Morgunblaðið - 24.08.1993, Síða 27
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993
i
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1368 kr. með vsk. á mánuði
innanlands. I lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið.
Hvar eru vaxtar-
broddar í atvinniilífínu?
Asíðasta aldarfjórðungi höfum
við íslendingar leitað margra
leiða til þess að auka fjölbreytni
atvinnulífs okkar. Á viðreisnar-
árunum fyrri vakti stóriðjan von
um betri tíð en frá því, að samning-
urinn var gerður um álverið í
Straumsvík hefur okkur ekki tekizt
að fjölga álbræðslum hér og reynsl-
an af rekstri jámblendiverksmiðj-
unnar í Hvalfirði er slík, að tæpast
er lengur áhugi á beinni eignar-
aðild okkar að stóriðjufyrirtækjum.
Eftir inngöngu okkar í EFTA
trúðu margir á uppbyggingu ís-
lenzks verksmiðjuiðnaðar til út-
flutnings og um nokkurra ára skeið
virtist íslenzkur ullariðnaður hafa
fest rætur sem myndarlegur út-
flutningsiðnaður. Við lögðum
mikla peninga í uppbyggingu loð-
dýraræktar og fiskeldis. Það gildir
einu, hvort um er að ræða frekari
stóriðju, verksmiðjuiðnað til út-
flutnings, loðdýrarækt eða fisk-
eldi, allt hefur þetta valdið okkur
vonbrigðum og sumt orðið okkur
býsna dýrkeypt.
Þess vegna hafa margir hallast
að því, að eini raunverulegi af-
komumöguleiki fólksins í landinu
sé fiskurinn og allt það, sem honum
tengist. Áfallið er því mikið, þegar
svo mikill aflabrestur verður að
spurningar vakna um framtíð fisk-
veiðanna og þar með líf þjóðarinn-
ar í landinu.
En það dugar ekki að gefast
upp. Þrátt fyrir aflabrestinn og
þrátt fyrir síendurtekin vonbrigði
í leit okkar að nýjum vaxtarbrodd-
um í atvinnulífinu eigum við ekki
annan kost en að halda þeirri leit
áfram. En hvar?
Fiskveiðar og fiskvinnsla verða
um langan aldur grundvöllur að
lífi fólks hér. Við þurfum hins veg-
ar að ná meiri hagnaði út úr veið-
um og vinnslu. Morgunblaðið hefur
margsinnis bent á nauðsyn þess
að fækka þeim skipum, sem veiða
við strendur landsins og fækka
fiskverkunarstöðvum til þess að
ná meiri hagnaði út úr sjávarút-
veginum. En tækifærin eru fleiri.
I fyrsta lagi leikur enginn vafi
á því, að frekari vinnsla sjávaraf-
urða áður en þær eru fluttar úr
landi getur skapað umtalsverðan
virðisauka hér heima fyrir. I öðru
lagi er ljóst, að milliliðakostnaður
er mikill frá því að varan er komin
í höfn erlendis og þar til hún er á
borði neytandans. Við þurfum að
eignast dreifingarkerfi á mörkuð-
um okkar í ríkara mæli en nú er.
Við eigum myndarleg framleiðslu-
og sölufyrirtæki beggja vegna Atl-
antshafsins. Þá starfsemi þarf að
stórauka þannig að milliliðakostn-
aður vegna sölu sjávarafurða okk-
ar erlendis komi í okkar vasa en
ekki annarra. Við eigum á að skipa
nýrri kynslóð ungs fólks, sem hef-
ur aflað sér víðtækrar menntunar
á sviði viðskipta og atvinnulífs,
sem er sambærileg við þá mennt-
un, sem æskufólk annarra þjóða
hefur hlotið. Þessa menntun eigum
við nú að nýta til þess að auka
umsvif okkar í sölu og dreifingu
sjávarafurða á erlendum mörkuð-
um.
í þriðja lagi hafa tilraunaveiðar
í Barentshafi vakið upp aukinn
áhuga á að leita eftir 'veiðiheimild-
um á fjarlægum miðum í samvinnu
við þjóðir, sem ráða yfir auðugum
fiskimiðum en skortir þekkingu á
veiðum og vinnslu. Þannig getum
við hugsanlega nýtt þann mikla
flota vel búinna fiskiskipa, sem við
eigum en er því miður alltof stór
til þess að hægt sé að nýta hann
á heimamiðum. í fjórða lagi fer
ekki á milli mála, að ýmiss konar
framleiðsla og þjónusta í tengslum
við sjávarútveginn skapar mögu-
leika á útflutningsstarfsemi, sem
getur skilað okkur töluverðu, þeg-
ar fram líða stundir.
