðar til okkar tíma.
2. Dynskógaútgáfan, Kirkju-
bæjarklaustri. Kr. 100.000, til
þess að ljúka við útgáfu Versl-
unarsögu Vestur-Skaftfellinga,
III. bindi.
3. Sigurður Ragnarsson, Vest-
urgötu 38, Keflavík. Kr.
50.000, til þess að rannsaka
og skrá æviferil Austur-Skaft-
fellinga.