Morgunblaðið - 24.08.1993, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993
Útgerðarstjóri Ljósafellsins telur veiðiferð í Smuguna vart til f]ár
Þótti engin glóra að
halda áfram veiðum
ÆTLA má að frystitogari þurfi 300-400 smálestir af þorski til þess
að veiðiferð í Barentshaf skili hagnaði, að mati útgerðarstjóra sem
Morgunblaðið ræddi við í gær. ísfisktogari þyrfti að minnsta kosti
100 tonn. Ljóst er að veiði skipanna í Smugunni er fjarri því að ná
þessum mörkum, enda var tæpur helmingur flotans á leið heim í
gær. „Okkur þótti engin glóra að halda áfram,“ sagði Eiríkur Ólafs-
son, útgerðarstjóri hjá Kaupfélagi Fáskrúðsfirðinga. Ljósafellið, tog-
ari fyrirtækisins, lagði fyrst af stað af miðunum, á sunnudagskvöld.
Ein helsta réttlæting þess að
stunda úthafsveiðar er spamaður við
kaup á kvóta í íslenskri lögsögu.
Kíló af þorskkvóta er nú selt á um
40 krónur. Ljósafellið veiddi um 40
tonn í Barentshafi og hefði kaupverð
kvóta jafngilt 1,6 millj. kr. Aflaverð-
mæti verður um 2,5 milljónir króna.
Að sögn.Eiríks má ætla að olíu-
kostnaður við fjögurra daga siglingu
á miðin, og til baka verði 1.100
þúsund krónur. „Það verður því lítið
til skiptanna," sagði hann. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Fiskifélagi
íslands koma að jafnaði um 85%
aflaverðmætis til skipta og um 38%
í hlut áhafnarinnar.
Vonandi aftur á þessar slóðir
Siglfirðingur var einnig lagður af
stað heim í gær. Sagði Runólfur
Birgisson útgerðarstjóri að afli hefði
verið lítill, en kvaðst ekki hafa um
það nákvæmar upplýsingar. Hann
sagðist telja það rétta ákvörðun að
senda skipið til veiða í Barentshafí.
„Ég geri engan greinarmun á þess-
ari veiðiferð og öðrum. Við myndum
gera þetta aftur og vonandi verður
farið aftur til veiða á þessar slóðir.“
Runólfur sagði að engu minni ol-
íukostnaður fylgdi löngu úthaldi á
heimaslóð. „Það kostar líka olíu að
þvælast á milli veiðisvæða, sérstak-
lega núna þegar veiði er dræm og
allt lokað.“
Samkvæmt skýrslum frá Fiskifé-
laginu var meðalafli togara með
botnvörpu um 10 lestir hvem út-
haldsdag á síðasta ári. Meðalafli í
flotvörpu var hins vegar um 20 tonn
á dag.
Morgunblaðið/Þorkell
Klipptaf hundruðum bíla
LÖGREGLUMENN á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Suður-
landi keppast þessa dagana við að klippa skráningarmerki af bílum
sem ekki hafa verið færðir til skoðunar eða sem_ ekki hefur verið
staðið skil á tryggingariðgjöldum fyrir. Að sögn Ómars Smára Ár-
mannssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns hefur verið klippt af hundruð-
um bíla undanfama daga og verður átakinu haldið áfram næstu
daga en lögreglunni hafa borist beiðnir frá tryggingafélögum um
að taka skráningarnúmer af 900-1000 bílum þar sem eigendur hafa
ekki greitt ábyrgðartryggingar.
Ólafsvík
Brotist inn
hjá ÁTVR
BROTIST var inn í Verslunina
Þóru í Ólafsvík um helgina og
þaðan stolið 14 flöskum og tveim-
ur pelum af sterku víni, nær ein-
göngu vodka.
Ekki var hreyft við öðmm varn-
ingi en auk áfengis er meðal ann-
ars verslað með föt í versluninni.
Nokkur skemmdarverk voru unnin,
rúður brotnar og hurðir brotnar
upp. Að sögn lögreglu er málið í
rannsókn.