Loks hafa augu manna opnast
fyrir því, að ferðaþjónusta er arð-
vænleg atvinnugrein, sem hægt er
að byggja enn frekar upp og hafa
umtalsverðar tekjur af eins og
reynslan sýnir. Það er alveg aug-
ljóst, að við hljótum að leggja stór-
aukna áherzlu á þessa atvinnu-
grein á næstu árum.
Þótt illa hafí tekizt til í loðdýra-
rækt og fiskeldi hefur mikil þekk-
ing orðið til í landinu á þessum
sviðum báðum. Full ástæða er til
að hlúa að þeirri takmörkuðu starf-
semi, sem enn er fyrir hendi og
leitast við að byggja hana upp
smátt og smátt á grundvelli feng-
innar reynslu með það fyrir augum,
að þessar greinar geti orðið góð
búbót í framtíðinni, þótt þær verði
kannski ekki eins umfangsmiklar
og að var stefnt fyrir einum áratug.
Allt eru þetta augljósar stað-
reyndir, sem blasa við hveijum og
einum. Hins vegar er ljóst, að bol-
magn þessarar smáþjóðar er ekki
meira en svo, að einstök fyrirtæki
geta í fæstum tilvikum staðið fyrir
mikilli tilraunastarfsemi, sem oft
er nauðsynleg þegar bijóta á nýjar
leiðir. í Japan hefurtekizt athyglis-
vert samstarf á milli fyrirtækja,
embættismannakerfís og stjórn-
málamanna, sem er ein helzta for-
sendan fyrir hinni miklu útþenslu
japanskrar útfluiningsstarfsemi.
Hér á landi hefur það lengi tíðk-
azt að stjórnmálamenn útvegi fjár-
muni í misjafnlega skynsamlegar
framkvæmdir. Hins vegar hefur
ekki verið um að ræða samræmt
átak stjórnvalda og atvinnulífs til
þess að byggja upp nýja vaxtar-
brodda í atvinnu- og viðskiptalífi.
Hugsanlega er ein ástæðan sú, að
atvinnumál skiptast á milli a.m.k.
þriggja ef ekki fjögurra ráðuneyta.
Stjórnvöld hafa ekki átt þátt í því
ásamt misjafnlega veikburða at-
vinnugreinum að móta samræmda
atvinnumálastefnu, sem m.a. hefur
það að markmiði að þróa, hlúa að
og efla nýja vaxtarbrodda, sem
geta breikkað grundvöllinn undir
afkomu þjóðarinnar. Er ekki orðið
tímabært að huga að slíku sam-
ræmdu átaki, sem fjármálakerfið
ætti Iika aðild að?
Jón Jónsson, fyrrum forstjóri Hafrannsóknastofnunar, hefur tekið saman upplýsingar um þorskafla á íslandsmiðum á árunum 1600 til 1900
og upplýsingar um veðurfar á sama tíma. Mikil fylgni er á milli kaldra hafisára og samdráttar í afla.
Alþjóðleg ráðstefna um þorskinn og áhrif veðurfars á vöxt hans og viðgang:
Fylgni milli sveiflna í veður-
fari og þorskafla við Island
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, ávarpar ráðstefnugesti.
SVEIFLUR í veðurfari og í þor-
skafla virðast hafa farið saman
frá árinu 1600 og mikil tengsl
virðast vera milli stærðar síldar-
stofnsins og stærðar og viðgangs
þorskstofnsins. Köldu hafísárun-
um við ísland á síðustu öldum
fylgdi samdráttur í afla hér og
svo virðist sem áhrifa þeirra
hafi einnig gætt í Noregi, enda
kólnaði þar líka. Það er ekki
fyrr en kemur fram á þessa öld,
að veiðar hafa veruleg áhrif á
vöxt og viðgang þorskstofnins,
en fram að þeim tíma réði veður-
farið úrslitum.
