Morgunblaðið - 24.08.1993, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993
Sigurður Ölafsson
lyfsali - Minning
Mjög varð mér hverft við, er ég
fregnaði lát vinar míns, Sigurðar
Ólafssonar, fyrrverandi lyfsala í
Reykjavíkur Apóteki. Ekki þó svo
að skilja, að lát hans kæmi mér
algerlega í opna skjöldu, þar sem
mér var vel kunnugt um að Sigurð-
ur hafði um nokkurn tíma legið
mjög sjúkur á hjartadeild Landspít-
alans.
Sigurður var fæddur á Brimils-
völlum_ á Snæfellsnesi, sonur hjón-
anna Ólafs Bjamasonar bónda þar
og konu hans Kristólínu Kristjáns-
dóttur. Rek ég ekki ættir Sigurðar
hér. Aðrir mér færari munu án efa
gera það.
Kynni okkar Sigurðar hófust er
hann var við nám við Menntaskól-
ann í Reykjavík, en stúdent varð
hann þaðan árið 1936. Höfðum við
því þekkst í um 60 ára skeið. Þessi
fyrstu kynni áttu síðan eftir að þró-
ast í sanna og mikla vináttu er árin
liðu, enda áttu leiðir okkar eftir að
skarast mjög, þar sem svo vildi til,
að við að stúdentsprófum loknum
völdum okkur báðir sömu náms-
braut til framhaldsmenntunar —
lyijafræðina.
Sigurður lauk fyrrihlutaprófí í
lyijafræði (examinatus pharmaciae
prófí) frá Lyíjafræðingaskóla ís-
lands haustið 1941.
Til þess að geta lokið fullnaðar-
prófí í lyijafræði — kandídatsprófí
— þurfti á þeim árum að fara utan
til frekara náms. Var venjan að
menn legðu leið sína til Danmerkur
þeirra erinda, en vegna síðari
heimsstyrjaldarinnar, er þá geisaði,
voru öll sund lokuð til framhalds-
náms í Evrópu.
Þar eð allt var í óvissu um það
hversu styijöldin gæti dregist á
langinn, varð það að ráði að stjóm
Lyfjafræðingaskóla íslands leitaði
fyrir sér um skóla í Bandaríkjunum,
er gæti tekið við stúdentum þeim,
er hér höfðu lokið fyrrihlutaprófi í
lyfjafræði og fullnumið þá til kandí-
datsprófs.
Að mjög vel athuguðu máli varð
fyrir valinu elsti og virtasti lyfja-
fræðingaskóli í Bandaríkjunum,
Philadelphia College of Pharmacy
and Science, stofnaður 1821.
Það var ekki mjög algengt að
menn færu til framhaldsnáms til
Bandaríkjanna á þessum árum. En
árið 1942 fór Sigurður (ásamt 3
öðrum) til framhaldsnáms í lyfja-
fræði í fyrmefndan skóla.
Skólahald í Bandaríkjunum var
á þessum ámm með nokkuð öðru
sniði en nú tíðkast, en þá var kennt
viðstöðulaust alla mánuði ársins —
án nokkurra frídaga milli anna.
Lauk Sigurður fullnaðarprófí frá
áðumefndum skóla í lyfjafræði
(B.Sc.-prófí) haustið 1943 með
miklum ágætum.
Sá er þetta ritar átti því láni að
fagna að bætast í ársbyijun í þenn-
an hóp frumheija er nokkm áður
höfðu hafíð nám við nefndan lyfja-
fræðiskóla.
Bjuggum við Sigurður í sama
húsi ásamt fjölmörgum öðmm lyfja-
fræðistúdentum, bæði þarlendum
og erlendum, á nokkurs konar
bræðralagsheimili, svonefndu USP
House eða United States
Pharmacopoeia Fratemity.
Þarna áttum við Sigurður eðli-
lega eftir að kynnast enn nánar en
áður. Bundumst við þama góðum
og innilegum vináttuböndum er
héldust snurðulaust til æviloka.
Enda var ekki erfítt að vingast við
Sigurð sem var einstakt ljúfmenni,
þægilegur í viðmóti og allri um-
gengni, hjálplegur og góður dreng-
ur og traustur í hvívetna.
Ekki get ég látið hjá líða að minn-
ast á það, að í húsi þessu, þar sem
stúdentar frá flestum heimsins
hornum vom saman komnir, var
mjög til siðs að taka í spil sér til
afþreyingar. Tókum við Sigurður
fljótlega mjög virkan þátt í þessari
„íþrótt". Er skemmst frá því að
segja, að þessari iðju var framhald-
ið, er heim var komið til íslands
að námi loknu er við Sigurður stofn-
uðum spilaklúbb ásamt nokkrum
öðmm lyfjafræðingum — sem við
höfum rækt allar götur síðan eða
í um hálfa öld. Hygg ég að þetta
sé með einum af elstu spilaklúbbum
landsins. Má nærri geta að við Sig-
urður bundumst traustum vináttu-
böndum þótt ekki væri nema bara
vegna þessa tómstundagamans
okkar.
