Morgunblaðið - 24.08.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993
15
„Mínn herra á öngvan vin“
eftir Sighvat
Björgvinsson
Ólafí Ragnari Gímssyni er ómögu-
legt að segja satt. í grein í Morgun-
blaðinu sl. föstudag fullyrðir hann
að engin fordæmi séu fyrir ráðningu
aðstoðarmanns ráðherra til embætt-
islegra stjórnunarstarfa í ráðuneyt-
um nema ráðning núverandi ráðu-
neytisstjóra í viðskipta- og iðnaðar-
ráðuneyti í umhverfísráðuneyti. Önn-
ur sambærileg fordæmi séu ekki til.
Bjöm Bjamason núverandi alþing-
ismaður var ráðinn deildarstjóri og
sérstakur aðstoðarmaður Geirs Hall-
grímssonar þáverandi forsætisráð-
herra 25. október 1974. Þann 16.
septemer 1975 var Björn Bjamason
skipaður skrifstofustjóri í forsætis-
ráðuneytinu og varð staðgengill
ráðuneytisstjóra. Bjöm var skrif-
stofustjóri í forsætisráðuneytinu þeg-
ar Ólafur Jóhannesson tók við for-
sætisráðherraembættinu vorið 1978
og starfaði sem skrifstofustjóri til
1. október 1979 þegar hann sagði
því starfí lausu til að taka við starfí
á Morgunblaðinu.
Helga Jónsdóttir var ráðin aðstoð-
armaður Steingríms Hermannssonar
í forsætisráðuneytinu fyrst í júlí
1983. Hún var skipuð deildarstjóri í
ráðuneytinu í ágúst 1989 og skrif-
stofustjóri í september 1989.
Sólrún Jensdóttir var ráðin aðstoð-
armaður Ragnhildar Helgadóttur í
menntamálaráðuneytinu þann 15.
október 1983. Hún var sett skrif-
stofustjóri i sama ráðuneyti þann 1.
mars 1984 og skipuð skrifstofustjóri
í menntamálaráðuneytinu þann 20.
mars 1984
Ósannindi aftur
Ólafur Ragnar Grímsson getur
ekki sagt satt. í Morgunblaðinu mið-
vikudaginn 18. ágúst segir hann að
margir einstaklingar hafí orðið að-
stoðarmenn ráðherra _ en þeir hafí
allir farið úr ráðuneytunum um leið
og ráðherrarnir. Fóru Björn Bjarna-
son, Björn Friðfinnsson eða Magnús
Jóhannsson? Hvað um Helgu Jóns-
dóttur í forsætisráðuneytinu eða
Sólrúnu Jensdóttur í menntamála-
ráðuneytinu?
Björn Bjarnason sá um ritun fund-
argerða ríkisstjórnarfunda í forsætis-
ráðherratíð Geirs Hallgrímssonar.
Svavar Gestsson krafðist þess í ríkis-
stjórn Ólafs Jóhannessonar að Bimi
Bjarnasyni yrði vikið úr starfí sökum
þess að hann hefði verið ráðinn til
starfa á jiólitískum forsendum. Því
hafnaði Olafur Jóhannesson algjör-
lega.
Skyldi ekki Ólafur Jóhannesson
vera dómbærari á „anda laganna"
en Ólafur Ragnar Grímsson?
Helga Jónsdóttir, sem ráðin var
sem aðstoðarmaður Steingríms Her-
mannssonar, var ritari ríkisstjórnar-
funda þegar ráðuneyti Davíðs Odds-
sonar tók við af ráðuneyti Steingríms
Hermannssonar. Helga hélt áfram
því starfi þar til hún fór til starfa
hjá Alþjóðabankanum. Hún naut
fulls trausts sem embættismaður þó
hún hafi upphaflega verið ráðin „póli-
tískur" aðstoðarmaður. Telur Ólafur
Ragnar Grímsson að Þorkell Helga-
son sé síður traustsins verður?
Ósannindi enn
Ólafur Ragnar Grímsson getur
ekki sagt satt. í viðtali við Stöð 2
sagði hann að óheimilt væri að veita
þeim leyfi frá opinbemm störfum
sem réðust til starfa sem fram-
kvæmdastjórar eftirlitsstofnunar
EFTA, og átti þá við Bjöm Friðfinns-
son, ráðuneytisstjóra, sem fengið
hefur launalaust leyfi til að gegna
því starfi. Ólafur taldi sig vita fyrir
víst að slíkir aðilar yrðu að skera á
öll tengsl við embættiskerfi heima-
landsins og segja starfí sínu lausu.
Þetta er ósatt. Knut Almestad er
einn af nýráðnum framkvæmdastjór-
um eftirlitsstofnunar EFTA. Hann
er í launalausu leyfi frá norska utan-
ríkisráðuneytinu.