------» ♦ ♦
Ber illa þrosk-
uð vegna þurrka
Miðhúsum, Reykhólasveit.
BLÓMGUN beijalyngs hefur tek-
ist vel í vor og er mikið af beijum,
en þau eru frekar illa þroskuð.
Þar sem varla hefur komið skúr
úr lofti í júní, júlí og ágúst, er ekki
von að ber þroskist. Sumstaðar er
kominn haustlitur á aðalblábeija-
lyngið.
- Sveinn.
Fasteignablað
á föstudögum
SAMKVÆMT samkomulagi
við Félag fasteignasala kemur
fasteignablað Morgunblaðsins
næst út föstudaginn 27. ágúst.
Jafnframt er gert ráð fyrir að
blaðið komi út á föstudögum
framvegis í vetur.
33 ára maður stunginn til bana á heimili sínu í Reykjavík
Hefur játað að hafa öðru
sinni orðið manni að bana
33 ÁRA gamall maður, Ragnar Ólafsson, var stunginn til bana á heim-
ili sínu á Snorrabraut 36 í Reykjavík klukkan tæplega þijú aðfaranótt
laugardagsins. Þórður Jóhann Eyþórson, 36 ára, hefur játað við yfir-
heyrslur hjá RLR að hafa veitt manninum áverkann sem dró hann til
dauða. Þetta er í annað skipti sem Þórður Jóhann verður mannsbani.
Hann ruddist inn á heimili Ragnars eftir að hafa fengið vitneslq'u um
að þar væri stödd fyrrverandi sambýliskona hans sem var gestkomandi
í íbúðinni ásamt fleirum.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins var Þórður Jóhann Eyþórs-
son staddur á veitingahúsinu Keisar-
anum, Laugavegi 116, þegar hann
frétti af ferðum 25 ára konu sem
sleit sambúð við hann fyrir rúmri
viku, í kjallaraíbúðinni við Snorra-
braut. Hann fór við annan mann út
af veitingahúsinu og ruddi sér leið
inn í kjallaraíbúðina. Eftir stutt orða-
skipti stakk hann Ragnar einu sinni
í bijóstið og fór á brott.
Ekki var ljóst í gær hve margir
voru í íbúðinni þegar atlagan var
gerð en þegar lögregla kom á staðinn
skömmu síðar voru þar tvær konur;
fyrrum sambýliskona Þórðar Jó-
hanns og kona sem bjó íbúðinni á
Snorrabraut ásamt Ragnari.
Þá lá Ragnar á gólfí íbúðarinnar.
Hann var fluttur í Borgarspítalann
með sjúkrabifreið en var úrskurðaður
látinn skömmu eftir komu þangað.
Þórður Jóhann Eyþórsson
Hnífur og hvítt duft
í íbúðinni fannst vasahnífur sem
talið var að notaður hefði verið við
atlöguna en það var þó ekki fullvíst
í gær. í íbúðinni fannst einnig hvítt
duft, sem talið er að gæti verið am-
fetamín, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins, en niðurstaða um
það lá ekki fyrir í gær.
Konurnar sem voru í íbúðinni
sögðu lögreglu hver framið hefði
verknaðinn og var þegar hafin um-
fangsmikil leit að Þórði Jóhanni Ey-
þórssyni. Um kl. 8.30 á sunnudags-
morgun gaf Þórður sig fram á lög-
reglustöðinni við Hverfisgötu. Hann
var þá undir nokkrum áhrifum
áfengis eða vímuefna, að sögn lög-
reglu. Hann var ekki yfirheyrður
vegna málsins fyrr en síðdegis á
sunnudag og játaði þá að hafa lagt
til Ragnars. Þórður var færður fyrir
héraðsdómara sem úrskurðaði hann
í gæsluvarðhald til 29. september.
Á reynslulausn
Á nýársnótt 1983 varð Þórður
Jóhann Eyþórsson manni að bana í
samkvæmi í húsi við Kleppsveg í
Reykjavík. Hann lagði hnífi til manns
sem hann hafði áður átt í ýfingum
við. Fyrir þann verknað var Þórður
dæmdur í 14 ára fangelsi.
