Morgunblaðið - 24.08.1993, Side 1
64SIÐUR B
189. tbl. 81. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Varaði
Jeltsín
oft við
Moskvu. Reuter.
ALEXANDER Rútskoj, varafor-
seti Rússlands, sagði á frétta-
mannafundi í gær að Borís Jeltsín
forseti hefði mánuðum saman
daufheyrst við varnaðarorðum
um að spilling væri að festa rætur
á æðstu stöðum í stjórnkerfinu.
Sjálfur neitaði hann því að eiga
leynilegan bankareikning i Sviss
eins og haldið hefur verið fram.
Rútskoj sagði að forsetinn hefði
fengið fjölda skriflegra viðvarana
ekki bara frá sér heldur einnig frá
Nikolaj Fjodorov, fyrrverandi dóms-
málaráðherra, Júríj Boldyrev, fyrr-
verandi aðstoðarmanni sínum, og
Sergej Glazyev, sem sagði af sér
embætti utanríkisviðskiptaráðherra
á laugardag.
Rútskoj sem sjálfur var yfirmaður
nefndar sem barðist gegn spillingu
í stjórnkerfinu sagði að Jeltsín hefði
lagt sig í framkróka við að stöðva
rannsóknina. „í minni návist bann-
aði forsetinn öryggismálaráðherran-
um, innanríkisráðherranum og Bold-
yrev að gefa mér upplýsingar — mér
sem var yfirmaður spillingarnefnd-
arinnar," sagði Rútskoj. Seinna var
Rútskoj settur af sem yfirmaður
nefndarinnar.
Sjá „Rússland í heljargreipum
spillingarmálanna" á bls. 24-25.
Beðið með eftirvæntingu eftir að farmur þýsks kafbáts af botni Kattegats komi í ljós
Björgnn
bátsins
tókst vel
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðs-
dóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
EFTIR 48 ár á botni Kattegats
var þýski kafbáturinn U534
dreginn upp í gærmorgun. Nú
verður hann færður til Hirts-
hals, þar sem hann verður
hreinsaður og lagfærður. Kaf-
bátnum var grandað i lok seinni
heimsstyijaldarinnar og hafa
verið miklar vangaveltur um að
innanborðs séu gersemar sem
nasistar hafi reynt að forða frá
Þýskalandi. Enn er óvíst hver
farmurinn er, svo eini augljósi
ágóðinn er af sölu sjónvarpsefn-
is um björgunina, en hópurinn
sem stendur að björguninni hef-
ur stýrt henni með tilliti til fjöl-
miðla. Óvíst er hver hefur eign-
arrétt yfir bátnum og búist er
við að deilur þar að lútandi endi
fyrir rétti.
Meðal björgunarmanna ríkti
mikil eftirvænting, hvort hinn 300
tonna þungi bátur þyldi átökin, en
í ljós kom að báturinn er í góðu
ásigkomulagi, miðað við aðstæður.
Hópurinn seoa stendur að björg-
uninni, hefur ekki viljað gefa upp
kostnaðinn, en áætlað er að hann
sé ekki undir sem svarar 200 millj-
ónum íslenskra króna. Fremstur í
flokki björgunarmanna er fjár-
málamaðurinn Karsten Ree, sem á
smáauglýsingablaðið Bláa blaðið.
Reuter
Lyft úr kafi eftir 48 ár
ÞEGAR kafbátnum var lyft upp af botni Kattegats í gær var lögunin í fyrstu óskýr vegua þangs
og gróðurs, sem á honum hékk. Stöðugt var sprautað yfir hann efni sem vamar því að mengun
frá dísilvélum bátsins breiðist út.
Auglýsingar um blaðið hanga um
allt við björgunarsvæðið á eyjunni
Anholt.
Hver á bátinn?
Enn sem komið er eru tekjur
af myndum og efni um björgunina
líka eini öruggi hagnaðurinn, því
enn er óljóst hvort eitthvað verð-
mætt er í bátnum og þá eins hver
muni eiga það. Sumir segja að lík-
legasti farmurinn sé kartöflusekkir
Björgunarhópurinn hefur samein-
ast um björgunina, en nú þegar
kemur að því að ákveða hvað verði
um bátinn, er viðbúið að sitt sýn-
ist hverjum. Þýska stjórnin hefur
fylgst með og hugsanlega er áhugi
fyrir hendi að fá bátinn aftur.
Einnig hefur Norðmaður sett fram
kröfur á grundvelli þess að hann
eigi rétt á þýskum flökum á þessu
svæði.
Það hefur vakið athygli sjón-
varps- og fréttamanna, sem fylgst
hafa með björguninni að almenn-
ingstengslafyrirtæki stýrði fram-
kvæmdunum styrkri hendi. Hluti
af uppákomunni er að áhöfn
bresku flugvélarinnar, sem sökkti
bátnum, og þýsku áhöfninni, sem
af komst, var boðið til Anholt að
fylgjast með og vel fór á með þeim.
í árásinni misstu Bretar eina flug-
vél og þrír Þjóðveijar fórust.
