Morgunblaðið - 24.08.1993, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993
Knútur Óskarsson forstöðumaður Reykíavíkurmaraþons
Keppendumir hlaupa
á sína eigin ábyrgð
Keppendur í meiri vegalengdum skrifa undir ábyrgðaryfírlýsingu
EKKERT eftirlit er með Iíkamlegu ástandi keppenda í Reykjavíkurm-
araþoni áður en keppni hefst, og slíkt er heldur ekki venja erlendis,
að sögn Knúts Óskarssonar, formanns stjórnar maraþonsins. í fyrsta
skipti í tíu ára sögu félagsins varð alvarlegt slys í keppninni nú á
sunnudag, er 83 ára gamall maður lést eftir að hafa lagt að baki 2-3
kílómetra í 10 kílómetra hlaupinu. Ekki hefur verið lögð rík áhersla
á að keppendur í minni vegalengdum skrifí undir ábyrgðaryfirlýs-
ingu, eins og gengið eftir með lengri hlaup. Fólk utanaf landi getur
einnig átt erfitt með að nálgast pappirana, en tekist hefur samstarf
við Edduhótelin og Ferðaskrifstofu ríkisins um að gegna því hlutverki.
Varðandi heilsugæslu á mótinu margir byijendur, og okkur þótti það
sagði Knútur lækna og hjúkrunar-
fólk vera á staðnum, auk þess sem
Hjálparsveit skáta færi um hlaupa-
svæðið. Aðspurður kvað hann þó
ekkert eftirlit vera með hverjir tækju
þátt, og hvaða líkamlegu ástandi
þeir væru í. „Við höfum hins vegar
hvatt fólk til að ætla sér ekki um of.
í sjö kílómetra hlaupinu í fyrra voru
VEÐUR
heldur erfitt fyrir þá. Þess vegna
var ákveðið að gera breytingar, og
gefa mönnum kost á að fara styttri
vegalengd, eða 3 km.“
Knútur sagði það ekki óþekkt að
dauðsföll verði í hlaupum erlendis,
þótt það sé f fyrsta skipti nú, sem
slíkt á sér stað í Reykjavíkurmara-
þoni. „Við leituðum til Lundúna-
maraþonsins og Berlínarmaraþons-
ins varðandi fyrirkomulag heilsu-
gæslu,“ sagði Knútur. „Bæði ís-
lenskir og erlendir keppendur verða
að skrifa undir ákveðna ábyrgðar-
yfirlýsingu um leið og þeir skrá sig.
Það er gengið sérstaklega fast eftir
því varðandi lengri vegalengdimar,
og þar er ákvæði varðandi það, að
undirritaður staðfestir að hann er
andlega og líkamlega fær um að
ljúka þeirri vegalengd sem hann
skráir sig í.“
Knútur sagði að sér væri ekki
kunnugt um að keppendur í mara-
þoni og hálfmaraþoni, hefðu farið
til keppni án þess að hafá skrifað
undir ábyrgðaryfirlýsinguna. Hins
vegar muni verða lögð aukin áhersla
á að fólk skrifi undir í framtíðinni.
IDAG kl. 12.00
HeímikJ: Veöurstofa Islends
(Byggt á veðurspó kl. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 24. AGUST
YFIRLIT: Um 800 km suður af landinu er víðáttumikil 1.035 mb hæð
en minnkandi lægðardrag fyrir Norðausturlandi fer austur. Um 400 km
suður af Hvarfi er 1.000 mb lægð á hreyfingu norðnorðaustur.
