Morgunblaðið - 24.08.1993, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993
4
Um fimm hundruð Islendingar sóttu mótið og fylgdu íslenzku keppendunum fast eftir.
Heimsmeistaramótið í Spaarnwoude í Hollandi
Islendíngar höfðu Þjóðverja
undír í baráttunni um gullin
Fern gullverðlaun og tvenn silfur þegar liðið náði besta árangri sem náðst hefur
Hestar
Valdimar Kristinsson
Fern gull og tvenn silfur var
uppskera íslendinga á heims-
meistaramótinu í Spaarnwoude í
Hollandi. Er þetta tvímælalaust
besti heildarárangur okkar
manna frá upphafi og tókst nú
að leggja helstu keppinautana
Þjóðverja að velli, en þeir hlutu
þijú gull og eitt silfur. Sigur-
björn Bárðarson sem keppti á
Höfða frá Húsavík vann þrenn
gullverðlaun, í fimmgangi, gæð-
ingaskeiði og varð stigahæstur
keppenda. Hinrik Bragason vann
svo gullið í 250 metra skeiði. Þá
var árangur kynbótahrossanna
vel viðunandi, tvenn gull af fjór-
um mögulegum.
Allt gekk upp
Frammistaða íslenska liðsins var
hreint út sagt frábær og langt fram
yfir það sem vænst var. Þar kemur
tvennt til, í fyrsta lagi voru allir
hestarnir í góðri uppsveiflu og knap-
amir í góðu jafnvægi og í öðru lagi
voru sumir keppinautanna ekki eins
sterkir og búist hafði verið við. Allar
áætlanir íslendinga gengu vel upp
frá byijun til enda og mikil stemmn-
ing ríkti meðal íslendinga á móts-
staðnum en þeir voru á að giska
fimmhundruð. Sigurbjöm sigldi af
miklu öryggi í gegnum allar greinar
þótt ýmsir teldu,að Höfði hefði sést
betri í fimmgangi. Þá fór Sigurbjörn
með hann í fyrsta skipti í 250 metra
skeiðið en það hafði hann aldrei gert
áður. Sagðist Sigurbjörn ekki einu
sinni hafa lagt hann á móti öðmm
hesti í ftjálsri reið. í fyrri umferðinni
náðu þeir 23,4 sek. en eftir for-
keppni í fimmgangi var ljóst að hann
yrði að gera betur í seinni umferð-
inni. Þá skeiðaði Höfði á 23,03 sek.
og ljóst að sigur í stigakeppninni var
í höfn. Sigurinn í gæðingaskeiðinu
var pottþéttur eins og búist hafði
verið við en það var raunar eina
greinin þar sem reiknað var með
öruggum sigri.
Sigurður V. Matthíasson á Þráni, númer fimm í Atli Guðmundsson á Reyni frá Hólum, þriðja sæt-
fjórgangi. ið í fimmgangi.
Einar Öder Magnússon á Funa frá
Skálá sýndi mikið harðfylgi í töltinu
er hann vann sig upp í annað sæti
í úrslitum þótt ekki ætti hann mögu-
leika á að sigra Jolly Schrenk á hin-
um stórbrotna Ófeigi sem enginn
veit hvaðan er. Það ríkti nokkur eftir-
vænting um hver yrði árangur Ein-
ars í fimmgangi því Funi hefur á
stundum verið fjórtaktaður á skeið-
inu. í forkeppninni gáfu þýsku dóm-
ararnir honum, líklega réttilega, 0
fyrir skeið. í úrslitunum voru þeir
enn við sama heygarðshornið og
töldu margir að þar hafi klárinn
Baldvin A. Guðlaugsson á Nökkva, númer fimm
í tölti
Reynir Aðalsteinsson á Skúmi, númer þijú í slak-
taumatölti.
skeiðað og átt að fá einkunn. Þetta
var erfiður dagur hjá þeim Einari
og Funa því strax að loknum fimm-
gangsúrslitum beið þeirra þátttaka í
töltúrslitunum. Funi stóðst raunina
þótt sjá hefði mátt þreytumerki á
honum í lokin. Þá var dagurinn ekki
síður erfiður Reyni Aðalsteinssyni
og Skúmi frá Geirshlíð. Þeir tóku
þátt í B-úrslitum í fimmgangi um
morguninn sem þeir unnu í sem aft-
ur þýddi að þeir þurftu að mæta í A
-úrslitin síðar um daginn. Daginn
áður höfðu þeir unnið i B-úrslitum í
tölti T-2 og voru því með í A-úrslitum
þar á sunnudeginum. Þá bjó Skúmur
vel að öllum fjallaferðunum sem hann
hefur farið í á undanfömum árum.
