Morgunblaðið - 31.07.1993, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1993
17
Ósvífni og valdníðsla
undanþágunefndar
eftirMarinó G.
Njálsson
Miðvikudaginn 21. júlí sl. þurfti
Iðnskólinn í Reykjavík, að kröfu
undanþágunefndar framhalds-
skóla, að auglýsa lausar til um-
sóknar tuttugu kennarastöður við
skólann. Fjórar af þessum stöðum
standa mér mjög nærri, þar sem
síðast liðið eitt og hálft ár hef ég
gegnt einni þeirra. Þetta eru fjórar
stöður kennara í tölvufræðum.
Við Iðnskólann í Reylqavík er
boðið upp á sérstakt nám í tölvu-
fræðum. Þetta er þriggja ára nám
annars vegar á hugbúnaðarsviði
og hins vegar forritunarsviði.
Námið hefur þróast mjög hratt og
hefur fjöldi nemenda sótt í það. A
síðustu önn voru t.d. meira en 150
nemendur skráðir á þessar tvær
brautir eða um 10% nemenda.
Fyrri störf skipta engu máli
„Leiðbeinendurnir" fjórir, sem
undanþágunefnd hafnaði nema
stöður þeirra væru auglýstar í
þriðja sinn, hafa borið megin
þunga af kennslunni á tölvubraut-
unum. Tveir þeirra eru, auk þess,
deildarstjórar tölvubrautanna, þar
af er annar umsjónarmaður tölvu-
nets skólans, einn er gæðastjóri
skólans og sá ijórði, þ.e. greinar-
höfundur, er skipulagsstjóri skól-
ans. Skipulagsstjóri hefur m.a. yf-
irumsjón með tölvubúnaði skólans,
tölvuvinnslu nemendabókhalds og
töflugerð og situr í kennslustjóm
og gæðaráði.
Allir höfum við, þann stutta tíma
sem við höfum verið hjá skólanum,
unnið ötullega að þróun kennslu á
tölvubrautunum. Að því var ekki
spurt þegar undanþágunefnd
ákvað að hafna að svo stöddu
umsókn okkar um áframhaldandi
starf. Fagleg kennsla er nær alfar-
ið í okkar höndum. Þetta eru byrj-
enda- og framhaldsáfangar í Pasc-
al, áfangi um tölvunet og -sam-
skipti, áfangi um tölvuvæðingu,
byrjenda- og framhaldsáfangi í
gagnasafnsfræðum, lokaverkefn-
isáfangi og svona mætti lengi telja.
Ég fæ ekki séð hvaða hagsmun-
um það þjónar að krefjast þess að
stöður okkar séu auglýstar í þriðja
sinn. A.m.k. hvorki skólans né
nemenda. Hvar er sá kennara-
menntaði einstaklingur sem treyst-
ir sér til að taka við þessum fjórum
stöðum? Hve margir kennara-
menntaðir einstaklingar hafa fag-
lega þekkingu á tölvunetum, tölvu-
væðingu, gagnasafnsfræði, Pascal
eða uppbyggingu lokaverkefna á
tölvusviði?
Að mínu áliti hefur undanþágu-
nefndin gert sig seka um grófa
valdníðslu. Hún blandar sér með
þessu ekki bara inn í þróun tölvu-
brautar Iðnskólans, heldur einnig
margt annað skipulagt starf skól-
ans, þ.e. deildarstjórn tölvubrauta,
umsjón tölvunets, starf gæðastjóra
og starf skipulagsstjóra. Ég held
að undanþágunefnd hafi túlkað
ákvæði laga full stíft og ekki kynnt
sér nægjanlega vel önnur störf
umsækjenda fyrir skólann.
Hverfí þessir fjórir einstaklingar
frá skólanum, er alveg eins hægt
að leggja tölvubrautina niður. Ekki
bara það. Skólinn þyrfti að þjálfa
kennararmenntaða einstaklinga til
að taka við umsjón tölvukerfis
skólans og tölvuvinnslu nemenda-
bókhalds. Og nauðsynlegt yrði að
ráða gæðastjórann til að ljúka sín-
um verkefnum, sem eru í fullum
gangi.
Forkastanleg framkoma
Hingað til hef ég bara litið á
þær afleiðingar sem höfnun und-
anþágunefndar hefur haft á skól-
ann. En hún hefur líka áhrif á
„Ég fæ ekki séð hvaða
hagsmunum það þjónar
að krefjast þess að stöð-
ur okkar séu auglýstar
í þriðja sinn. A.m.k.
hvorki skólans né nem-
enda.“
okkur sem einstaklinga.
Nefndin gefur okkur langt nef
og segir að brautryðjendastörf
okkar innan skólans séu einskis
metin. Hún stefnir fjárhagslegu
öryggi okkar í hættu með því að
bíða svo lengi með ákvörðun sína
eða draga það á langinn að til-
kynna skólanum hana. Af þeim
sökum er vandséð að við fáum
útborguð laun 1. ágúst næstkom-
andi miðað við núverandi stöðu.
Þetta er ósvífni og valdníðsla af
verstu gerð. Við höfum ekkert
tækifæri til að bæta okkur upp
þennan fyrirvaralitla launamissi og
ekki mun ríkið eða undanþágu-
nefndin greiða útgjöld okkar um
mánaðamótin.
Kaldhæðnin í þessu öllu er sú
að það er vandséð að það fáist
kennaramenntaðir einstaklingar
sem skólanefnd Iðnskólans (hvað
þá ég) telur hæfari til að gegna
umræddum stöðum. Þess vegna
er nær öruggt að stöðumar verði
eins mannaðar hér eftir sem hing-
að til.
Höfundur er skipulagsijóri og
„leiðbeinandi“ við Iðnskólann í
Reykjavík. Hann er með BSpróf í
tölvunarfræði frá Háskóia Isiands.
Marinó G. Njálsson
Hótel Valliöll, Þingvöllum, sunnudaginn 1. águst.
Dagskrá:
Kl. 17.30-18.45 Gestir safnast saman og lyfta glösum.
Staður: Sumarhús Ingólfs (eftir veðri,annars í Hótel Valhöll).
Kl. 19.00-23.00 Veisla í HótelValhöll,þríréttaður kvöldverður,tónlist og dans.
Ferðafélagar t heimsreisum alltfrá 1980 til ársins í ár
- allir velkomnir meðan rúm leyfir.
Haldið vináttutengslunum við, hittumst og gleðjumst
saman, Suður-Ameríkufarar, Afríkufarar, Ástralíufarar,
Karíbahafskönnuðir, ítaliufarar, Japansfarar, Kinafarar,
Malaysiu- og Thailandsfarar, Hnattfarar
Athugið takmarkað sætarými og pantið strax.
Pantanir hjá Heimsklúbbi Ingólfs, sími 620400
eða Hótel Valhöll fyrir laugardag.
HEIMSKLUBBUR INGOLFS
AUSTURSTRÆTI17,4. hæð 101 REYKJAVIK*SIMI 620400-FAX 626564