Morgunblaðið - 31.07.1993, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1993
43
Norðmennirnir
sem flugu yfir haf-
ið til Islands og
ætla síðan til
Grænlands í skoð-
unarferð.
FERÐALÖG
Sannir víkingar
borða hvalkjöt
Fimm norskir ferðalangar nýttu
sér tveggja hreyfla flugvél til
að komast til landsins nýlega undir
stjórn flugstjórans Magne Nes-
bakken. Nokkrir þeirra búa nálægt
ólympíuþorpinu tilvonandi og
fannst gott að komast í frið og ró
í íslenskri náttúru. Héðan ætluðu
þau að fljúga til Grænlands og
skoða sig þar um.
„Það gengur mikið á í ólympíu-
þorpinu og fáir skilja hvað verður
gert við allar hallimar eftir sam-
komuna. Margir ætla að flytja í
burtu á meðan keppnin stendur
yfir og leigja þá húsin sín dým
verði,“ sagði einn ferðlanganna,
Eyvind Reinskou í samtali við
Morgunblaðið. Með honum voru
Sigfrid Grostad, Wenche Rasmus-
sen og Vivi Klette, en sú síðast-
nefnda hefur komið hér áður. Hún
klæddist óvenjulegum bol, sem á
stóð að sannir víkingar borðuðu
hvalkjöt. „Það eru mjög skiptar
skoðanir um hvalveiðar í okkar
landi, en ég vil hvalkjötið, enda er
það herramannsmatur. Þetta er
stórmál fyrir þjóðarbú okkar og ég
veit að Islendingar hafa verið í
klemmu vegna hvalveiða líka.“
Hún bætti við að henni fyndist
ísland fallegt land og náttúran ein-
„Sannir víkingar borða hvalkjöt"
var prentað á bolinn sem norska
konan ber stolt hvert sem hún
fer.
stök. „Við ætlum að skoða okkur
um á Suðurlandi, fara að jöklunum
og halda svo til Grænlands á flug-
vélinni. Það er spennandi að fljúga
yfir hafið í lítilli vél. Við sitjum
kappklædd í sérstökum flotgöllum
eins og geimfarar," sagði Vivi
Klette um leið og ferðalangarnir
fóm að hugsa sér til hreyfings.
Morgunblaðið/JI
Örvar Jens, til vinstri, á Höfðatúninu, sinnir skyldustörfum ásamt
vini sínum í sveitinni Ingvari Þór. Þeir félagarnir voru sammála um
að heimalningarnir þyrftu góða næringu þar sem þeir munu ef að
líkum lætur sjást á hvíta tjaldinu þegar farið verður að sýna Bíódaga.
LIFERNI
Leiklist, heimalningar
og fótbolti
*
Ohætt er að segja að Örvar Jens
Amarsson, 10 ára snáði úr
Hafnarfirði, hafi haft í mörg horn
að líta á síðustu vikum, en hann fer
með eitt aðalhlutverkið í nýjustu
kvikmynd Friðriks Þórs Friðriksson-
ar, Bíódögum, sem byggð er á æsku-
minningum kvikmyndaleikstjórans.
Síðustu þrjár vikur hafa tökur staðið
yfir á bænum Höfða á Höfðaströnd
þar sem Friðrik Þór var sjálfur í
sveit á sínum yngri árum og á næstu
í sveitinm
dögum hefjast tökur í Reykjavík.
Orvar Jens hefur aldrei leikið í
kvikmyndum áður, en segist nokkr-
um sinnum hafa leikið í frumsömdum
skólaleikritum. Þó hann hafi heldur
aldrei verið í sveit fyrr en nú, kunni
hann vel við sig í Skagafírðinum og
sá meðal annars um að gefa heimaln-
ingunum mjólk úr pela auk þess sem
hann iðkaði knattspyrnu af kappi
þegar stundir gáfust frá leiklistinni.
KNATTSPYRNUSKÓLINN
Ökeypis knattspyrnunámskeið!
Það verður fjör á FRAM-svæðinu dagana 9.-12. ágúst því við höfum enn fengið FRAM í lið með
okkur og efnum til eldfjörugs knattspyrnunámskeiðs fyrir stráka og stelpur á aldrinum 7-11 ára.
Og það geta allir verið með!
Undirstöðuatriði knattspymunnar verða kennd í tvo tíma á dag, kl. 13.00 - 15.00 frá mánudegi til
fimmtudags. Glímt verður við knattþrautir af ýmsu tagi og farið í spennandi leiki.
Allir geta skraö sig I Keppni
Á áfangastöðum okkar um alla Evrópu höfum við séð til margra ungra knattspymusnillinga meðal farþega. Við hlökkum til að verður haldin í vítakóngi, knattleikni o.fl. Margvísleg verðlaun eru í boði og allir fá frían SL-bol og húfu fyrir
hitta þá aftur, en að sjálfsögðu em allir aðrir krakkar velkomnir! þátttökuna! <
Kennararnir Grillveisla í lokin! o o
Þeir eru ekki af lakari endanum: Ásgeir Elíasson landsliðs-
þjálfari, Ásgeir Sigurvinsson, Bjami Jóhannsson, Vilhjálmur
Sigurhjartarson, Steinar Guðgeirsson, Ágúst Ólafsson, Hafdís
Guðjónsdóttir, Ingólfur Ingólfsson, Helgi Björgvinsson,
Valdimar Kristófersson, Rúnar Sigmundsson, Guðmundur Páll
Gíslason og Ómar Sigtryggsson.
Frægir knattspyrnumenn
Við eigum auk þess von á nokkrum af þekktustu knattspymu-
mönnum landsins í heimsókn, m.a. þeim Guðmundi Steinssyni,
Birki Kristinssyni, Atla Einarssyni, Ólafi Gottskálkssyni,
Kristni R. Jónssyni, Helga Sigurðssyni, Rúnari Kristinssyni,
Pétri Amþórssyni og Pétri Ormslev.
Við höldum svo rokna grillveislu í lokin þar sem allir fá
pylsur frá Goða eins og þeir geta í sig látið og skola þeim
niður með ómældu kóki!
Innritun
verður í FRAM-heimilinu 3.-6. ágúst milli kl. 10.00 og
12.00. Símar 680342 og 680343.
Skráið ykkur áður
en allt fyllist!
Allir fá frítt
á hörkuleik í Getraunadeildinni, leik
FRAM og ÍBK, fimmtudaginn
12. ágúst.
QATLAS^
EUROCAHD
Beykjavík: AusturetrætM 2 • S. 91 - 691010 • Innanlandsferðir
S. 91 - 6910 70 • Slmbréf 91 - 2 77 96 / 6910 95 • Telex 2241
Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Slmbréf 91 - 62 24 60
Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 96 - 27 200 • Simbréf 96 - 1 10 35
Keflavík: Hafnargötu 35 • S. 92 -13 400 • Símbréf 92 - 1 34 90
SamviiMiilBrtiii'
LanásU