Morgunblaðið - 31.07.1993, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARÐAGUR 31. JUU 1993
41
Rannveig Páls-
dóttir — Minning
Fædd 9. október 1942
Dáin 20. júlí 1993
Elsku móðir okkar, Rannveig
Pálsdóttir, er látin á 51. aldursári
eftir langvarandi veikindi.
Móðir okkar fæddist í Reykjavík
1942. Hún var dóttir Huldu
Björnsdóttur og Páls Arasonar.
Voru þau systkinin tvö og er bróð-
ir hennar Björn Pálsson, bóndi á
Flögu í Hörgárdal. Móðir okkar
ólst upp frá átta ára aldri hjá
ömmu sinni og afa, Dýrleifu Páls-
dóttur frá Möðrufelli í Eyjafirði
og Ara Guðmundssyni frá Þúfna-
völlum í Hörgárdal. Ung að árum
kynntist hún Einari Má Magnús-
syni. Bjuggu þau saman í nokkur
ár og áttu tvö börn. Þau eru: Oddr-
ún Hulda Einarsdóttir, fædd 18.
janúar 1959, húsmóðir, og Ari
már Einarsson, fæddur 4. mars
1960, tölvufræðingur. Seint á ár-
inu 1963 kynnist hún Bandaríkja-
manni, Tommy Joe Mosco að
nafni, og flyst með hún með hon-
um til Bandaríkjanna. Börn þeirra
hjóna urðu þrjú. Þau eru: Robert
Nick Mosco, fæddur 4. júlí 1964,
sjómaður; Lucille Yvette Mosco,
fædd 28. september 1965, deildar-
stjóri; og Kelly Mosco fæddur 21.
desember 1966, lögfræðinemi í
bandaríska hemum. Slitu þau
samvistir eftir átta ára hjónaband.
Lífíð í Bandaríkjunum var ekki
auðvelt fyrir einstæða móður og
til að framfleyta sér vann hún hin
ýmsu störf, til dæmis var hún bíl-
stjóri og ráðskona á búgarði.
Alla tíð var þó heimþráin sterk
í henni og árið 1976, þegar henni
gafst tækifæri til, fór hún heim
með börnin. Lífsbaráttan hélt þó
áfram, en þrátt fyrir ýmsa erfíð-
leika var hún svo ánægð að vera
komin heim, að allt virtist auðveld-
ara. Stuttu eftir heimkomuna
kynntist hún Sigurði Jonny og
gengu þau í hjónaband. Slitu þau
samvistir árið 1990. Sambýlismað-
ur hennar síðustu æviárin var
Guðmundur Ólafsson, vélstjóri.
Reyndist hann henni vel í gegnum
öll veikindi hennar fram til þess
síðasta.
Rannveig var myndarleg kona
með mikið skap og persónuleika.
Var hún hlý kona og alltaf tilbúin
að hjálpa öllum er til hennar leit-
uðu. Hún var vel gefin og víðlesin,
með mikinn áhuga á ferðalögum
LEGSTEINAR
iTí
— 720 Borgarfiröi eystra,
sími 97-29977, fax 97-29877
bæði innanlands og utan.
Síðustu tíu árin átti hún við
mikil veikindi að stríða og var
meira eða minna á spítala. Hún
talaði alltaf um þá góðu meðferð
og þá vináttu sem henni hlotnaðist
á þessum tíma.
Fyrir hennar hönd og hennar
nánustu aðstandenda, viljum við
þakka starfsfólki Landspítalans
og þá fyrst og fremst starfsfólkinu
á gjörgæslunni fyrir þá góðu
umönnun sem hún fékk. Barna-
börnin hennar sakna hennar sárt
og vilja þakka henni allar þær
góðu stundir sem hún gaf þeim.
Við, börnin hennar, viljum kveðja
móður okkar með þökkum fyrir
+
Ástkær sonur minn, fafiir okkar, tengdafaðir og afi,
HELGI ELÍASSON,
Garðavegi 13,
Hafnarfirði,
sem lést í Borgarspftalanum þann 24,'júlí, verður jarðsunginn frá
Víðistaðakirkju, Hafnarfirði, þriðjudaginn 3. ágúst kl. 13.30.