Ekki rofið skilorð
í nóvember árið 1989 fékk hann
reynslulausn á helmingi refsivistar-
innar — eins og var á þeim tíma og
þar til í upphafi þessa árs nánast
sjálfvirk afgreiðsla í málum refsi-
fanga, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins. Reynslulausnin var
skilorðsbundin til fjögurra ára og
hefði sá tími runnið út nú í haust.
Til að ijúfa skilorð reynslulausnar
þarf maður að gerast sekur um ótví-
rætt brot á almennum hegningarlög-
um. Þórður hefur haldið það skilorð
sem honum var sett þó að hann hafi
tvívegis, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins, verið kærður fyrir
að bijóta umferðarlög með því að
aka undir áhrifum áfengis.
Ragnar Ólafsson lést af völd-
um hnífstungu aðfaranótt
sunnudags. Hann fæddist 21.
ágúst 1960, og var ásamt gest-
um að halda upp á 33 ára af-
mæli sitt þegar honum var ráð-
inn bani. Hann lætur eftir sig
unga dóttur.
Viðmælendur blaðsins telja að sú
sjö ára refsivist sem Þórður fékk
reynslulausn á árið 1989 verði dæmd
upp í máli sem höfðað verður gegn
honum vegna manndrápsins um
helgina, auk þess sem líkur séu á
þyngri refsingu fyrir það brot þar
sem um ítrekunarbrot er að ræða.
í dag
Akureyrí_______________________
80 nemendur í nýrri kennaradeild
Háskólans 22
Forseti þings Evrópuráðsins
íslenskra áhrifa gætir meira á
þinginu 25
Norræn fimleikahútíð___________
500 aldraðir í hópatriði 32
Leiðari________________________
Hvar eru vaxtarbroddar í atvinnu-
lífínu? 26
íþróttir
► Handboltamennimir Gunnar
Andrésson og Jason Ólafsson fá
ekki að skipta úr Fram í Aftur-
eldingu - Kristján Helgason
heimsmeistari unglinga í snóker
Deilt í bæjarráði Hafnarfjarðar um samning við Hagvirki-Klett
Aukafundur vegna samnings
við Hagvirki-Klett um holræsi
BÆJARRÁÐ Hafnarfjarðar samþykkti á aukafundi fyrirliggjandi drög
að rammasamningi við Hagvirki-Klett vegna framkvæmda við útrásir
holræsa í bænum en Norræni fjárfestingasjóðurinn hefur veitt bænum
200 millj. kr. Ián vegna þeirra. Tillögu um að verkið yrði boðið út
var frestað meðan rætt er við Hagvirki-Klett hf.
í bókun Magnúsar Jóns Árnason- verkið en framkvæmdin sjálf sé
ar, áheymarfulltrúa Alþýðubanda-
lagsins, segir að útrásir séu þjóð-
þrifaverk en offors við afgreiðslu á
samningum við verktaka sé ekki í
þágu Hafnfirðinga. Fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks hafí
margfellt tillögu um útboð á verkinu.
Fyrir þá skipti mestu máli hver vinni
en
aukaatriði.
í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks
segir: „Bæjarráði var og er ljóst að
framkvæmdin er mjög sértæk og því
æskilegt að fá reyndan fram-
kvæmdaaðila til að kanna með nýjar
útfærslur og vinna nýtt kostnaðar-
mat. Hagvirki-Klettur hf. hafði ann-
ast viðlíka framkvæmd fyrir Reykja-
víkurborg eftir samkeppnistilboð og
býr þvi tvímælalaust yfír mikilli
reynslu í slíkum framkvæmdum."
Hafnfirskt vinnuafl
Þá segir að á afstöðu bæjarráðs
megi einnig líta í því ljósi að leitað
er eftir tilboði hjá hafnfirsku fyrir-
tæki, þar sem starfi fjöldi Hafnfirð-
inga. Umsögn ráðgjafa hafi verið á
þá leið að eðlilegt sé að fela fyrirtæk-
inu fullnaðarhönnun. í framhaldi yrði
leitað samninga um framkvæmdir.