Morgunblaðið - 24.08.1993, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samnorræn fimleikahátíð 60 ára og eldri
Um 500 manns komu
fram í hópatriðum
UM 500 manns tóku þátt í samnorrænni fimleikahátíð 60 ára
og eldri sem fram fór í Laugardalshöll 19. til 23. ágúst. Flest-
ir voru þátttakendur frá Noregi, 151, frá Finnlandi komu 66,
frá Danmörku komu 26 en um hundrað þátttakendur voru frá
íslandi. Svíar sendu ekki fulltrúa á mótið. Meginmarkmiðið
með hátíðinni var að hvetja alla til að hreyfa sig þó þeir eldist
og taka þátt í líkamsþjálfun og heilbrigðu félagslífi. Morgun-
blaðið ræddi við nokkra þátttakendur á hátíðinni og fara við-
tölin við þá hér á eftir.
„Það hefur verið stórkostlegt
að vera hér og hitta fólk frá hin-
um Norðurlöndunum, tala saman
og sjá hvað hinir eru að gera,“
sagði Liv Heimstad sem er leið-
togi fimleikasamtaka eldri
kvenna í Noregi. Hún sagði að
alls væru 2.000 konur í samtök-
unum á aldrinum 40 til 81 árs
og æfa þær jafnan tvisvar í viku.
Áhuginn eykst
Heimstad sagði að eldri karlar
í Noregi væru ekki eins virkir í
leikfimi eins og konurnar en
áhuginn væri þó að aukast hjá
báðum kynjum jafnt og þétt. Hún
sagði að almenn ánægja hefði
ríkt í hópnum með fimleikahátíð-
ina enda hefðu þau verið afskap-
lega heppin með veður og fengið
tækifæri til að ferðast vítt og
breitt um Island. Flestir í hópn-
um væru ráðnir í að heimsækja
ísland aftur í náinni framtíð.
Næsta fimleikahátíð sem þátt-
takendumir frá Noregi stefna á
er í Frankfurt í Þýskalandi að ári.
Virkar hvetjandi
„Eg hef verið með sjálfstæðan
rekstur sem ég kalla hressingar-
leikfimi í 34 ár og em konurnar
sem sýndu úr fjórum hópum sem
ég er með. Flestar em á aldrinum
55 til 68 ára en sú elsta 72,“
sagði Ástbjörg Gunnarsdóttir
en hún var með atriði á hátíðinni
sem nefndist „Rauði ramminn".
„Gym i Norden er stórt mót og
hefur heppnast vel, þetta er
þriðja norræna fimleikahátíðin
sem haldin er hér á landi og ég
hef verið svo heppin að vera með
á þeim öllum.
Ég hefði _ viljað sjá fleiri á
mótinu frá íslandi því það eru
margir hópar í þessum aldurs-
flokki starfandi víða um landið.
Það spilar eflaust inni að ágúst
er erfiður mánuður vegna sum-
arfría. Minn hópur æfði t.d. hálf-
an júnímánuð en svo gerðum við
hlé og byijuðum aftur 10 ágúst.
Leikfimi meðal eldri borgara á
sér heldur ekki langa sögu hér
á landi og hin Norðurlöndin eru
komin lengra en við á því sviði.
Þetta er líka spurningin um hvort
fólk treystir sér til að koma fram
og ég held að hátíð sem þessi
virki hvetjandi á marga. Hér
hafa verið stórkostleg sýningar-
atriði sem sýnir að svo lengi sem
fólk á efri árum hefur þokkalega
heilsu eru því allir vegir færir,“
sagði Ástbjörg.
Stórkostlegt mót
„Þetta hefur verið stórkostlegt
mót og ég hef eignast hér marga
góða kunningja,“ sagði Henry
Andersen frá Svendborg í Dan-
mörku. Hann hafði ekki komið
til íslands áður og sagðist hafa
haft mjög gaman af að sjá land-
ið. Andersen hefur lengi verið í
bæjarstjórn Svendborgar og m.a.
starfað að málefnum aldraðra
hin síðari ár. Hann sagði að um
500 eldri borgarar legðu reglu-
lega stund á leikfimi í borgini.
Andersen hvað það hafa mikla
þýðingu fýrir aldraða að heyfa
sig og taka þátt í íþróttastarfi,
Frá atriði norsku þátttakendanna á fimleikahátíðinni Gym i Nord-
en
Frá hópatriði dönsku þátttakendanna.
Henry Andersen frá Svendborg
í Danmörku.
það væri ekki aðeins þýðingar-
mikið vegna líkamlegs ástands
heldur einnig andlega. Það skipti
miklu máli fyrir aldraða að fara
út og vera með öðru fólki.
Mikil reynsla
„Það var mjög gaman að fá
tækifæri til að heimsækja Island,
ég hef verið hér tvisvar áður en
þetta er mín besta ferð hingað,"
sagði Piijo Liisa Vilenius frá
Finnlandi. Hún sagði að fim-
leikahátíðin hefði verið mjög
hvetjandi. Það voru 66 gestir
sem komu frá Finnlandi en þar
af tóku 44 þátt í fimleikasýning-
um á Gym i norden. Hún sagði
að meira en 400 fimleikafélög
aldaðra væru starfandi í Finn-
landi og_í þeim væru um 5.000
manns. íslandsheimsóknin hefði
verið mikil reynsla fyrir finnsku
þátttakendurna og þeir færu með
góðar minningar héðan.
Liv Heimstad, leiðtogi leiðtogi
fimleikasamtaka eldri kvenna
í Noregi.
Ástbjörg Gunnarsdóttir hefur
leiðbeint í hressingarleikfimi í
þijá áratugi.
Lýst eft-
ir vitnum
EKIÐ var á kyrrstæða bláa Peuge-
ot 205 bifreið á bílastæðinu við
Grensásveg 11 eða á bílastæðinu
við Skeifuna 17 einhvern tíma á
timabilinu frá því klukkan 17 á
föstudag til klukkan 13 í gær,
mánudag.
Rispa og dæld er eftir endilangri
hægri hlið bílsins. Þeir sem geta
gefið upplýsingar um atburðinn eru
vinsamlegast beðnir um að snúa sér
til lögreglunnar í Reykjavík eða hafa
samband í síma 684069.
----» ♦ ♦---
■ HEAD, óopinber samtök
Prince fíkla og Bob George standa
að tónlistarveislu fyrir Prince aðdá-
endur á Hressó í kvöld, miðvikudag-
inn 25. ágúst kl. 21. Flutt verður
óútgefíð efni með hinni konunglegu
ótukt þ.á.m. Black album, Charade,
tónleikarupptökur ’81-’93 og m.fl.
Aðgangur er ókeypis.
ttf
Hi ÍSLANDI
RAF- 0G L0GSUÐUVÍR
MÉÐ ÍSLENSKUM
LEIÐBEININGUM,
L0GSUÐUTÆKI,
GASMÆLAR 0G FL.
GUÐNIJÓNSSON & CO.
Skeifunni 5 • S: 91-32670
• VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS
Ifent-Axia
Gluggaviftur
Veggviftur
• VÉLADEILD FALKÁ
í FARARBRODDI
1FJÖRUTÍU
ÁR!
Ensk og hollensk gæðavara.
Veitum tæknilega ráðgjöt
við val á loftræstiviftum.
Það borgar sig
að nota það besta!
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 • 108 REYKJAVÍK
SÍMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-68 58 84
. • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS • VÉLADEILD FÁLKANS •