Vann Reynir sig upp í annað sæti í
fimmgangi og þriðja sæti í tölti í
T-2. Virtist Skúmur stöðugt bæta
sig mótið út í gegn.
Sigurbj örn gaf þriðja sætið I
í skeiðinu
Hinrik Bragason keppti í 250
metra skeiði og gæðingaskeiði. Fyr-
irfram var reiknað með að hann
ætti góða möguleika í 250 metrunum
og tryggði hann sér sigurinn í öðrum
spretti eftir að hafa misst Eitil upp
í fyrsta spretti. Vera Reber, Þýska-
landi, varð önnur á hinum tvítuga
Frosta frá Fáskrúðarbakka og fyrr-
um heimsmeistari í greininni, Ulf
Lindgren, Svíþjóð, á Hrafnkatli,
þriðji. Var þetta nánast eftir bókinni
en í raun átti Sigurbjörn þriðja sæti
ef reglunum hefði verið fylgt. Þar
segir að aðeins skuli nota einn auka-
staf aftan við kommu en Hrafnketill
var á 22,97 sek. og var því hækkað-
ur upp í 23 sek. en Höfði var á 23,03
og lækkaður niður í 23 sek. og þar
sem hann hafði betri næstbesta tíma
bar honum sætið. Sigurbjöm sagðist
hinsvegar ekki geta tekið við verð-
launum vitandi að Ulf og Hrafnket-
ill væru í raun með betri tíma og
eftirlét honum því verðlaunin. Sann- j
ur íþróttamaður Sigurbjörn. j
Atli Guðmundsson á Reyni frá
Hólum varð þriðji í fímmgangi og
er það í góðu samræmi við vænting-
arnar. Hann hefði allt eins getað
verið í efsta sætinu, kannski verið
spurning um dagsformið.
Knapamir á fjórgangshestunum,
þeir Baldvin Ari Guðlaugsson á
Nökkva frá Þverá og Sigurður Matt-
híasson á Þráni frá Gunnarsholti,
gerðu betur en þeim hafði verið ætl- •
að. Í sannleika sagt var ekki búist,
við neinum sérstökum árangri en
báðir komust þeir í A-úrslit í fjór-
gangi og Baldvin komst einnig í
A-úrslit en Sigurður var þar í B-
úrslitum. Sigurður, sem var eini nýl-
iðinn, stóðst fmmraun sína á heims-
meistaramóti með mikilli prýði og
greinilegt að þar er taugakerfíð í
góðu lagi.
Tölthomið í járngreipum
Þjóðverja
Þjóðveijar komu ekki eins sterkir
frá þessu móti eins og því síðasta. L
Nú sem fyrr bára þeir höfuð og herð- ^
ar yfír aðrar þjóðir í fjórgangi og
tölti en helst voru það íslendingar
sem veittu þeim einhverja keppni auk r
Maaike Burggrafer hinnar hollensku I
sem er mörgum íslendingnum að r
góðu kunn. Vann hún sig upp úr I
B-úrslitum í báðum greinum í þriðja \
sæti og var hún að vonum vinsæl 1
meðal mótsgesta. Enn einu sinni í
vinna Þjóðveijar tölthornið eftirsótta \
og var ekki að sjá að þeir ættu í c
neinum vandræðum með það. Norð- i
urlandaþjóðimar komu ekki sérlega e
vel út úr mótinu, Svíarnir heldur lak- I
ari en síðast en þó með menn í verð- {
launasætum í fjóram greinum og s
stigakeppninni. Danir komust aðeins c
á pall í hlýðnikeppninni og Norðmenn s
voru alveg út úr kortinu nema í kyn- t
bótasýningunni. Finnar virðast held- \
ur vera að sækja í sig veðrið. Þijár
þjóðir bættust nú í hóp þáttökuþjóða, I
Færeyingar og Lúxemborgarar voru I
með einn keppanda og Slóvenar, sem <
kepptu sem gestir, voru með tvo \
keppendur. I
Meiningarmunur milli |
kynbótadómara
I kynbótasýningunni stóðu tvö af <
kynbótahrossunum frá íslandi efst.
Léttir frá Grandarfírði varð efstur '
stóðhesta 5 og 6 vetra með 7,88 '
fyrir byggingu og 8,22 fyrir hæfi-
leika og 8,08 í aðaleinkunn. Næstur I
kom Ringo frá Ringerik í Noregi 1