Morgunblaðið - 24.08.1993, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993
35
Vinum Dóra líður vel
Pelican gengnr aftur
Hljómplötur
Árni Matthíasson
Blúsvinir þekkja orðið út og inn
Vini Dóra, enda hafa fáar sveitir
verið eins duglegar við spilirí síð-
ustu misseri. Fyrir stuttu sendi
sveitin frá sér safndiskinn Mér líður
vel, með þrettán lögum, þar sem
ýmsir góðir gestir frá Chicago troða
upp, Pinetop Perkins, Chicago Beau
McGraw, Billy Boy Amold, Jimmy
Dawkins, Deitra Farr, Shirley King
og Jimmy McCracken.
Upphafs- og titillag disksins er
Mér líður vel, þar sem Dóri, Halldór
Bragason, og félagar í vinum Dóra,
Guðmundur Pétursson, Haraldur
Þorsteinsson og Ásgeir Óskarsson,
fara lipurlega með fremur veigalít-
inn blús eftir Halldór. Þá taka gest-
irnir við, fyrstur Billy Boy Amold.
Þeir sem fylgst hafa með heimsókn-
um þessara gesta minnast heim-
sóknar Billys Boys með einnar
mestrar ánægju, því þó hann sé
ekki besti munnhörpuleikari
Chicagoblúsins, er hann þar
framarlega í flokki og fáir standa
honum á sporði í lagasmíðum. Billy
Boy á tvo blúsa á disknum og sá
seinni, Trouble Blues, stendur upp-
úr.
Fleiri heimsóknir voru eftirminni-
legar, þar á meðal Jimmy Dawkins,
sem var stirður í gang, en sýndi á
sér allar sínar
bestu hliðar
sem frábær
gítarleikari og
fyrirtaks
söngvari. Pi-
netop Perkins
náði líka því
besta fram í
sveitinni eftir
eina tónleika
og á eftir-
minniiegum
kveðjutónleikum hans „svingaði"
hún eins og hún hefði ekki gert
annað en spila í einhverri Chicago-
búllu í áratugi. Deitra Farr var og
skemmtileg, en Shirley King, þó vel
ættuð sé, er aftur á móti ekki mik-
il söngkona, en þó betri en margan
minnti ef marka má blúsinn Oh
Johnny. Annar sem kom skemmti-
lega á óvart var Tommy McCrac-
ken, sem sýndi ekki síðri takta sem
soulsöngvari. Ekki má svo ganga
fram hjá Chicago Beau, sem skekur
húsið í magnaðri útgáfu á Hoodoo
Man.
Stjörnu gítarleikur Guðmundar
Péturssonar skín hvarvetna í gegn
á disknum, sem vonlegt er, en Hall-
dór Bragason sýnir að hann er kom-
inn í fremstu röð blúsgítarleikara,
með taugaendana tengda við
strengina í hveijum snjöllum ein-
leikskaflanum af öðrum.
Það kann að hafa virst góð hug-
mynd á pappírnum að endurvekja
hljómsveitina Pelican og rúlla upp
nokkrum böllum í sumar. Ekki gæti
skemmt fyrir að Pétur Kristjánsson
átti eftirminnilegt „comeback" sem
söngvari með Sálinni fyrir jól og að
í sveitina var genginn Guðmundur
Jónsson, helsti popplagasmiður
landsins. Þegar haustar sjá þeir sem
vilja að fléttan gekk ekki upp; Pelic-
an átti erfíða daga á sveitaböllum
þrátt fyrir góða frammistöðu á þeim
böllum sem gengu upp, og plata
sveitarinnar, sem hér verður gerð
að umtalsefni, er, satt best að segja,
steindauð.
Á plötunni Pelican, sem kom út í
sumar, ber lítið á spennandi uppá-
komum, enda er hinn gullni meðal-
vegur þræddur af íþrótt þar sem
Guðmundur Jónsson sér um lungann
af lagasmíðum. Sumir hafa viljað
halda því fram að á plötunni séu
afgangslög Guðmundar frá Sálar-
dögum hans, en því er öðru nær,
því mörg laganna eru lipurlega sam-
in. Hver sér það þó í hendi sér að
ólíku er saman að jafna hljómsveit
sem hefur þrælað saman í marga
mánuði, eða tónlistarmenn, þótt góð-
ir séu, sem kallaðir eru saman til
að henda upp plötu og spila út sum-
arið.
Eins og áður segir hefur Pelican-
platan selst langt undir væntingum
manna, sem er nokkur synd, því hún
er illskárri en margt sem selst hefur
betur. Til _að mynda eru lög eins og
Ástin er, Á ystu nöf, og Sofa í minn
haus í góðu meðallagi og í vígahug
er þokkalegt þó það detti niður eftir
skarpa byrjun. Gaman hefði aftur á
móti verið að fá fleiri „Pelicanlög",
eins og Beggja hagur eftir Ásgeir
Óskarsson og Engum líkur og Ég
var ekki ég eftir Björgvin Gíslason,
sem eru um margt dæmigerð fyrir
Pelican fyrri ára.
Morgunb./Bjami
Halldðr Bragaon
Nýtt
Bókhaldsnám
36 klst.