SPÁ: Suðvestan- og vestanátt, gola eða kaldi. Þokubakkar eða lítilshátt-
ar súld verður á annesjum vestanlands og við suðurströndina en léttskýj-
að verður um alit Norður- og Austuriand. Yfir daginn léttir víðast til
vestanlands eftir þokuloft næturinnar. Hlýjast verður alit að 20 stig
austan til en kaldast um 10 stig í þokuloftinu við suðvesturströndina.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR A MIÐVIKUDAG: Suðvestlæg átt, víðast kaldi. Súld eða rign-
ing um landið sunnan- og vestanvert en skýjað með köflum og úrkomu-
lítið norðaustantil. Hiti verður á bilinu 9-17 stig, hlýjast norðaustanlands.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Fremur hæg suðlæg átt. Skýjað og víða
dálítil súld sunnanlands og við vesturströndina en annars léttskýjað víð-
ast hvar. Hiti 9-18 stig, hlýjast norðanlands.
Nýir veðurfregnatimar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.46, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veöurstofu Islands - Veöurfregnir: 990600.
á
Heiðskírt Léttskýjað
r r r * r *
r r * r
r r r r * r
Rigning Slydda
-a a
Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
V ^ V
Skúrir Slydduél Él
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
V Súld
s Þoka
stig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær)
Þjóðvegir iandsins eru flestir í góðu ásigkomulagi og greiðfærir. Víða
er þó unnið að vegagerð og þurfa vegfarendur að haga akstri sam-
kvæmt merkingum þar. Hálendisvegir eru færir fjallabflum, Gæsavatna-
og Dyngjufjallaleiðir ennþá ófærar vegna snjóa, sama er að segja um
Hrafntinnusker.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í sfma 91-631500 og
á grænni línu, 99-6315. Vegagerðfn.
VEÐUR VÍÐA UM HBM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
tliti veður
Akureyri 17 léttskýjsð
Reykjavík 10 þokafgrennd
Bergen 14 hálfskýjað
Helslnki 14 skýjað
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Narssarssuaq 10 rigning
Nuuk 7 þoka
Ósló 16 skýjað
Stokkhólmur 14 skýjað
Þórshöfn 11 skýjað
Algarve 25 skýjað
Amsterdam 14 skýjað
Barcelona 28 léttakýjað
Berlín 16 skýjað
Chicago 22 skýjað
Feneyjar 30 þokumóða
Frankfurt 14 rigning
Glasgow 16 skýjað
Hamborg 13 okúrir
London 15 skýjað
LosAngeles 17 þokumóða
Lúxemborg 15 skýjað
Madríd 30 skýjað
Malaga 30 skýjað
MaUorca 30 léttskýjað
Montreal 16 hálfskýjað
NewYork 22 skýjað
Orlando 26 þokumóða
Parl8 18 léttskýjað
Madeira 24 léttakýjað
Róm 31 heiðskírt
Vfn 25 skýjað
Washington 21 léttskýjað
Winnipeg 19 8ÚW
Sigurður Hermann Hannesson.
Bráðkvaddur
í Reykjavík-
urmaraþoni
SIGURÐUR Hermann Hannes-
son, fyrrverandi leigubílstjóri
á ísafirði, lést á sunnudag, 83
ára að aldri. Sigurður var til
heimilis að Vallargerði 34 í
Kópavogi. Hann var ekkill, en
lætur eftir sig 3 uppkomin
börn.
Sigurður var fæddur 14. júlí
1910 á ísafirði og var elsti þátttak-
andi í tíu kílómetra hlaupi í
Reykjavíkurmaraþoni. Hann varð
bráðkvaddur { hlaupinu.
Reykjavíkurmaraþon
Trygging-
in gildir
ekkium
dauðsföll ,
Skandia slysa-
tryggði þátttak-
endur fyrir 5
milljónir
TRY GGINGAFÉLAGIÐ
Skandia ísland hf. tryggði
alla keppendur Reykavík-
urmaraþons gegn slysum
við þátttöku í öllum vega-
lengdum hlaupsins, sam-
kvæmt samningi við móts-
haldara. í tryggingarskil-
málum segir að tryggt sé j
gagnvart varanlegri ör-
orku, og er vátrygging-
arfjárhæðin fimm milljón-
ir króna.
Ingólfur Hannesson, við-
skiptafræðingur hjá Skandia
íslandi, sagði að tryggingin
gilti eingöngu um örorku
vegna slyss. Dánarbætur væru
ekki í tryggingunni. Engin lög
kvæðu heldur á um að bannað
væri að undanskilja andlát úr
slysatryggingum.