M.a. vegna þess er að ofan getur
em þær því orðnar nær óteljandi
ánægjustundimar er ég hef notið á
heimili Sigurðar og hans yndislegu
konu, Obbu (Þorbjörgu). Þar var
ávallt þennan hlýja heimilisbrag og
miklu gestrisni að fínna, enda Obba
einstaklega myndarleg húsmóðir og
heimili þeirra notalegt. Vil ég með
línum þessum þakka fyrir allar þær
ánægjustundir er ég hef notið á
heimili þeirra hjóna undanfarna
áratugi.
Fyrir utan tómstundagaman okk-
ar Sigurðar er áður greinir áttum
við margs konar önnur ánægjuleg
samskipti. Sátum t.d. mörg ár sam-
an í lyfjaverðlagsnefnd og í stjórn-
um stéttarfélags okkar, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Sigurður var félagslyndur maður
í besta lagi og gat því ekki hjá því
farið að á hann hlæðust ýmis trún-
aðarstörf um dagana. Ytði of langt
mál að tíunda þau störf öll. Þó skal
þess getið, að hann var um skeið
formaður Lyfjafræðingafélags Ís-
lands og Apótekarafélags íslands.
Um margra ára skeið í stjóm ís-
lensk-ameríska félagsins og Rót-
aryklúbbs Reykjavíkur og forseti
þess félagsskapar 1981-1982. í
stjóm Lífeyrissjóðs apótekara og
lyfjafræðinga 1955-1961, formað-
ur lyfjaskrámefndar 1963-1976 og
í skólanefnd Lyfjafræðingaskóla
íslands 1953-1957.
Að loknu námi í Bandaríkjunum
starfaði Sigurður sem yfírlyfjafræð-
ingur í Reykjavíkur Apóteki uns
hann varð þar lyfsali frá 1. júlí
1962 og stjómaði hann því fyrir-
tæki þar til hann lét af störfum
fyrir aldurs sakir, 75 ára gamall.
Með þessum fátæklegu minning-
arorðum um Sigurð vin minn sendi
ég Obbu, konu hans, sonunum Ólafí
og Jóni og fjölskyldum þeirra og
öðmm ættingjum mínar innilegustu
samúðarkveðjur. _
ívar Daníelsson.
Láti ég hugann reika aftur í tím-
ann, þótt ekki sé nema um fárra
ára bil, fínnst mér orðið talsvert
stórt skarð það, er hinn slyngi
sláttumaður hefir höggvið í hóp
kunningja, vina og vandamanna.
Að þessu sinni var það Sigurður
Ólafsson, lyijafræðingur og lyfsali.
Ég hefí eiginlega þekkt Sigurð
nánast frá því ég man eftir mér.
Báðir vomm við vesturbæingar og
þar að auki stutt á milli heimila
okkar. Frá fyrstu ámnum er mér
minnisstæðast þegar hann fór á
kostum á „herrakvöldi" mennta-
skólans, en svo nefndust leiksýning-
ar, sem nemendur stóðu fyrir og
standa enn.
Síst bauð mér þá í gmn, að þessi
ógleymanlega kvöldstund væri eins-
konar forleikur að ótal leiftrandi
samverustundum síðar, um hálfrar
aldar skeið. Sigurður geystist að
vísu ekki lengur um uppi á fjölunum
og ég mændi ekki upp til hans,
aðgerðarlaus niðri í áhorfendasaln-
um, heldur var komið það jafnræði
með okkur, að báðir lögðum við af
mörkum auk þeirra mörgu merku
félaga okkar, sem ekki síður hafa
komið þar við sögu.
En eftir sem áður hélt ég áfram
að líta upp til Sigurðar, fyrst og
fremst vegna þess hversu vel hon-
um lét að lifa lífínu. Kom þar til
jákvætt viðhorf hans til manna og
málefna auk þeirra kosta, sem hann
hafði sýnt á herrakvöldinu forðum
daga, glaðværðar, bjartsýni og
traustvekjandi framkomu. Ög ekki
dáðist ég síður að leikni hans í tóm-
stundagamni okkar félaganna,
enda fór hann einnig þar æði oft
með sigur af hólmi. Við félagarnir
reyndum að hugga okkur með því
að hann væri bara svo dæmalaust
heppinn, enda þótt ljóst væri að
fyrirhyggja hans og hugkvæmni
skipti þar sköpum. Hitt skaðaði
ekki, þegar heppnin kom og kórón-
aði verkið, en hún virðist oft sækja
þangað, sem koma hennar er best
undirbúin.
í h'fínu sjálfu fannst mér Sigurð-
ur einnig vera heppnismaður. Ung-
ur valdi hann sér það lífsstarf, sem
hann auðsjáanlega hafði unun af
að rækja og svo vel tókst honum
til, að lyfsali sá, sem hann starfaði
hjá, kaus hann sem eftirmann sinn.