Ókeypis hugbúnaður innifalinn
VIRÐISAUK ASKAnUR
AFSTEMMINGAR,
FRÁGANGUR, UPPGJÖR
LeiAbeinandi: Katrín H. Ámadóttir,
viftskiptafrseöingur.
Leitiö nánari upplýsinga hjá
Viðskiptaskólanum
sími 624162
VZterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
RADA UGL YSINGAR
4ra herb. íbúð í Kópavogi
óskast til leigu
Leigutími frá 1. september.
Upplýsingar í síma 42338.
Málverkauppboð
Gallerí Borg heldur málverkauppboð á Hótel
Borg sunnudaginn 5. september.
Tekið er á móti verkum daglega frá kl. 12-18.
BOKG
v/Austurvöll, sími 24211.
Fimleikar - fögur íþrótt
Innritun
Innritun fimleikadeildar Gerplu hófst mánu-
daginn 16. ágúst og stendur til laugardags-
ins 28. ágúst. Tekið verður við beiðnum um
innritun byrjenda 12 ára og yngri í síma
74925 virka daga milli kl. 14 og 21.
Boðið verður uppá morgunæfingar fyrir
4ra-6 ára.
Stundaskrár verða afhentar miðvikudaginn
1. september kl. 17.00-18.30 fyrir byrjendur
og kl. 18.30-20.00 fyrir framhaldshópa.
Athugið breytt innheimtufyrirkomulag.
Greiða þarf alla önnina í upphafi tímabils.
Geymið auglýsinguna!
SPARISJÓÐUR KÓPAVOGS
Málverk -
Kristján Davíðsson
Höfum verið beðnir að útvega eldri málverk
eftir Kristján Davíðsson.
Vinsamlegast hafið samband við Gallerí Borg
í síma 24211 frá kl. 12-18 daglega.
BORG
v/Austurvöll, sími 24211.
Atvinnumál kvenna
Starfshópur um atvinnumál kvenna auglýsir
eftir umsóknum um styrki til atvinnuskap-
andi verkefna fyrir konur.
Félagsmálaráðherra hefur skipað starfshóp
til að gera tillögur um úthlutun sérstaks fram-
lags úr ríkissjóði til atvinnuskapandi verkefna
fyrir konur.
Meginmarkmið við úthlutun styrkjanna eru
eftirfarandi:
★ Atvinnulausar konur hafi forgang til starfa.
★ Styrkir renni einkum til aðhlynningarstarfa
hverskonar.
★ Styrkir renni að öllu jöfnu til ótímabund-
inna verkefna.
Til greina kemur að veita stofnframlög til
nýsköpunar verkefna, svo og styrki til þróun-
ar og markaðssetningar.
Umsóknir skulu berast félagsmálaráðuneyti
fyrir 1. september nk.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í félags-
málaráðuneyti.
Félagsmálaráðuneytið 20. ágúst 1993.
Starfshópur um atvinnumál kvenna.
303 fm á jarðhæð til leigu við Hafnarstræti
7, Reykjavík. Símalagnir, tölvulagnir, loft-
ræstib., vandaðar innréttingar. Laust strax.
Húsnæðinu mætti skipta í tvo hluta.
Áhugasamir sendi fyrirspurnir til auglýsinga-
deildar Mbl. merktar: „G - 5588“.
UTIVIST
Hallveigarstig 1 • simi 614330
Kvöldferð fimmtud. 26. ágúst
Ævintýraferð með feróanefnd-
inni.
Dagsferðir sunnud. 29. ágúst
Kl. 08.00 Básar í Þórsmörk.
2. áfangi Þingvallagöngunnar kl.
10.30 Mosfellsheiði - Seljadals-
leið.
Kl. 13.00 Mosfellsheiði -
Bringnaleið.
Brottför í ferðirnar frá BSf, bens-
ínsölu, miðar við rútu. Frítt fyrir
börn 15 ára og yngri í fylgd með
fullorðnum.
Helgarferöir 27.-29. ágúst
27.- 29. Pysjuferð til Vest-
mannaeyja. Siglt til Eyja á föstu-
dagskvöldi. Gengið verður um
eyjuna og pysjum hjálpað i sjó-
inn, þá er möguleiki að spranga.
27.- 29. Básar í Þórsmörk.
Gist í tjaldi eða skála. Eldhús,
grill, heitar sturtur. Gönguferðir.
Nánari upplýsingar veittar á
skrifstofu Utlvistar.
Ársrit Útivistar 1993 er komið út.
Útivist.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
Síðustu dagferðirnar til Þórs-
merkur í sumar verða þessa
daga:
Miðvikudaginn 25. ágúst,
sunnudaginn 29. ágúst og mið-
vikudaginn 1. sept. Brottför í
ferðirnar er kl. 08. og verð kr.
2.500. Ath. hagstætt verð á dvöl
milli ferða.
( Skagfjörðsskála/Langadal er
allt sem þarf til þess að vel fari
um gesti. Gönguferðir í óviðjafn-
anlegu umhverfi auka á ánægju
gesta á vegum Ferðafélagsins í
Þórsmörk.
Helgarferðir 27.- 29. ágúst:
1) Ovissuferð. Ferðinni er heitið
á forvitnilegar slóöir í óbyggð-
um. Gist í svefnpokaplássi.
2) Þórsmörk. Gist í Skagfjörðs-
skála/Langadal.
Ferðafélag fslands.
4