Blóm ofj kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu
minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag íslands.
Elías Kristjánsson,
Eiias Helgason,
Þorkell Helgason,
Ingibjörg Helgadóttir, Þórður Einarsson,
Valur Helgason, Ágústa G. Hilmarsdóttir,
Helga Helgadóttir, Haukur H. Hauksson,
Anna María Heigadóttir
og barnabörn.
alla þá ást og umhyggju sem hún
sýndi okkur.
Oddrún Hulda, Ari Már,
Robert Nick, Lucille Yvette,
Kelly Wayne og barnabörn.
+
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTINN G. ÓLAFSSON,
Vatnsstíg 11,
lést á heimili sfnu 23. júlí.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Aðalheiður Dúfa Kristinsdóttir, Kristinn G. Kristjánsson,
Vilmar Þór Kristinsson, Unnur I. Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur, tengdasonur og bróðir,
HELGI HJÁLMARSSON,
rafvirki,
Granaskjóli 36,
er lést 26. júlí, verður jarðsunginn frá
Neskirkju, miðvikudaginn 4. ágúst kl.
13.30.
Berglind Sigurðardóttir,
Arnar Sigurður Helgason,
fris Alda Helgadóttir,
Helgi Steinar Helgason,
Margrét Guðmundsdóttir, Hjálmar Gislason,
Alda Jónsdóttir, Sigurður Gunnarsson,
og systkini hins látna.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HALLDÓRA ANDRÉSDÓTTIR
hjúkrunarkona,
Kleppsvegi 48,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 4. ágúst
kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlega afbeðnir, en þeim, sem vildu minn-
ast hinnar látnu, er bent á að láta Blindrafélagið njóta þess.
Fríða Björnsdóttir, Bergsveinn Jóhannesson,
Trausti Björnsson, Sigurlina Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaöir og afi,
GUÐMUNDUR HJÖRTUR
BJARNASON
skipaskoðunarmaður,
Skípholti 14,
lést í Landspftalanum 30. júlí.
Elísabet Guðmundsdóttir,
Guðmundur Þorlákur Guðmundsson, Katrfn Karlsdóttir,
Helga Guðmundsdóttir Winter, Hlöðver Haraldsson,
Bjarni Guðmundsson,
Elísabet, Magnea, Katy Þóra, Margrét Malín,
Guðmundur Þorlákur og Erla.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, sonur,
bróðir, tengdasonur, tengdafaðir og afi,
HÖRÐUR ÁRNASON,
Bakkaseli 14,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 4. ágúst kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent
á Styrktar- og líknarsjóð oddfellowa.
Brynja Hlfðar,
Jóhann Hlíðar Harðarson, María Björg Klemensdóttir,
Árni Harðarson, Anna Margrét Jónsdóttir,
Hörður Harðarson, Guðrfður Matthfasdóttir,
Brynjar Skjöldur Harðarson, Huld Kristmannsdóttir,
Edda Árnadóttir, Ingunn Hlíðar
og barnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð vegna fráfalls
MARGRÉTAR GUÐJÓNSDÓTTUR,
Lokastíg 5.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar B-4 á Borgarspítala.
Guðjón Emilsson, Gunnar Emilsson,
Emilía Emilsdóttir, Kristján Friðsteinsson,
Gunnlaug Emilsdóttir, Sveinn Halldórsson
og barnabörn.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma annað kvöld
kl. 20.00.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Fjölskyldusamkoma é morgun
kl. 11.00. Allir velkomnir.
Sjónvarpsútsending á Omega
kl. 14.30.
VEGURINN
Krístið samfélag
Smiðjuvegi 6, Kópavogi
Mót á Laugarvatni, öllum opið.
Samkomurnar eru haldnar í
fþróttahúsinu.