Krislján Helgason
varð heimsmeistari
yngri snókerspilara
19 ÁRA Reykvíkingur, Krist-
ján Helgason, sigraði á Heims-
meistaramótinu í snóker í
flokki keppenda 21 árs og
yngri. Kristján sigraði alla
andstæðinga sína á mótinu og
vann sannfærandi sigur á Sri
Lanka búanum Indika Dond-
angoda í úrslitaviðureign í
húsi TR á sunnudag.
Indika var fyrir mótið talinn
sterkasti keppandinn og varð
hann annar á HM í snóker í sol-
dánsríkinu Brunei í fyrra. Krist-
ján vann sinn riðil með fullu húsi
stiga og mætti Jóhannesi B. Jó-
hannessyni í undanúrslitaleik
mótsins. Kristján sigraði í viður-
eigninni, sem var æsispennandi
og vel leikin með 8-7. í hinum
undanúrslitaleiknum lék Indika
gegn Belganum Van Geothem
og sigraði hann
8-5. Jóhannes
tapaði síðan
fyrir Belganum
í leik um þriðja
sætið.
Kristján
stefnir að því
að hafa atvinnu
af snókérleik og
hyggst halda
utan til Eng-
lands í haust og reyna fyrir sér.
Blaðamenn á enskum snóker-
tímaritum, þar sem þessi íþrótta-
grein er í hávegum höfð, fylgd-
ust með gangi mála meðan á
mótinu stóð en umfjöllun um þá
í slíkum tímaritum getur skipt
sköpum fyrir framtíðarhorfur
þeirra í hörðum heimi atvinnu-
mennskunnar.
60 milljónir til efl-
ingar kvennastarfa
SAMSTARFSHÓPUR um atvinnumál kvenna, sem starfar á vegum
félagsmálaráðuneytisins, hefur auglýst eftir umsóknum um styrki
til atvinnuskapandi verkefna fyrir konur en 60 milljónir króna eru
til ráðstöfunar. Skilyrði fyrir styrkveitingu eru að atvinnulausar
konur hafi forgang til starfa. Til greina kemur að veita stofnfram-
lög til nýsköpunar verkefna og styrki til þróunar, markaðssetningar
og námskeiðahalds.
Að sögn Huldu Finnbogadóttur,
formanns starfshópsins, munu fram-
lög hins opinbera til atvinnuskapandi
verkefna nýtast konum mun verr en
körlum. Þess vegna hefur 60 milljón-
um af milljarði króna, sem ríkið veit-
ir til atvinnuskapandi verkefna, ver-
ið veitt til kvenna sérstaklega.
4,6-5,1% atvinnuleysi
Hulda sagði að mun meira at-
vinnuleysi væri hjá konum en körl-
um. Hún sagði að þegar atvinnu-
leysi mældist 3,2% yfir landið allt
hefði atvinnuleysi kvenna verið 4,6%
og atvinnuleysi á höfuðborgarsvæð-
inu væri 5,1% hjá konum en 2,5%
hjá körlum. Atvinnuleysið væri mest
meðal ófaglærðra kvénna, skrif-
stofukvenna og kvenna í fiskiðnaði.
Hulda sagði að starfshópurinn
hefði sett þau markmið við úthlutun
styrkja að atvinnulausar konur hafí
forgang til þeirra starfa sem sköp-
uðust. Styrkir renni einkum til að-
hlynningarstarfa hverskonar, þar
sem slík störf henta ófaglærðum
konum. Tímabundin verkefni verða
ekki styrkt að öllu jöfnu. Til greina
kemur að veita stofnframlög til ný-
sköpunarverkefna og styrki til þró-
unar og markaðssetningar. Eins
kemur til greina að styrkja nám-
skeiðahald sem bætir stöðu ófag-
lærðra kvenna sem eru atvinnu-
lausar.