Morgunblaðið - 24.08.1993, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993
Réttarfarssaga
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
Már Jónsson: BLÓÐSKÖMM Á
ÍSLANDI 1270-1870. 311 bls.
Háskólaútg. Reykjavík, 1993.
Doktorsritgerðir eru sjaldnast
neinn skemmtilestur. Hinu skyldi
maður trúa að þær séu reistar á
traustum fræðilegum grunni. Oftar
en ekki eru þær byggðar upp af
fjölda smáatriða sem öllum saman
er ætlað að leiða til einhvers konar
niðurstöðu. Þessi ritgerð Más Jóns-
sonar getur talist dæmigerð að því
leytinu sem öðru. Tilvitnanir í lög
og reglur, sem tengdar eru dæmum
úr annálum og dómskjölum, eru
fleiri en tölu verði á komið. Þótt
efnið sé ofarlega á baugi þessi árin
freistast höfundur sjaldan eða aldr-
ei til að álykta út frá nútíma for-
sendum; gerir sér enda ljóst að slíkt
væri ekki sagnfræði. Vitanlega tel-
ur hver kynslóð sig hafa höndlað
hinn endanlega sannleika. Jafnt
fyrir það einkennast allir tímar af
skammsýni og hleypidómum þegar
horft er um öxl. Athuganir Más
taka einkum mið af þrennu: Trú,
lögum og siðferðiskröfum. Allan
þann tíma, sem rannsóknir hans
ná til, var kirkjan voldug og krafð-
ist auðsveipni og rétttrúnaðar. Kon-
ungsvaldið var líka sterkt, og
lengstum reyndar allsráðandi varð-
andi veraldleg málefni. Lögunum
var því ætlað að þjóna hvoru
tveggja. Og boðorðum þeim, sem
halda bar í einkalífinu, var ætlað
að styrkja agann, svo í ríkinu sem
í stórfjölskyldunni sem raunar var
eins konar smámynd af ríkinu. Því
var refsað fyrir mök við frændur,
frænkur og nánasta tengdafólk
jafnt og foreldra og systkini. Þann-
ig efldist húsbóndavaldið og þar
með kirkju- og ríkisvaldið. Refsing-
ar gegndu svo tvenns konar hlut-
verki: Að halda uppi lögum og reglu
en ekki síður að a'fla kirkju og kon-
ungi tekna með sektarfé. Að því
vék Guðbrandur Þorláksson þegar
hann sagði að sumum valdsmönn-
um þætti vænt um syndir og glæpi,
þar sem fé er fyrir.
Árið 1564 var Stóridómur lögtek-
inn. Höfundur minnir á að sagn-
fræðingar hafi löngum haldið því
fram að honum hafi verið þröngvað
upp á íslendinga. Sú hafí þó hvergi
verið raunin. íslenskir embættis-
menn hafí falast eftir þessu eða að
minnsta kosti látið sér vel líka; þeim
hafi verið í mun að laga réttarfarið
að því sem gerðist í nálægum lönd-
um. Hins vegar virðist svo sem þá
hafí óað við hörkunni þegar til kast-
anna kom.
Margur hefur litið svo á að heim-
urinn hafi harðnað með siðaskipt-
um. Upp úr því var tekið að lífláta
fólk vegna siðferðisbrota og er 17.
öldin gekk í garð þótti það bæði
skylt og sjálfsagt til að hinum villta
múg verði haldið í skefjum með
hræðslu við refsingar. Það kom þó
fyrir ekki samkvæmt þvi sem höf-
undur upplýsir því hvorki fækkaði
brotum við setningu Stóradóms né
fjölgaði við afnám dauðarefsingar.
Ekki er óeðlilegt að minningam-
ar um þennan miskunnarlausa
refsirétt tengist annarri óáran sem
yflr gekk á sama tíma og sagnfræð-
ingar hafa löngum rekið til þverr-
andi sjálfræðis og kúgunarvalds
herraþjóðarinnar. Sá hefur t.d. þótt
ljóður á ráði Guðbrands biskups
hversu hallur hann hafi verið undir
konungsvaldið. Már Jónsson fríar
hann ekki af þvi en skoðar það allt
í nýju ljósi og kveður biskup tæp-
ast hafa gengið feti framar öðrum
í þeim efnum.
íslendingar hafa jafnan fylgt for-
dæmi annarra, svo í góðu sem illu.
Má því líta á Stóradóm sem hveija
aðra tiskubylgju sem hingað hlaut
að berast, hvort sem mönnum lík-
aði betur eða verr. Þegar svo til
þess dró á 18. og 19. öld að refsing-
ar voru aftur mildaðar gerðist það
Doktor í líffræði
JÓN S. Ólafsson varði doktorsrit-
gerð sína á sl. sumri í vatnalíf-
fræði við dýrafræðideild háskól-
ans i Bristol á Englandi.