Þessar upplýsingar komu fram
við upphaf alþjóðlegrar ráðstefnu,
sem haldin er í Reykjavík, um þorsk-
inn og áhrif veðurfars á vöxt og
viðgang hans. Ráðstefnan er haldin
á vegum Alþjóða hafrannsóknaráðs-
ins undir stjórn Hafrannsóknastofn-
unar og var hún sett árdegis í gær
með ávarpi forseta íslands, Vigdísar
Finnbogadóttur, og ávarpi forseta
Alþjóða hafrannsóknaráðsins. Ráð-
stefnustjóri er Jakob Jakobsson,
forstjóri Hafrannsóknastofnunar.
Ráðstefnan mikilvæg
Vigdís ræddi um mikilvægi
þorsksins með tilvitnun í Sölku
Völku, „Lífíð er saltfískur", og jafn-
framt lýsti hún ánægju sinni með
það frumkvæði, sem í ráðstefnuhald-
inu felst. Þá sagði hún mikilvægt
að menn kæmu saman og deildu
þekkingu sinni hver með öðrum, þar
sem miklu máli skipti að niðurstaðan
gæti hjálpað okkur til að skilja betur
gang þessara mála og ná fyrir vikið
betri stjóm á hinni mikilvægu auð-
lind, sem þorskurinn er.
Forseti Alþjóða hafrannsókna-
ráðsins sagði að ísland væri kjörinn
staður fyrir ráðstefnu af þessu tagi,
enda fylgust menn af áhuga með
fiskveiðistjómun hér á landi. Veru-
legar breytingar hefðu orðið á stærð
þorskstofnanna við Norður-Atlants-
hafið og spurningin væri hvort þar
réði meiru, veðurfarið eða maður-
inn. Hann sagði að niðurstöðu ráð-
stefnunnar væri beðið með mikilli
eftirvæntingu, ekki bara meðal
fískifræðinga og vísindamanna,
heldur einnig þeirra sem létu sig
efnahagsmál skipta.
Saga þorskveiða og veðurfars
Jón Jónsson, fyrrum forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, flutti er-
indi um sögu þorskveiða við Island
á tímabilinu frá 1600 til 1900. Þar
fjallaði hann um veiðar okkar ís-
lendinga, Frakka og Hollendinga
og sýndi sveiflur í aflanum. Þá rakti
hann hitastig og hafísár á þessum
tíma og sýndi fram á, að bein fylgni
I
virtist vera milli hafíss og kaldra
ára og samdráttar í fiskafla.
Fiskveiðar Hollendinga náðu há-
marki um 1760 með veiðum 141
skips, en síðan dró jafnt og þétt úr
þeim unz þær liðu undir lok um
miðja 19. öldina. Veiðar Frakka
jukust að sama skapi á 19. öldinni
og náðu hámarki upp úr henni miðri,
er um 150 frönsk skip voru hér að
veiðum. Meðal afli þessara þriggja
þjóða hér á íslandsmiðum árin 1766
til 1777 er talinn hafa verið um
34.000 tonn, en hann varð minnstur
29.000 tonn og mestur 43.000. Um
þrír fjórðu voru þá teknir af okkur
Islendingum, 15% af Hollendingum
og afgangurinn af Frökkum.
Hundrað árum seinna voru Hollend-
ingar hættir veiðum hér og þá var
meðal afli okkar íslendinga og
Frakka um 56.000 tonn á ári og
tóku Frakkar rúmlega helminginn.
Þessar veiðar eru ekki taldar hafa
haft nein áhrif á stofstærð þorsksins
á þeim tíma.
Hjá öðrum ræðumönnum kom
fram, að svipaða sögu er að segja
frá Noregi. Köldum árum fylgdi
ætíð samdráttur í fiskveiðum og
síldin virðist hafa verið undirstaðan
í fæðu þorskins. Það er ekki fyrr
en komið er vel fram á þessa öld,
að veiðarnar sjálfar eru taldar hafa
áhrif á stofnstærð þorsksins. Fram
til þess tíma hefur veðurfarið ráðið
úrslitum. Því snérist málið um það
nú að meta, ef hægt væri, áhrif
veðurfars annars vegar og veiða
hins vegar til þess að menn væru
betur í stakk búnir til að spá um
vöxt og viðgang þorskstofnsins og
til að leggja til hæfilega sókn í auð-
lindina.