Segir það sína sögu. Nokkru eftir
að Sigurður varð lyfsali, áttum við
tal um skæða inflúensu, sem þá var
að stinga sér niður. Já, inflúensa,
sagði hann, ég hefi ágæt lyf við
henni, sem þú getur tekið og orðið
góður eftir viku, en þú getur líka
hrist hana af þér án lyija — það
tekur einnig viku. Auðvitað fylgdi
ég þessu ráði hans sem öðrum í
lyfjamálum, en hitt þótti mér meir
um vert að hann var auðsjáanlega
blessunarlega laus við að hafa
áhuga á að nota lyfsöluleyfið til
þess að raka saman fé.
í einkalífi lék lánið einnig við
Sigurð. Hann eignaðist öndvegis
konu og mannvænleg börn og er
það ekki mikilvægasta lífslánið,
þegar alls er gætt.
Síðustu árin átti Sigurður við
nokkur veikindi að stríða, en þau
bar hann svo æðrulaust, að við von-
uðum að hann væri að sigrast á
þeim og að þegar hann var sestur
í helgan stein og meira að segja
orðinn vesturbæingur á ný, þá væri
framundan friðsælt og ánægjulegt
ævikvöld.
Sigurður hafði alla tíð yndi af
ferðalögum og fór víða, bæði innan-
lands og utan. Þegar hann nú hefír
hafíð ferð sína yfir móðuna miklu,
biðjum við hjónin honum fararheilla
um ókomna stigu. Horfínn er
traustur vinur og drengur góður.
Eftir sitja minningarnar, sem seint
munu hverfa úr huga.
Jón Bjarnason.
Það fylgdi honum ferskur og
heillandi blær. Þegar hann kom inn
úr dyrunum lifnaði yfír mannskapn-
um og umræður urðu fjörugri.
Glettni og gamansemi voru sér-
kenni Sigurðar allt fram á síðustu
stund og þó sambandið við umheim-
inn væri honum erfítt síðustu dag-
ana tókst honum að gera að gamni
sínu við barnabömin svo fundir
þeirra yrðu bömunum ekki of þung-
ir. Hjartahlýjan á bak við glettnina
leyndi sér ekki.
Sigurður fæddist að Brimilsvöll-
um á Snæfellsnesi, sonur hjónanna
Ólafs Bjarnasonar, bónda og hrepp-
stjóra, og Kristólínu Kristjánsdótt-
ur, konu hans. Systkinin voru sjö
talsins. Fjögur þeirra em á lífí, þau
Björg, Rögnvaldur, Bjami og Hlíf.
Látin eru Hrefna og Kristján, sem
dóu ung, og nú Sigurður. Ekki kann
ég að rekja ættir þeirra, en veit að
þeim stóðu fjölhæfír og listrænir
stofnar. Á stórbýlinu Brimilsvöllum
t
Faðir okkar,
séra ÞÓRARINN ÞÓR
fyrrverandi prófastur
á Patreksfirði,
lést í Landsspítalanum 21. ágúst.
Margrét Þór,
Jónas Þór,
Viihelmfna Þór.
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birt-
ingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðs-
ins Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins i Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar
eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er
50 ára eða eldra.
Islenskur efniviður
íslenskar steintegundir henta margar
afar vel í legsteina og hverskonar
minnismerki. Eigum jafrian til fyrir-
liggjandi margskonar íslenskt efni:
Grástein, Blágrýti, Líparít og Gabbró,
Áralöng reynsla.
Leitið
upplýsinga.
.
if
SS. HELGASON HF
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48 • SÍMI 91-76677
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐBJÖRG HERMANNSDÓTTIR,
lést sunnudaginn 22. ágúst í Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði.
Jarðarförin ákveðin síðar.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Elskulegur sonur okkar,
RAGNAR ÓLAFSSON,
lést sunnudaginn 22. ágúst.
Ólafur R. Karlsson,
Hrefna Einarsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MARGRÉT KRISTJÁNSDÓTTIR,
áðurtil heimilis
á Miklubraut 7,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 26. ágúst
kl. 13.30.
Gunnar Kr. Gunnarsson, Rúna Marsveinsdóttir,
Hannes Gunnarsson, Björgvina Magnúsdóttir,
Kristrún Gunnarsdóttir, Egill Ingólfsson,
og barnabörn.
+
innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar
og afa,
EYSTEINS JÓNSSONAR
fyrrverandi ráðherra,
Miðleiti 7.
-Sólveig Eyjóifsdóttir,
Sigríður Eysteinsdóttir, Jón Kristinsson,
Eyjólfur Eysteinsson, Þorbjörg Pálsdóttir,
Jón Eysteinsson, Magnúsina Guðmundsdóttir,
Þorbergur Eysteinsson, Anna Margrét Marísdóttir,
Ólöf Steinunn Eysteinsdóttir, Tómas Helgason,
Finnur Eysteinsson
og fjölskyldur.