Jón lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Sund 1979 og
B.Sc. prófi í líffræði við Háskóla
íslands 1984. Sama ár hóf Jón
framhaldsnám við líffræðiskor Há-
skóla íslands sem fólst í rannsókn
á fæðu rykmýslirfa í Mývatni. Sam-
tímis vann hann við kennslu við líf-
fræðiskor Háskóla íslands. Haustið
1987 hóf Jón doktorsnám við dýra-
fræðideild háskólans í Bristol á
Englandi undir handleiðslu Dr. Ron-
alds S. Wilsons. Doktorsvömin fór
fram þann 7. júlí 1992 í Bristol,
prófdómarar voru þeir Dr. David
Paterson frá háskólanum í St.
Andrews í Skotlandi og Dr. Christ-
ian Mason við háskólann í Essex.
Titill ritgerðarinnar er: The feed-
ing biology and micro-distribution
of certan chronomid larvae (Dipt-
era:Insecta) in á lentic environ-
ment, with emphasis on the first
instar larvae (Fæðulíffræði og út-
breiðsla rykmýslirfa í stöðuvatni
með sérstakri áherslu á fyrsta lirfu-
stigið). Rannsóknum var fyrst og
fremst ætlað að svara hvernig vali
búsvæða nýklaktra rykmýslirfa
væri háttað í vatnaseti, hver væri
fæða þeirra í samanburði við lirfur
sömu tegundar síðar á þroskaferl-
inu. Ennfremur voru gerðar saman-
burðarrannsóknir á þróun mismun-
andi aðferða við fæðuöflun hjá
nokkrum hópum rykmýslirfa á mis-
munandi þroskastigum. Helstu nið-
urstöður rannsóknanna gefa til
kynna að fyrst eftir klak lirfanna
sé líffræði þeirra lík milli mismun-
andi tegunda rykmýs, sem kemur
meðal annars fram í líkamsbygg-
ingu lirfanna, fæðuháttum þeirra
og útbreiðslu. Seinna á þroskaferli
lirfanna kemur hinsvegar fram mik-
Dr. Jón S. Ólafsson.
il sérhæfíng hjá þessum sömu teg-
undum, með tilliti til áðurnefndra
þátta. Þessir þættir hafa allir mikla
þýðingu varðandi vitneskju um vist-
fræði þessara algengu vatnaskor-
dýra.
Styrki til doktorsnáms hlaut Jón
m.a. frá breska sendiráðinu á ís-
landi (Foreign Commonwealth
Scholarship) og frá dýrafræðideild
Bristolháskóla. Jón er fæddur 9.
mars 1959 í Króksfjarðarnesi, son-
ur hjónanna Friðrikku Bjarnadóttur
og Ólafs E. Ólafssonar. Hann á
tvær dætur úr fyrra hjónabandi,
Sigríði Birnu og Önnu Friðrikku.
Um þessar mundir vinnur hann við
rannsóknir á mýflugnastofnum við
Mývatn á vegum Rannsóknarstöðv-
arinnar við Mývatn.
13
Már Jónsson
einnig vegna áhrifa frá öðrum.
Heimspekideild Háskóla íslands
hefur metið ritgerð þessa hæfa til
vamar við doktorspróf. Sýnist þá
varla tilhlýðilegt að sá, er þetta rit-
ar, fari að gefa henni einkunn hér
og nú. Svo mikið er samt óhætt að
fullyrða að höfundur hafi lagt
ómælda vinnu í þetta verk sitt.
Niðurstöður ritgerðarinnar hníga
í svipaða átt og annarra sagnfræð-
inga sem rannsakað hafa sama
tímabil á undanfömum ámm, t.d.
Gísla Gunnarssonar, að íslenskir
embættismenn hafi ekki verið þeir
ofurþjóðhollu þolendur andspænis
illu konungsvaldi sem margur hefur
viljað vera láta; þeir hafi líka verið
gerendur og ábyrgðarmenn.
Efni það, sem Már hefur tekið
fyrir, er að vísu afmarkað og tekur
aðeins til einnar greinar réttarfars-
ins. Það sýnir þó betur en flest
annað hvemig þjóð getur borist
vanmáttug með tímans straumi,
stundum að því er virðist gegn vilja
sínum og samvisku. Ennfremur
leiðir upprifjun þessi hugann að því
hvort réttvísin sé nokkru sinni rétt-
lát — nema þá í augum þeirra sem
með hana fara og henni er ætla að
þjóna hveiju sinni.
r
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
V
Domus Medica,
Egilsgötu 3,
sími 18519
Kringlunni,
Kringlunni 8-12,
sími 689212
J
viðshiptovinir
fðsleignasala
Félag fasteignasala vill vekja athygli viðskiptavina sinna á því
að fasteignablað Morgunblaðsins mun koma út á föstudögum
á næstunni og kemur því næst út föstudaginn 27. ágúst nk.
Kynnið ykkur nánar opnunartíma skrifstofa félagsmanna