Pekka Sáila er annar nýráðinn
framkvæmdastjóri eftirlitsstofnunar
EFTA. Hann er í launalausu leyfí frá
fínnska utanríkisráðuneytinu.
Allt samkvæmt fullum heimildum.
Ósannindi enn og aftur
Ólafur Ragnar Grímsson getur
ekki sagt satt. í grein í Morgunblað-
inu sl. föstudag segir hann það lygi-
mál að hann hafi verið ijarverandi
frá starfi prófessors við félagsvís-
indadeild Háskóla íslands lengur en
fímm ár.
Það er ekki lygimál. Ólafur hefur
verið fjarverandi nú í fímm ár sam-
fleytt en samtals hefur hann verið
ijarverandi úr prófessorsstarfí og
haldið starfínu í á níunda ár. Það
er tæplega einu ári lengur en það
hámark sem félagsvísindadeild Há-
skóla íslands samþykkti á fundi árið
1991.
í viðtali við Stöð 2 þann 18. ágúst
sl. neitaði Ólafur að kannast við að
félagsvísindadeild Háskóla íslands
hafí nokkuð ályktað um sín mál. Það
er með algjörum ólíkindum. Ólafur
Ragnar sendi deildinni bréf með
beiðni um framlengingu á launalausu
leyfi frá störfum bæði 12. júní 1991
og aftur árið 1992. Það er með ólík-
indum ef hann veit ekki hvernig bréf-
in voru afgreidd!
Þann 4. september árið 1992 var
bókaður deildarfundur í félagsvís-
indadeild Háskóla íslands. Tekin var
fyrir beiðni Ólafs Ragnars Grímsson-
ar um að framlengja launalaust leyfí
frá prófessorsstörfum um enn eitt
ár til viðbótar. Vísað er til bréfs um
sama efni frá sama manni dagsett
12. júní 1991 og afgreiðslu þess þá
svo og til samþykktar deildarinnar
frá því fyrir einu ári um hámarks-
lengd fjarveru úr starfi.
Samþykkt var tillaga frá deildar-
forseta um að veita Olafi viðbótar-
leyfi frá 1. ágúst 1992 til 1. ágúst
1993. Tillagan er samþykkt með
sextán atkvæðum gegn þremur. Að
því loknu lagði deildarforseti fram
tillögu um að í samræmi við sam-
þykkt deildarinnar frá því fyrir einu
ári síðan verði slíkt leyfi til Ólafs
Ragnars Grímssonar ekki framlengt
frekar. Sú tillaga var samþykkt með
fímmtán atkvæðum gegn fjórum en
fimm atkvæðaseðlar voru auðir.
Þetta jafngildir því að deildin segi
Ólafí Ragnari Grímssyni upp störfum
með eins árs fyrirvara. Engu að síð-
ur sat Ólafur Ragnar Grímsson í
starfinu nærfellt allan uppsagnar-
frestinn!
Er trúlegt, að Ólafur Ragnar
Grímsson hafi ekkert um það vitað?
Fagurt fordæmi?
Lög um Stjórnarráð íslands heim-
ila ráðherra að ráða sér einn aðstoð-
armann tímabundinni ráðningu.
„ Að því loknu lagði
deildarforseti fram til-
lögu um að í samræmi
við samþykkt deildar-
innar frá því fyrir einu
ári síðan verði slíkt
leyfi til Ólafs Ragnars
Grímssonar ekki fram-
lengt frekar. Sú tillaga
var samþykkt með
fimmtán atkvæðum
gegn fjórum ert fimm
atkvæðaseðlar voru
auðir.“
Ólafur Ragnar Grímsson réði sér
þijá.
Már Guðmundsson var ráðinn hag-
fræðimenntaður aðstoðarmaður
Ólafs Ragnars Grímssonar í fjár-
málaráðneytinu þann 1. október
1988. Már aðstoðaði Ólaf Ragnar
Grímsson fjármálaráðherra þar til í
maí 1991 en þá hvarf aðstoðarmað-
urinn til fyrri starfa í Seðlabankan-
um.
Svanfríður Jónasdóttir var ráðin
til starfa sem aðstoðarmaður Ólafs
Ragnars í íjármálaráðuneytinu þann
12. október 1988. Hún lauk starfi í
maímánuði árið 1991 við stjórnar-
skipti.
Mörður Árnason var ráðinn til
aðstoðar Óiafi Ragnari Grímssyni
sem fjölmiðlafulltrúi hans þann 15.
júlí 1989. Hann hætti aðstoðinni í
maí 1991.
Lungann úr starfstíma Ólafs
Ragnars Grímssonar í íjármálaráðu-
neytinu hafð hann þrjá aðstoð-
armenn þó lögin um Stjómarráð ís-
lands heimiluðu honum aðeins einn.
