Morgunblaðið - 24.08.1993, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. AGUST 1993
21
Benedikta Jónsdóttir heldur hátíð fyrir
fjölskyldufólk um helgina á Kjalamesi
Langar til að fjár-
magna byggingn
hótels á Esjunni
ÚTIHÁTÍÐ verður haldin á Kjalarnesi næstu helgi, eða 28. til 29.
ágúst, og það er Benedikta Jónsdóttir verslunareigandi sem ætlar
að standa fyrir hátíðinni á jörð sinni, Sjávarhólum. Hátíðin er fyrir
fjölskyldufólk og auk ýmissa uppákoma verða haldnir dansleikir,
annars vegar fyrir unglinga og hins vegar fyrir fullorðna. Þá verð-
ur hægt að fara í þyrluferðir yfir Kjalarnesið og í hestaferðir.
Benedikta segir að hátíðin sé aðeins upphafið að fjáröflun til að
láta einn af mörgum draumum sínum rætast, að byggja hótel úr
gijóti og gleri uppi á Esju. Auk þess segir hún að verslunarrekstur
sé nokkuð erfiður um þessar mundir og því sé þetta einnig sjálfs-
bjargarviðleitni, en hún er eigandi verslunarinnar Töfra í Borgar-
kringlunni.
Benedikta hefur fengið til liðs
við sig þá Kristján Hauksson og
Svein Kjartansson til að undirbúa
útihátíðina. Hún segist hafa feng-
ið hugmyndina að hátíðinni rétt
fyrir síðustu verslunarmannahelgi
og því hafi ekki gefist mjög mik-
ill tími til undirbúnings, en bætir
því við að hún vinni best undir
álagi. „Það hefur gengið mjög vel
fyrir okkur þrjú að vinna saman
og ég hefði sjálfsagt ekki getað
staðið í þessu án þeirra. Það á
mjög vel við mig að vinna að svona
skipulagningu og þetta er mjög
gaman. Það er alltaf gaman að
setja markið hátt og komast yfir
það,“ segir Benedikta.
Ýmsar uppákomur
Útihátíðin hefst kl. 12 á hádegi
bæði laugardag og sunnudag og.
að sögn Benediktu verður mikið
um ýmiss konar uppákomur. Með-
al skemmtana sem boðið verður
upp á verða þyrluferðir á Esjuna
og yfir Kjalarnesið, hestaferðir,
mótorhjólaferðir, gönguferðir á
Esjuna með leiðsögumanni, leik-
sýning, ungur mótorkross-öku-
maður ætlar að stökkva í gegnum
eld á torfæruhjóli sínu, auk þess
sem samba-dansarar koma á hey-
vögnum og mynda karnival-
stemmningu undir stjórn Auðar
Haralds.
Þá verða tónleikar og dansleik-
ir bæði á laugardags- og sunnu-
dagskvöld. „Við ætlum að vera
með ekta hlöðuball í hlöðunni og
fjósinu fyrir unglinga og koma
ýmsar hljómsveitir fram á tónleik-
um. Svo leikur hljómsveitin Örkin
hans Nóa í 400 fermetra tjaldi,
sem verður sett upp, fyrir dansi
fyrir eldra fólkið. Það verða einn-
ig sölu- og kynningartjöld þar sem
ýmis fyrirtæki kynna starfsemi
sína og svo ætlum við einnig að
selja heitt súkkulaði og nýbakaðar
vöfflur auk ýmiss konar sælgæt-
is,“ segir Benedikta.
Hugmyndir um byggingu
hótela
Hún segir að þetta sé aðeins
fyrsta skrefið til að fjármagna
hugmynd sína um byggingu hót-
els úr gijóti og gleri á Esjunni,
sem hún hefur áhuga á að fram-
kvæma á næstu árum. „Ef þessi
hugmynd verður að veruleika þá
Morgunblaðið/Kristinn
Útihátíð skipulögð
BENEDIKTA Jónsdóttir ætlar að standa fyrir útihátið um helg-
ina á jörð sinni, Sjávarhólum, en þar býr hún ásamt hundunum
sínum tveimur, Bogart og Brandy, sem eru af Sankti-Bernhards-
kyni.
hef ég fullt af fleiri hugmyndum.