Laugardag:
Kl. 11:00 Samkoma og barna-
kirkja.
Kl. 14:00 (þróttamót fyrir alla
aldursflokka.
Grill að loknu íþróttamóti.
Kl. 21:00 Samkoma.
Kl. 23:30 Varðeldur og söngur.
Sunnudagur:
Kl. 11:00 Samkoma.
Kl. 15:00 Fjölskylduhátíð.
Kl. 21:00 Samkoma.
Kl. 23:30 Varðeldur og söngur.
Mánudagur:
Kl. 11:00 Lokasamkoma
- mótsslit.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hjálpræðis-
Kirkjuttrali 2
Sunnudagur:
Hjálpræðissamkoma sunnudag
kl. 20.00. Útisamkoma sunnu-
dag kl. 16.00, ef veður leyfir.
auglýsingar
Kapteinn Miriam Óskarsdóttir
stjórnar og talar.
Verið velkomin!
UTIVIST
Hallveigarstig 1 • sírni 614330
Dagsferðir sunnud. 1. ágúst
Kl. 10.30 Grindarskörð-Selvog-
ur. Skemmtileg ganga um gamla
þjóðleið. Reikna má með 5-6
klst. langri göngu.
Verð kr. 1.500/1.700.
Dagsferð mánud. 2. ágúst
Kl. 10.30 Kaupstaðaferð.
Farin verður leið sem ábúendur
á Ártúni á Kjalarnesi hafa trúlega
farið til Reykjavíkurkaupstaðar.
Gengið verður frá Ártúni með
Esjuhlíðum, síðan niður í Hofsvík
og báti þaðan til Reykjavíkur
með viðkomu í Engey.
Verð kr. 1.500/1.700.
Brottför í ferðirnar frá BSl bens-
ínsölu, miðar við rútu. Frítt fyrir
börn 15 ára og yngri í fylgd með
fullorðnum.
Otivist.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
VÖRKINNI 6 - SÍMI 682533
Dagsferðir Ferðafélagsins:
Sunnudagur 1. ágúst
1) Kl. 8 Þórsmörk - dagsferð.
Verð kr. 2.500.
2) Kl. 13 Stardalur - Tröllafoss.
Ekið að Stardal og gengið þaðan
niður með Leirvogsá að Trölla-
fossi. Verð kr. 1.000.
Mánudagur 2. ágúst
1) Kl. 8 Þórsmörk - dagsferð.
Verð kr. 2.500.
2) Kl. 13 Ármannsfell (768 m)
norðan við Þingvelli.
Verð kr. 1000.
Miðvikudagur 4. ágúst
Kl. 20 Húsafell - Kaldársel. Ekið
að Kaldárseli suðaustur frá
Hafnarfirði og gengið þaðan.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin og Mörkinni 6.
Ferðafélag fslands.
Dagskrá Samhjálpar
um verslunarmannahelgina
verður sem hér segir.
Laugardagur 31. júlí:
Opið hús ( Þríbúðum kl. 14—17.
Lítiö inn og rabbið um daginn
og veginn. Heitt kaffi á könn-
unni. Almennur söngur. Arin-
björn Árnason leikur á píanó.
Gunnbjörg Óiadóttir syngur ein-
söng. Takið með ykkur gesti.
Allir velkomnir.
Sunnudagur 1. ágúst:
Dorkas-samkoma í Þrfbúðum.
Dorkas-konur annast samkom-
una með söng og vitnisburðum.
Gunnbjörg Óladóttir syngur ein-
söng. Barnagæsla.
Stjórnandi Ásta Jónsdóttir.
Kaffi að lokinni samkomu.
Allir velkomnir f Þrfbúðir,
Hverfisgötu 42, um verslunar-
mannahelgina.
r— —
KÍ\OS?I i i hJN
Auðbrekka 2 . Kópavogur
Samkomur falla niður um helgina.
Sjáumst heil í guðs friði á þriðju-
dagskvöld.
Guð blessi ykkur.
4