Ráðstefnunni verður framhaldið
alla vikuna og lýkur henni á föstu-
dag.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993
27
Shimon Peres um innrás í Líbanon og gagnrýni Vesturlandaþjóða
Þurfum að kljást við
þá sem ekki vilja frið
SHIMON Peres er sjötugur, hann er af þeirrl
kynslóð Israela sem tók þátt í að beijast
fyrir ríkinu áður en það varð formlega til,
áður en það þar tekið inn í Sameinuðu þjóð-
irnar. Það kom í hlut fulltrúa íslartds að
leggja til að ísrael fengi aðild að SÞ 1947
og fram á síðustu ár var þorri Islendinga
hlynntur gyðingaríkinu sem barðist fyrir
tilveru sinni við margfalt fjölmennari and-
stæðinga. Hvort sem það er sanngjarnt fer
vart milli mála að frásagnir og ekki síst
sjónvarpsmyndir af átökum ísraelskra her-
manna við óbreytta borgara á hernumdu
svæðunum hafa orðið til að breyta þessari
afstöðu, á íslandi sem í mörgum öðrum lönd-
um. Engan bilbug er þó að finna á Peres.
Tindrandi brún augun verða ekkert óvinsam-
leg, röddin er alltaf stillileg og hann brosir
stundum blítt þegar blaðamaður Morgun-
blaðsins reynir að þjarma að honum, fá utan-
ríkisráðherra ísraels til að viflurkenna að
eitthvað hljóti að hafa farið úrskeiðis í stefn-
unni gagnvart Palestínumönnum.
- Samúð fólks á Vesturlöndum með ísrael
hefur dvínað á undanförnum árum að flestra
áliti. Hver telur þú að sé ástæðan fyrir því?
Eg veit nú ekki hvort hún hefur dvínað. En
samtímis því sem Israel hefur barist fyrir friði
höfum við orðið að kljást við þá sem ekki vilja
frið. Þetta veldur oftast nokkurri gagnrýni á
okkur en ég held ekki að hún sé mjög alvarleg.
Ég er ekki hræddur við afleiðingar þessarar
gagnrýni, er sannfærður um að þegar okkur
loksins tekst að semja um frið mun fólk á ný
sýna okkur skilning. En það eru margir
þröskuldar á veginum til friðar.
Ég tel að um sé að ræða tímabundna breyt-
ingu á almenningsálitinu, þetta mun snúast við
á ný.a
- Israelar hafa oft verið sakaðir um að bijóta
gegn samþykktum Sameinuðu þjóðanna, um
að beita ónauðsynlegri hörku, jafnvel fantaskap
á hernumdu svæðunum. Hvernig svararðu þess-
um ásökunum, var t.d. innrásin í Líbanon nýver-
ið réttlætanleg?
Ég held að innrásin hafí verið það. Hún batt
enda á sprengjuárásir á óbreytta borgara í ísra-
el, árásir óábyrgra samtaka Hizbollah-liða sem
fá fyrirskipanir sínar frá Teheran. Þeir sem
gagnrýndu okkur bentu ekki á neina aðra og
betri aðferð til að stöðva þá.
- Hvernig hafa lok kalda stríðsins haft áhrif
á stöðu mála í Mið-Austurlöndum?
Mjög góð áhrif. Endirinn á kalda stríðinu og
árekstrum Sovétríkjanna og Bandaríkjanna gef-
ur fyrirheit um friðsamlegri tíma í Mið-Austur-
löndum. Sovétríkin sáu aröbum fyrir mjög hættu-
legum nútímavopnum með hagstæðum skilmál-
um; þessir tímar eru nú liðnir. Sum arabaríkin
hafa dregið þá ályktun af breyttum aðstæðum
að kominn sé tími til að.semja um frið.
Hugarfar virkisbúanna
- Ógna Sýrlendingar ykkur hernaðarlega?
Sýrland er ógnun við friðinn meðan ekki tekst
að semja um frið. En við viljum ekki aðeins
bregðast við öllu sem ógnar ísrael heldur vinna
bug á öllu því sem kemur í veg fyrir að friður
fái að ríkja. Þess vegna verðum við að semja
um frið við nágranna okkar.
- Margir hafa velt því fyrir sér hvers konar
tryggingar fyrir öryggi ísraelar muni telja full-
nægjandi. Sumir efast um að þið munið nokk-
urn tíma losna úr viðjum hugarfarsins sem
kennt hefur verið við umsetið virki.
Ég held að þetta sé ekki rétt. Ég minni þig
á að ísrael gerði friðarsamning við Egypta og
tók þá-mikla áhættu. Tryggingin fyrir friði er
friðurinn sjálfur, það finnst engin betri.