Ég fer alltaf nn'nar eigin leiðir og
dey aldrei ráðalaus. Ef þetta
gengur ekki upp þá geri ég bara
eitthvað annað. Það hefur líka
aldrei verið jafnrólegt í verslunar-
rekstri og einmitt núna og þessi
hugmynd kom nú líka þess
vegna,“ segir Benedikta og bætir
því við að önnur hugmynd sé að
byggja ráðstefnuhótel við sjóinn
á Kjalarnesinu.
Er að læra á þyrlu
Benedikta er að læra bæði hefð-
bundið flug og þyrluflug en segist
ekki hafa getað flogið neitt í ár
vegna fjárskorts. Þá segist hún
hafa fengið pláss á frystitogara
eftir áramót. „Ég ætla að fara
einn túr til að byija með og ég
er búin að lofa að ef ég standi
mig ekki eins vel og strákarnir
fyrri hluta túrsins ætli ég að vinna
launalaust seinni hluta túrsins.“
Þegar Benedikta er spurð að
því hvaðan hún fái allt þetta þrek
og allar þessar hugmyndir segir
hún að þetta sé sjálfsbjargarvið-
leitni. „Það eru fyrirtækin í land-
inu sem halda því gangandi og
ef fólk legði ekki út í hluti myndi
ekkert gerast á íslandi. Það er
lykill að velferð okkar að það sé
hlúð að fyrirtækjum í landinu og
einnig að reynt sé að gera þeim
sem hafa hugmyndir og eru fullir
sjálfsbjargarviðleitini auðvelt fyr-
ir, en ekki bremsa það af og loka
fyrir hugmyndir þess,“ segir
Benedikta.
Sr. Þórarínn Þórfyrr-
um prófastur látinn
SR. ÞÓRARINN Þór, fyrrum
prófastur í Barðastrandarpróf-
astsdæmi, lést síðastliðinn laug-
ardag, 21. ágúst, á 72. aldursári.
Sr. Þórarinn fæddist 13. október
1921 á Akureyri. Hann lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum á
Akureyri árið 1943 og embættjs-
prófi í guðfræði frá Háskóla ís-
lands árið 1948.
Hann sat á Reykhólum 1948 til
1969 og síðan á Patreksfirði til
ársins 1987. Frá 1960 til 1987 var
hann prófastur í Barðastandarpró-
fastsdæmi. Hann gegndi aukaþjón-
ustu í Flateyjarprestakalli frá
1955-58 og aftur frá 1959-69, í
Bijánslækjarprestakalli frá 1967 til
1970 og Sauðlauksdalsprestakalli
frá 1969 til 1970 og þeim tveim
prestaköllum sameinuðum í eitt,
Sauðlauksdalsprestakall, frá 1970
til 1987.
Sr. Þórarinn var skólastjóri Iðn-
skólans á Patreksfirði 1969-76,
formaður fræðsluráðs Austur-
Barðastrandarsýslu 1958-69 og
formaður skólanefndar í Reykhóla-
skólahverfi sama tíma. Hann var í
sáttanefnd á Reykhólum frá 1948
Þórarinn Þór
til 1969 og á Patreksfirði frá 1970.
Hann var í stjórn Eyrarsparisjóðs
frá 1970 til 1987.
Kona Þórarins, Ingibjörg Þór
Jónsdóttir, lést árið 1978.
Morgunblaðið/Sverrir
Skreytt undirgöng
STÓR hópur skólafólks hefur á vegum Vegagerðar ríkisins unnið
að því í sumar að mála og skreyta undirgöng fyrir gangandi veg-
farendur á þjóðvegum í nágrenni Reykjavíkur. Þessar stelpur
skreyttu m.a. undirgöngin undir Vesturlandsveg í Mosfellsbæ. Þær
eru hér við hluta skreytingana, frá vinstri Addý Henrýsdóttir,
Kristín Elva Rögnvaldsdóttir og Kristín Ástríður Ásgeirsdóttir.
.HORD
Vatnsfælur
— SILAN
— SILOXANE
— SILIKON
Þaulprófuð og með reynslu
!l steinprýði
Stangarhyl 7, simi: 672777.
Það kostar minna
en þig grunar að
hringja til útlanda
PÖSTUR OG SÍMI
*150.50 kr.: Verð á 1 mínútu
símtali (sjálfvirkt val) til Japan
á næturtaxta m.vsk.
ÚTSALA 20-60% AFSLÁTTUR
^hummel^
SPORTBÚÐIN
Ármúla 40 • Simi 813555 og 813655
íþróttaskór, iþróttagallar, bolir, sundfatnaður, dúnúlpur, regnfatnaður o.fl.