Morgunblaðið - 24.08.1993, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993
Snorri Guðvarðsson stundaði kennslu
í sautján ár án kennsluréttinda
Eins o g að aka um
um á óskoðuðum bíl
Áhöfnin á Sléttbak með 13 rétta í getraunum
Giskuðu hjá Þórsurum
sem eru að byrja söluátak
SNORRI Guðvarðsson hefur
stundað kennslu síðustu 17 árin í
grunnskólum á Akureyri, en ekki
haft kennsluréttindi. Það var því
ekkert hik á honum þegar ákveðið
var að setja á stofn kennaradeild
við Háskólann á Akureyri, hann
skráði sig hið snarasta og segir
að sér lítist vel á.
Áhætta
„Ég hef kennt í 17 ár, hef rúntað
á milli flestra grunnskólanna í bæn-
um, en einhvem veginn líður manni
alltaf eins og maður sé á óskoðuðum
bíl,“ segir Snorri. „Þetta hefur verið
svolítið einkennilegt ástand, allt sum-
arið hefur sú hætta vofað yfir að
réttindakennari fengist til starfa og
maður missti þar af leiðandi vinn-
una. Nú síðustu ár hefur þetta verið
meira áberandi, þegar þrengist um
í þjóðfélaginu þá sækja kennarar
aftur í sín fyrri störf. Ég var orðinn
leiður á að taka þessa áhættu ár
eftir ár.“
„Kennaradeildin við Háskólann á
Akureyri leysir þetta mál fyrir mig,
ég hef ekki átt heimangengt til að
stunda það syðra,“ segir Snorri, en
hann býr með syni sínum sem er 13
ára og byijar innan skamms nám
við Gagnfræðaskólann á Akureyri,
þar sem hann verður næstu þrjú
árin rétt eins og Snorri í Háskólan-
um. „Við erum báðir að byija á námi
sem tekur þijú ár og ætlum báðir
að klára. Mér líst vel á mig hér, það
er þrælgaman að vera kominn í skóla
aftur,“ segir Snorri sem varð stúdent
frá Menntaskólanum á Akureyri fyr-
ir 20 árum, en á því tímabili stund-
aði hann nám við Verkmenntaskól-
ann á Akureyri og lauk þaðan mál-
araprófi.
Lítill tími til að lesa
Snorri ætlar að reyna að komast
Morgunblaðið/Golli
Aftur í skóla
SNORRI Guðvarðsson hóf nám
við kennaradeild Háskólans á
Akureyri í gær, en hann hefur
stundað kennslu í 17 ár án þess
að hafa réttindi og finnst það
vera svipað og að aka um á
óskoðuðum bíl.
hjá því að taka námslán meðan á
námi stendur, „Ég gríp í kennslu
með, hef alltaf verið mikið í forfalla-
kennslu, nú svo ætlað ég að mála
eitthvað með náminu og svo spila
ég með Hljómsveit I. Eydal eins og
ég hef gert undanfarin ár,“ segir
hann og bætir við að hann geri sér
fullkomna grein fyrir að lítill tími
gefist til að lesa, en ekki þýði að
hafa af því áhyggjur fyrirfram.
ÞEIR eru getspakir strákarnir í
áhöfninni á Sléttbak EA, frysti-
togara Útgerðarfélags Akur-
eyringa. Um helgina giskuðu
þeir á 13 rétta leiki í getraunum
og fengu í sinn hlut tæpar þrjár
milljónir króna. Þeir voru með
opinn seðil upp á 1.152 raðir sem
kostaði þá 11.520 krónur. Slétt-
baksmenn giskuðu hjá knatt-
spyrnudeild Iþróttafélagsins
Þórs sem er að hefja átak í sölu
getraunaraða.
Sveinbjöm Jónsson er getrauna-
stjóri hjá Þór og mun hann sinna
þessum þætti fyrir félagið í vetur.
Hann hefur sótt námskeið hjá ís-
lenskum getraunum og kynnt sér
flest það sem í boði er fyrir einstakl-
inga og hópa á getraunasviðinu.
Fyrirhugað er að sinna fyrirtækj-
um, einstaklingum, áhöfnum skipa
og ölium þeim sem áhuga hafa af
kostgæfni.
Stefna á stóran pott
„Það er mikill áhugi fyrir þessu
hér á Akureyri, Golfklúbbur Ak-
ureyrar hefur um nokkurt skeið
verið stærsti söluaðilinn á landinu
og það er greinilegt að það eru
margir sem vilja vera með. Við
höfum nú fengið okkar gamla get-
raunanúmer, 603, og ætlum að
reyna að auka söluna og gera svolít-
ið átak í því efni. Það geta allir sem
Getr aunastj ór inn
Morgunblaðið/Golli
SVEINBJÖRN Jónsson er nýráðinn getraunastjóri Þórs, en um
helgina, sem er sú fyrsta sem Þór hefur sér númer, fékk áhöfnin
á Sléttbak EA 13 rétta og varð við það tæpum þremur milljón
krónum ríkari.
vilja verið með í húskerfi sem við
erum með, en þar gæti verið eftir
þó nokkru að slægjast, við stefnum
að því að hafa pottinn stóran í fram-
tíðinni," sagði Sveinbjöm.
Hann sagði að óneitanlega væri
það góð byijun að fá 13 rétta fyrstu
helgina í átakinu sem nýhafið er.