- Þeirri hugmynd hefur verið varpað fram
að Bandaríkjamenn ættu að hafa herlið í ísrael
til að tryggja varnir landsins ...
Við höfum aldrei beðið um bandarískt herlið
til að treysta öryggi okkar. Við höfum engar
bandarískar herstöðvar í ísrael, höfum aldrei
haft og munum aldrei biðja um þær.
- Þú vilt ekki viðurkenna að eitthvað sé
hæft í ásökunum þeirra sem segja að gætt
hafi tregðulögmáls í stefnu Israels, að þið haf-
ið verið of seinir að bregðast við breyttum að-
stæðum í kjölfar loka kalda stríðsins?
Nei við sömdum við Egypta á sínum tíma
og munum semja við aðra nágranna okkar síðar.
- Almennt er talið að ísraelar ráði yfir kjarn-
Morgunblaðið/RAX
SHIMON Peres, utanríkisráðherra Israels:
„Einhvern tíma munu allir lifa saman í friði
en til að það gerist verður Messías að birt-
ast okkur.“
orkuvopnum. Viltu tjá þig um þetta mál?
ísrael hefur lýst yfir því opinberlega að ríkið
muni ekki verða fyrst til að beita kjarnorkuvopn-
um í átökum í Mið-Austurlöndum. Við munum
standa við það loforð.
- Hljóta ekki einhver arabaríki að komast
yfir gereyðingarvopn innan fárra ára?
Það er hugsanlegt og þess vegna er rétt að
semja um frið svo að ekki komi til átaka þar
sem beitt verður kjarnorkuvopnum. Kjamorku-
vopnin eru ekki raunveruleg hernaðartæki held-
ur pólitísk vopn. Pólitíska lausnin á þessum
vanda er annaðhvort að láta hjá líða að smíða
slík vopn eða tryggja að þau verði ekki notuð.
- Ný kynslóð stjórnmálaleiðtoga er að koma
fram á sjónarsviðið í ísrael. Hvaða áhrif held-
urðu að þessi staðreynd muni hafa á samskipti
ísraela við Palestínumenn og nágrannaríkin?
Þau verða betri en þau hafa verið hjá minni
kynslóð, alveg tvímælalaust.
- Af hveiju?
Þeir geta fitjað upp á nýjum hlutum, það
hlýtur að ganga betur hjá þeim. Því yngri þeim
mun betri. Þeir eru betur menntaðir en fyrst
og fremst hafa þeir það til að bera sem við
höfum glatað, æskuna!
Kynþáttaf ordómar
- Sumir ísraelar hafa áhyggjur af neikvæð-
um viðhorfum margra landsmanna til araba.
Er hætta á að kynþáttafordómar gagnvart aröb-
um nái fótfestu í landi gyðinga?
Það held ég ekki. Við munum gera friðar-
samninga við Palestínumenn og araba á næst-
unni, það er ég alveg sannfærður um. Gyðingar
geta ekki verið kynþáttahatarar, þá væru þeir
ekki lengur gyðingar. Gyðingatrú og kynþátta-
fordómar fara ekki saman, það væri algerlega
andstætt öllu sem við byggjum á. Gyðingar
hafa aldrei kúgað aðrar þjóðir, Móses sagði
gyðingum að gleyma því aldrei að í öðrum lönd-
um værum við gestir, við yrðum ávallt að virða
aðrar þjóðir.
- Það eru sagðir brandarar um araba þar
sem fyrirlitningin skín í gegn... '
Það hlýtur alltaf að vera til fólk sem hagar
sér þannig. Þarna er á ferðinni fólk sem er
ekki samstíga þjóðinni og hefðum gyðinga.
Gyðingatrú er ekki trú í venjulegum skilningi
heldur heimspekileg afstaða til lífsins og undir-
staða allrar tilveru okkar. Hún gefur okkur
markmið í lífinu og leggur okkur til sögulegan
og siðferðislegan grundvöll.
- Það eru fleiri vandamál í Mið-Austurlönd-
um en pólitískar deilur og hemaðarátök. Gætu
ísraelar liðkað fyrir bættri sambúð með því að
bjóða arabískum nágrönnum tæknilega aðstoð,
t.d. við áveitugerð og vatnsvinnslu úr sjó?