Þetta er fordæmi Ólafs Ragnars
Grímssonar og enginn brestur
finnanlegur í siðferðisbjarginu í
bijósti hans, eða hvað?
Nokkur orð í lokin
Árið 1987 var ég kjörinn til þings
á ný eftir að hafa verið utan þings
í fjögur ár. Ég var þá framkvæmda-
stjóri Norræna féiagsins á íslandi.
Ég sagði þá því starfí lausu, öfugt
við það sem Ólafur Ragnar Grímsson
gerði hjá félagsvísindadeild Háskóla
Islands þegar hann var endurkjörinn
á þing.
Stjóm Norræna félagsins óskaði
eftir að ég héldi áfram störfum í
hlutastarfi. Gerður var nýr ráðning-
arsamningur. Ég var aðeins ráðinn
milli þinga félagsins þannig að sér-
hver ný stjórn gat ráðið nýjan fram-
kvæmdastjóra frá fyrsta starfsdegi
án þess að þurfa að segja mér upp
fyrst. Þessi ráðningarsamningur var
einu sinni endurnýjaður'og í bæði
skiptin samþykktur einróma.
I Norræna félaginu og í stjórn
þess er fólk úr öllum flokkum. Ég
eignaðist marga vini þar og stjóm
Norræna félagsins þurfti ekki að
álykta að tími væri til kominn að ég
færi til þess að losna við mig. Öfugt
við félagsvísindadeild Háskóla ís-
lands gagnvart Óiafi Ragnari Gríms-
syni.
Sighvatur Björgvinsson.
Mér er gleðiefni að Ólafur Ragnar
Grímsson skuli loksins fást til að við-
urkenna kosti Þorkels Helgasonar
og hæfileika hans til að gegna starfi
ráðuneytisstjóra eins og hann gerir
í Morgunblaðinu sl. föstudag. Það
eina sem Ólafur Ragnar virðist fínna
Þorkeli til foráttu er að hann hafi
tengst vináttuböndum við mig. Það
eitt geri hann óhæfan til embættis!!
Ólafur Ragnar Grímsson hefur
marga kosti sem stjórnmálamanður.
Hins vegar er skapferli og starfsað-
ferðum hans svo farið að við hæfi
er að ljúka þessum orðaskiptum við
hann með tilvitnun í þá ágætu bók,
íslandsklukkuna:
„Minn herra á öngvan vin.“
Ólafur Ragnar Grímsson er samt
enginn Arnas Arnæus.
Höfundur er viðskiptaráðherra.
Rokksýning verður sett upp á Hótel íslandi á næstunni
12 söngvarar kom fram
ÁKVEÐIÐ hefur verið að setja upp rokksýninguna Rokk ’93 á
Hótel Islandi og verður frumsýningin laugardaginn 4. septem-
ber nk. „Þetta er sama sýning og sett var upp á Broadway
fyrir 10 árum og sló þá rækilega í gegn. Þá varð að hætta
sýningum fyrir fullu húsi og höfum við fengið fjölmargar áskor-
anir um að taka sýninguna upp aftur,“ sagði Ólafur Laufdal
veitingamaður á Hótel Islandi í samtali við Morgunblaðið.
Þegar sýningin var fyrst sett
upp á veitingahúsinu Broadway
fyrri hluta árs 1983 átti hún að-
eins að vera í eitt skipti en undir-
tektir voru svo góðar að hún var
sýnd til vors og komu mörg þús-
und manns á sýninguna. Að sögn
Ólafs Laufdal koma flestir sömu
söngvarar fram að þessu sinni,
ails 12 söngvarar. Þeir eru: Anna
Vilhjálms, Astrid Jensen, Mjöll
Hólm, Berti Möller, Einar Júlíus-
son, Garðar Guðmundsson, Harald
G. Haralds, Siggi Johnny, Sigurdór
Sigurdórsson, Stefán Jónsson, Þor-
steinn Eggertsson og Þór Nilsen.
„Þetta er gamla rokklandsliðið,"
segir Ólafur Laufdal.
Hyómar leika fyrir dansi
Stórhljómsveit Gunnars Þórðar-
sonar leikur undir með söngvurun-
um, en hljómsveitina skipa auk
Gunnars þeir Rúnar Júlíusson,
Engilbert Jensen, Jón Kjell, Rúnar
Georsson og Einar Scheving. Á
eftir sýningu verður dansleikur,
þar sem fyrsta bítlahljómsveit ís-
lendinga, Hljómar, leikur fyrir
dansi. Kynnir verður Þorgeir Ást-
valdsson, eins og fyrir 10 árum.
Boðið verður upp á þriggja rétta
máltíð fyrir sýninguna og kostar
hún ásamt sýningunni 3.900 krón-
ur. Miðasala er hafín á Hótel ís-
landi.