Króatar hafa enn ekki
leyft aðstoð við Mostar
Sarajevo. Reuter og The Daily Telegraph.
Reuter
Bjallan
framleidd
að nýju
Brasilíumenn hafa nú byij-
að aftur framleiðslu á
Volkswagen bjöllu eftir sex
ára hlé. Standa vonir til að
bjallan sem er einhver vinsæl-
asti bíll sögunnar geti orðið
lyftistöng fyrir efnhagslífið,
fjölgað störfum og gert al-
þýðufólki kleift að eignast bíl.
Á myndinni sést Itamar
Franco, forseti Brasilíu, skoða
íyrstu bifreiðina eftir að smíð-
in hófst að nýju og er hún
merkt 000 0001. Bjallan verð-
ur framleidd í bifreiðaverk-
smiðju í Sao Paulo. Til stendur
að framleiða 20.000 bíla á ári
og verður hver bíll seldur á
rúmlega hálfa milljón ís-
lenskra króna.
Flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna vinnur nú að því að
senda bílalest með hjálpargögn
til borgarinnar Mostar í Bosníu.
Vonast er til að hún verði kom-
in þangað á morgun. Enn hefur
þó ekki tekist að semja við Kró-
ata um leyfi fyrir flutninganna
en hungurdauði vofir yfir 55.000
múslimum sem í borginni búa.
Lyndall Sachs, talsmaður Flótta-
mannahjálpar SÞ, sagði í gær
að ekki hefði tekist að ná í neinn
nógu háttsettan Króata til að
leyfa lest SÞ að fara í gegn.
Engin hjálpargögn hafa borist
til Mostar frá því Króatar og mú-
slimar byijuðu að beijast um miðj-
an júní. Starfsmenn Flóttamanna-
hjálparinnar segja að búast megi
við fyrstu dauðsföllunum af völdum
hungurs næstu daga. Aðstæður eru
sagðar sérlega slæmar í austur-
hluta Mostar. Þar eru 50-60 sjúkl-
ingar í bráðabirgðasjúkrahúsi í
kjallara gamallar skrifstofubygg-
ingar. Særðir eru sendir heim eftir
að gert hefur verið að sárum við
frumstæð skilyrði vegna þess að
ekki er hægt að sjá um sjúklinga
eftir aðgerð.
Starfsmenn Sameinuðu þjóð-
anna segjast íhuga að varpa mat-
vælum yfir borgina en fyrst verði
reynt til þrautar að fá Bosníu-Kró-
ata til að gefa eftir. Þeir krefjast
þess að Bosníustjórn láti króatíska
fanga lausa áður en umsátrinu um
Mostar verður aflétt.
Talsmaður friðargæslusveita
Sameinuðu þjóðanna segir að verið
sé að kanna hvað hæft sé í ásökun-
um um að friðargæsluliðar séu á
kafi í svartamarkaðsbraski í
Sarajevo. í síðustu viku voru fjórt-
án úkraínskir starfsmenn friðar-
gæslusveitanna sendir heim eftir
að þeir urðu uppvísir að braski með
sígarettur, eldsneyti og fleira.
Skjöl um morðiö á John F. Kennedy gerð opinber
Hvað gerðist í Mexíkóborg?
Washington. Reuter.
í BANDARÍSKUM skjölum um John F. Kennedy Bandarikjafor-
seta, sem gerð voru opinber fyrsta sinni í gær, koma fram nýjar
upplýsingar um dularfulla för Lee Harvey Oswalds, morðingja
Kennedys, til Mexíkóborgar mánuði fyrir morðið. Jafnframt seg-
ir þar að skýrslur frá CIA-deildinni í Mexíkó hafi verið allsér-
kennilegar á tímabili eftir morðið á forsetanum.
Gífurlegt magn af skjölum er Harvey Oswald. Þar kemur fram
tengjast forsetatíð Kennedys og þá
einkum morðinu á honum var gert
opinbert í gær og er það talið nálg-
ast milljón síður. Þar á meðal er
500 síðna skýrsla nefndar fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings er skipuð
var til að rannsaka morðið á forset-
anum og banamanni hans Lee
að Oswald átti í ástarsambandi við
mexíkóska stúlku mánuði fyrir
morðið en hún vann fyrir kúb-
versku ræðismannsskrifstofuna í
Mexíkóborg. Jafnframt kemur
fram að CIA hafði áhuga á að fá
stúlku þessa til samstarfs við sig.
Sérfræðingur sem Reuters-frétta-
stofan ræddi við í gær sagði að
þessar upplýsingar um för Oswalds
til Mexíkós vektu spurningar um
hvað hefði í raun gerst þá afdrifa-
ríku daga sem hann var staddur
þar.
Nefndin segir að skýrslur sem
borist hafí frá CIA-deildinni í Mex-
íkó eftir morðið hafi verið undarleg-
ar. Ruglingslegt innihald þeirra og
á tíðum mótsagnakennt kunni þó
að skýrast af mikilli spennu sem
ríkt hafí í deildinni eftir morðið og
þeim flýti sem þær voru unnar í.