„Það gefur okkur byr undir báða
vængi og við erum bjartsýnir á
framhaldið."
Morgunblaðið/Golli
Kennaranemarnir
GUÐMUNDUR Heiðar Frímannsson, forstöðumaður kennaradeildar Háskólans á Akureyri, dreifir
stundaskrá til nýnema í deildinni, en aðsókn að deildinni var svo mikil að leigður var salur í KA-heimil-
inu til kennslunnar.
Um 80 nemar í nýrri kennaradeild við Háskólann á Akureyri
Margir biðu færis á að
stunda námið heima
KENNARADEILD, sem er nýstofnuð deild við Háskólann á Akur-
eyri, tók til starfa í gærmorgun, þegar hátt í 80 nýnemar mættu til
kennslu, sem fram fer í sal í KA-heimilinu við Dalsbraut. Með til-
komu þessarar nýju deildar fjölgar mjög stúdentum við Háskólann
á Akureyri og nemur fjölgunin milli ára rúmum 33%. Kennt er á
fimm stöðum á Akureyri auk þess sem stúdentagarðar eru á tveim-
ur stöðum í bænum, þannig að skólinn hefur dreift vel út sér um
bæinn.
Haraldur Bessason, rektor Há-
skólans á Akureyri, sagði að með
stofnun kennaradeildar væri skólinn
nú kominn inn á svið sem öllum
háskólum bæri að fara inn á, það
er inn á svið hugvísinda. Fram til
þessa hafa greinar á sviði raunvís-
inda einkennt skólann, en þar eru
fyrir sjávarútvegdeiid, rekstrardeild
og heilbrigðisdeild.
Tengjumst þjóðinni
„Það er alltaf talað um að háskól-
inn verði að tengjast atvinnulífinu,
ég veit ekki hvað átt er við með
því, en ég held að við gerum það
með kennaradeildinni. Umfram allt
held ég þó að við tengjumst þjóðinni
með því að hefja hér kennaranám,"
sagði Haraldur.
I kennaranáminu verður öðrum
þræði lögð áhersla á hugvísindi og
sagði Haraldur það gera mönnum í
framtíðinni hægara um vik að taka
upp BA-nám í öðrum greinum hug-
vísinda. „Það er enginn vafi á því
að þessa nýja deild okkar skapar
aukna breidd í starfsemi skólans og
styrkir hann mjög á allan hátt,“ sagði
Haraldur og bætti við að með tilkomu
deildarinnar lækkaði einnig kostnað-
ur við hvern nemenda skólans, en
nemum í skólanum hefur fjölgað um
rúmlega 30% milli ára.
Merkur atburður
„Ég held að menn átti sig ekki
fyrr en eftir 100 ár á því hversu
merkur atburður þetta er í rauninni.
Það hefur tekið langan tima að fá
þetta samþykkt og sumir voru í vafa
um að nægilegur áhugi væri fyrir
hendi til að fara af stað með kennara-
nám hér fyrir norðan. Við töldum
áhugann nægan ef 20 manns sæktu
um, en við gerðum ráð fyrir áður en
auglýst var eftir umsóknum að fá
um 30 til 35 nema á fyrsta ár. Nú
hefur komið á daginn að þeir eru
nærri 80 talsins þannig að enginn
vafi er á að margir hafa beðið eftir
tækifæri til að stunda námið hér,“
sagði Haraldur Bessason háskóla-
rektor.
Franikvæmdastjón Slipp-
stöðvarimiar lætur af störfum
SAMKOMULAG hefur orðið um ---
að Sigurður Ringsted hætti
störfum sem framkvæmdastjóri
Slippstöðvarinnar-Odda og lét
hann af störfum á föstudag.
Guðmundur Thulinius mun veita
stöðinni forstöðu næstu þrjá
mánuði.
Guðmundur er skipaverkfræð-
ingur og var m.a. yfírverkfræðingur
hjá Slippstöðinni árin 1976 til 1980,
en síðustu ár hefur hann starfað í
Þýskalandi. Guðmundur kemur til
starfa í næstu viku og mun hann
gegna stöðu framkvæmdastjóra
næstu þijá mánuði.
Greiðslustöðvun framlengd
Knútur Karlsson formaður
stjómar Slippstöðvarinnar-Odda
sagði að greiðslustöðvun fyrirtækis-
ins rynni út á þriðjudag og þá yrði
sótt um framlengingu hennar til
þriggja mánaða. A greiðslustöðvun-
artímanum yrði fjárhagur fýrirtæk-
isins endurskipulagður og samið
yrði við lánadrottna þess, en reikna
mætti með að gerðir yrðu við þá
nauðasamningar.
Eldur í
íþróttahúsi
ELDUR kom upp í ný-
byggðu iþróttahúsi á Þela-
mörk eftir hádegi á sunnu-
dag.
Slökkvilið Akureyrar var
kallað út kl. 13.30, en kviknað
hafði í slípivél sem verið hafði
í notkun nokkru áður. Enginn
var í íþróttahúsinu sem verið
hefur í byggingu í sumar þeg-
ar eldurinn kom upp.
Heimamenn brugðust við á
réttu augnabliki að sögn Gísla
Kr. Lórenzsonar slökkviliðs-
stjóra og voru búnir að slökkva
eldinn þegar slökkvilið kom á
staðinn. Hluti af gólfi íþrótta-
hússins brann og húsið fylltist
af reyk, en slökkvilið sá um
að reykhreinsa það.