ísrael myndi vilja deila slíkri þekkingu með
öllum nágrannaþjóðum sínum og ég tel að það
verði nauðsynlegt til að treysta frið í þessum
heimshluta. Það er ekki nóg að finna lausn á
pólitískum deilumálum, það verður einnig að
koma á efnahagslegri samvinnu. Það dugar
ekki að leysa gömlu deilurnar heldur verður
einnig að leggja grundvöll að nýjum samskiptum
í Mið-Austurlöndum.
Viðræður við PLO
- Þú varst í fararbroddi þeirra ísraelsku leið-
toga sem vildu ræða beint við Palestínumenn
um frið og jafnvel hætta að hundsa Frelsissam-
tök Palestínu, PLO. Finnst þér að þróun mála
undanfarna mánuði hafi sannað að þú hafir
haft rétt fyrir þér?
Það tel ég. En við eigum nú beinar viðræður
við Palestínumenn af hernumdu svæðunum og
þurfum reyndar ekki að ræða við aðra um þeirra
mál. PLO hefur neitað að vísa aðferðum hryðju-
verkumanna afdráttarlaust á bug, krafist þess
að vera fulltrúar allra Palestínumanna, jafnt
þeirra sem búa utan ísraels og hinna á her-
numdu svæðunum, einnig sett fram kröfur um
að Palestínumenn fengju eigið, sjálfstætt ríki.
Þar til þeir slaka á þessum kröfum hljótum við
að ræða frekar við fulltrúa af hernumdu
svæðunum en fulltrúa PLO.
- En nú eru þessir Palestínufulltrúar frá
hernumdu svæðunum einnig félagar í PLO,
voru nýlega kosnir í nefnd á vegum samtak-
anna.
Ég ætla ekki að tjá mig um allar þessar
skilgreiningar, þær eru ekki mikilvægar.
- Er það ekki undarlegt fyrir þig og fleiri
leiðtoga Israels að hugsa til þess að einhvern
tíma munið þið sitja andspænis Arafat við samn-
ingaborð?
Það gerum við ekki núna.
- En í framtíðinni?
Framtíðin er framtíðin, við erum að ræða
um nútíðina. í framtíðinni munu allir eiga eðli-
leg samskipti, þá mun ríkja friður um alla jörð-
ina.
- Einnig milli leiðtoga ísraels og Arafats?
Einhvern tíma munu allir lifa saman í friði
en til að það gerist verður Messías að birtast
okkur.
Mál Deiryanjuks
- Víkjum að Demjanjuk-málinu. Israelskur
dómari hefur meinað honum að yfirgefa landið
þótt maðurinn hafí verið sýknaður af þeirri
ákæru um stríðsglæpi sem á sínum tíma var
notuð til að fá hann framseldan frá Bandaríkj-
unum. Er meðferðin á Demjanjuk síðustu dag-
ana samboðin ríki sem vill láta líta á sig sem
réttarríki?
Gleymum ekki að maðurinn var sýknaður af
ákærunum um stríðsglæpi í þágu nasista.
Rétturinn ákvað að láta hann njóta vafans um
sekt; þetta sýnir að dómskerfið er sjálfstætt.
Ég vil ekkert tjá mig að öðru leyti um ákvarðan-
ir dómskerfisins en ber fullt traust til þess að
gætt verði réttlætis.
- Telurður að þetta sé í samræmi við alþjóða-
rétt?
Fullkomlega. Ég hef ekki heyrt neinn gefa
annað í skyn.
- Ertu ánægður með þá meðferð sem mál
Eðvalds Hinrikssonar hefur fengið hjá íslensk-
um yfirvöldum?
Ég hygg að í máli herra Miksons sé mestur
vandinn að leita uppi sönnunargögn. Forsætis-
ráðherra Eistlands hefur heitið okkur því að
hann muni láta fara vandlega yfir skjalasöfnin
þar til að sjá hvort þar séu sönnunargögn í
málinu. Við erum ekki að biðja urn að nokkur
maður hljóti óréttlátan dóm en leggjum til að
málið verði kannað og maðurinn fái réttláta
meðferð.
Það hlýtur að vera mál dómstólanna að úr-
skurða hvort maðurinn hafi gerst sekur um
glæpi. Við munum sætta okkur við úrskurðinn,
hver sem hann verður, við höfum mikið álit á
íslendingum og gagnrýnum ykkur alls ekki.
Viðtal: Kristján Jónsson.